Morgunblaðið - 13.04.1966, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 13.04.1966, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 13. apríl 1966 Kemisk fatahreinsun fatapressun, blettahreinsun Efnalaugin Pressan Grensásvegi 50. Sími 31311. Góð bílastæði. Múrarar óskast sem fyrst. Uppl. í síma 33836. íbúð óskast til leigu frá 14. maí eða fyrr fjrrir hjón með tvö börn. Til'boð sendist tí.1 M!bl., merkt: „íbúð — 9030“. Til sölu sex manna borðbúnaður, silfurhúðaður. — Hagstætt verð. Uppl. í síma 32775. Tvær fullorðnar konur sem vinna útí, óska etfir 3—5 herbergja íbúð með þægindum. Engin börn. Sími 24653 frá kl. 6—8. Óska eftir vinnuherbergi á góðum stað í bænutn. Tiltboð sendist Mbl., merkt: „Herbergi — 9034“. Til sölu ný Hardy laxastöng 12% fet (flugustöng). Sími 23668 eftir kl. 1 daglega. Keflavík — Nágrenni Stúlka óskast strax til af- greiðslustarfa, mikið frí. Brautarnesti, Hringbr. 93B. Sími 2210. Trésmíði Vinn allskonar innanhúss trésmíði í húsum og á verkstæði. Hef vélar á vinnustað. Get útvegað efni. Sanngjörn viðskipti. Sími 16805. Renault Gordini ’64 í mjög góðu standi til sölu. Gott verð, ef samið er strax. Uppl. í síma 33587. KONA með þrjú böm óskar eftir ráðskonustöðu í sveit í surnar. Uppl. i síma 12072. RÖSKUR PILTUR óskast til afgreiðslustarfa. Upplýsingar í súna 30420. Silfurtóbaksdósir, merktar, töpuðust miðv.d. 30. marz í mið-eða austur- bænum. Finnandi vinssaml. láti vita í síma 14058. — Fundarlaun. Tek að mér vélritun á íslenzku og ensku. Uppl. í síma 40113. Tapazt hefur kvenúr á leiðinni Túng., Tryggva- gata, miðbær. Skilist að Túngötu 43. Fundarlaun, Gunnsi reiðir heim Vorið góða, grænt og hlýtt, græðir fjör um dalinn; allt er nú sem orðið nýtt, ærnar, kýr og smalinn. HANN Jónas Hallgrímsson skáld, kunni að yrkja um allar þær dásemdir, sem vorið ber í skauti sínu. — Á þeim tíma voru flest öll íslenzk börn alin upp á sveitabæjum víðs vegar um landið, og höfðu engin kynni af borgar-lífinu, nema þá kann- ske að litlu leyti. — Tilhlökkun barnanna í sveitinni var þó svo mikil, að þau kunnu sér engin læti yfir fögnuði vorboðans, og brosandi tóku þau á móti Sum- ardeginum fyrsta, þegar ,Harpa‘, kom með sólargeislana sína til að bræða fönnina af fjöllunum, og af enginu, og vorsins glaði hörpuslátturinn, ómaði, og sól- in stráði geislum sínum yfir haf og hauður, og þá fór jörðin að íklæðast sumarskrúða sínum. — Þessi mynd sem hér birtist, er af ungum dreng, sem á heima í Kópavogi, og hann heitir Gunnar Bjarnason, og er kall- aður Gunnsi. Hann hlakkar allt- af mjög mikið til komu vors- ins, og strax þegar skólinn er búinn, hefir hann farið upp í sveit og verið á sveitabænum Eyri í Ingólfsfirði, hjá ömmu, og frændfólki sínu þar. Gunnsi er mikill dýravinur, og þykir honum vænt um öll dýr. Á myndinni, er hann hjá hestin- um, sem honum þykir vænt um, og þennan dag var Gunnsi að fara með, eins og það er kallað í sveitinni, það var verið að hirða heyið af túninu, og var það bundið í sátur, og þær síð- an settar á klakkinn, sem er á reiðingnum, en áður var búið að setja reiðingin á hestinn, eins og gefur að skilja. — Svo teymdi Gunnsi hestinn, að heyhlöðunni, og þar var tekið ofan af hest- inum, og heysáturnar leystar, og heyið sett inn í hlöðuna, og þar er það geymt til að gefa skepn- unum það á veturna. I. G. X- Gengið X- Reykjavík 6. apríl 1966. 1 Sterlíngspund _____ 120.04 120.34 1 Bandar dollar -..... 42,95 43.00 1 KanadaJollar _ 39.92 40.03 100 Danskar krónur ... 622,90 624,50 100 Norskar krónur .. 600.60 602.14 100 Sænskar krónur __ 834,65 836,80 100 Flnnsk mörk__ 1.335.20 1.338.73 100 Fr. frankar _____ 876,18 878,42 100 Belg. frankar _ 86,22 86,44 100 Svissn. frankar . 