Morgunblaðið - 05.01.1966, Page 26
26
MORGU N BLAÐIÐ
Mlðvflkudtagur 8. Janúar 1968
England átti bezta
landsliöið s.l. ár
Afrekalisli ..France Football44
99
ENGL.AND átti bezta landslið í
kknattspyrnu allra Evrópulanda
1965, samkvæmt „afrekaskrá“
franska knattspyrnublaðsins
„France Football“, sem birtur
var á mánudaginn. Listann út
býr blaðið eftir Ieikjafjólda, unn
um leikjum, jafnteflum, töpuð-
um leikjum, mörkum o-s.frv.
Vkr ísland ekki nefnt.
Island er ekki nefnt meðal
30 Evrópulanda, enda eiga þau
lönd er fæ-sta landsleiki leika
litla möguleika á sæti á listan-
um hjá hinu franska blaði. Koma
þar nú mest við sögu þau lönd
er þátt tóku í undankeppni
heimsmeistarakeppninnar og
setur gengi liðanna í þeirri
keppni mestan svip á gengi
þeirra yfirleitt. Listi sem þessi
getur aldrei orðið rétt mynd af
getu hvers lands, því ekki er
tekið tillit til hverjir mótherj-
arnir hafa verið. En listinn fyrir
1965 lítur þannig út.
1. England
2. Ungverjaland
3. Portúgal
4. gúlgaría og ftalía,
6. V.-í>ýzkaland og Sovétríkin
8. Frakkland og A.-Þýzka-
land
10. Belgía, Wales og Tékkósló-
vakía
13. Austurríki, Skotland og
Rúmenía
16. Spánn, Sviss og Júgóslavía
li9. N.-írland, Noregur og Pól-
land
Celtic vann
Rangers 5-1
C E L TI C í Glasgow sigraði
Glasgow Ragers með 5-1 í hinni
árelgu „nýársviðureign“ þessara
gamalkunnu keppinauta. 65 þús.
manns sáu leikinn sem fór frið-
samlega fram — en oft hefur
ikiomið til átaka á áhorfendapöll-
unutn í sambandi við þennan
leik. Vildi lögreglan að leikurinn
færi nú fram 2. janúar en ek'ki á
nýársdag og var nú Lafður mikill
viðbúnaður. En rósemi áhorfenda
einikenndi leikinn.
1 hálfleilk hafði Rangers 1-0
en í síðari hálfleik réði Celtic
lögum og lofum á vellinum og
skoraði 5 sinnum án þess Rang-
ers-menn fengju svarað.
22. Danmörk, Irland og Hol-
land
25* Finnland og Svíþjóð
27. Albanía, Grikkland og Tyrk
land
30. Kýpur og Luxemborg.
ísland hefur stundum komizt
nokkuð hátt á þessum lista og
má sérstaklega minnast ársins
1959 er fsland náði 2. sæti í sín-
um riðli í undankeppni OL-
keppninnar, með jafntefli við
Danmörku og vinning yfir
Noregi.
FH hefur unnið 30 af 40
leikjum vii erlend lii
En norsku meistararnir vonast
nú til að komast loks í 2. umferð
NORSKU handknattleiksmeistarnir frá félaginu Fredensborg í
Osló koma hingað síðdegis á fimmtudag flugleiðis með FÍ. Hér
dvelja þeir í boði FH og búa á Sögu. FH og Fredensborg leika
síðan tvo leiki í íþróttahöllinni í Laugardal á föstudagskvöld og
sunnudag og eru þeir leikir liðir í 1. umferð Evrópukeppni meist-
araliða. Samdist svo um að báðir leikirnir færu fram hér í nýju
höllinni í stað þess að bæði liðin yrðu að ferðast yfir hafið, en
reglur keppninnar mæla svo fyrir um að bæði lið eigi rétt á leik
á heimavelli.
