Morgunblaðið - 07.11.1965, Page 1
3 2 síð>wiF o»g lesboll
Sukarno tekur komm
únista til bæna
Djakarta og Kuala Lumpur,
6. nóv. — NTB—AP.
SUKARNO Indónesíuforset sagði
í dag, að „viðeigandi“ ráðstaf-
anir yrðu gerðar gegn Kommún-
istaflokki Indónesíu. Forsetinn
hefur ekki áður tekið kommún.-
ista opinberlega til bæna, og
viljað halda í við þá sem ganga
ætluðu milli bolls og höfuðs á
þeim.
Forsetinn kvaðst skilja „hefnd
arhug“ manna gegn þeim, sem
stóðu að byltingartilrauninni 30.
sept. s.l., en varaði menn við því
að sérhagsmunaflokkar undir-
róðursklíkur og heimsveldissinn-
ar notfaerðu sér þetta hugar-
ástand landsmanna. Sagði Su-
karno, að þessi öfl hefðu það
að marki að „brjóta Indónesíu
á bak aftur" og koma hægri
sinnum þar til valda, og taldi þá
hættulegri en byltingartilraun-
ina nýafstöðnu.
Indónesíustjórn hefur iagt
bann við ferðum erlendra sendi-
manna út fyrir endimörk höfuð-
borgarinnar fyrst um sinn vegna
stjórnmálaástandsins í landinu.
Sovézki kommúnistaflokkurinn
lýsti i dag áhyggjum sínum
vegna ofsóknanna á hendur
kommúnistum í Indónesíu, sem
herinn stendur einkum fvrir. —
Kommúnistaflokkar Kína og
ítaliu hafa einnig tekið unlir
gagnrýnina á stjórnmálaástanúið
í Indónesíu. Kommúnistaflokkur
inn þar var fjölmennasti og bezt
skipulagði stjórnmálafiokkur
iandsins. Hann studdi Kína í hug
myndafræðideilum sovézkra og
kínverskra kommúnista.
Vopnahlé á Kýpu
m§
en ólga undir niðri
í>ama sést hvar bandarísk orrustuþota af gerffinni F-8E steypist í sjó niffur yfir Kínahafi, en
fJugmaffurinn svífur til jarðar í faiihiíf. Fallhlifinni er fest við sæti hans, sem skotið er sjálf-
feraí'a út úr vélinni er hún hrap ar.
New York, Ankara og Nikósíu,
6. r.óvember, NTB, AP.
U THANT aðalritari S. þ. sagði
í gærkvöldi, að báðir aðilar að
Kýpurdeilunni hefðu tilkynnt sér
áð komið hefði verið á vopnahléi
við borgarmúrana í hafnarbæn-
um Famagusta, þar sem átök
blossuðu upp í gær og urðu að
bana tveimur mönnum tyrk-
Ródesíustjórn hafnar till. Wilsons
um oð nefnd skipuð fuflirúum
samveldislandanna reyni oð
sjálfstæðismálsins
Saiisbury, Bódesiu, 6. nóv.
— AP—NTB.
RÓDESÍUSTJÓRN hafnaði í dag
eiðustu tillögu Wilsons forsætis-
ráðherra Breta um að skipuð
yrði nefnd fulllrúr samveldis-
landanna til þess að reyna að
finna einhverja lausn á sjálf-
stæðismálum landsins.
í bréfi því er Ian Smith, for-
sætisráðherra Ródesíu, reit
Wilson, segir hann að vonir þær,
sem menn hafi gert séf um að
reynt yrði með öllum ráðum að
finna lausn á vandamálum
Ródesíu séu nú orðnar að engu
og svo virðist sem Wilson hafi
nú lokað að baki sér dyrum þeim
er hann hafi þótzt opna með ferð
sinni suður til Salisbury nýverið.
bessi tilvitnun Smiths í lokað-
ar dyrnar og yfirlýsing Ródesíu-
stjórnar í gær um neyðarástand
í landinu, ýtti mjög undir þann
grun manna, að Smith og stjórn
hans myndu vera að undirbúa
einhliða sjálfstæðisyfirlýsingu
landsins, en eins og kunnugt er,
vilja Bretar ekki veita Ródesíu
sjálfstæði fyrr en tryggður sé
Óeirðir í Tókíó
vegna sáftmálans við S-Koreu
Tókio, 6. nóvember, AP.
