Morgunblaðið - 18.12.1965, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 18.12.1965, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ 25 / Laugardagur 18. des. 1965 Fólk úr víðri veröld Áhugi ' Einn af frægustu jassleikurum okkar tíma, saxofónleikarinn Ornette Coleman, er nú á hljóm- ieikaferð í Danmörku. Hann hef- ur vakið mikla athygli með leik Bínum þar, en Coleman er einn (þeirra jassleikara, sem mest hef- ur látið að sér kveða í hinum Evonefnda „tilraunajass“, þ. e. ihann fetar ótroðnar slóðir innan tjassins. í viðtali við Politiken íyrir skömmu óskaði hann eftir (því að fá að leika fyrir ungt gp- -... -• ■■■ -■ .. skólafólk í Danmörku — fyrir lítið gjald. Tilboð hans hefur fengið góðar undirtektir og mun hann því leika fyrir danska ungl- inga innan skamms. Litla systir Stúlkan hérna á myndinni er litla systir Claudiu Cardinale. — Nokkur undanfarin ár hefur hún fylgt systur sinni um flest lönd Evrópu, frá kvikmynd til kvik- myndar, þar sem hún hefur gegnt alls kyns störfum í kvikmynda- yerunum. En nú er Blanche Card in, orðin hrædd um að hún sé að nissa tímann úr höndum sér. Hún er orðin 24 ára, og á þeim aldri var systir hennar löngu orðin stórt og mikið nafn í kvikmynd- unum. Nú bíður hún og vonar að einhver kvikmyndaframleiðand- inn aumkist yfir hana og fái henni veglegt hlutverk í ein- hverri kvikmyndinni. Hún er sögð hafa talsverða hæfileika fyrir litum og teikningu. JAMES BOND Tveir verðlaunahafar Þessi mynd er tekin á Luciuhá- tíðinni í Stokkhólmi nú fyrir skömmu. Það er hin nýkjörna, sænska Lucia, Monica Larsson, sem fær hér koss á kinnina frá rússneska nóbelsverðlaunahafan- um, Michael Sjolokof. »*- —>f— ->f- Eítir IAN FLEMING f Liðsforinginn: — Ef annað eyrað er skorið af yður, hvað gerist þá? Óbreyttur: Ég heyri verr og það blæðir mikið. í Liðsforinginn: — En hvað gerist, ef hitt eyrað er líka skor- ið af yður? Óbreyttur: Eg heyri ekkert og það blæðir meira og ég sé ekkert. Liðsforinginn: — Af hverju Bjáið þér ekkert? Óbreyttur: — Vegna þess að þegar eyrun vantar, dettur húfan niður fyrir augu. James Bond ‘BY IAN FLEMING ORAWING BY JOHN McLUSKY — Hver ertu? — Ég heiti James Bond og er enskur og hef áhuga á þessum sjaldgæfu fuglum JÖMBÖ hérna. En þú? — Ég heiti Bubba og safna skeljum og fæ gott ver'ð fyrir þær í Miami. — Það er og . . . — Ég verð að kiæða mig. Snertu ekki skeljarnar meðan ég er í burtu. Teiknaíi: J. M O R A I Simamenn voru áð gera við eímalínur hátt upp í staurnum. Kona nokkur ók framhjá þeim og sá þá uppi í staurnum. Hún sagði þá brosandi: ; — Sjá þessa kjána. Þeir halda Víst að ég hafi aldrei ekið bíl áður. f| Kona nokkur gekk um dýra- igarðinn og sá þá hvar maður kom grátandi á móti henni. — Af hverju eruð þér að gráta, spurði konan. — Af því að stóri fíllinn er dauður. — Elskuðuð þér hann svona mikið. — Nei, nei, en forstjórinn sagði að ég ætti að grafa gröf- ina hans. '1 Það var I jólaðsinni í gær, að máður nokkur tók leigubíl niður í miðbæinn. Bifreiðin fór lús- hægt vegna umferðarinnar, en maðurinn sem átti mjög annríkt, sagði við leigubílst j órann. — Getið þér ekki farið svolítið hraðar. — Jú, jú, en ég á bara erfitt með að skilja bílinn eftir. 1 Tveir menn voru að rífast um það hvor ætti grennri konu. Annar sagði: — Konan mín er svo grönn að þegar hún gengur út í rigningu þarf hún ekki að nota regnhlíf, því að hún smýgur alltaf á milli regndropanna. — Þetta er nú ekki mikið. Þa‘ð var hérna um daginn að við fór- um í heimsókn til tengdamömmu, og hún gaf okkur kirsuber til eð borða meðan hún skryppi að- eins út. Konan mín varð þá fyrir því óhappi að gleypa kirsuber, og þegar tengdamamma kom oftur leit hún á hana þýðingar- iniklu augnaráði og sagði: — Er það rétt sem mér sýnist — Mér finnst þetta ekkert ganga hjá þér, sagði Júmbó, þegar Fögnuður hafði púlað af öllum mætti í um það bil einn tíma. — Þú ert þó ekki þreyttur. Fögn- uður svaraði ekki, en svitastorkið and- lit hans sagði meira en mörg orð. — Jæja, við skulum drekka kaffið núna, en hefjumst svo aftur handa eftir að hafa hvílt lúin bein, hélt Júmbó áfram. Þar sem Spori hafði yfirleitt ekkert á móti ofurlitlum hvíldum, var hann ekki lengi að henda sér í mjúkan grassvörð- inn. Júmbó fór litlu síðar að dæmi hans, en Fögnuður sagði þá að hann ætlaði að fara í smá gönguferð. — Já, já, farðu bara, hugsaði Júmbó með sér. — Við skulum sjá, hvert þú ferð. KVIKSJA -~X- —X- Fróðleiksmolar til gagns og gamans MÁLVERK Á GEYSIVERÐI Hvað eftir annað verður heimurinn furðu lostinn yfir þeim gifurlegu upphæðum, sem málverk gömlu meistaranna fara á, þegar þau, sem sjaldan skeður, eru seld á uppboðum. En hið fræga uppboðsfyrirtæki Christies í Lundúnum vorið 1965 bauð upp verk eftir Rem- brandt, Velasque*, Dúrer, Hog- arth og Turner, streymdu þang- að þekktustu listaverkakaup- menn og listunnendur í veröld- inni. Síðasta númer dagsins var málverk Rembrandts af syninum Titus. Listaverkakaup- maður einn, sem verið hafði á ferðalagi í HoIIandi kom of seint til skips síns og varð að gista um nóttina hjá bónda ein- , um. Þar hékk þetta málverk á vegg og hann hafði það með sér — fyrir einn skilding. Á fyrr- greindu uppboði nam fyrsta boðið í málverkið 740.000 gíne- um (u.þ.b. 80 millj. kr.), en upp- boðshaldarinn, varð að endur- taka uppboðið á þessu málverki, vegna þess að hann hafði leymt skriflegum samningi við Bandaríkjamanninn Norton Simon, sem kvað á um að Norton héldi áfram að bjóða, meðan hann héldi fingri á lofti, — og það hafði Norton gert, en uppboöshaldarinn ekki tekið eftir. Vppboðið var endurtekið og nú fékk Norton málverkið fyrir rúmlega 90 millj. króna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.