Dómari í báðum leikjum lið-
anna hér verður Daninn Poul
Ovdal og honum til aðstoðar
Magnús Pétursson og Valur
Benediktsson.
Á undan báðum leikjunum
fara fram forleikir og hefjast
þeir kl. 8:15 síðdegis á föstudag
og kl. 4 á sunnudag.
+ í þriðja sinn.
Þetta er í þriðja sinn sem is-
lenzkt meistaralið karla tekur
þátt í Evrópubikarkeppni í hand
knattleik. Hafa Framarar tekið
þátt tvívegis, mætt dönsku meist
urunum og hinum sænsku en
verið „slegnir út“ í -1. umferð
keppninnar bæði árin.
Nú taka íslandsmeistararnir
FH þátt í Evrópukeppninni í
fyrsta sinn og mæta norsku
Jesse Owens stelnt
fyrir skattsvik
HINUM heimskunna íþrótta-
garpi, Jesse Owens, sem vann
fern gullverðlaun á Olympíu-
leikunum í Brlín 1936, hefur
verið stefnt fyrir rétt í Chi-
cago 1. feb. n.k. vegna ákæru
honum á hendur fyrir að hafa
„stolið undan“ skatti 29.135
dölum á sl. fjórum árum.
Owens sem nú er 52 ára að
aldri var ákærður 21. des. sl.
og þá fundinn sekur af undir-
rétti. Vitni voru leidd fram og
kom þar m.a. fram að Owens
hefði aldrei sýnt hæfileika sem
fjármálamaður og eitt vitni
taldi brotið hljóta fremur að
stafa af slysni en af ásettu
ráði.
Owens hefur starfað sem
ráðgjafi varðandi æskulýðs-
mál og oft komið opinberlega
fram sem ræðumaður á þeim
vettvangi.
Hámarksrefsing fyrir ofan-
greint brot Owens er 4 ára
fangelsi og 40 þús. dala sekt.
meisturunum. Má ætla að um
jafna keppni verði að ræða og
telja má að sigurmöguleikar FH
séu fyrir hendi ekki sízt ef byggt
er á árangri liðsins í leikjum við
erlend lið á undanförnum ár-
um.
★ Gott lið.
En fullyrða má að norska lið-
ið er mjög gott. Síðan 1958 hef-
ur það 7 sinnum unnið meistara-
tign í Noregi. Þetta er í þriðja
sinn sem Fredensborg er þátt-
takandi í Evrópukeppni — en
liðið hefur aldrei komist í 2.
umferð. Tapaði það fyrir danska
liðinu AGF í fyrra skiptið og
fyrir Skovbakken í næsta skipti.
En Norðmennirnir vonast til að
komast nú í 2. umferð í hið
þriðja sinn er þeir taka þátt í
keppninni.
•jf Reyndir leikmenn
í leikskrá £.H er skrá yfir
norsku leikmennina og kemur
í ljós af henni að marga gamal-
reynda og kunna handknattleiks
menn er að finna í liðinu sem
hafa mikla reynslu. Eru þar
kunnir norskir landsliðsmenn
einn t.d. með 50 landsleiki að
baki og markvörðurinn er talinn
einn sá bezti í heiminum.
Oddvar Klepperás 1. markm.
28 ára 48 landsleiki.
Jan Erik Fiskdal 2. markm.
23 ára.
Björn Sogn, varnarleikmaður
22 ára.
Per Erik Jensen, varnarleik-
maður, 21 árs 4 unglingalandsl.
Kai Ringlund, varnarleikmað-
ur, 27 ára 29 landsleikL
Jon Arne Gunnerud, sóknarleik-
maður, 27 ára, 17 landsleiki.
Inge Hansen, sóknarleikmaður,
19 ára, 6 landsleiki, 9 ungl.
JOn Reinertsen, sóknarleikmað-
ur, 19 ára, 6 landsl., 8 ungl.
Finn Arne Joliansen, sóknar-
leikmaður, 27 ára, 25 landsl.