TIL mikilia óeirða kom í dag í
Tókíó er 10.000 manns söfnuðust
saman fyrir utan þinghúsið, til
þess að mótmæla samþykkt frið-
arsáttmála Japans og Suður-
Kóreu. Átta þúsund lögreglu-
menn með stálhjálma á höfði
vörðu bygginguna. Sjö þeirra
liggja nú á sjúkrahúsi ög tíu af
óeirðarseggjum, sem flestir eru
stúdentar. Enginn er sagður
hættulega særður. Um fjörutíu
stúdentar voru teknir höndum.
réttur hinna 3.800.000- blökku-
manna í iandinu til stjórnmála-
þátttöku. Hvítir menn í Ródesíu,
sem eru 225.000 hafa í hendi sér
öil ráð um stjórnmál og efna-
hagsmál í landinu.
Allsherjarþing S.þ. samþykkti
í gærkvöldi ályktun þess efnis að
komið skyldi í veg fyrir einhliða
sjálfstæðisyfirlýsingu Ródesíu
með öllum tiltækum ráðum, jafn
vel vopnavaldi ef með þyrfti.
Wilson forsætisráðherra var
í Wales er bréf Smiths barst til
London í morgun, en flugvél bíð-
ur forsætisráðherrans á flugvelli
þar nærri að flytja hann aftur til
höfuðborgarinnar hvenær sem
þörf er talin á nætveru hans þar
og eins hefur Heath, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar, gert nauð-
synlegar ráðstafanir til þess að
komast aftur til London í skyndi.
í Salisbury er að því látið
liggja, að engin von sé nú til þess
að samningar takist um sjálf-
stæðismál Ródesíu nema því að-
eins að Wilson forsætisráðherra
hafi einhverjar nýjar tillögur
fram að færa.
neskrar ættar á eynni en særðu
tíu menn aðra. Friðargæzlulið
S.þ. á eynni segir vopnahléið
haldið að mestu, en fréttir berast
um smávegis skothríð í bænum
og sagt er að ólga sé víða annars
staðar þar sem áður hafa verið
úfar með Tyrkjum og Grikkjum
á eynni.
Öryggisráðið kom saman til
fundar í gær a‘ð ræða Kýpúrmál-
ið og var það að beiðni Tyrkja,
sem telja málið nú aftur komið
á alvarlegt stig og segja Kýpur-
Grikki ögra hinum tyrkneska
minmhluta á eynni. Fyrr var frá
því skýrt í Ankara, að tyrkneska
stjórnin hefði gert her landsins
or'ð að vera við öllu búinn. Ekki
hefur verið boðaður annar fund-
ur í Öryggisráðinu, en sagt að
beðið verði átekta um fram-
vindu málsins.
Kosiö í Kanada
Á morgun, mánudag, fara
fram þingkosningar í
Kanada. Segir í NTB — frétt
á laugardag, aff leifftogar
helztu flokkanna, þeir Lester
B. Pearson. forsætisráffherra
og leifftogi Frjálslynda flokks
ins, og John Diefenbaker,
leiðtogi íhaldsflokksins muni
báffir gera harffa lokasókn
nú um helgina og hvorugur
hinum hlífa.
Fréttamaður AP skrifar frá
Ottawa, að allt bendi hins-
vegar til þess, að Frjálslyndi
flokkurinn muni fara með
sigur af hólmi. Mikil eftir-
vænting hefur ríkt um það,
hvernig úrslitum verði hátt-
að í Quebec, þar sem fransk-
ættaðir menn eru í meiri-
hluta og hafa haft uppi há-
værar kröfur um, að ríkið
segi sig úr lögum við Kan-
ada. Segir AP, að Pearson
virðist eiga þar miklu meira
fylgi að fagna en Diefenbak-
er enda þótt sá síðarnefndi
hafi lagt allt kapp á að vinna
fylgi hinna franskættuðu.
Margir helztu stjórnmálasér-
fræðingar spái því, að Pear-
Lester Pearson
son muni að minnsta kosti
vegna jafn vel og í kosning-
unum 1863, þegar Frjálslynd-
ir náðu 48 af 75 þingsætum
Quebec í Neðri málstofunni,
og sumir telja jafnvel, að
hann muni ná í nokkur þing
sæti frá flokki Raoul Caouett-
es sem hefur nú þrettán
menn í Neðri málstofunni.
Leiðtogar íhaldsflokksins
Framh. á bls. 31