Morgunblaðið - 13.04.1966, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 13.04.1966, Blaðsíða 5
MiSvikudagur 13. apríl 1966 MORGUNBLAÐIÐ 5 ÚR ÖLLUM ÁTTUM Ferðazt á Langjökli. EiríksjökuU í baksýn. Páskaferð á Langjökul Ef litið er á íslandskortið sést á augabragði hvar muni vera öruggasta skíðalandið í nánd við Reykjavík. Hvítur aflangur flekkur, sem á stend ur Langjökull, dregur strax athyglina. Tvennt skortir þó til að >ar sé almennt gósen- land skíðafólks, jafnvel í snjó léttustu vetrum. Bílaslóð vant ar frá Þingvöllum upp undir jökulinn og uppi á snjóbreið- unni er ekki hægt að byggja skíðakofa á fastri undirstöðu. Þetta gerir þeim þó ekkert til, sem ferðast á snjóbílum og setja upp góð tjöld á jökl- inum, þar sem þeim býður við að horfa, eins og 14 manna hópur gerði um þessa páska. Þá er unaðslegt að láta snjó- bílana draga sig yfir víðáttu- mikið hjarnið og fjallasýn er fögur til allra átta. Lagt var upp í býtið á skír- dag með tvo snjóbíla Gunnars Guðmundssonar aftan á drátt arvagni 10 manns í jeppum á eftir og í kjölfarið komu fjór- ir ungir piltar með sinn snjó- bíl á vörubíl. Bkið var til Þingvalla og inn á Hofmanna- flöt, þar sem snjóbílarnir voru teknir niður, enda þá orðinn nægur snjór, til að þeir kæm- ust leiðar sinnar. Leiðin lá austan í Skjaldbreið, vestan við Hlöðufell og inn með Lambahlíðum, nöfn sem allir þekkja úr ljóði Jónasar Hall- grímssonar. Hlöðufell er raun ar tilkomumeira en Skjald- breið, líkist mest Herðubreið í formi og hefði eiginlega átt að skipta um nöfn á þessum tveimur fjöllum. Upp á Lang- jökul er farið hjá svonefndum Klakki, tindi sem stendur upp úr jökulröndinni að sunn an. Á kortinu er hann inni á jöklinum, en mun rji vera orðinn laus frá, þar sem jökul röndin hefur hörfað svo mjög þarna. Þess sjást reyndar víðar merki. Og eru komnir sprunguhausar og klettar upp úr inni á jöklinum, sem ekki einu sinni hafa fengið nafn ennþá. T.d. tveir milli Þursa- borgar og Fjallkirkju, sem er stór og fallegur klettur er sést af Kili. Þursaborg er hrikalegur klettatindur í miðjum jökli með djúpri geil í kringum áveðurs og falleg- um íormum. Við Þursaborg slá jöklafarar um þessa páska niður tjöldum sínum, góðum tvöföldum j|öklatjöldum með túðulokum, svo ekki píski inn í skafrenningi, eins og nú var. Tjöldin eru flest fagurrauð svo þau sjáist langt til í þoku og snjókomu með þunnu fóðri, svo einangrun fáist. En slík tjöld hafa þann ókost að lit- ir breytast. T.d. er loginn á eldspýtu fagurgrænn og and- litin á fólkinu taka á sig draugalega bleikan lit, og varalitur sést ekki, kvenfólk- inu til hrellings. En hlý eru slík tjöld. Nóg er við að vera á jökli, þó veður sé ekki sem ákjósan- legast, gjarna þokur eða skafrenningur. Á föstudaginm langa er Þursaborgin skoðuð og hin furðulega geil, sem vindar gnauða um og grafa kringum klettinn. Mun hún vera 50-100 m djúp. Magnús Jóhannsson tek Framhald á bls. 25 Tjaldbúðin undir Þursaborg, sem stendur upp 'úr miðjum jöklinum. Jöklafarar fá sér hressingu. Kópavogsbúar Stúlka óskast strax til starfa við símavörzlu á skiptiboiði. Málning hf TIL SÖLU 35 Aligæsir Seljast annað hvort í einum hóp eða nokkrar saman. — Upplýsingar í símum 35478 eða 11568. Sendiferðabílf IJ. S. Ford 1959 til sölu og sýnis við Slökkvistöð Reykjavíkur. Tilboð sendist Reykjavíkurdeild R.K.Í., pósthólf 872. Starf í vörugeymslu Viljum ráða mann til starfa í vörugeymslu okkar. Mjólkurfélag Reykjavíkuv Laugavegi 164. Góðor termingagjaiir Vinidsængur, verð frá kr. 559. Teppasvefnpokar Svefnpokar, venjulegir. Tjöld — Bakpokar Ferðagasprímusar Utivistartöskur, verð frá kr. 695. Sjónaukar V eiðistangasett Ljósmyndavéiar frá kr. 95. Verzlið þar sem úrvalið er. Laugavegi 13. Skrif stof ustú I ka Heildsölufyrirtæki í miðbænum óskar að ráða nú þegar stúlku til vélritunar og annarra almennra skrifstofustarfa. Upplýsingar á skrifstofu félagsin* í Tjarnargötu 14. Félag íslenzkra stórkaupmanna. Afgreiðslupiltur lipur og ábyggilegur, óskast nú þegar. Geysir hf Upplýsingar á skrifstofunni. Skrifstofustúlka Iðnfyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða skrifstofu- stúlku nú þegar eða um næstu mánaðamót. Um- sóknir ásamt upplýsingum um aldur og menntun sendist afgr. Mbl. fyrir laugardaginn 16. þ. m., merktar: „Skrifstofustúlka — 9032“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.