Morgunblaðið - 14.12.1965, Page 2
MORGUNBLAOID
ÞriSjudagur 14. des. 1965
r 2
Odrengileg árás
Tímans á Einar
Guðfinnsson
TÍMINN ræðst síðastliðinn laugardag með dylgjum á Einar
Guðfinnsson, útgerðarmann í Bolungarvík, vegna kaupa á
olíuskipinu „Þyrli“. Fer blaðið með ýmis konar blekkingar
um þessi kaup og hefur upplýsingar sínar úr þingræðu, er
Helgi Bergs flutti við aðra umræðu fjárlaga.
Aðalstaðhæfing Tímans í máli þessu er, að ríkissjóður
hafi selt skipið til Boiungarvikur fyrir 5 millj. kr., en
skömmu siðar hafi farið fram endurmat á þvi og það þá verið
metið á 25 millj. kr.
Sannleikurinn í málinu er sá, að rikisstjórnin fól skipa-
skoðunarstjóra að meta skipið og mat hann það á 5 millj. kr.
með varahlutum í vél. Jafnframt var leitað tilboða í skip
erlendis og kom í ljós, að hægt var að fá hliðstæð skip þar
á svipuðu verði. En Þyrill er eins og kunnugt er byggður
árið 1943 og er þvi nú 22 ára gamalt skip. Þess má geta, að
ráðunautur hinna nýju kaupenda um skipakaupin var Óttar
Karlsson, skipaverkfræðingur SÍS. Taldi hann 5 millj. kr.
helzt til hátt verð fyrir skipið.
— ★ —
Timinn segir, að Þyrill hafi verið seldur „gæðingi" ríkis-
stjórnarinnar. Sannleikurinn í málinu er sá, að sildarverk-
smiðjan i Bolungarvik og Fiskimjöl hf. á ísafirði mynduðu
með sér félag, „Dagstjörnuna hf.“ um kaupin á skipinu til
síldarflutninga fyrir verksmiðjur sínar. Hinir nýju eigendur
létu fara fram stóra viðgerð á skipinu í Þýzkalandi. Eftir bað
meta starfsmenn Seðlabankans skipið á rúmar 7 millj. kr., en
ekki á 25 millj. kr. eins og Timinn gefur í skyn. Annars mun
þessi staðhæfing Timans um 25 miilj. kr. matsverð rekja
rætur sinar til þess, að talið hefur verið, að það myndi kosta
allt að 25 millj. kr. að byggja nýtt skip með svipuðum út-
búnaði og af álíka stærð og „Þyrill“.
Árás Helga Bergs og Tímans á Einar Guðfinnsson er
ekki sízt ódrengileg vegna þess að þessi merki og dugmikli
útgerðarmaður og synir hans hafa haft mikilvæga forystu
um þá nýjung, sem síldarflutningarnir eru. Höfuðtilgangur
Bolvikinga og ísfirðinga með síldarflutningunum var að bæta
atvinnuaðstöðu í byggðarlögum sínum. Er og óhætt að full-
yrða, að síldarflutningar á milli landshluta, hafi á þessu ári
stuðlað að mikilli sköpun verðmæta fyrir þjóðarbuið.
Þungfært víða sunnan*
lands vegna skafrennings
SAMKVÆMT upplýsingum, sem
Mbl. fékk hjá Vegamálaskrif-
stofunni í gær, var vegurinn í
Arnessýslu mjög þungfær í gær
og fyrrinótt. Hafði skafið mikið i
Ölfusinu, í Grímsnesi og alveg
upp í Laugardal. Var vegarkafl-
inn við Ingólfsfjall niður að Sel-
fossi t.d. algjörlega ófær í gær-
morgun. Þá var vegurinn upp í
Grimsnes og niður við Eyrar-
bakka og Stokkseyri lokaður
smærri bifreiðum. Tæki voru
komin á staðinn í gær.
í RangárvallasýsLu er færðin
ágæt, en fer afltur á móti versn-
andi þegar kemur í Skaftafel's-
sýslu. Austur frá Vík er svo ekki
Ekið á vegfaranda
í Austurstræti
/
Ökumaðurinn var drukkinn og forðaði
sér af slysstað
BÍL var ekið á vegfaranda um
kl. 2 .aðfaranótt sunnudags í
Austurstræti á móts við ísborg.
Þrátt fyrir slysið ók billinn á
brott.
Númer bílsins náðist og hóf
lögreglan þegar leit að honum.
Á fimmta tímanum um nóttina
fannst bíllinn og var tvennt í
honum, karlmaður og stúlka, sem
ók. Voru bæði drukkin og kom
í ljós, að stúlkan hafði ekki öku-
réttindi.
