Morgunblaðið - 05.01.1966, Page 20

Morgunblaðið - 05.01.1966, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 6. lanúar 1966 Framhald af bls. 17 halda í skefjum með rammger- um flóðgörðum, sem hækkað hafa með hverri öld. Þarf geysi- legt vinnuafl til þess að halda þessum flóðgörðum í góðu lagi. í N-Vietnam eru bæði heitar og kaldar árstíðir, auk monsúnvinda tímabilsins. Veturinn er bitur, e.t.v. ekki á mælikvarða Vestur- álfubúa, en mjög napur fyrir van nært fólk, sem býr í lélegum óupphituðum húsakynnum. Mér hefur aldrei orðið eins ömurlega kalt að vetri til eins og í Hanoi. Vikum saman var veðrið grátt og hráslagalegt. Þennan tíma er auðvitað ekki hægt að rækta neitt, sem veldur því, að 1 N- Vietnam fá þeir aðeins eina upp- skeru árlega. Bæjidurnir eru því oft soltnir. En þessi hörðu líf- skilyrði hafa alið upp í Norður- Vietnam harða og lífsseiga ein- staklinga. 1 S-Vietnam er lífið hins vegar tiltöiulega auðvelt. Þar er fiskur í ám og síkjum, nóg af hrísgrjón- um á ökrum og banönum á trján- um, — jarðvegurinn er frjór og þar má fá tvær og stundum þrjár uppskerur á ári. Og enn er þar mikið ónotað ræktunarland, sem þarf lítils undirbúnings við fyrir ræktun. Fólkið er að sama skapi ‘blíðara og lingerðara en norðan til, það þarf tiltölulega lítið fyrir lífinu að hafa og kennir íbúum Norður-Vietnam um ófarir sínar“. En þá vaknar sú spurning, hvort skæruhernaður Viet Cong hafi ekki upprunalega hafizt meðal sjálfra S-Vietnambúa. Því svarar Sanders svo: Þeirri skoðun hefur af ýmsum í Bandaríkjunum verið haldið á lofti, — og án efa í góðri trú — að Viet Cong hafi í upphafi grip- ið til skaeruhernaðarins í S-Viet- nam vegna einræðisstjórnar Diems — og ekki farið að fá að- stoð að norðan fyrr en löngu seinna. En þetta er alls ekki rétt. Uppreisnin var frá fyrstu tíð ráðgerð í Hanoi. Minnumst þess, að þegar Genfarsamþykktin var gerð árið 1954, tóku kommúnist- ar með sér til N-Vietnam tugþús undir S-Vietnambúa, að mestu karlmenn og unga drengi, sem barizt höfðu með kommúnistum gegn Frökkum. Tökum sem dæmi Quang Ngai-héraðið, sem komm- únistar höfðu á sínu valdi í tíu ár, frá 1944 til 1954. Eftir Genfar samþykktina varð héraðið hluti af S-Vietnam og þá tóku komm- únistar þaðan 40.000 manns — af 350.000, sem þar voru búsett- ir. Fjölmargir fóru af fúsum vilja, en einnig margir nauðugir, einkum kennarar og aðrir mennta menn, sem kommúnistar töldu sig geta haft gagn af í N-Viet- nam. Sanders kveðst þeirrar skoðun- ar, að kommúnistar hafi fengið marga unga menn í lið með sér með því að draga upp fyrir þeim rómantiskar myndir af skógarlífi skæruliðanna. Hann hefur eftir bandariskum trúboða sem lifað hefur og starfað í frumskóginum í Vietnam í tíu ár: „Ungir piltar fá oft enga atvinnu og hafa ekk- ert að gera. Þeir fara upp í fjöll- in öðru hverju og starfa e.t.v. 3—4 daga í senn við skógarhögg og viðarkolagerð. Það er erfitt starf og illa launað Og þeir koma fljótt aftur. Þá koma liðssafnar- ar Viet Cong og segja frá ævin- týraríku og frjálslegu lifi í frum- skógunum