Morgunblaðið - 05.01.1966, Page 28
Langstærsta og
íjölbreyttasta
blað landsins
Helmingi utbreiaaara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Framleiðslan hefur
aukizt meira en
þörf er á
f ÍFTVARPSEMNDI sínu um af-
komu landbúnaðarins á sl. ári
sagði Halldór Pálsson, búnaðar-
málastjóri, að mjólkurfram-
leiðslan á fyrstu 11 mánuðum
ársins 1965 hefði numið 99.8
milljónum lítra, sem væri 6%
meiri framleiðsla en á sama tíma-
bili 1964, en hins vegar hefði
mjólkursalan aðeins aukizt uin
tæp 2% á sama tíma.
Búnaðarmálastjóri sagði að
þetta sýndi, að framleiðslan
hefði aukizt meira en þörf væri
á. A'ðstaða landbúnaðarins til út-
flutnings hefði versnað tvö síð-
ustu árin vegna • vaxandi verð-
bólgu innanlands og lítilla breyt-
inga eða fremur iækkandi verðs
á erlendum mörkuðum.
Þ-ess vegna væri ástæðulaust
fyrir bændur að auka framlei’ðsl-
una nema með því móti að um
aukna hagkvæmni væri að ræða
í búrekstrinum og í því sam-
bandi ráðlag'ði búnaðarmála-
stjóri bændum að gæta hófs í
notkun kjarnfóðurs.
Benzínverð hækkar
Olíuverð lækkar
Myndin sýnir, hvernig varðskipið liggur utan í dráttarbrautinni. (Ljósm. Mbl. Sv. >.).
Reynf að losa
varðsklpið
Skeftimdir evm ókunnar
ITM áramótin hækkaði benzín-
verð verulega, en olíuverð lækk-
aði litið eitt. Benzínlítrinn kostar
nú kr. 7,05, en kostaði áður kr.
5,90. Olía til kyndingar kostar
nú 1,63 kr. hver lítri, en kostaði
1,67 kr., og olía til báta kostar
nú 1,58 kr. hver Jítri, en kostaði
1,62 kr.
Verðlagsstjóri skýrði Mbl. svo
frá í gær, að þessi 115 aura hækk
un á benzínlítranum skiptist
Hlakka
BÆÐI leikhúsin í Reykjavík
munu á næstunni sýna leikrit
eftir Halldór Laxness. Þjóð-
leikhúsið mun byrja æfingar
á Prjónastofunni Sólin um
miðjan þennan mánuð, og
Leikfélag Reykjavíkur tekur
nýtt leikrit til meðferðar
seinni hluta máaðarins.
Mbl. átti tal um þetta í gær
við höfundinn. Halldór Lax-
ness, sem staðfesti að Þjóð-
leikhúsið hefði fengið leyfi til
að færa upp leikritið Prjóna
stofuna Sóiin, sem hann skrif
aði fyrir fjórum árum, og að
hann hefði lofað Leikfélaginu
þannig, að benzínskattur hækkar
um 90 aura og söluskattur um
7 aura. Vegna verðjöfnunar hefur
verð á benzíni veri“ð svo til
óbreytt um alllanga hríð, en nú
væri bætt við 18 aura álagning-
arhækkun, til þess að vega upp
á móti hækkun á dreifingarkostn
aði o. fl. Um olíuverðið væri það
að segja, áð það hefði einnig
verið óbreytt nokkuð lengi, og
þótt dreifingarkostnaður á olíu
hefði hækkað, hefði innkaups-
verð hennar iækkað meira, svo
áð útsöluverð iækkar um fjóra
aura.
Ók tvívegis iram
úr Slökkviliðinu
UM kl. 22 á mánudagskvöld var
slökkviiiðfð í Reykjavík kvatt
suður í Kópavog, þar sem kvikn-
að hafði í skúr, og gekk greið-
lega að slökkva í honum. Á leið-
inni þangað ók ungur maður tví-
vegis fram úr slökkviliðinu.
Hann var leiddur fyrir rétt í
gær og fékk 1600 kr. sekt.
ieikriti því, sem hann er nú
að skrifa, þegar það er búið
eða jafnvel áður en það er
fuilskrifað.
Laxness kvaðst eiga talsvert
uppkast að nýja leikritinu.
Talað hefði verið um að
byrja að æfa það sem tilbúið
er og hann hefði ekki á móti
því að sá háttur væri á hafður.
Það sé í rauninni góð hug-
mynd. Þá megi sjá hvað hægt
er að gera og hvað ekki á
sviðinu. Hann muni hafa
ánægju af að vinna sem mest
með leikurunum. Laxness lét
þau lítillátu orð falla, að erf-
í GÆR var hafinn undirbúning-
ur að því að losa varðskipið Þór
úr brautarsleðanum í Slippnum,
iþar sem það festist á mánudag.
Guðmundur Hjaltason, yfirverk-
stjóri hjá Slipphélaginu, tjáði
Mbl., að tilraun yrði gerð til að
ná skipinu á flot fyrir næstkom-
andi helgi, en þá verður stór-
streymt. Guðmundur kvaðst
Sjö Akrones-
bútor inraúsild
Akranesi, 4. janúar.
