Morgunblaðið - 07.11.1965, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.11.1965, Blaðsíða 2
2 MORGUHBLAÐI3 Sunnudagur 7. nóv. 1965 Einar Ingimundarson bœjarfógeti í Hafnarfiroi og sýslumaður i Gullbringu- og Kjósarsýslu Segir af sér Jbingmennsku i Norðurlandskjördæmi vestra f GÆR barst Morgunblaðina svohljóðandi fréttatilkynning frá dóms- og kirkjumálaráðuneyt- ínu: „Forseti íslands hefur í dag samkvæmt tillögu dómsmálaráð- herra veitt Einari Ingimundar- syni, bæjarfógeta á Siglufirði, bæjarfógetaembættið ' í Hafnar- íirði og sýslumannsembættið í Gullbringu- og Kjósarsýslu, frá 1. janúar 1966 að telja.“ Mbl. hafði samband við Einar Ingimundarson í gær og átti við harui s.tutt viðtal. — Ég hef ákveðið að segja af mér þingmennsku, sagði Einar, og ekki siðar en um næstr. áramót. Hið nýja emibætti er svo veiga- mikið, að ég verð því algerlega háður. — Hvernig heíur yður líkað í Siglufirði? — Það er meira en óhætt að segja, að mér hefur líkað þar mjög vel. Mér þykir mjög vænt um staðinn og fólkið, sem býr Knifisala hirkju- nefndar Dóm- kirkjunnar í Tjarnarbúð HIN árlega kaffisala kirkju- nefndar Dómkirkjunnar er í dag, sunnudag, í Tjarnarbúð (Odd- fei'Iow-húsinu). Með kaffi- og kökusölu afla konurnar í kirkjunefnd fjár, sem notað er til þess að prýða og fegra Dómkirkjuna. — Kaffi- salan í Tjarnarbúð hefst kl. hálf þrjú. Kópavogur B- AR Sjálfstæðlskvennafélags- i - fdu er kl. 3 í dag ; CJ — f- Btæðishúsinu í Kópavogi. — Kosið Framhald af bls. 1. segjast sannfærðir um, að þeir fái að minnsta kósti 25 þingsæti nú í Quebec, en þeir hafa nú aðeins sjö. Stjórn- málafréttaritarar vilja ekki skrifa undir þessa bjartsýni og telja yfirleitt ólíklegt, að hann bæti nokkru við sig, megi jafnvel þakka fyrir að halda því, sem hann hefur. Sigurhorfur Pearsons seg- ir fréttamaður AP, að bygg- ist einkum á tveimur ráð- . stöfunum stjórnar hans, sem Diefenbaker og hans menn hafa mælt í mót. Annarsveg- ar þeirri ráðstöfun að skipa konunglega nefnd ,er fjalli ýtarlega um vandamál varð- andi tungumál og menningu þjóðarbrotanna og leiti leiða til þess að bæta samskipti þeirra. Og hinsvegar sú ráð- stöfun að skipta um fána fyr ir Kanada. Kosningar fóru síðast fram i Kanada 8. apríl 1963. Þá urðu úrslit þau, að Frjáls- lyndi flokkurinn fékk 129 þingsæti (hafði haft 100), í- haldsflokkurinn 95 (hafði haft 116) Social Credit flokk urinn — flokkur Caouettes — 24 þingsæti (hafði áður 30) og Nýji Demókrataflokk- urinn hlaut 17 þingsæti (en hafði áður 19), þar, og mun þykja það áfram, hvort sem ég á þar heima eða ekkL Siglfirðingar hafa reynzt mér ákaflega vel. — Hefur þetta ekki verið eril- samt starf? Einar Ingimundarson. — Nokkuð svo stundum, eink- um þegar mikið hefur borizt að af síld á sumrin. SiglufjörCur er mikill útflutningsstaður, en á síðustu árum hefur síldin horf- ið frá Norðurlandi, og hefur það r' Fram, Armann og Valnr sigrnðu ÞRÍR leikir fóru fram í mfl. karla í handknattleiksmeistara- móti Reykjavíkur á föstudag. Úrslit í leikjunum urðu þau að Valur vann Þrótt með 17 -14. Ár- mann vann ÍR með 9-5 og Fram- vann Víking með 16-10. Fram hefur forystu í mótinu með 6 stig eftir þrjá leiki. KR og Valur eru einnig taplaos, en hafa bæði leikið 2 leiki. haft mikil áhrif á afkomu bæjar félagsins og bæjarbúa, og þá á störf við embættið um leið. — Þér takið nú við umfangs- miklu embætti. — Já, þetta er eitt stærsta embætti á landinu fyrir utan embættin í Reykjavik. Mikið fjöl menni er í umdæminu, og byggð- in eykst stöðugt. Ég vil að lok- um taka það fram, að ég hef haft kynni af fólki víðs vegar í Norðurlandskjördæmi vestra og á ágætar minningar um þau kynni. Vona ég, að þau haldist, þó að ég bregði nú á þetta ráð. — ★ — Einar Ingimundarson er fædd- ur 29. maí 1917 í Kaldárholti í Holtum, sonur Ingimundar bónda þar Benediktssonar ráðsmarfns á Breiðabólsstað í Fljótshlíð Dið- rikssonar og konu hans, Ingveld- ar Einarsdóttur, bónda á Hæli í Gnúpverjahreppi Gestssonar. — Hann varð stúdent í Reykjavík árið 1938 og lögfræðingur 1944. Hann var fulltrúi hjá tollstjóran- um í Reykjavík og síðar