Það þótti hins vegar vitað, að
maðurinn hafi verið undir stýri
bílsins, er ekið var á vegfarand-
ann, en hann neitaði því. Voru
þau bæði sett í fangelsi um nótt-
ina.
Þegar lögreglan kannaði málið
nánar viðurkenndi maðurinn að
hafa ekið bílnum er slysið varð.
Vegfarandinn er ekki talinn
alvarlega meiddur, en hann hlaut
höfuðhögg og áverka á fæti.
RÚSSINN STÖR-
SKEMMDI NÚTINA
Keflavík, 13. desember.
1 DAG fóru fram sjópróf í máli
vélbátsins Hamravík KE 75, sem
varð fyrir því óhappi á síldár
miðunum fyrir austan, að rússn-
eskt síldveiðiskip sigldi yfir
nót bátsins og skemmdi hana
mjög mikið. Þetta gerðist 65 sjó-
V-þjóöverjar fái hlutdeild í stjórn
kjarnorkuhers NATO
— Ludwig Erhard ræðir við „US News &
World Report“, og lýsir skoðunum sínum,
viku áður en hann heldur vestur um haf
Washington, 13. des. — NTB
KANZLARI V-Þýzkalands,
Ludwig Erhard, hefur lýst
því yfir í viðtali, að V-Þjóð-
verjar verði að fá hlutdeild í
stjórn fyrirhugaðs kjarnorku-
hers Atlantshafsbandalagsins,
NATO. Segir kanzlarinn, að
þar eð V-Þýzkaland myndi
verða haft að skotmarki eitt
þúsund meðaldrægra, sov-
ézkra eldflauga, kæmi til stór
átaka, verði að setja fram þá
kröfu.
Þessi ummæli Erhards eru
höfð eftir honum í bandaríska
vikuritinu „US News &
World Report“, og birtast þau
tæpri viku áður en kanzlarinn
leggur upp í för sína til Banda
ríkjanna, þar sem hann mun
eiga viðræður við Johnson,
Bandar ík j af orseta.
í viðtalinu Segir Erhard, að
hefðu öll lönd farið að dæmi V-
Þjóðverja, 1954, og lýst því yfir,
að þau myndu ekki framleiða
kjarnorkuvopn, væri ekki ástæða
til að ræða þau mál nú. Sagði
hann það skoðun sína, að kjarn-
orkuher, sem margar þjóðir ættu
aðild að, væri bezta tryggingin
fyrir því, að einstakar þjóðir
tækju ekki upp framleiðslu
kjarnorkuvopna. Kvað hann það
á stefnuskrá sinni að auka sam-
skipti Bandaríkjanna og V-
Þýzkalands. Bandalag ríkjanna
væri ekki til komið af öryggis-
ástæð,um einum, heldur fælist í
því sú ósk V-þýzku þjóðarinnar,
að komið yrði á fót bandalagi
ríkjanna beggja vegna Atlants-
hafsins.
Þá segir kanzlarinn í viðtalinu
við tímaritið, að stjóm V-Þýzka-
lands hafi einnig áhuga á því að
bæta samskipti við FrakkLand,
enda væri óhugsandi, að hægt
væri að sameina Evrópu, án þátt-
töku Frakka, og vináttu þeirra og
V-Þjóðverj.a.
fært nema s-tærstu bifreiðum.
í Borgarfirði og á SnæfeLlsnesi
er færðin mjög svipuð því sem
verið hefur, en í Dalasýsiu var
aft>ur á móti ekki fært nema stór-
um bifreiðum, en samkvæimt dag
skrá Vegagerðarinnar, atendur
til að ryðja Bröttubrekku í dag,
þ.e.a-s. ef veður LeyfLr. Á Vest-
fjörðum eru vegir mjög svipað-
ir og verið hefur — velfært um
sveitirnar, en færð verri á fjall-
vegum. Vegir eru þungir í
Strandasýs'U, en verða ruddir í
dag, ef veður leyfir.
Ho'ltavörðuheiðin og vegurinn
ui t Hrútafjörð var ófær í gær,
en samkvæmt dagskránni verður
reynt að ryðja veginn þ«r í dag.
Hins vegar er ágæt færð úr
Húnavatnssýslu tii Akureyrar og
einnig í Skagafirði. Þá er ioikið
við að moka veginn í Eyjafirðin-
um ag til DaLvíkur, en einnig
stendur til að DalsmynnLsLeiðiti
tii Húsavíkur verði mokuð. Úr
Húsavík er fært um næstu sveitir
en alLþung færð er í Mývatns-
sveiit.