Erik Schönfeldt, sóknarleik-
maður, 23 ára, 26 landsleiki.
Ingar Engum, sóknarleikmað-
ur, 25 ára, 6 landsleiki.
Knut Larsen, varnarleikmað^,
ur, 27 ára, 33 landsleiki.
Kjell Svestad, varnarleikmað-
ur, 33 ára, 50 landsleiki.
Erik Lprdal, fyrirliði 28 ára.
Kjell Kleven, fararstjóri 28.
ára, 6 landsleiki.
Norska sendiráðið býður Nor-
mönnunum og nokkrum FH-
ingum í mótttöku á laugardag-
inn en bæjarstjórn Hafnarfjarð-
ar hefur matarboð fyrir þá að
báðum leikjum lO'knum.
Ef svo færi að liðin yrðu jöfn
eftir báða leikina, yrði að semja
við Norðmenn um að leika úr-
slitaleikinn á sunnudag eða mánu
dagskvöld.
Forsala miða hefst í dag, mið-
vikudag hjá Lárusi Blöndal Vest-
urveri og á Skólavörðustíg og í
Hafnarfirði hjá Birgi Björnssyni
í verzl. Hjólið. Við innganginn
hefst sala miða kl. 6 á föstudag
og á sunnudag kl. 2. síðdegis.
jFJÓRIR af elztu og beztu leikj
jmönnum norska meistaraliðs-
s í handknattleik. Fráí
f vinstri: Kai Ringlund, Knutí
ILarsen, Oddvar KlepperásJ
tmarkvörðurinn frægi, og Finnj
kArne Johanson.
M0LAR
SEXTIU áhangendur ítalska
áhugamannaliðsins í knatt-
spyrnu Gorgonzola, mættu til
að sjá lið sitt leika á sunnu-
daginn var. Bið varð þó á því
að mótherjarnír og dómendur
leiksins mættu. Eftir klukku-
stundar bið tóku áhorfendur
að ókyrrast, en flest allir biðu
þó í 90 mínútur samtals. Þá
mundi einn af forsvarsmönn-
um Gorgonzola liðsins eftir
því að upphafi áhugamanna-
keppninnar hafði verið frest-
að til 30. jan. — Menn sneru
heim heldur súrir í bragði. En
þetta sýnir hve lítill áhugi er
fyrir keppni áhugamanna, þar
sem atvinnumenskan blómstr-
ar.
NORSKA kanttspyrnusam-
bandinu var boðið að senda
norska landsliðið til Eþíópíu,
en á mánudag tók sambandið
þá ákvörðun að hafna boðinu.
Var ætlunin að norska lands-
liðið léki í Eþíópíu í sam-
bandi við opinbera heimsókn
Ólafs konungs til Eþíópíu og
hefst sú heimsókn 10. janúar
og stendur í viku. Norðmenn
treystu sér ekki til að ná lands
liði sínu saman til keppni á
þessum tíma.
Leikir FH
erlendum
gegn
liðum
ISLANDSMEISTARAR FH í
handknattleik eru öllum íslend-
ingum kunnir fyrir sína getu of
ótalda sigra á undanförnum
10—15 árum. En þó margir viti
um ágæti liðsins er sláandi tafla
í leikskrá FH fyrir leikina við
Noregsmeistarana í Evrópu-
bikarkeppninni. Sézt af henni
hvaða árangri FH hefur náð í
leikjum sínum við erlend lið
bæ'ði hér heima og erlendis, en
af 40 leikjum hefur FH unnið
30, 4 orðið jafntefli en aðeins
6 tapast. Markatalan er FH mjög
í vil. Taflan skýrir sig að öðru
leyti sjálf.
L
12
U
8
Dönsk
Þýzk 20 16
Sænsk 1 1
Tékknesk 3 1
Norsk 1 1
Færeysk 3 3
40 30 4
T M
4 237—189
2 291—208
26—21
60—59
32—18
82—31
6 -728—526