Morgunblaðið - 13.04.1966, Page 14

Morgunblaðið - 13.04.1966, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ Miðvlkudagur 13. apríl 1966 f S-Vietnam: Borgarastyr jöld framundan? Jeppa í eigu lögreglunnar í Sagan, er velt á götu í höfuð borginni. Stúdentar stóðu að flestum skemmdarverkum þeim, sem unnin voru. U M páskana, og reyndar allt frá því um miðja síð- ustu viku, hefur ákafur órói verið í Suður-Vietnam. Hefur víða horft til mikilla vandræða fyrir stjórn landsins og Ky, forsætis- ráðherra. Margvíslegar kröfur um breytta stjþrnarhætti hafa verið settar fram. Þess hef- ur verið krafizt, að endi verði bundinn á styrjöld þá, sem nú hrjáir lands- menn, gengið verði til kosn inga í landinu og Banda- ríkjamenn hverfi á brott. Þær raddir, sem sett hafa fram þessar kröfur, hafa verið háværar, þótt eng- inn geti sagt, hver hugur allrar alþýðu er til ein- stakra þeirra. Ástandið hefur, eins og áður segir, verið verst í norðurhluta landsins, og má segja, að þar hafi sums staðar ríkt umsátursástand. Ekki hefur þó komið til stóralvarlegra átaka eða bardaga, en enginn getur sagt um það með neinni vissu, hve lengi stjórn Ky heldur velli. Þar eð blöð hafa ekki komið út um helgidagana, þykir Mbl. rétt að rifja hér upp stuttlega, hvað gerzt hefur síðustu dagana í S.-Vietnam. Fara hér á eftir stuttar frá- sagnir, sem lýsa ástandinu dagana 5. til 10. apríl. >f 5. apríl Er leið að kvöldi, tilkynnti Ky, forsætisráðherra, að hann hefði horfið frá þvi ráði að beita hervaldi í Da Nang, í norðurhluta landsins, þar sem ríkt hefur umsáturástand. Áð- ur ha/fði Ky sagt, að greinilegt væri, að borgin væri í hönd- um kommúnista, og yrði að „frelsa“ hana með vopnavaldi. Flaug forsætisráðherrann aftur til höfuðborgarinnar, Saigon, þótt hann hefði, þá um daginn, gefið út tilskip- an urn, að 3.300 manna her- lið skyldi sent til Da Nang. Vart hafði Kay þó beðizt afsökunar á því að hafa sagt, að Da Nang væri í höndum kommúnista, er leiðtogar hers ins í Hue snerust gegn hon- um. >f 6. apríl Þær ráðstafanir, sem Ky, forsætisráðherra, gerði í gær, og hann vonaðist til að yrðu til að draga úr deilum í norð- urhluta landsins, hafa greini- lega ekki borið árangur. í dag samþykkti Ky, að herlið það, 3.300 manns, sem hann hafði áður sent til Da Nang, skyldi kvatt á brott þaðan. Samtímis lýsti Ngyuen Van Thieu, hershöfðingi, því yfir, að þegar hefði verið hafizt handa um frunldrætti að nýrri stjórnarskrá, og yrði reynt að hraða eftir föngum undirbúningi almennra kosn- inga í landinu, þótt vart yrði hægt að efna til þeirra á næstunni. Hélt hann því fram, að un'dirbúningur myndi taka allt að fimm mánuði. Thieu gaf yfirlýsingu þessa á fundi í Saigon, en Búddist- ar, sem margsinns hafa látið til sín taka í innanríkismál- um landsins að undanförnu, sóttu ekki fund þennan. Er haft eftir áreiðanlegum heim- ildum, að þeir óski nú þess eins, að stjórnin segi af sér. X- 7. apríl Bandaríska stjórnin til- kynnti í dag, að hún hefði ákveðið að fækka í herliði sínu í Evrópu um 15.000 menn. Er hér um að ræða sér- þjálfað lið. Verða mennirnir sendir til Bandaríkjanna á næstu mánuðum. Mun ætlunin, að hermenn þessir aðstoði við þjálfun hers, sem síðar kann að verða sendur til S-Vietnam, gerist þes þörf. Tilkynnt var í Saigon í dag, að leiðtogar Búddista hefðu gefið út tilkynningu, þar sem segir, að þeir muni hætta við andstöðu við stjórn Ky, um stundarsakir