Morgunblaðið - 13.04.1966, Side 1

Morgunblaðið - 13.04.1966, Side 1
32 síður y«i'",, ' ’M’ífV *'■>r-~-n ■• *■■", ,1V- ‘ ’ «m •»-'« # "■<*. > ,«•' nv“ ’ -"W''rl' ' rV;V^'VV.;:^VvV?A ^^, "fit......... HI 1 * AÐFARANÓTX föstudagsins j * langa kom upp eldur í norska : farþegaskipinu „Viking Princ- j ess“, sem statt var á Kara- ; biska hafinu milli Kúbu og Z I; Haiti. Tæp 500 manns voru ; um borð og létust tveir af I > hjartaslagi, en aðra sakaði ■ lítt eða ekki. 106 Ítaiir af ; : áhöfn skipsins komu til j ■ Keflavíkurfiugvallar með ; : Loftleiðavél aðfaranótt páska- : ■ dags. Grein um eldsvoðann og j * viðtöl við nokkra af áhöfn: : skipsins birtist á bls. 12 í j j blaðinu í dag. ; Morð- og sjáifsmorðs alda í Svíþjóð 12 manns hafa heðið bana frá því 7. cipril s.l. Forsetinn kemur heim a mónudog Alþena, 11. apríl. Einka- skeyti frá AP. FORSETI Isiands. Ásgeir Ás- geirsson, fór flugleiðis frá Aþenu í dag til Kaupmannahafnar eftir tveggja vikna einkaheimsókn til Grikklands Forsetinn kom til Aþenu sl. laugardag, eftir ferð trl grísku evjanna og viku dvöl á Rhodos. Forsetinn mun dveljast nokkra daga í Kaupmannahöfn og fljúga síðan til Edinborgar. Til fslands er hann væntanlegur næstkom- andi mánudag. Stokkhólmi, 12. apríl — NTB S V O virðist, sem morð- ©g sjálfsmorðsalda, fari yfir Svíþjóð þessa dagana. Frá því á skírdag hafa tólf manns beðið bana með voveiflegum hætti. Það var við síðast í dag, þriðju dag, að 56 ára gamall maður í Smálöndum skaut 24 ára son sinn til bana og sjálfan sig á eft- ir. Annars staðar, í Uddevalia, banaði móðir sjö ára syni sin- um, — sló hann í höfuðið með hamri og iagði hann siðan í bað- Bandaríkin svara de Gaulle Eitt ár of lítill fyrirvari til að leggja niður herstöðvar Washington, 12. apríl (AP). BANDARÍSK yfirvöld tilkynntu frönsku stjórninni í dag að her- sveitir Frakka, sem staðsettar eru í Vestur-býzkalandi, missi alla aðild að sameiginlegum kjarnorkuvörnum þar um leið og þær gangi undan yfirstjórn At- lantshafsbandalagsins. Kemur þetta fram í orðsend- ingu, sem Charles E. Bohlen. sendiherra Bandarikjanna í París, afhenti franska utanríkis- ráðuneytinu. l»á segir þar að öryggi allra aðildarrikja NATO geti verið hætta búin ef Frakkar standi fast við þá ákvörðun sína að krefjast þess að bandarískar herstöðvar í Frakklandi verði á brott úr landinu fyrir 1. apríl 1967. Þessvegna muni Banda- ríkjamenn ekki geta lokið brott- flutningnum fyrir þennan til- setta tima. Loks benda Bandaríkjamenn / að úrsögn Frakka úr NATO hafi í för með sér ýms efnahagsleg vandamái, sem nauðsynlegt sé að Stjórnarkreppa I Grikkfandi Tveir ráðherrar segja af sér Aþenu, 12. apríl (AP—NTB) ÁGREININGUR er risinn innan stjórnar Grikklands vegna her- stjórnar á Kýpur, og hafa tveir ráðherrar sagt af sér embætti. Ríkisstjórnin hefur aðeins fjög- urra atkvæða meirihluta á þingi, og er talið að ágreiningurinn geti valdið alvarlegrl stjórnarkreppu í Grikiklandi. Ágreiningurinn stafar af þeirri ákvörðun Stephonos Stephanopoulos, forsætisráð- herra, að gríski hershöfðinginn George Grivas skuli fara með yfirstjórn 14 þús. giískra „sjálf- boðaliða“ á Kýpur og einnig stjórna 12 þúsund manna þjóð- varðarliði, sean komið var upp á eyjunni þegar deilurnar við Tyrki stóðu sem hæst. Makarios erkibiskup, forseti Kýpur, hefur óskað eftir því að þjóðvarðarlið- ið lúti stjórn varnarmálaráðu- neytisins þar. Ákvörðun forsætisráðherrans mætti andstöðu grísku stjórnar- innar er leiddi til þess að Elias Tsirimokos, utanrikisráðherra og aðstoðar forsætisráðherra, og Micael Galinos, félagsmálaráð- herra, bafa sagt af sér. ræða nánar áður en endanlega sé frá málum gengið. Opinberir aðilar í Washington hafa bent á að Frakkar hafi eng- an lagalegan rétt til að segja sig úr varnarsamvinnu NATO með svo litlum fyrirvara, og að sú ákvörðun þeirra að hætta samt sem áður allri samvinnu þýddi það að Frökkum bæri að taka þátt í kostnaði við að flytja aðal- stöðvar NATO til annarra landa. Bohlen sendiherra kom sjálfur með