Morgunblaðið - 28.11.1965, Síða 4
4
MORGU N BLAÐIÐ
r
Sunnudagur 28. nóv. 1965
RÆKTIIN OG GEYMSIA GARÐAVAXTA
Rætt við E. B. Malmqvist, for-
stöðumann garðávaxtamatsins
RÆKTUN garSávaxta hefur
aukizt mjög hér á landi á síðari
árum en oft heyrist svo undan
því kvartað, að varan sé ekki
boöleg, þegar hún kemur á mark
aðinn. Geta legið til þess ýmsar
orsakir eins og fram kemur í eft
irfarandi samtali, sem blaðið
áfti við Eðvald B. Malmquist,
forstöðumann garðávaxtamats-
ins.
— Hvenær tókst þú við for-
stöðu garðávaxtamatsins?
— Haustið 1962. En þá lét
landbúnaðarráðuneytið endur-
skoða og breyta að nokkru reglu
gerð um mat og flokkun kart-
aflna og grænmetis.
Okkur íslendingum hefur og
er margt betur gefið en vöru-
vöndun og raunvísindaleg þró-
un. — Sú framleiðsla, sem er þó
aðeins á innanlandsmarkaði, líð-
ur meira fyrir þennan ókost okk
ar, en afurðir þær, sem seldar
eru út úr landi, þar sem heims-
markaðskröfur koma til hvað
gæði og allan frágang vörunnar
snertir. — f>á verður framleiðsl
an að hljóta viðurkenningu
fleiri matsmanna erlendra, sem
innlendra á hinum ýmsu stig-
um viðskiptasambanda, áður en
hún er komin á disk neytand-
ans.
— Hvað er það þá helzt, sem
þú vilt leggja áherzlu á varð-
andi vöruvöndun kartaflna td.?
— í>að er m.a.:
Að vanda til ræktunar og út-
sæðis.
Að athugað verði áhrif áburð-
ar, tröllamjöls og snefilefna á
gæði og uppskerumagn.
Að verjast sjúkdómum í rækt
uninni m.a. með meiri um-
hirðu yfir sprettu- og upp-
skerutimann.
Að vinna að bættum vinnu-
brögðum við uppskerustörfin
og flokkun kartaflna.
Að vanda til geymslu garð-
ávaxta í smásöluverzlunum og
annarri dreifingu frá fram-
leiðanda til neytanda.
Einn þáttur til þess að fá
betri vöru á markaðinn og sam
ræma matið hefur verið að leið
beina bændum og öðrum fram-
leiðendum með rögun og flokk-
un á kartöflunum. f>á hafa enn-
fremur verið löggiltir um 34
matsmenn víðsvegar út um land,
til þess að meta og leiðbeina
með flokkun. En móttökuumboð
Grænmetisverzlunar landbúnað
arins, sem hefur einkarétt á
dreifingu og sölu á kartöflum
eru nú nær 70 talsins.
>á ber matsmönnum að gæta
þess eftir því sem unnt er, að
ekki séu á markaði eða í sölu-
búðum annað en metin og flokk
uð framleiðsla, sbr. 11. og 17. gr.
'N
Ekki of sterk...Ekki of létt...
ReykiO alíar helztu filter tegundirnar og þer muniU
iinna, aZTsumar eru of sterkar og bragffast eins og
•nginn filter se—aörar eru of lettar. þvf ailt bragð
sfast ur reyknum og eyðileggur anægju yöar—Ea
Viceroy, mrt sfmrni djúpofna-filter, gefur yCur
re'tta bragðiO.
Bragðið sem milljónir manna lofa-kemur frá
YICERÖYsize
© 1UOO BROWN U WiLUAMSON TOUACCO COIil'OHATIO.N LOOIBVlOlJBi. KliNTUCKY. OáLA.
E. B. Malmqvist.
fyrmefndrar reglugerðar, en
þar segir: ,,Verzlunum er óheim
ilt að selja kartöflur í öðrum
flokki en þeim, sem matsreglur
ákveða. Sé vafi á því, í hvaða
ílokki selja skuli kartöflur, skal
leita um það úrskurðar hlutað-
eigandi matsmanns, en selja þær
ella sem 1H flokks vöru. Allar
kartöflur sem seldar eru í smá-
söluverzlunum, skulu greinilega
auðkenndar með merkjum á um
búðum, svo að auðsætt sé, hvers
flokks þær eru, og einnig hver
hefur selt þær í heildsölu. Heiti
tegundar (afbrigði) skal til-
greint á kartöflum, sem metnar
hafa verið í 1. flokk.