UM ieið og gefur munu eftir-
taldir bátar halda út á síldveið-
ar: Höfrungur III., Sigurfari,
Haraldur, Skírnir, Sigurborg og
Anna. Vb Ólafur Sigurðsson er
kominn austur á síldarmiðin.
Höfrungur III. er næstafla-
hæstur á árinu yfir landið með
12.500 tonn af síld, loðnu og
þorski. — Oddur.
itt væri fyrir skáldsagnahöf-
und að slá í gegn með nýjum
túlkunarmiðli. Leikrit hans
hefðu meira verið tilraun sem
hann hefði ef til vill ekki náð
tökum á. Og hann kvaðst
hlakka til að vinna með leik-
húsunum.
Aðspurður um nýja leikrif-
ið, sagði höÆundur, að uim það
væri erfitt að tala enn sem
komið er. Slíkt væri eins og
að fara að tala um óifætt barn.
Hann hefði haft s'topulan tíma,
verið við annað, og því gengið
hægar að Ijúika því en elia.
Framhald á bls. 31
ekki geta fullyrt hverjum að-
ferðum yrði beitt til að losa skip-
ið, því að margar kæmu til
FYRIR skömmu var frá því skýrt
hér í blaðinu, að Dómkirkjusöfn-
uðurinn hefði ákveðið að gefa
litaðan glugga í Dómkirkjuna til
minningar um sr. Bjarna Jóns-
son. Nú hefur Mbl. fregnað að
í ráði sé að setja Jituð glerlista-
verk í alla neðri glugga kirkj-
unnar, sem eru 7 talsins.
Forráðamenn kirkjunnar munu
hafa rætt málið við brezkan
listamann, Mr. Coie. Hann gerði
litúðu gluggana í Bókhlöðuna á
Bessastöðum og hefur verið á
ferðinni hér á landi. Hefur lista-
maðurinn þegar sent litaskissur
af tveimur gluggum til sóknar-
nefndar Dómkirkjunnar.
Við Dómkirkjuna er til svo-
nefndur gluggasjóður, sem stofn-
aður var í því skyni að fá litaða
glugga í kirkjuna og mun eitt-
hváð vera til í honum, þó það
sjái sennilega ekki langt.
Mbl. reyndi að leita nánari upp
lýsinga um þetta mál. Formaður
sóknarnefndar vildi ekki láta
hafa neitt eftir sér um það að
svo komnu máli.
Brotizt inn hjú
Ölgerðinni
AÐFARANÓTT þriðjudags var
brotizt inn í geymslu Ölgerðar-
innar Egill Skallagrímsson bf.
á Rauðarárstíg með því að brjóta
glugga. Stoli'ð var 48 ílöskum af
appelsíni
greina. Hann kvað skemmdiv
hafa orðið miklar á hinum ný-
viðgerða dráttarsleða, en sagði,
að ekki væri hægt að gera sér
grein íyrir þeim til fullnustu
enn þá.
Pétur Sigurðsson, forstjóri
Landrelgisgæzlunnar sagði ekk
ert vera hægt að segja enn um
skemmdir á skipinu. en enn
hefði ekki sézt nema smágat á
því. Tæki, sem um borð væru,
hefðu ekki skemmzt.
Þá var haft samband við húsa-
meistara rikisins, sem sagði að
að ekki hel'ði verið haft við sig
samband um þetta nú. En oft
hefði verið rætt um það áður, að
litaða glugga þyrfti að setja I
Dómkirkjuna. Honum væri þvi
alveg ókunnugt um að verið
væri að vinna að málinu.
Alúmínmúl
rædd í Sviss
SL. mánudag fóru áleiðis til
Zúrich þeir Jóhann Hafstein, '
iðnaðarmálaráðherra, dr. Jó-
hannes Nordal, formaður Stór
iðjunefndar, Eiríkur Briem,
framkvæmdastjóri Landsvirkj j
unar, Brynjólfur Ingólfsst %
ráðuneytisstjóri, Hjörtur
Torfason, lögfræðingur, og
Steingrímur Hermannsson,
framkvæmdastjóri Rannsókna
ráðs ríkisins. Þar munu þeir j
ræða við fulltrúa Swiss Alu- \
minium (Alusuisse) og vinna j
að nánari gerð á frumdrögum !
að samningum um alúmín-
verksmiðjuna í framhaldi af
þeim umræðum, sem fóru '
fram hér á landi í desember- j
mánuði siðastliðnum. — Þeir
munu flestir væntanlegir
heim aftur í lok þessarar |
viku, en Jóhann Hafstein þó
ekki fyrr en 14, þessa mánað-
ar.
til a& vinna með
leikhúsunum, segir Laxness
Prjónastofan í Þjéðleikhijsiiiu, nýtt leikrit í Iðnó
Listaverk í sjö
glugga Dómkirkjunnar
Brezkur maður hefur gert
uppdrætti að tveivnur