989,75 992,30 100 Gyllini ______ 1404,«0 1.87,06 100 Tékkn. krónur .... 596.40 598,00 100 V-þýzk mörk__ 1.070.56 1.073.32 100 Lirur __________ 6.88 6.90 lOOAustur. sch. ...... 166,18 166,60 100 Pesetar ...... 71,60 71,80 LÆKNAR FJARVERANDI Björn Guðbrandsson, læknir fjarv. til 19. april. Eyþór Gunnarsson fjarverandi 6- ákveðið. StaðgengiU: Erlingur l>or- steínsson, Stefán Ólafsson, Guð- mundur Eyjólfsson, Viktor Gestsson og Björn Þ. Þórðarson. Gunnar Guðmundsson fjarv. um ókveðinn tíma. HaUdór Arinbjarnar fjarverandi frá 21. marz óákveðið. Staðgengill: Ragn- ar Arinbjarnar. Jónas Bjarnason fjv. frá 4. apríl 1 2 — 3 vikur. Tryggvi Þorsteinsson fjv. frá 21/2 í 4—5 mánuði. Stg. Jón R. Árnason, Aðalstræti 18. Tómas Á. Jónasson fjarverandi 1. apríl. Óákveðið. • • __ * SOFN Ásgrímssafn, Bergstaða- strætí 74 er opið sunnudaga, þriðjudaga og fímmtudaga, frá kl. 1:30—4. Listasafn íslands er þriðjudaga, fimmtudaga, ardaga og sunnudaga kl. 1.30 — 4. Listasafn Einars Jónssonar er opið á sunnudögum og miðvikudögum frá kl. 1:30 til 4. Þjóðminjasafnið er opið eft- talda daga þriðjudaga, fimmtu daga, laugardaga og sunnu- daga kl. 1:30—4. Minjasafn Reykjavíkurborg ar, Skúlatúni 2, opið daglega írá kl. 2—4 e.h. nema mánui l daga. Storkurinn sagði þá er nú blessað páskafríið liðið, þetta langþráða frí þreytt- um sálum og líkömum í ógnar- hraða nútímans, þegar allt ætl- ar niður að drepa í feyknavinnu og dagsins önn og amstn. Von- andi hafa menn notað það vel, hvílt sig, farið í kirkju, gengið sér til sáiubóta úti í nátturunni og hugsað um fjölskyidu sína og vini sína. Þegar ég flaug niður í mið- borg í gær, skein ennþá páska- sólin, Tjörnin var alauð og fugl- arnir kunnu sér ekki læti í vatnsvíðáttunni, enda er nú ekki nema mánuður þar til Krían mætir til leiks, og þá skal nú verða ærlegur handagangur 1 öskjunni. Klakinn er að vSsu viða í jörðu enn og nær trúlega langt niður, en leysingar eru miklar, bæði á jörðunni o.; í mannlífinu, og bráðlega tekur vorið völdin og þá verðuc nú gaman að lifa. Rétt hjá Móðurástargarðinum hitti ég mann í sólskinsskapi og tók hann tali, því að mér hugn- ast eiginlega alltaf betur því- líkir menn en hinir, sem hafa allt á hornum sér. Storkurinn: Eitthvað hefur þú brúnkast í páskasólinni mað- ur minn? Maðurinn hjá Móðurást: Já, aldeilis, enda var ég alla frídag- ana uppi í sveit, og gekk mik- ið, enda kem ég alveg úthvíldur úr þessu góða leyfi og til í tusk- ið, eins og sagt er. Ég gekk á .annan Páskadag skemmtilega leið milli fjalls og fjöru, eða nánar tiltekið hátt uppi í fjalii, rétt neðan við himimháa kletta, en ofan við fjallshliðina. Þarna opið laug- Hversu mlkU er gæzka þín, er þfi hefur geymt þeim, er óttast þig (Sálm. 31,20). í ðag er miðvikudagur 13. apríl og er það 103. dagur ársins 1966. Eftir lifa 262 dagar. Árdegisháflæði kl. 11:49. Nætur- vörður vikuna 9. apríl til 16. apríl er í Vesturbæjarapóteki Næturlæknir í Keflavík 7/4— 8/4 er Jón K. Jóhannsson simi 1800, 9/4—10/4 er Kjartan Ólafs- son sími 1700 11/4 Ambjörn Ólafsson sími 1840. 12/4 er Guð- jón Klemenzson sími 1567 13/4 er Jón K. Jóhannsson sími 1800. Næturlæknir í Hafnarfirði að- faranótt 14. apríl er Eiríkur Björnsson sími 50235. Upplýsingar um læknaþjön- ustu í borginnl gefnar í sim- svara Læknafélags Reykjavíkui, Símin er 18888. Slysavarðstotan i Heilsnvrrnd- arstöðinnl. — Opin allan wlir- kringinn — simi 2-12-30. KJpavogsapótek er opið alla virka daga frá kl. 9:15—20. laug- ardaga frá kl. 9:15—16, helgidagn frá kl. 13—16. Framvegls veröur teklð á mótl þelm, er gefa vUJa blóð t Blóðbankann, sem hér segir: Mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga frá kl. 9—11 f.h. og 2—4 e.h. MIÐVIKUDAGA frá kl. 2—8 e.h. Laugardaga fra kl. 9—11 fJt. Sérstök athygli skal vakin á uiid- vikudögum. regna kvöldtimans. Holtsapótek, Garðsapótek, Soga veg 108, Laugamesapótek og Apótek Keflavikur eru opin alla virka daga kl. 9. — 7., nema laugardaga frá kl. 9 — 4 og helgt daga frá kl. 1 — 4. Bilanasími Rafmagnsveitu Reykja- víkur á skrifstofutíma 18222. Nætuz og helgidagavarzla 18236. Upplýsingaþjónusta AA samtak anna, Hverfisg. 