en gera lítið úr þeim hættum, sem það hefur í för með sér. — „Við sprengjum upp brýr öðru hverju“, segja þeir — og piltarnir fara með þeim. Eftir nokkra mánuði fer þeim að leið- ast skógarlífið, — en þá eru þeir orðnir liðsmenn Viet Cong og þora ekki að snúa heim af ótta við að verða drepnir. Reyni þeir að strjúka eiga þeir yfir höfð- um sér kúlu frá Viet Cong. Og gefi þeir sig fram við stjórnarher inn, geta þeir eins átt von hins sama frá þeim fyrir að hafa verið liðsmenn Viet Cong. Hvað þarf til oð sigra? Að lokum var Sanders að þvi spurður, hvað hann teldi til þurfa til þess að vinna styrjöld- ina í Vietnam og hverjar fram- tíðarhorfur þar væru. Hann kvað það skoðun sína, að Banda- ríkjamenn yrðu að vera við því búnir að það tæki langan tíma og aukið bandarískt herlið. Senni lega væru framundan harðir bar dagar (þess má geta, að viðtalið var tekið fyrir rúmum mánuði). Ljóst væri, eins og fyrr var get- ið, að a.m.k. 15 herdeildir frá N-Vietnam væru nú í S-Vietnam og ekkert lát væri sýnilegt á íhlutun Hanoi-stjórnarinnar. — Loftárásir á óbreytta borgara í N-Vietnam taldi Sanders til lít- ils gagns. íbúar landsins væru þrjóskir og myndu veita því meira viðnám, sem þeir væru verr leiknir." En við verðum samt að beita N-Vietnam hörku, til dæmis með því að loka höfn- inni í Haipong, eyðileggja Thai Nguyen-iðnverið mikla og járn- brautarlínuna til Kína. Það verður að færa stjórninni í Hanoi heim sanninn um, að hún geti ekki sigrað í þessu stríði. Við verðum að sýna þeim í Hanoi, að við séum engin pappírs tígrisdýr. Þeir áttu ekki von ár því, að við sendum herlið til S-Vietnam, en við gerðum það. Þeir bjuggust ekki við að við myndum gera loftárásir á Norð- ur-Vietnam, en við gerðum það. Og jafnvel ennþá telur stjórnin í Hanoi, að Bandaríkjamenn muni ekki treysta sér til að berj- ast til úrslita í þessu stríði. Við verðum að halda áfram að sanna henni styrk okkar jafnframt því þó að halda opinni leið til sam- komulags. En við verðum að minnast þess að sterka fólkið í Vietnam, er það, sem býr um- hverfis Rauðafljót í N-Vietnam. Meðan þar er við völd stjórn, fjandsamleg S*Vietnam — sem hefur það markmið að ná yfir- ráðum í S-Vietnam — má við öllu búast. Stjómin í Hanoi kynni af hernaðarlegum ástæðum að fallast á að binda enda á vopna- viðskipti — segjum í 2—3 ár. En hvað svo? Þar með væri henni opin leið til framhalds síðar. Ein hugsanleg leið til friðsam- legrar lausnar væri sú að halda kosningar í Norður- og Suður- Vietnam undir eftirliti Samein- uðu þjóðanna og komast þannig að raun um, hvdrt þjóðirnar vilja sameinast og undir hverra stjórn. Júgóslavar fundu leið út úr styrjöldinni í Grikklandi árið 1948 — að vísu við mjög frá- brugðnar aðstæður. — En væri hægt að sannfæra stjórn Norður- Vietnam um, að áframhaldandi styrjöld í Vietnam muni hafa í för með sér algert hrun þjóðar hennar og kynni að lokum að leiða til algerra yfirráða Kín- verja, gæti þjóðaratkvæða- greiðsla eða frjálsar almennar kosningar orðið fýsilegri lausn í augum ráðamannanna í Hanoi. En fyrst af