Morgunblaðið - 14.12.1965, Síða 1
32 slðtw
20 - 40
Istigta frost
Stokkhólmi, 13. des. NTB:
FANNFERGI og hörkugaddur
voru um alla Norður-Svíþjóð
um heigina og urðu af miklar
samgöngutruflanir. Blindbyl-
ur var með ströndum og í upp
sveitum allt að 40 stiga frost.
Svipaða sögu er að segja frá
Noregi og víða mældist þar
meira frost en dæmi eru til
áður. í kirkjunni að Kvikne
átti að skíra barn, en þegar
frost mældist þar 41 stig var
afráði'ð að fresta skírninni.
Víða voru vatnsleiðslur allar
gaddfreðnar og bændur urðu
að sækja sér og búfé sínu vatn
um langa vegu.
Sjónvorpsviðtul
við de Gnulle
París, 13. des. — NTB-AP:
f KVÖLD leiða þeir saman hesta
BÍna í sjónvarpinu, De Gaulie
Frakklandsforseti og keppinaut-
ur hans um forsetaembættið,
Franeois Mitterand.
Er þetta í fyrsta skipti, sem
Jrönskum blaðamanni gefst kost-
ur á að spyrja De Gaulle spjör-
tmum úr í kosningabaráttunni.
S3á er happið hlýtur er ritstjóri
vikubiaðsins Figaro Litteraire,
Michel Droit.
Gengið verður til kosninga 19.
desember og er það mál sumra,
að Mitterand hafi jafn mikla
jnöguleika á að sigra og De
Gaulle, en aðrir spá forsetanum
öruggum sigri. í skoðanakönnun,
eem fram fór i fyrri viku, eru
eigurlíkur De Gaulle taldar 57
«f hundraði en voru 50% áður.
í fyrri umferð kosninganna hlaut
De Gaulle 44,6% atkvæða en
Mitterand 31,7%. Bitbein fram-
bjóðenda eru kjósendur þeir sem
greiddu atkvæði þriðja frambjóð-
andanum, Jean Lecanuet, í kosn
ingunum 5. desember, þvi atkv.
þeirra geta ráðið úrslitum um
hversu fer nú á sunnudaginn.
LONDON, laugardag — (AP): Thamesá flæðir yfir hakka sina, í mestu floðum, sem menn muna. — Myndm var tekm í Lower
Thames Street, og sýnir bíla, sem eigendum tókst ekki að bjarga í tæka tíð — svo skyndilega óx í ánni.
Vatnið flæddi að símaklefanum,
meðan stúlkan talaði,
en henni tókst oð hringja til logreglunnar — rætt við
Björn Björnsson, i London, um flódin i Englandi
FRÁ því var skýrt í Mbl. á
sunnudag, að mikil flóð
hefðu orðið víða í Eng-
landi, undanfarna daga.
Mest urðu flóðin í Mið-
Englandi og Wales, þótt
þeirra gætti einnig í öðrum
landshlutum, m. a. mikið í
London, en vatnsborð varð
hærra í Thamesá, en dæmi
munu til, í manna minnum.
Hvarvetna varð fólk fyr-
ir miklum óþægindum, og
víða tjóni, og stóð svo í
nokkra daga. Víðast hefur
nú aftur dregið úr flóðun-
um, þótt þau hafi ekki náð
hámarki í Wales, fyrr en
nú um helgina. Þar mun
vatnsborð áa hafa hækkað
ailt að 4—5 m, en víðast
annars staðar þó nokkru
minna.
Mbl. ræddi í gær í síma
við Björn Björnsson, stór-
kaupmann í London, og
innti hann nánar ,eftir or-
sökum fióðanna, og afleið-
ingum.
„Mest urðu flóðin í Mið-
Engiandi", sagði Björn. „Fyrir
fimm dögum hófust þar stór-
felldar rigningar, og víða ann-
Framhald á bls. 31.
