Morgunblaðið - 13.04.1966, Side 8

Morgunblaðið - 13.04.1966, Side 8
8 MORCUHBLADID Miðvikudagur 13. aprxl 1966 14 mál rædd á þingfundum í gær Gylfi Þ. Gíslason menntamála- málaráðherra maelti fvrir tveim- ur frumvörpum í neðri deild í gær. Voru það frumvörpin um Stýrimannaskólann í Reykjavík og um útvarpsrekstur ríkisins. Eru þau bæði komin frá efri deild. Var báðum frumvörpunum vísað til 2. umræðu og mennta- málanefndar. Umferðarlög Jóhann Hafstein dómsmálaráð- herra mælti fyrir frumvarpinu um breytingu á umferðarlögun- um. Einnig það frumvarp hefur hlotið afgreiðslu efri deildar. Ráðherra gat þess að í nóv. 1963 hefði þáverandi dómsmálaráð- herra skipað nefnd til rannsókna á umferðarslysum. Þessi nefnd hefði verið boðuð til fundar í haust og hefði þá komið fram, að hún væri ekki tilbúin að skila áliti. Hefði nefndin, samkvæmt sinni ósk, þó lagt fram bráða- birgðaálit og væru tillögur þær er fram kæmu í frumvarpinu byggðar á því. Með frumvarpinu hefði verið lagt til að gefin yrðu út tvenns konar ökuskírteini, annað væri til bráðabirgða og gilti í eitt ár, en siðan kæmi til fullnaðarskírteini er gilti í fimm ár. Að tillögu dómsmála- ráðuneytisins hefði síðan alls- herjarnefnd efri deildar breytt þessum ákvæðum þannig, að fullnaðarskírteini yrði látið gilda í 10 ár, fram að 60 ára aldri, en í 5 ár eftir það. Frumvarpinu var að lokinni ræðu ráðherra vísað til 2. um- ræðu og allsherjarnefndar. Tollskrá Magnús Jónsson fjármálaráð- herra mælti fyrir því frumvarpi í neðri deild, en það hefur hlot- ið afgreiðslu efri deildar. Rakti ráðherra efni frumvarpsins, sem miðar að því að tollar á húsum og húshlutum verði lækkaðir, og gerðar verði nokkrar breytingar til samræmingar á núgildandi tollskrá. Var frumvarpinu síðan vísað til 2. umræðu og fjárhags- nefndar. Hægri handar umferð Frumvarpið um hægri handar umferð kom til 3. umræðu í neðri deild í gær. Tók þá dómsmála- ráðherra, Jóhann Hafstein, til máls og sagði að í 12. grein frum varpsins væri gert ráð fyrir því, að skattur sá er leggja ætti á bifreiðir til að standa straum af breytingum, yrði lagður á í fyrsta sinn á þessu ári . Hins vegar hefði tollstjóri upplýst að þessu yrði tæplega við komið nú, þar sem bifreiðaskattur væri fallinn í gjalddaga og hefði marg ir lokið við að greiða hann. Þar sem ekki væri hægt að inn- heimta skattinn í ár, kæmi tvennt til álita. Að jafna honum niður á þrjú næstu ár, eða innheimta hann á árunum 1967—1970. — Lagði ráðherra til, að málinu yrði aftur skotið til allsherjar- nefndar og hún kannaði hvað gera skyldi. Var umræðu síðan frestað og málinu vísað aftur til nefndarinnar. Framkvæmdasjóður fslands Jónas G. Rafnar mælti fyrir meirihluta áliti fjárhagsnefndar, sem leggur til að frumvarpið verði samþykkt. Einnig mælti | Jónas fyrir breytingu er