orðsendingu Bandaríkja- stjórnar í franska utanríkisráðu neytið, og afhenti hana Herve Alphand, fyrrum sendiherra í Washington, sem nú er ráðu- neytisstjóri. Var fulltrúum ann- arra NATO-ríkja jafnframt af- hent aírit af orðsendingunni. Bandaríkjastjórn vísar orð- sendingunni til gildandi samn- inga milli ríkjanna varðandi her stöðvarnar í Frakklandi. í þeim samningum segir m. a. að sé óskað eftir breytingum á samn- ingunum verði veíttur eins árs frestur til viðræðna. Náist ekki samkomulag á þeim tíma skal gefa enn eins árs frest áður en breytingarnar komi í fram- kvæmd. Telja Bandaríkjamenn því að ékki sé unnt fyrir Frakka að krefjast brottflutnings her- stöðva Bandaríkjanna fyrr en eftir tvö ár. Einnig er rætt um þá ákvörð- un Frakka að taka herlið sitt undan stjórn NATO hinn 1. júlí í ár, og að aðalstöðvar NATO skuli fluttar frá Frakklandi fyrir 1. apríl næsta ár. Þessi mál segja bandarísk yfirvöld að séu nú í athugun hjá öðrum aðildar ríkjum NATO. ker fullt af köldu vatni. Hún reyndi að svipta sjálfa sig lífi á eftir en mistókst og kallaði á hjálp. Konan var gift, en mað- ur hennar að heiman við vinnu, er þetta gerðist. Á aðfararnótt föstudagsins langa varð 42 ára heimilisfaðir guðfræðingur — konu sinni og fjórum börnum að bana og reyndi að fremja sjálfmorð á eftir en mistókst og kallaði þá á lögregluna. Maðurinn hafði lengi átt við taugaveiklun og svefn- leysi að striða. Til athugunar er hjá yfirvöldunum hvort mál verði höfðað gegn guðfræðingn- um. Þá gerðist það um helgina, að forstjóri bifreiðafyrirtækis eins í Hagfors í Vármlandi skaut Framhald á bls. 31. Gin- og kloufn- vciki ó Fjóni Kaupmanna'höfn, 12. apríl NTB A ANNAN páskadag fannst nýtt tilfelli af gin- og klaufa- veiki í Danmörku. Að þessu sinni varð veikinnar várt á Suður-Fjóni en fyrri tilfelli, nítján talsins, höfðu öll fund- izt á Suður-Sjálandi. Það var á bænum Niels- gárden í Stenstrup skammt frá Svendsborg, sem sýkta dýr ið annst og var öllum bú- peningnum 12 kúm og 150 grís um slátrað þegar í stað. Þegar fundið hefur verið hver veirutegund er þarna á ferð verður þegar hafin bólusetn- ing í næsta nágrenni. SÞ heimila stöðvun olíu- flutninga til Rhodesíu Eyrsta olíuflutningaskipinu snúið við á rúmsjó Beira, London og New York, 12. apríl — (AP-NTB) — ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna kom saman tit auka fundar í New York á laugar- dagskvöld samkvæmt ósk Breta til að ræða siglingar grískra olíuflutningaskipa til Mosambique með olíu til Rhódesíu. Samþykkti ráðið með tíu samhljóða atkvæðum að heimila Bretum að beita valdi til að stöðva olíuflutn- ingana, ef með þyrfti. Daginn eftir, á páskadag, stöðvaði brezkt herskip gríska olíuflutningaskipið „Manu- ela“ við strendur Mozam- bique, og sneri því áleiðis til Suður-Afríku. Gríska olíuflutningaskipið „Ioanna V.“, sem kom til Beira í Mozambique 5. apríl sl„ er nú lagzt þar að bryggju skammt frá olíuleiðslunni frá Beira til Rhódesíu .Engri olíu hefur þó verið skipað á land. Bretar fóru fram á að Örygg- isráðið yrði kvatt saman á skir- dag, en það reyndist ekki unnt. Óskuðu Bretar aðeins eftir heim- ild til að beita valdi við stöðv- un olíuskipa, en við umræður í ráðinu reyndu fulltrúar Afríku- ríkja, með stuðningi Sovétrikj- anna, að breyta brezku tillög- unni, þannig að heimilt væri einn ig að beita valdi í þeim tilgangi að steypa stjórn Ian Smiths f Rhódesíu. Eftir allmiklar umræð ur var þó þessi viðbótartillaga feild, og brezka tillagan sam- þykkt með tíu samhljóða atkvæð um. Fimm ríki sátu hjá, þ.e. Mali, Frakkland, Uruguay, Búlg- aría og Sovétríkin. Felur samþykkt Öryggisráðs- ins í sér heimild til Breta að * taka olíuflutningaskipið Ioanna V. þegar það fer frá Beira, ef olían úr skipinu verður sett á land. Manueia stöðvuð Snemma á sunnudag stöðvaði brezka freigátan „Berwick" svo gríska olíuflutningaskipið Manu- ela um 15 sjómílum fyrir suð- austan Beira, en þangað var tal- Framhald á bls. 17

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.