hjá saka dómaranum í Reykjavík. Héraðs- dómslögmaður varð hann 1949. Bæjarfógeti á Siglufirði varð Einar 1952 og hefur gegnt því starfi síðan. Hann var þingmað- ur Siglfirðingá 1953—1956 og á sumarþinginu 1959. Þingmaður Norðurlandskjqrdæmis vestra hef ur hann verið frá árinu 1959. Hann er kvæntur Erlu Axels- dóttur, og eiga þau þrjú börn. Gert við vegi ú VesUjörðnm NÚ er unnið að viðgerðum á vegum vestra, eftir skemmdirn- ar miklu, sem urðu í sl. viku. Fært er orðið frá ísafjarðar- kaupstað til Hnífsdals, og þaðan er hægt að komast til BQlungar- víkur. Fært er frá ísafjarðar- kaupstað til flugvallarins. Veg- urinn milli Súgandafjarðar og Ísafjarðarkaupstaðar er fær jeppum, en í Dýrafirði er veg- urinn lokaður við Lambadalsá, þar sem áin rauf um 20 metra skarð í veginn. Vegurinn , um Breiðdalsheiði er ófær Önund- arfjarðarmegin. Þarna er komin gríska krónprinsessan Alexía á armi afa sáns, Friðriks Danakóngs og virðist kunna vel við sig í Kaupin- hafn, sem hún heimsækir nú í fyrsta sinn í fylgd með móðuir sinni, Önnu Mariu drottningu Grikkja og yngstu dóttur Friðrifc* kóngs. HGH ú Akranesi ÞREMENNINGANA Bjórgvin Sæmundsson, bæjarstjóra, Ólaf Hauk Árnason, gagnfræðaskóla- stjóra og Pál Gíslason, sjúkra- hússyfirlækni, hafa La ssam- tök Hcrferðar gegn kungri í heiminum valið til þess. að ann- ast söfnunina hér í bænum. — Oddur. Perusola Lionsklúbbsins ú Akranesi Akranesi, 6. név. HIN árlega perusala Lionsklúbbs Akraness fer fram mánudags- kvöldið 8. nóv. Llun: klú'-b- félagar ganga í húsin og bjóða ljósaperur til sölu. Öllum ágóða er varið til mannúðarmála. — Oddur. ABvörunarspjöld á bifreiöar gesta vínveitingahúsanna GESTIR vínveitingahúsanna- í höfuðstaðnum hafa margir hverjir rekið upp stór augu síðustu daga, er þeir hafa komið að bifreiðum sínum eft ir ánægjulegt kvöld við dans, skemmtun — og e.t.v. skál. Samstarfsnefnd bifreiða- tryggingaféiaganna og Um- ferðarnefnd Reykjavikur hafa að undanförnu dreift á bif- reiðastæði veitingahúsanna spjöldum, sem fest eru á bif- reiðarnar, með orðunum „Bakkus er ekki góður öku- maður“ og „Varið aðra við“. Spjöld þessi eru liður í til- raun áðurnefndra aðiia til þess að koma í veg fyrir .akst ur manna undir áhrifum áfeng is. Spjöldin eru í áberandi lit- um, rauð og svört, svo engin hætta er á, að þau fari frain hjá neinum. Blaðið hafði í gær sam- band við Pétur Sveinbjarnar- son fulltrúa Umferðarnefndar til þess að spyrjast nánar fyrir um þessi spjöld. Sagði Pétur, að dreifing spjaldanna hefði hafizt fyrir rúmri viku og væri þeim dreift á bíla- stæðum vinveitingahúsanna og í næsta nágrenni og væri þetta tilraun til þess að bæta einn þátfc umferðarmenningar borgarbúa. Kvaðst hann von- ast til þess að menn tækju þessari tilraun vel. Spjöldun- um yrði dreift út þennan mánuð, en þá yrði rannsakað, hvort þau hefðu borið ein- hvern árangur. Spassky með vinningSiikui í 3. skúkinni ÞRIÐJA e! . ígisskák þeir: j Tal og Spasský var tefld 1 'is á föstudagskvöld. Skákinni var<5 ekki lokið en Spasský miklar vinningslíku . Tal sem fyrir si.ákina h "a 1% vinning móti 14, hafði frum- kvæðið í þessari skál lengst af, En í 38. Ieik gerði hann skyssu, sem Spassky notfærði sér -til að viruna peð og vinningsstöðiu í bið skákinni. Spassky hafnaði mörguim jafn- teflisboðum frá Tal í þess 'i skák. Elísnbel ekkjn- drottning Belgo ú bntnvegi Brussel, 6. nóv., NTB. ELÍSABET ekLjudirobtning Belga, amma Baudoins konungs, er nú sögð á batavegí eftir hjarta slag er hún fékk á fimmfcuda.g. Er líðan hennar niú sörJð sæmi- íeg. Ekkjudrotfcningin er 89 ára gömuL Ætln nð sítjn til úttræðs París. 6. nóvember, NTB. CHARLES DeGaulle. Frakklands forséti, sem. nú er 73 ára gamall, lýsti því yfir á fimmtudag, svo sem kunnugt er, að hann myndi aftur gefa kost á sér í embætti við forsetakosningarnar sem fram fara í desemberbyrjun. Verður forsetinn þá við völd allfc til áttræðs, því kjörtímabil Frakk landsforseta er sjö ár. Enginn efi er á því talinn, að De Gaulle nái kosningu og er honum spáð a.m.k. 66% greiddra atkvæ'ða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.