Á tímabilinu frá því að upp-
skera hefst og þar til 20. sept.
ár hvert, er heimilt að selja
kartöflur, gulrófur og gulrætur
af nýrri uppskeru án mats eða
flokkunar, enda séu þær hrein-
ar, ógallaðar og ekki of smáar
að dómi matsmanna. Óski Græn
metisverzlun landbúnaðarins
hinsvegar eftir mati á þessu
tímabili, skal það framkvæmt
að fengnu samþykki Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins.
Matsmenn skulu hafa eftirlit
með því að kartöflur séu eigi
seldar ómetnar, og skal þeim
heimilt að skoða kartöflubirgðir
verzlana, þegar þurfa þykir.
Seljanda skal skylt að láta mats
mönnum í té upplýsingar og að-
stoð við skoðunina“.
Leitað hefur verið til verð-
lagsstjóra og fulltrúa hans um
samstarf um að gæta þess einn
ig að verzlanir gerðust ekki
brotlegar með því að hafa á boð
stólum ómetna og óflokkaða
vöru, enda mundi það í flestum
tilfellum heyra undir verðlags-
brot, sem gefur að skilja.
Þetta samstarf við verðlags-
eftirlitið hefur haft mjög mikla
þýðingu, ekki sízt á hinum af-
skekktari stöðum landsins. Það
hefur fremur orðið til þess að
skapa réttmætt aðhald og stuöla
að meiri vöruvöndun en ella.
1 sambandi við þetta al-
menna eftirlit, með dreifingu á
kartöflum og öðrum garðávöxt-
um hefur komið í ljós, að ein-
staka framleiðandi og kaupmað-
ur reynir að sniðganga afurða-
sölulögin og þær reglur, sem
bæði bændur og neytendur hafa
samþykkt, varðandi sölu og
dreiíingu framleiðslunnsir. En,
sem kunnugt er, er hér um mjög
varhugavert brot að ræða, ef
ekki tekst að stöðva þau pegar
í stað ekki aðeins vegna sölu á
framleiðslunni í heild, kannske
með undirboðum frá lögskráðu
afurðaverði. heldur einnig brot
á skattalöggjöfinni, búnaðar-
málasjóðslagum og fleiri reglu
gerðarákvæðum, ef til kemur.
Málaferli hafa ekki enn orðið
út af brotum á nefndum reglu
gerðar- og lagaákvæðum, en
hinsvegar munu skattayfirvöld
hafa áætlað viðkomandi aðilum
opinber gjöld og þá miklu hærri
í nokkrum tilfellum, ef rétt hef
ur reynzt að viðkomandi fram-
leiðandi hefur selt vöru sína I
blóra við settar reglur í þessum
efnum. Þá er hér um brot að
ræða sem ekki síður getur haft
alvarlegar afleiðingar fyrir kaup
menn þá og veitingastaði, er
sniðganga umgreind lög og regl
ur.
Að vanda til ræktunar
og útsæðis
Yfirleitt eru bændur nú næm
ari fyrir vali á garðlandi og
eðlilegri notkun áburðar, en
var hér fyrir nokkrum árum.
Það eru aðeins byrjendur í rækt
uninni, sem álíta að hér sé ekki
vandi á ferðum með hvernig I
garðlandið sé borið.
Hin tíðu frost um sprettutím-
ann síðustu misserin hafa orðið
til þess, að margir gætnir og at-
hugulir bændur hafa lagt sig
meira fram en ella að velja gott
garðaland, bæði með tilliti tii
jarðvegseiginleika og frostvarna.
VINASPEGILL
eftir Jóhannes úr Kötlum
Safn ljóða og greina um
ýmislegt efni, hlutverk
skáldsins, land og þjóð.
— Speglar draum og
veruleik íslenzkrar sam-
tíðar 1 þrjá áratugi.
Skáldið ávarpar hér
þrjár kynslóðir íslend-
inga, og þó æskuna sér-
staklega.
VIIMASPEGILL
er vinargjöf
HEIMSKRINGLA
Laugavegi 18. Sími 15055.