nefnd- in leggur til að gerð verði við frumvarpið þess efnis að ef Framkvæmdasjóður telur nauð- syn bera til að veita lánsfé til þarfa, sem ekki falla undir starfs svið neins fjárfestingalánasjóðs, þá skuli honum heimilt að lána það öðrum lánastofnunum, er annist endurlán. Sagði fram- sögumaður, að með þessum við- auka væri komið í veg fyrir, að atvinnugreinar, sem fengið hefðu fyrirgreiðslu í Fram- kvæmdabankanum, yrðu afskipt- ar eftir þá skipulagsbreytingu sem frumvarpið gerði ráð fyrir. Væri þar átt við þann atvinnu- rekstur, sem hefði ekki beinan aðgang að lánum úr starfandi fjárfestingalánasjóðum. Að lok- inni ræðu framsögumanns var umræðu um málið frestað, þar sem minnihluti nefndarinnar var ekki tilbúinn með álit sitt. Vélstjóranám Axel Jónsson mælti fyrir áliti menntamálanefndar neðri deild- ar í málinu. Gat hann þess, að er um málið hefði verið fjallað í efri deild hefðu verið gerðar á þvi nokkrar breytingar. Þá hefði verið leitað umsagnar um frumvarpið frá nokkrum aðilum, sem allir hefðu mælt með sam- þykki þess. Axel sagði, að meg- imtilgangur frumvarps þessa væri að skapa grundvöll að hag- felldara vélstjóramenntun og gera mönnum auðveldara að afla sér hennar með það að markmiði, að vélstjórastéttin gæti í fram- tíðinni leyst ört vaxandi verk- efni, er að kölluðu. Meginbreyt- ingar frumvarpsins væru þrjár. í fyrsta lagi væri gert ráð fyrir að Vélskóli íslands skuli verða eini skólinn, er veiti vélstjóra- menntun. í öðru lagi væri gert ráð fyrir að skipta náminu nið- ur í fjögur afmörkuð námsstig, sem hvert um sig veitti sérstök atvinnuréttindi og í þriðja lagi yrði inntökuskilyrði skólans rýmkuð og slitin yrðu tengsl milli járniðnaðar og vélstjóra- náms. Frumvarpsgreinarnar voru síðan samþykktar og málinu vís- að til 3. umræðu. Lánasjóður sveitafélaga Guðlaugur Gíslason mælti fyr- ir áliti heilbrigðis- og félagsmála nefndar neðri deildar um það mál, en nefndin varð sammála um að mæla með samþykkt þess. Sagði Guðlaugur, að í fýrra hefði verið lagt fram frumvarp um sama efni, en það hefði ekki hlot ið afgreiðslu þá. Nú væru tvær breytingar gerðar á frumvarp- inu. í frumvarpinu er lagt var fram í fyrra hefði framlag ríkis- sjóðs til sjóðsins verið ákveðin upphæð, en nú væri gert ráð fyrir að árlegt framlag ríkissjóðs skyldi vera samkvæmt ákvörð- un í fjárlögum. Þá væri einnig nú gert ráð fyrir að stjórn sjóðs- ins skyldi vera skipuð 5 mönn- um í stað 7, sem frumvarpið gerði ráð fyrir í fyrra. Að lok- inni ræðu Guðlaugs var málinu vísað til 3. umræðu. Einnig komu til umræðu í neðri deild frumvarpið um áfeng islög og frumvarp um sölu varp- hólma og selllátra fyrir Ljótunn arstaðalandi. í umræðu um fyrr- nefnda málið tóku þátt í þeir Einar Olgeirsson og Sigurvin íbúð óskast Vil taka á leigu góða 3ja herb. íbúð. Þorvarður