öllu verðum við að sannfæra kommúnista um, að við verðum hvorki hraktir með vopnavaldi frá Vietnam né undir yfirskyni uppgerðar vöpnahlés. * Utan úr heimi Framhald af bls. 14. fullkomlega ánægðir með að athuga aðeins veðrið og reyna svo að spá breytinguim á því. Nú beinist álhugi stórþjóð- anna að rannsóknum á því, að hve mikiu leyti muni vera unnt að hafa áhrif á það, breyta því svo, að „rétt veður verði á réttum tíma“. Slíkar rannsóknir verða enn mikil- vægari sakir þess, að maður- inn kann að hafa haft áhrif á veðurfarið óafvitandi með því að hleypa út í lofbhjúp jarðar óhe.miju magni af kolsýru, en auik þess með því að mynda stöðuvötn á stöðum, þar sem áður var um auðn eina að ræða, og loks hafa þeir ís- kristallar, sem myndast í hó- loiftunum við útbiástur þotu- Jókann K. Kristjánsson bóndi Skógarkoti — minning f DAG verður til moldar borin Jóhann Kristján Kristjánsson fyrverandi bóndi í Skógarkoti í Þingvallasveit háaldraður. Er þar til moldar genginn einn af aldamótamönnunum, einn af þeim mönnum sem settu svip á samtíð sína, og þá sérstaklega á það verksvið, sem að honum sneri, sem var á sínum tíma gæzla sauðfár haust, vetur og vor um hið víðlenda fjalla- og afréttaland, sem liggur alla leið frá Hvalfjarðarbotni austur og norður fyrir Skjaldbreið og svæð ið milli Þingvallasveitar og Borg arfjarðardala. Fáir munu hafa verið honum jafn kunnugir á þessu svæði, því það var jafn algengt hjá honum að ferðast um Kaldadal til efstu bæja í Borgarfirði, sem aðrir færu bæja milli á láglendi, þá oft að fylgja ferðamönnum í vályndum veðr- um og jafnan komið þeim heil- um á leiðarenda. Jóhann var fæddur að Grafar- bakka í Ytrihrepp 21. maí 1879 sonur hjónanna Kristjáns Ás- mundssonar og konu hans Grétu Maríu Sveinbjörnsdóttur prests á Akureyri. Jóhann fluttist með foreldrum sínum til Reykjavíkur og að Kárastöðum í Þingvallasveit og síðar að Ingunnarstöðum í Brynjudal í Kjós. Dvaldi þar með foreldrum sínum, þar til að hann tók við jörðinni er fað- ir hans andaðist 1906. Árið 1909 fluttist hann að Skógakoti í Þingvallasveit og bjó þar, þar til jörðin var tekin úr ábúð og lögð til Þjóðgarðsins á Þingvöll- um árið 1930. Árið 1907 kvæntist hann Ólínu Jónsdóttur bónda að Katadal á Vatnsnesi, sem lifir mann sinn. Þau eignuðust 5 börn er öll ikomust til fullorðinsára. Þau eru, Þórarinn Kristján er áður bjó í Mjóanesi og Gjábakka síð- ar í Reykjavík, Jón Hermann bifreiðarstjóri er fórst af slys- förum 1950, Pétur Júlíus fram- kvæmdastjóra í Reykjavík, Her- dís Unnur er dvaldi lengi hjá foreldrum sínum og Gréta María kona Birgis Guðjónssonar verzl- unarmanns í Reykjavík. Meðan Jóhann bjó í sveit hag- aði þannig til, að aðalbústofn hans var sauðfé, við það lagði hann sérstaka rækt, stóð þar flest um framar í kynbótum sauðfjár og komst þar lengra en flestir aðrir um hans daga, enda leit- að til hans um kynbótafé úr nágrannsveitum. Má til dæmis benda á það, að á land'búnaðar- sýningunni, sem haldin var í Reykjavík 1947 átti hann ána sem hlaut heiðursverðlaunin. Eftir að hann varð