Á Austfjörðum er færð all-
sæmileg, t.d. er ágæt færð milli
EgiLsstaða annars vegar og Seyð-
isfjarðar hins vegar, svo og milLi
Egilsstaða annars vegar og Reyð-
arfjarðar, Eskifjarðar og yfir
Oddskarð til Norðfjarðar hins
vegar. Þá er jeppafært frá Reyð-
arfirði um Staðanskarð til Fá-
skrúðsfjarðar og þaðan til suður-
fjarðanna.
mílur suð-austur af Gerpi og
hafði Hamravík kastað á mjög
góða lóðningu, en þegar verið
var að snurpa sigldi rússneska
síldveiðiskipið yfir hana. Slitn-
uðu teinar og stórir hlutar nótar-
innar rifnuðu.
Ekki náðust einkeninisstafir
eða nafn skipsins, en bjart var
aif tungli og sást af útbúnaði á
þilfari, svo og lögun skipsins, að
inn rússneskt reknetaskip var að
ræða.
Hamravík hafði einnig sam-
band við mb. Viðey RE 12, sem
var þar nálægt og staðfesti skip-
stjÖrimn að um rússneSkt skip j
hafi verið að ræða.
Við sjóprófin kom fábt nýtt
fram annað en staðfesting skips- j
hafnar og skipstjóra á þessum
aðföruim. Hamravík var með lög- J
boðinn ljósaútbúnað, svo greini-1
legit var að sikipið var að veiðum ■
og því útilokað annað en að
rússneska skipið hafi séð að
Hamravík var að veiðum.
Hamraví'k kiom til Keflavifcur
sl. Laugardag og var nótin sett í
viðgerð í Netagerð Suðurnesja
og reymdisf hiún iLLa farin. Mun
viðgerð fcosta hundruð þúsunda
króna.
Enn sem fcomið er er ekki vit-
að hvernig skaðabótakröfum
verði komið við gagnvart skip-
inu, sem skemmdunum olli.
Si'kpstjóri á Hamravík er
Magnús Bergmann. — hsj.
Eglll Hjörvar
vélstjóri látisin
Akranesi, 13. desember.
AFLI línubátanna hér á föstu-
daginn var frá 3 og upp í 5 tonn
á bát. Fengu þeir slærnt sjóveð-
ur. Vélbáturinn Skírnir kom
hingað með 900 mál sildar af
Austfjarðamiðum sl. laugardag.
Skátar salna til
Vetrarkjálparinxiar
HÆÐIN er enn þaulsætin yfir kólnar loftið hinsvegar rnjög,
Grænlandi, en fflytur þó ekki einkum í Skagafirði og Húna-
verulega kalt loft hingað til þingi. Var 15° frost og heið-
Lands, t.d. var eins stigs frost ríkja á Sauðárkróki.
á Jan Mayen. Yfir landinu
SKÁTASÖFNUNIN til aðstoðár
I
Vetrarhjálpinni hófst í gærkvöldi
og stendur fram á fimmtudag.
í kvöld heimsækja skátarnir
nyrðri hluta Vesturbæjarins og
j Austúrbæinn. Á morgun, mið-
! vikudag, heimsækja þeir Háa-
leitishverfi og Bústaða og smá-
íbúðahverfið.
Á fimmtudag heimsækja þeir
Lauganes, Langholts- og Hlíða-
hverfi.
Skátarnir hafa ekki aðstöðu til
að taka við fatagjöfum, en þeim
sem vilja gefa föt, skal vinsam-
legast bent á að hringja í síma
Vetrahjálparinnar 10765.
SIÐDEGI6 á sunnudaginn lézt i
Landakotsspítala Egill Hjörvar,
vélstjóri, Langholtsvegi 141, hér
í borg. aðeins 42 ára.
Egill hafði ekki kennt sér las-
leika er hann fór að sofa á laug-
ardagskvöldfð. Hann missti með-
vitund í svefni og vaknaði ekki
á sunnudagsmorguninn. Var
hann fluttur í sjúkrahús, en þar
gekk hann undir höfuðuppskurð,
en lífi hans tókst ekki að bjarga.
Hann lézt af völdum blæðingar
inn á heila. Egill lætur eftir sig
konu, Katrínu Karlsdóttur og
tvær dætur og foreldra, en hann
var sonur Helga Hjörvars, rithöf
undar og konu hans Rósu Daða-
dóttur. Helgi hefur um langt
skeið legið rúmfastur í Landa-
kotsspítala.
Egill Hjölvar var kunnur mað
ur fyrir störf sín a’ð margháttuð-
um félagsmálum og var um skeið
formaður Vélstjórafélagsins, éinn
ig var hann varaforseti Far-
manna- og fiskimannasambands
um tíma og nú var hann vara-
formaður í Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar. Sæti átti
hann í verkalýðsráði Sjálfstæðis-
flokksins.
Egill hafði starfað um árabil
sem eftirlitsmaður á vegum
slökkviliðs borgarinnar.