Morgunblaðið - 28.11.1965, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 28. nóv. 1965
Kirkjuvika S-Þingeyjuproius!
dæmis í Reykjnklíðurkirkju
VOGUM, 22. nóv. — Kirkj uvika
S-Þingeyjaprófastsdæmis lauk
með kirkjukvöldi í Reykjahlíðar-
kirkju í gærkvöldi. Aðsókn var
góð. Þar mættu allir prestar pró-
fastdæmisins svo og prófastur. sr.
Sigurður Guðmundsson á Grenj-
aðarstað. Ræður fluttu sr. Þórar-
inn Þórarinsson og sr. Friðrik A.
Friðriksson. Þá flutti Þórgnýr
Guðmundsson, kennari á Sandi,
erindi, sem hann nefndi:' „Hug-
leiðingar leikmanns". Kirkjukór
Reykjahlíðarkirkju söng undir
stjórn Arnar Friðrikssonar. Einn-
ig var sr. Örn kynnir á kirkju-
kvöldinu. Að síðustu sagði pró-
fastur nokkur orð um leið og
hann sleit kirkjuvikunni. Slík
guðræknisstund sem þessi var
mjög hátíðleg og öllum til sóma
sem að henni stóðu. Þess má geta
að nýlega er búið að flísaleggja
gólf kirkjunnar. Þá hefur kven-
félagið Hringurinn í Mývatns-
sveit gefið 10.000 kr., sem verja
skal til að teppaleggja kór kirkj-
unnar.
Enn er unnið að byggingu
stórhýsis á lóð væntanlegrar kísil
gúrverksmiðju og unnið við ljós
til klukkan að ganga 11 á kvöld-
in. Senn fer að verða lokið móta-
uppslætti og fer að sjálfsögðu
eftir tíðarfari hvort hægt verður
að steypa, þegar líða fer á vetur.
Kristján á Arnarvatni látinn
Nýlátinn er hér í sveitinni
Kristján Benediktsson á Arnar-
vatni á 66. aldursári. Kristján
hefur ásamt systrum sínum, Sig-
urbjörgu og Bóthildi, búið á
eignajörð þeirra og bætt hana
mjög hvað ræktun og húsakost
snertir. Hann var hinn mesti
heiðurs- og hagleiksmaður.
Nýlega hafa 16 býli í Mý-
vatnssveit fengið rafmagn frá
Laxárvirkjun. — Kristján.
„Gleðisöngur að
morgni“ og „Ást-
mey konungsinsw
KOMNAR ERU út hjá Leiftri
tvær skáldsögur, allstórar, eða
tæpar 350 bls. hvor bók. Nefn-
ist önnur í íslenzkri þýðingu
Steinunnar S. Briem „Gleðisö
ur að morgni“ og er eftir Betty
Smith. Heitir hún á frummál-
inu Joy In The Moming.
Á kápu bókarinnar segir m.a.:
,,Gleðisö ur að morgni er nýj-
asta bók hinnar frægu amerísku
skáldkonu Betty Smith og kom
fyrst út í Bandaríkjunum árið
1963. Þetta er hugljúf ástarsaga
um gleði og sorgir ungra hjóna,
skrifuð af næmri samúð og inn-
sýn í vandamál daglega lífsins.
Betty Smith ávann sér heims-
frægð fyrir fyrstu bók sína A
Tree Grows In Brookjyn, er
komið hefur út í íslenzkri þýð
ingu undir nafninu Gróður í
gjósti, og hafa vinsældir hennar
farið vaxandi Síðan. — Gleðisö ,
ur að morgni hefur nýlega ver-
ið kvikmynduð hjá Metro Gold-
wyn Mayer og verður sýnd bráð
lega í Gamla bíói“.
Hin bókin frá Leiftri heitir
E,wbanU
nppAHREimi
gerir feppin
sem ný
Nauðsynlegur
\
á hvert
heimili
EwbanU
CARPET SHAMPOOER
SOLUSTAÐIR í REYKJAVÍK.