að yfirgefa sveitina fékkst hann oftast eitt- hvað við landbúnaðarstörf og hafði búfé jafnan undir höndum, enda var það hans eftirlætis- starf að umgangast skepnur og hlynna að þeim. Á síðari árum fékkst hann nokkuð við uppgröft fornminja til dæmis að Stöng í Þjórsárdal og yfirbyggingu yfir rústirnar þar, og hafði hann mikinn áhuga fyrir endurheimt þeírra heim- ilda er þar var að finna. Á þessum árum vann hann og að vörnum og varnargirðingum í þágu sauðfjársjúkdómavarna, kom sér þar vel þekking hans og kunnugleiki á þeim slóðum er girðingarnar voru lagðar. Þeim sem kynntust Jóhanni frá Skógakoti — svo var hann jafnan nefndur verður hann jafn an eftirminnilegur. Fas hans allt og fram.koma var svo prúðmann- leg en þó festuleg og ákveðin. Glaðlyndi hans sérstakt, sem kom öllum, sem með honum voru í sólskins skap, þótt eitt- hvað á móti blési enda hygg ég að hann hafi verið bjartsýnis- maður og ætíð trúað á sigur hins góða. fslenzkir bændur hafa nú misst einn af þeim mönnum, sem brugðu merkinu á loft á fyrsta tug þessarar aldar, um það bil er veðrabrigði urðu til hina betra í íslenzku þjóðlífi og bænda stéttin lét sinn hlut ekki eftir liggja er sóknin var hafin. Þótt mikið hafi áunnizt, verður allt- af nóg eftir að vinna. Og minn- ingar þessara merku aldamóta- manna verður mest og bezt hald ið á lofti með því að halda áfram að trúa á þjóðina og landið. Ég þakka þér margar ánægju- legar og fræðandi samveru- stundir, og þín mun ég minnast þegar rætt er um góðan dreng. Einar Ólafsson. hreyflla, nokikur álhrif á veður farið. Vísindastofnuin Bandaríkj- anna hefir forgöngu á þessu sviði vestra, og athuganir hennar — og annarra aðila — hafa leitt tiil skilnings vísinda- manna á því, hvers vegna hann snjóar og rignir. Ský enu mynduð af vatns- dropum gerðum úr sameind- um vatns, er safnasit á smáagn ir, sem kaillast kijarnar og svífa í lofthjúp jarðar. Margs konar smáagnir — rykagnir, loftsteinaagnir utan úr geirnn um, jafnvel saltagnir úr sjón- um — komast upp í loftið og verða þar að kjörnum. Vatnssameindirnar setjast svo utan um kjarnann, en hætta að vaxa, þegar dropinn er orðinn um það bil milijón- asti hluti venjulegrar stærðar regndropa. Myndun regn- dropa fer aðallega fram með tvenns konar hætti — einstak ir dropar myndast með nokkru miUibili og dropa- myndunin er snögg og nær samtímis. Að vetrarlagi oig þá einkum í hinum kaldari hluta heims myndast íakrystallar aðallega í sikýjum, sem kólna snögg- lega, þegar þau hafa safnað í sig miklum raka. (Þetta er mjög óstöðugt ástand, þegar ýmist er meiri ra.ki í loftinu, en það getur borið undir venjulegum kringumstæðum, og rakadropar eru í lofti, sem eru undir írostmarki.) Þegar litslir kristallar taka að mynd- ast, vaxa þeir mjög ört þegar óstöðugur raki og smiádropar breytast í ís. Þegar kristall- arnir þyngjast, falla þeir gegn um sikýið frysta rakadropana, sem snerta þá og breyta þeim í snjóflyksur. En ef neðri lög í skýi eru nógu hlý, bnáðna snjáfllyks- urnar og verða að regndrop- um. Regnmyndun getur átt sér stað