Sögulegt geimskot misferst
er enn halda sig við þennan
starfa), lítið yfir þessu. ,,Svona
xxokkuð getur alltaf komið fyr-
ir“. sagði hann. „Við erum báð-
ir við beztu líðan og vonum
bara að þess verði ekki langt að
— Reynt
BiMinaði að
aftnr á miðvikudag — Minnnstii
slys yrði á geimförum í Gemini 6.
Kennedyhöfða, 13. desember,
NTB, AP.
MILLJÓNIR manna fylgdust
með þvi í sjónvarpi í Bandaríkj-
unum í gær, er skjóta átti upp
frá Kennedyhöfða geimfarinu
Gemini 6. til fundar við Gem-
ini 7, sem nú hefur hringsól-
að um jörðina í niu sólarhringa,
og hætt var við skotið sekúndu
áður en af því átti að verða,
þegar Titaneldflaugin stóð á
skotpallinum umvafin reykjar-
mekki og ekki vantaði nema
herzlumuninn á að hún hæfi
sig á loft.
Johnson forseti og fjöldi ann-
arra báru mikið lof á geimfar-
ana Walter Schirra og Thomas
Stafford, fyrir hugprýði þeirra
og snarræði. Einn ráðamanna á
Kennedyhöfða sagði, að tölu-
verð hætta hefði verið á því að
geimfarið spryngi í loft upp og
forstöðumaður Gemini-geim-
ferðanna, dr. Chiistopher Kraft,
sagði að geimförunum hefði
hreint ekki verið láandi hefðu
þeir gripið til þess ráðs að
skjóta sér út úr eldflauginni,
þegar í óefni var komið. Slíkt
neyðarúrræði hefði þó gert að
engu öll áform um stefnumót
Gemini 6. og 7. úti í geimnum
og orðið alvarlegur hnekkir fyr-
ir bandarísk geimvísindi.
Nú er áformað að reyna aftur
að skjóta Gemini 6. á loft á
miðvikudag. óhappið í gær er
að kenna smávægilegri bilun á
rafkerfi. Ekki er vitað hvað
valdið hafi, en ljóst að engin
alvarlegur galli er á Titan-eld-
flauginni sjálfri.
Geimfararnir Bormann og
Lovell settu í gærkvöldi geim-
vistarmet í Gemini 7, höfðu þá
verið lengur að hringsóla um-
hverfis jörðu en nokkrir geim-
farar aðrir aður, en lengsta
geimferð til þessa áttu að baki
þeir Gordon Cooper og Charles
Conrad, sem fóru í 190 klst. og
56 minútna geimferð með Gem-
ini 5. í ágúst í sumar.
Borman og Lovell eru nú
búnir að fara í níu sólarhringa
samfleytt umhverfis jörðu í
Geynini 7 og láta vel yfir sér.
Segjast þeir hafa lítið að gera
annað en bíða þess að hitta fé-
laga sína, Schirra og Stafford
er þeir leggi upp á Gemini 6. Á
Kennedyhöfða leggja starfs-
menn nú nótt við dag að und-
irbúa hið fyrírhugaða geimskot
á " miðvikudag og stefnumót
geimfaranna hið fyrsta sem
reynt verður.
Frammistaða Walters Schirra
hæstráðanda um borð í Gemini
6. á sunnudag vakti almenna að-
dáun, en sjálfur lét Schirra,
sem er eiztur og reyndastur
geimfaranna bandarísku (þeirra
Framhald á bls. 31
Þarna sést hvar þeir Walter Schirra (til vinstri) og Thomas
Stafford yfirgefa skotpall Gemini 6 á sunnudag, vonsviknir og
súrir á svipinn eftir óhapp það sem varð til þess að fresta varð
geimskotinu til miðvikudags eða fknmtudags. Það var bilun á
rafkerfi Titan II eldflaugarinnar, sem skjóta átti gehnfarinu á
braut sem óhappinu oíli. (AP — 13. des.)