Morgunblaðið - 05.01.1966, Síða 25
! Miðvilcuðagur 6. janúar 1966
MORCU NBLAÐIÐ
25
Sllltvarpiö
Miðvikudagur 5. janúar
7:00 Morgunútvarp
Veðuríregnir — Tónleikar —
7:30 Fréttir — Tónteikar —
7:55 Bæn — 8:00 Morgunleikfimi
— Tónleikar — 8:30 Fréttir —
Tónleikar — 9:00 Úrdráttur úr
forustugreinum dagblaðanna —
9:10 Veðurfregnir — 9:25 Spjall-
að við bændur — Tónleikar —
10:00 Fréttir.
12:00 Hádegisútvarp.
Tónleikar. 12:25 Fréttir og veð-
urfregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13:00 Við vinnuna: Tónleikar.
14:40 Við, sem heima sitjum:
Sigrún Guðjónsdóttir les skáld-
söguna „Svört voru seglin'4 eft-
ir Ragnheiði Jónsdóttur (14).
15:00 Miðdegisútvarp
Fréttir — Tilkynningar — ís-
lenzk lög og klassísk tónlist:
Templarakórinn syngur þrjú
lög; Ottó Guðjónsson stj.
Hljómsveitin Philharmonía leik
ur þætti úr ,J>yrnirós4‘ eftir
Tjaikowský.
Kim Borg syngur tvær oríur úr
óperunni „Igor fursti44 eftir
Borodin.
Karl Sroubek og útvarpshljóm
sveitin 1 Prag leika Konsert-
pólonesu fyrir fiðlu og hljóm-
sveit eftir Ftbich.
16:30 Síðdegisútvarp:
Veðurfregnlr — Létt músik:
(17:00 Fréttir) .
Buddy Holly, Russ Garcia, Pepe
Paramillo, Sven Olaf Sandberg,
Egil Hauge, Erik Kaare, The
Jordanaires o.fl. leika og syngja
18 .-00 Útvarpssaga barnanna:
„Á krossgötum44 eftir Aimée
Sommerfelt. Þýðandi: Sigurlaug
Björnsdóttir. Lesari: Guðjón
Ingi Sigurðsson leikari (1).
18:20 Veðurfregnir.
18:30 Tónleikar — Tilkynningar.
19:30 Fréttir
20:00 Daglegt mál
Árni Böðvarsson cand. mag.
flytur þáttinn.
20:05 Efst á baugi
Björgvin Guðmundsson og
Björn Jóhannsson tala um er-
lend málefni.
20:35 Raddir lækna
Snorri Páll Snorrason talar um
háan blóðþrýsting.
21:00 Lög unga fólksins:
Gerður Guðrmmdsdóttir kynnir.
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:15 Erindi og ópera:
„Uppgangur og hrun Mahagonny
-borgar44 ópera eftir Kurt
Weill við t/xta eftir Bertolt
Brecht. Kristján Árnason talar
um verkið og höfunda þess, og
kynnir þætti úr því. Lotte
Lenya syngur aðallhlutverkið;
aðrir flytjendur eru: Gisela Litz,
Sigmund Rc*h, Horst Giinter,
Peter Markwort o-fl. ásamt kór
og hljómsveit. Stjórnandi:
Wilhelm Bruckner-Rúggeberg.
23:55 Dagskrárlok.
Bókaútgefendur
Óskum eftir að kaupa gömul bókaupplög. — Tilboð
sendist afgr. Mbl. fyrir 13. janúar, merkt:
„Útgefandi — 8148“.
Beitmgamenii óskast
Jón Gíslason sf
Hafnarfiiði. — Sími 50865-
Parket gólí-
flísar í viðarlitum.
Fjölbreytt úrval.
Söluumboð í Kefla-
vík: Björn og Einar.
iLITAVFHSf
byggingavörur
GRENbÁSVEG 22-24IHORNI MIKLUBRAUTAR) SÍMAR 30280 8. 32262
EIMSKAIM
Kvöldnámskeið fyrir fullorðna
Tímar við allra hæfi:
BYRJENDAFLOKKAR
FRAMHALDSFLOKKAR
SAMTALSFLOKKAR HJÁ ENGLENDINGUM
SMÁSÖGUR
FERÐALÖG
BYGGING MÁLSINS
BUSINESS ENGLISH
LESTUR LEIKRITA
Síðdegistímar fyrir húsmæður
Símar:1-000-4 og 2-16-55.
Innritun kl. I—7 e.h.
iVfálaskólinn IMímir
Brautarholti 4 og Hafnarstræti 15.