a.m.k. Þrátt Þrátt fyrir þessa yfirlýsingu gengu hundruð stúdenta um Saigon í dag, og kröfðust þess, að núverandi ráðamenn landsins segðu tafarlaust af sér. >f 9. apríl Til alvarlegra átaka köm í Saigpn' í gær, föstudaginn langa. er hópar stúdenta lögðu til atlögu við bandaríska her- menn og herlið stjórnarinnar. Beittu stúdentarnir skotvopn- um, handsprengjum og öðr- um vopnum. Talsmenn stjórnarinnar sögðu í dag, að éstandið væri líkast því, að flugumenn Viet Cong stæðu að baki stúdentum, og sk'ipulegðu að- gerðir þeirra. X- 10. apríl Enn ríkir mikil órói eftir bardagana ,sem geisuðu í Saigon í gær og fyrradag, er aldrei áður hefur komið til meiri eða hættulegri átaka í borginni, síðan stjórn Ky, hers höfðingja, tók við völdum. Margir hafa særzt í átök- unum. bæði Bandaríkjamenn og óbreyttir borgarar. Gráklæddir múnkar hafa farið í fararbroddi, og nvatt stúdentana til hryðjuverka. >f 11. apríl Leiðtogar Búddatrúar- manna ventu í dag kvæði sinu í kross, og létu að því liggja, að blóðug borgarastyrjöld myndi skella á landinu, segði stjórnin ekki af sér þegar í stað. Samtök Búddatrúarmanna gáfu í gær út sérstaka yfir- lýsingu, þar sem segir, að ekki sé lengur hægt að bera neitt traust til stjórnar Ky. Var þess krafizt, að bráða- birgðaistjórn yrði látin taka völdin, þar til hægt verður að efna til kosninga um allt landið. Talsmenn Bandaríkjahers í S-Vietnam hafa látið í ljós ótta um, að leiðtogar Búdda- trúarmanna. sem eru öflugir, kunni að gera samning við Viet Cong, og reyna þannig að binda enda á styrjöldina. Engin staðfesting hefur þó fengizt á orðrómi þessum. Hér fer á eftir stutt yfirlit yfir ástandið í S-Vietnam, eins og fréttamaður Associa- ted Press, John M. Hightover, lýsir því í frétt í gær, þriðju- dag. Bandarískir ráðamenn eru heldur vondaufir um, að þeir geti á nokkurn hátt stuðlað að því, að fullkomin ró komizt aftur á í S-Vietnam. Haft er eftir áreiðanlegum heimildum, að þeir ráðamenn Bandaríkjahers, sem nánust afskifti hafa af styrjöldinni í Vietnam, séu nú margir þeirrar skoðunar, að verði ekki gerbreyting á innanlands ástandinu innan skamms, verði aðeins um tvo kosti að ræða. Annað hvort verði Banda ríkjaher að taka málin í eigin hendur, og stilla til friðar. eða Bandarikjastjórn verði að kalla herlið sitt heim frá Vietnam, og hætta þátttöku í styrjöldinni við skæruliða Viet Cong. Vonir ráðamanna um, að ástandið í S-Vietnam breyt- ist til batnaðar, byggjast fyrst og fremst á því, að vitað er að leiðtogar Búddista eru í eðli sínu andkommúnískir. Þótt ástandið sé alvarlegt, þá herma ráðamenn, að styrj- öldin gegn Viet Cong beri enn mikinn árangur. George Batl, varautanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði þannig í sjónvarpsræðu á páskadag,' að ástandið sé ekki þess eðlis, að „til neinna sérstakra ráð- stafana þurfi að grípa, svo lengi sem það hafi ekki áhrif á sjálfa styrjöldina". í þessu felst þó ekki raun- verulega annað, þótt nokk- urrar bjartsýni gæti í orðum ráðherrans, en, að ástandið megi ekki versna, svo að neinu nemi. Óvissan er því fyrir hendi, meðan enn geng- ur til á þann hátt í S-Viet- nam, sem verið hefur undan- farnar vikur. Studentar kveikja í mótorhjóU á ffötu í Saigon. Maðurinn, sem sézt til vinstri á mynd- inni, heldur á logandi spýtu, er hann fleygði síðan inn um glugga skrifstofubyggingar. >«

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.