Elíasson, viðskiptafræðiugur. Sími heima 14826, sími í vinnu 21776. Einarsson, en rnnræðu var síðan frestað. í efri deild voru þrjú mál á dagskrá og voru öll tekin til umræðu. Eggert G. Þorsteinsson sjávarútvegsmálaráðherra mælti fyrir stjórnarfrumvarpinu um smíði síldarleitarskips. Var þvi máli síðan vísað ti 12. umræðu og sjávarútvegsnefndar. Frum- varpið um skógrækt kom til 3. umræðu og var afgreitt sem lög frá Alþingi. Sveinn Guðmundsson mælti síðan fyrir áliti meirihluta iðn- aðarnefndar um stjórnarfrum- varpið um Iðnlánasjóð. Hefur það frumvarp hlotið gfgreiðslu neðri deildar. Framsögumaður sagði nefndina sammála um að mæla með samþykkt frumvarps- ins, en einstakir nefndarmenn áskildu sér rétt til að flytja breyt iingartillögu. Helgi Bergs mælti fyrir breytmgartillögu er hann flytur og fjallar um að framlag rikissjóðs til sjóðsins verði auk- ið. Var sú tillaga felld við t- kvæðagreiðslu og frumvarpinu síðan vísað til 3. umræðu. Ný mál í gær var lagt fram nefndar- álit frá allsherjarnefnd um til- lögu til þingsályktunar um 18 ára kosningaaldur. Mælir nefnd- in með samþykki tillögunnar með þeim breytingum, að hún orðist svo: Alþingi ályktar, að gerð skuli athugun á þvi, hvort ekki sé tímabært og æskilegt að lækka kosningaaldur og að jafnframt verði endurskoðaðar aðrar ald- urstakmarkanir laga á réttind- um unga fólksins. Athugun þessa skal gera sjö manna nefnd, kos- in af Alþingi. Nefndin kýs sér sjálf formann. Nefndin skal skila áliti svo snemma, að unnt verði að leggja niðurstöður hennar fyr ir reglulegt Alþingi 1966. Hafnarfjörður TIL SÖLUj 2]a herb. íbúð í sambýlishúsi Bílskur fylgir Skip og fasteignir Austurstræti 12. Simi 21735 Eftir lokun sími 36329. Hafnarfjörður TIL SÖLU M.A.: 4ra herb. miðhæð í steinhúsi. Bílskúrsréttur. Útb. kr. 600 þús. 6 herb. efri hæð í steinhúsi. Teppi á stofum. Bílskúr í kjallara. Útb. milljón. 3ja herb. jarðhæð í miðbæn- um. Útb. 300 þús. Laus 14. maí. Einbýlishús í Vesturbænum. Stærð um 90 ferm. 4 herbergi á hæð. Eitt herb. í kjallara. Möguleiki á að innrétta tvö herb. í risi. Útb. 650 þúsund. 4ra herb. miðhæð í Garða- hreppi. Teppi á stofum. Bíl- skúrsréttur. Útb. 450 þús. Guðjón Steingrímsson, hrl. Lmnetsstíg 3 — Hafnarfirði. Sími 50960. Kvöldsími sölumanns 51066. Til sölu 2ja herb. 65 ferm. íbúð á 1. hæð við Kaplaskjólsveg. íbúðin er með vönduðum innréttingum og góðum teppurn. 2ja herb. íbúð á 1. hæð I nýju húsi við Bergstaðastræti. 1 ibúðina vantar aðeins eld- húsiimréttingu og klæða- skáp. Öll sameign fullfrá- gengin, sérhitaveita. 2ja herb. íbúð á 1. hæð í stein húsi við Baldursgötu. Mjög góð hitaveita. 3ja herb. góð íbúð í háhýsi við Ljóeheima. 3ja herb. íbúð á 1. hæð við öldugötu. 