með öðrum hætti einnig, sem fyrr segir, og hefir hún í för með sér samruna eiftir árekstur smádropa, sem fara gegnum ský, svo að úr verði stærri dropar. Slíkir dropar geta myndazt utan um stóra kjarna eða af samruna margra smádropa. Þegar þeir falla, safna þeir fleiri smádropum, unz þeir verða á stærð við regndropa. Talið er, að regn- myndun sé aðallega með þss- um hætti, að minnsta kosti í upphafi rigningar, í tempr- aða beltinu og hitabelitinu. í sambandi við athuganir Bandarikjamanna í þessu efni, hafa þeir að sjálfsögðu safnað margvíslegum öðruirr gögnum og upplýsingum um veðurfar- ið og einstaka þætti þess. Til dærriis hefir landbúnaðarráðu neyti Bandaríkjanna orðið þess vísara, að sé silfurjoðíði sáldrað yfir þrumuský, dregur iþað úr eldingamyndun. Þá hafa vísindamenn í þjón ustu Veðurstofu Bandaríkj- anna og bandaríska flotans gert ti'lraunir með að sáldra ýmsum efnum yfir flárviðris- ský, meðal annars „kjörnum", sem verða upphaf skýja og rigningar, og er talið — þótt eklki sé það futlsannað — að með slífcu hafi einu sinni tek- izt að draga úr ofsa hitabelt- isstorms. En svo erfitt er að segja fyrir um hegðun hvirfil- bylja ,að ekki er hægt að full- yrða um árangur af þessu. Þoka veldur oft töfum á flugsamgöngum, eins og allir vita, lokar flugvöllum jafn- vel dögum saman, þar sem þokur eru tíðar, en með því að sáldra smákornum af fros- inni kodsýru yfir þokuna er hægt' að létta henni af flug- völlum um stundarsakir. Það verður ekki sagt, að á þessu stigi málsins hafi Banda ríkjamenn náð svo háu stigi í viðleitni sixmi að beizla veð- urfarið, að þeir geti t.d. kom- ið af stað rigningu, hvar sem er og hvenær sem er. Ef svo væri, mundi engin hætta á því, að New York og fleiri stórborgir á ausfurströnd Bandaríkjanna yrðu vatnslaus ar, en nú blasir sú hætita við, því að vatnsból þeirra eru þurr að hálfu leyti eða meira. En svo langt er þessurn rann- sóknum og tilraunum komið, að hægt er að draga úr úr- komu að nokkru leyti. Hefir þetta verið gert með því, að sáldrað hefir verið yfir ský efni, sem finnst í ryk, en við það myndast veik brenni- steinsisýra, sem stöðvar sam- runa vætudropanna. Vísindamenn í þjónustu fyr irtækis eins í Massaohusetts hafa uppgötvað tengsl milli eldingarleiftra og snöggvax- andi úrkomu, sem menn hafa raunar vitað um í 200 ár. Þeir urðu þess áskynja, að elding- arnar hefðu af einhverjum á- stæðum þau áhrif, að samruni vætudropanna yrði skjótari. Allir ábyrgir menn, sem við þessar rannsóknir flást, neita alveg að lofa skjótum úrræð- um til að orsaka rigningu á þurrkasvæðum eða breyta yf- irleitt veðrinu að einhverju leyti samfevæmt þörfum mannsins. Þeir eru enn ekki komnir lengra en það, að þeir eru að átta sig á orsökum og eðli veðurfars og breytinga á því. En það litla, sem vísinda- menn hafa fengið áorkað und anfarið, virðist þó gefa nokk- ur fyrinheit um, að maðurinn geti með tímonum haft ein- hver áhrif á veðrið, þótt þesa sé tæpast að vænta að hann geti orðið herra yfir því.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.