MÁLARINN HF, Bankastræti
GEYSIR HF, Aðalstræti
Járnvöruverzl. JES ZIMSEN, Hafnarstræti.
Úti á landi:
STAÐARFELL, Akranesi, Kaupfél. HÖFN, Selfossi
Kaupfélagið ÞÓR, Hellu. K.E.A., Akureyri
Verzl. NEISTI H.F., ísafirði.
GUNNAR ÓLAFSSON & CO, Vestmannaeyjum
NONNI & BUBBI, Keflavík og Sandgerði.
SGANIA-VABIS
Vörubifreiðastjórar. Áður en þér ákveðið bifreiðakaup yðar, þá
gerið samanburð á hinum mismunandi gerðum vörubifreiða.
Athugið t. d. að SCANIA-VABIS L76 er með 11,2 lítra vél, 195
DIN hestöfl. — Með 29% yfirhleðslu (turbina), 255 DIN hest-
öfl diesel.
Kynnið yður SCANIA-VABIS vörubifreiðir
SCAIMIA ÍSARIM H F.
sparar allt nema aflið. Klapparstíg 27, Rvk. Sími: 20720.
Erlingur Púlsson, sundknppi
SJÖTUGUR 3. nóv. 1965
Þú sundkóngur frægi, þín sjötíu ár,
þig sýnast ei hefta, né letja.
Lífsfjör og hreysti þér ljóma um brár,
lipur í svörunum, fimur og knár,
léttur í hreyfingum, fótafrár,
— sem fornaldar víkinga söguhetja,
er hefur ei guggnað við högg né sár,
og höldar aldrei þurftu að hvetja.
Fornmannahreystin þín íyrirmynd var.
Fús þú gekkst undir hetjanna merkL
Sund þitt, á vetrum, í svellandi mar,
sýndi vel aðalsmark hetjunnar.
Þó frostbólgnar æddu öldurnar,
aldrei neitt kvikaði viljinn sterki.
Tjaldað var öllu, sem til var þar.
Trúlega haldið stefnu í verkL
Mörg þá í sjóinn var frækileg för
farin, að sækja þjálfun og hreysti.
Kyssti þig Unnur með kaldri vör
klkaði, bæðL granir og skör.
Svarraði hríðin um sjóinn, ör.
En sundkappinn allar þrautir leystí.
Krafturinn, leikni, kjarkur og fjör,
kempunni sundfræknu þjóðsirlof reisti.
Með sæmd og prýði um land og lá,
liðsmaður varstu, í þörfum verkum.
Þér skyldunum aldrei skauztu hjá,
en skeleggur hertir vinnu á,
og skilaðir henni hendi frá,
svo hæfði drengskapar kappa merkum.
Rík virtist manndómsins þroska þrá.
í þinni sálu skaut hún rótum sterkum.
List þig prýðir ljóðamáls,
lízt mér dæmi sanna,
upp þá kyndli bragabáls
bregður, meðal granna.
Ætíð njóttu auðnuhags
yndisríkra daga.
Leiði þig til dauðadags
dísir gæfu og braga.
Daniel Benediktsson.
Ástmey konungsins eftir Lion
Feuchtwanger í þýðingu Her-
steins Pálssonar.
Fjallar bókin um baráttu Alf-
ons konungs 8. af Kastilíu (1158
til 1214) milli ástar hans á fag-
urri Gyðingastúlku og skyldú
hans við drottningu sína og hinn
kristna heim. — Höfundur bók
arinnar var einn bezti rithöfund
ur sinnar samtíðar og gerir efn
inu skil á snilldarlegan hátt.
ön
C3
•Ö
T3
«5
O
u
o
'd
Jh
3
'3
T.
3
bjo
bJD
>
bJD
O
■
'O
O
§
33
'O
O
I
*©
8
o
DL
HEIMSÞEKKTAR
Deliplast
Deliflex
Plastino
Gólfdúkar
Frá
Ðeutsche Linoleum-Werke AG.
sem er stærsti framleiðandi góífefna í Evrópu.
Leitið upplýsinga hjá
byggingavöruverzlun yðar.