2ja og 3ja herb. nýstandsettar Ibúðir á ýmsum stöðum í toænum. Útborgun um 2-300 þúsund. IBÚÐIR OG HÚS I SMÍÐUM: Einbýlishúsið Aratún, 130 fm. Húsið er rúmlega tilbúið undir tréverk. Einbýlishús við Hrauntungu selst fokhelt og múrhúðað að utan. Raðhús við Bræðratungu selst tilbúið undir tréverk. Hag- stætt verð. 5 herb. skemmtilegar íbúðir við Framnesveg seljast til- toúnar undir tréverk, sér- hitaveita. Aðeins tvær íbúð- ir eftir. 2ja—6 herb. íbúðir í smíðum við Hraunbæ. íbúðirnar seljast tilbúnar undir tré- verk. — Athugið að sumar 4ra—6 herb. íbúðirnar eru sérstaklega skemmtilegar endaíbúðir og eru á annarri og þriðju hæð. — Teikning- ar og uppl. um ibúðirnar eru fyrirliggjandi á skrif- stofunnL Fasteignasala Sigurftar Pálssonar byggingameistara og Cunnars Jónssonar lögmanns. Kambsvegi 32. Símar 34472 og 38414. TIL SÖLLs Tvær fimm herb. fok- heldar íbúðir á 1. hæð viðl Hraunbæ Skip og fasteignir Austurstræti 12 Sími 21735, eftir lokun 36329. SÖLU 2 herb. ibúð ásamt I herb. í kjallara við Rauðarárstig Ólafut* t»oi*grftr«*sori W/BBTARÉTTAm-ÖGMA*>U(t Fasteigna- og verðbrétaviðskifti_ Austurstraöti 14. Sími 21785 að íbúðuim af öllum stærð- um. Einnig að hæðum og einlbýlishúsum. 1 mörgum tilfellum mjög jjjóðar út- borganir. 2ja herb. lítil íbúð í vestur- borginni. Útb. kr. 200 þús., sem má skipta. 3ja herb. góð kjallaraíbúð í vesturborgmni. 3ja herb. íbúð í viðbyggmgu við Bergstaðastræti. Nýleg- ar innréttingar, allt sér. Útb. kr. 375 þús. 4ra herb. nýleg íbúð, rétt við Goðahúsin í vesturborginni. Suðursvalir, sérhitaveita. Einbýlishús 110 ferm. við Breiðholtsveg með 4ra herb. íbúð vel byggt og nýmálað. Stór bílskúr, stór lóð. L veðréttur laus. Góð kjör. ÁiMENNA FASTEIGMASAUH UNDj^GATAa^SlMMima Til sölu 4ra herb. hæð í nýlegu stein- húsi í Ytri-Njarðvík. Æski- leg skipti á íbúð í Rvik eða Kópavogi. 5 herb. hæð í Hlíðunum. 190 ferm. uppsteypt einibýlis- hús í Kópavogi, bílskúr. KVQLPjíMI 40647 Hverfisgötu 18. Sími 14160 — 14150 77/ sölu: Endaíbúð á 1. hæð við Klepps veg, 106 ferm., í smíðum, tvöfalt gler í gluggum og öll sameign fullfrágengin. Stór sameign í kjallara. 2ja herb. íbúð nýstandsett við Hverfisgötu í steinhúsi, svalir í suður, fallegt útsýni. Útb. 350—400 þús.. Laus strax. 3ja herb. góð kjallaraíbúð við Karfavog, hitaveita, góðar geymslur. Útb. 400—450 þúsund. Góð lán á eftir- stöðvunum. 4ra herb. góð risíbúð við Háa- gerði. 3ja herb. kjallaraíbúð við Rauðarárstíg. Útb. 350—400 þús. 4ra herb. íbúð á 2. hæð, 95 ferm., við Njörvasund, — teppalögð, vel frá .gengin. Útb. 450—500 þúsund. 4ra herb. íbúð í Hafnctrfirði á 2. hæð, 105 ferm., í ný- hyggðu húsi, allt sér. Ný 140 ferm. glæsileg hæð við Lindarbraut, allt sér. Mjög gott einbýlishús við Heiðargerði, bílskúr, stór lóð. GÍSLI G ÍSLEIFSSON hæstaréttarlögmaður. JÓN L. BJARNASON fasteignaviðskipti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.