116, simi 16373. Opin alla virka daga frá kL 6-7 Orð llfsins svarar 1 sima 16066. I.O.OF. 7 = 147124*H = I.O.O.F. 9 = 1474138(4 = Ixl HELGAFELL 59664137 IV/V. 3 sá ég merki um fornaldarárbotn, gríðarstóran, í 120 metra hæð, allan hlaðin vatnsnúnu grjóti, rauðu að ofanverðu, þar sem næsta hraunlag hafði lagst yfir. Enginn veit, hvert sú ógnarell- ur hefur runnið eða hvaðan komið, en víst er um það að aldaraðir er síðan þetta var, og engar sögur til um. Hrafna- standur heitir grasivaxinn hjalli mitt í klettunum .Þangað fór ég og naut dýrðlegs útsýnis út yfir allan Hvalfjörð. Fýllinn, sem á síðari árum hefur haslað sér hreiðurbyggð þarna í klettunum, sýndi frábært svififlug allt í kringum okkur, og yfirleitt býr maður lengi að svona sjón. Storkurinn: Ég get ekki ann- að en samglaðst þér, maður minn, og svona ættu fleiri að gera. Náttúran er raunar væn- legust, þegar öllu er á botninn hvolft, að veita mönnum unað og yndi, og með það var stork- urinn floginn upp á Garðskaga- vita, en þar í grennd er margt skemmtilegt að skoða. Blöð og tímarit ÆSKAN, 3. tbl. 1966 er komið út, afar jölbreytt að vanda, myndum prýtt. Skemmtileg grein er um keisaramörgæsina á Suðurheimskautslandinu. Sagan af Hróa hetti, Siðvenj- ur og hjátrú, með mynd af Eskimóa, Sagan af Sívert sterka og litla sagan aí þrælunum tveimur. Ævintýri Buftfaló Bill, verðlaunagetraun, framhaldssag an aí Davíð Copperfield, Ljóti andarunginn eftir H.C. Andep- sen með myndum etftir Disney, sumarævintýri Danna eftir Hildi Ingu, Gæfuspor. kvæði eftir Pét- ur Sigurðsson, Harpa vinkona mín, Handavinnuhornið, grein um Kærleiksbandið nr. 66, og Anna Kristín Gunnlaugsdóttir skritfar um að vera öðrum til fyrirmyndar. Fjöruferðin etftir Jón afa, skipamynd, Esperantó, mynd af The Hollies, Kvöld- þvotturinn, grein um fiskabúr og kvikmyndastjömur, kynning á þríþraut Æskunnar, sméþætt- ir atf ýmsu tagi prýða ritið með mörgum myndum, frímerkjaþátt ur, fræðsluþáttur um heimilis- störf, fróðlegur kafli um Flug, Muncbihausen barón, Spurningar og svör, myndasögur í úrvali og yfirleitt er Æskan svo fjöíbreytt að etfni og skemmtileg að frá- gangi að furðu sætir, og ber ritstjóra sínum Grími Engil- berts fagurt vitni. Vaíasamt er, hvort nokkum tímann hefur komið út skemmtilegra barna- blað á íslandi. Æskan er 40 síður að stærð, hvert blað, mán- aðarlega. Árgangurinn kostar 175 krónur. Utanáskriftin er Æskan, pósthólf 14, Reykjavík. VÍSUKORIM Illustað á útvarpsumræður. Hæstvirtur asninn, hann er að ljúga, en hlustaðu barasta vinur á mig. Það sem ég segi er satt máttu trúa, svo vil ég gera hreint allt fyrir Þig- Ég fer nú þessa, en hinn ætlar hina hvorug er greiðfær, við reynum nú samt. Gengjum við leiðirnar grýttar til vina, gætum við komið að markinu jafnt. Verst yfir álið og kísi'l að klotfa Hvalfjörðin, Minkinn og rótsterkan bjór í austrinu mætt hann nú eitthvað ti‘1 rofa á gerist kaldinn , vestri hann fór. Hlustandi. sá NÆST bezti Kolbeinn Sigurðsson í Seli var ákaíamaður við vinnu, enda varð hann vel fjáður. Hann stóð einu sinni að slætti með konu sinni, Ingigerði, sem var þá ólétt og komin að fallL Allt í einu segir hún: „Nú kenni ég mín, Kolbeinn. Þú verður að fara og sækja yfir- setukonuna". „Sjálfsagt", segir Kolbeinn, „en heldurðu, að þú getir ekki icroppað ögn á meðan?“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.