20 manna hópur írskra listamanna var væntanlegur hingað ti 1 lands í morgun. Hér munu
írarnir halda eina sýningu í Þ jóðleikhúsinu í kvöld, en síðan heldur flokkurinn vestur um haf,
Á efnisskránni er mestmegnis irsk þjóðlög og þjóðdansar.
Sveinn Kristinsson skrifar um
Kópavogsbíó:
Éð VIL SYNGJA.
I could go on singing.
Amerísk mynd, með íslenzk-
um texta.
TVÍFRÁSKILIN söngkona og
ekkill í læknastétt fara með aðal-
hlutverkin í mynd þessari, auk
ca. 10—12 ára gamals drengs,
sem þau höfðu á yngri árum
lagt grunnlínur að utan hjóna-
bands. — Innri barátta söngkon-
unnar: hvort hún eigi að stíga
út af frægðarferli sínum sem
söngkona og taka að gefa sig við
uppeldi sonar síns, sem hún hafði
raunverulega vanrækt gegnum
árin, þessi innri barátta tekur
meginhluta efnisins, en auk þess
heyja faðir og sonur sínar sálar-
styrjaldir, hvor í sínu lagi. Styrj-
aldir eru til lykta leiddar í bili
í myndarlok, en um hitt gæti
maður fremur spurt, hvort að-
iljum tekst að vinna friðinn. Mér
þykir hann nokkuð ótryggur í
lok myndarinnar.
í leikskrá er myndin kynnt svo,
að hún sé raunsæ lýsing á fórn-
um þeim, sem oft séu færðar fyr-
ir frægð og frama á leiksviðum
heimsborganna. Raunverulega er
það þó svo, að maður skynjar
ekki skýrt mikilfengleik þeirrar
fórnar, þ.e. þann stóra ávinning,
sem hún færir. Tilfinningatengsl
milli foreldra og sonar eru skýrt
fram dregin í góðum leik, enda
voru áhorfendur merkjanlega
hrærðir- í þeirri tilfinninga-
streitu. Sérstaklega er leikur
dreigsins (leikinn af Gregory
Phillips) aðdáunarverður og eðli-
legur. — Deha má um það, hvort
afstaða föðursins, sem segist
ávallt hafa elskað söngkonuna,
en vill þó hafa hana sem fjarst
sér og syni sínum, sé jafnmann-
leg.
Ekki verður annað greint en
hún elski hann á móti, svo að
ekki sé nú minnzt á ást hennar
til sonar þeirra. Var það þá ó-
hjákvæmilegur úrkostur, var þáð
ómótstæðileg freisting, sem fékk
hana til að fórna þessu öllu á
altari söngvaguðsins? Eða var
hún kannske einungis knúin af
nauðung, afleiddri af sínu fyrra
líferni, svo og sterkum vilja og
ákveðinni afstöðu barnsföður
síns? Þetta liggur ekki ljóst fyr-
ir, enda mun ekki svo til ætlazt.
Spurningin á að grafa um sig í
vitund áhorfenda og hver að
svara henni fyrir sig. Sérstak-
lega mun þess vænzt, að kvenfólk
skeri upp heiör, til að greiða úr
þeirri spurningu. — Eru ástar-
hneigðir orðnar annars klássa
freistingar?
Nokkur hugþekk lög og vel
sungin leggja fram sinn skerf, til
að gera mynd þessa aðgengilega.
— Hver hefur...
Framhald á bls. 23.
er tapaður og var það frá upp-
hafi, er að láta trúna á eigin
mátt og tæknilega yfirburði
leiða sig í gönur. Það var hægt
að stöðva framsókn kommúnism-
ans í Evrópu með vopnavaldi
fyrir 15 árum, af því ógnun hans
var fyrst og fremst hernaðarleg,
en honuim verður ekki drekt í
Asíu í allshejarbló'ðbaði, af því
þar er ógnun hans allt annars
eðlis. Því fyrr sem Bandaríkja-
stjórn gerir sér þetta ljóst, þeim
mun betra fyrir bandarísku þjóð
ina og samheja hennar um heim
allan, ekki sízt samherjana í
Evrópu sem smám saman hafa
verið að missa trúna á forustu-
hæfileika Bandaríkjanna í heims
málunum.
Miðslöðvarketill
3—4 ferm. óskast strax. Upplýsingar
í síma 16591; eftir kl. 6.
FRAMTÍÐARATVINNA
Viljum ráða mann á aldrinum 20—40 ára til afgreiðslu- og skrif-
stofustarfa í olíustöð okkar í Skerjafirði. —
Umsækjandi þarf að hafa framhaldsskólamenntun og nokkra
starfsreynslu.
Upplýsingar um starfið eru gefnar á olíustöðinni næstu daga,
— sírni 11425.
Olíufélagið Skeljungur hf