Morgunblaðið - 13.04.1966, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.04.1966, Blaðsíða 17
/ MiSvIkuðagur 13. apríl 1966 MORGU NBLAÐIÐ 17 Sagan af Signý og Hag baröi kvikmynduð hér 1 SUMAR verður tekin hér á landi norræn stórmynd, sem hyggð er á sögunni um Hagbarð o.g Signý. Hér á landi var af þessu tilefni staddur hinn kunni danski leikstjóri Gabriel Axel, en hann mun stjórna tökunni, en aðstoðarleikstjóri verður Bene- dikt Árnason leikari. Á fundi með fréttamönnum sl. mánudag skýrðu Gabriel Axel og Benedkt frá helztu atriðum í samibandi við myndatökuna. Áætlað er að kvikmyndun hefjist 13. júlí n.k. og standi í 6 vikur, ef veður og aðrar að- stæður hamla ekki. Leikarar verða alls 15, þar af 3-1 íslenzk- ir en aðrir leikarar verða nörsk- ir danskir og sænskir, nema Hag- barður, en Rússi mun verða feng inn til að fara með hlutverk hans, þar eð ekki hefur tekizt að finna norrænan leikara í það hlutverk. í>á verða 20 statistar sem allir verða íslenzkir og að lokum 30 gráir íslenzkir gæð- ingar. Allar útimyndirnar verða teknar hér á landi, en inniatriði í kvikmyndaveri Bonniers í Stokkhólmi. Það eru kvikmynda félögin ASA film studio í Dan- mörku, Bonniers í Stokkhólmi og Edda film á íslandi sem standa að kvikmyndatökunni. Gaforiel Axel er mjög kunnur leikstjóri, og hefur m.a. stjórnað töku tíu kvikmynda og 40 sjón- varpsþátta. M. t.d. nefna Para- dísareyjuna sem hér var sýnd fyrir tveim árum við miklar vinsældir, svo og „Paradís fyrir tvo“ o. m. fl. Gabriel sagði að landslagið hér væri sérlega vel fallið til þessarar kvikmyndatöku, en áherzla verður lögð á að litir allir verði veikir og sem eðli- legastir, en myndin á að vera Framhald á bls. 31. Við guðsþjónustustu í kirkju heilags Jóhannesar í Róm á skírdag þvoði Páll páfi VI. fætur 12 drengja til minningar um það, er Kristur þvoði fætur lærisveina sinna kvöldið áður en hann var krossfestur. Páskaboðskapur páfa: Heimurinn þarfnast vizku 250.000 manns hlýddu á boðskap Páfa — þúsundir pílagríma í Jerusalem — unglingar trufluðu kirkjufrið í Moskvu - SÞ Framhald af bls. 1. ið að skipið ætti að fara með farm sinn, 15 þúsund tonn af olíu. Þegar skipið var stöðvað, viðurkenndi skipstjórinn að ætl- unin hafi verið að sígla til Beira. Var því send um borð í olíuskip- ið sveit sjóliða frá Berwiek, og mætti hún engri mótspyrnu. Síð- an var skipinu snúið við og siglt suður á bóginn. í gær tilkynntu grísk yfirvöld að olíuflutningaskipið Ioanna V., sem liggur í Beira, hefði verið strikað út af skipaskrám þar í landi vegna komunnar til Moz- ambiaue. En þegar skipið lagði að bryggju í Beira, var Panama- fáninn dreginn að hún, segja um boðsmenn skipsins að ræðismað- ur Panama í Beira hafi fallizt á að skipið yrði skráð þar. Hafn- arsvæðið í nánd við olíuskipið hefur verið afgirt og hafður um það öflugur lögregluvörður, en engum fréttamönnum eða ljós- myndurum heimilaður aðgangur. Haft er eftir ábyrgum heimild- um að verið sé að undirbúa lönd un úr skipinu, enda liggur það nú rétt við olíuleiðsluna til Rhód esíu. Bent er á að olíuleiðslan sé tíu tommu rör, en löndunardæla skipsins sex tommur, og hafi verið að útvega í dag tengil á leiðslurnar frá Jóhannesarborg í Suður-Afríku. Ekki hefur þetta þó fengizt staðfest. Talsmenn eigenda olíuskipsins segja hins vegar að farið hafi verið fram á heimild til að setja á land hluta farmsins vegna þess hve innsigling til Beira sé grunn. Skipið komist ekki út frá höfninni með fulllfermi eins og nú stendur á straumi, og verði jafnvel að bíða þar til í septem- ber eftir stórstreymi. Skipstjóraskipti? Skipstjórinn, sem sigldi Io- anne V. til Beira, Geiorge Vard- inoyannis, lét af skipstjórn í gær, mánudag, og hélt burt frá Beira flugleiðis. í dag var skýrt frá því að hann væri kominn til Lourenco Narques í Mozam- bique. Þar ræddi hann við frétta- menn og kvaðst eiga frí frá störf- um meðan skipið væri í höfn. En í Beira var sagt að nýr skip- stjóri hefði tekið við stjórn skips ins. Heitir sá Gregorio Dimop- poulos, og sé fregnin rétt er hann þriðji skipstjórinn á Ioanna V. í þessari sögulegu ferð. Bróðir Vardinoyannis skip- stjóra, Nicholas Vardinoyannis, er umboðsmaður skipaútgerðar- innar í Aþenu. Sagði hann í blaðaviðtali þar í dag að næsta skref eigenda væri þannig undir- foúið, að Bretar gætu ekki aftrað því að olían kæmist til Rhódesíu. Ekki vildi hann skýra mál sitt nánar, en, kvaðst njóta fulls stuðnings Panamastjórnar, sem hafi bent á að öllum skipum, er sigla undir fána Panama, væri heimilt að koma til Beira og leggja farm sinn þar á land. — Hann sagði að bann Sameinuðu þjóðanna næði eingöngu til flutn inga á olíu til Rhódesíu. Það væri ekki hans mál. Skipið mætti landa olíunni í Beira ,sem væri á portúgölsku yfirráðasvæði, án þess að með því væri hafnbann- ið rofið. í Durban í dag kom olíuflutningaskipið Manuela til Durban í Suður- Afríku. Liggur skipið þar á ytri höfninni, og er lítið vitað hvað um það verður. Haft er eftir um- boðsmanni skipsins þar að olían verði sett á land í Durban og komið þar fyrir í geymslu þar til unnt reynist að flytja hana til Rhódesíu. Vafasamt er þó að takist að koma olíunni frá Dur- ban eftir venjulegum leiðum til Rhódesíu, því til þess þyrfti heimild ríkisstjórnarinnar. Og kunnugir telja að Verwoerd for- sætisráðherra hafi í hyggju að draga úr olíusölu til Rhódesíu eftir samþykkt Öryggisráðsins. Sama sinnis eru brezk yfirvöld, sem telja að Verwoerd muni ekki ganga í berhögg við samtök Sam einuðu þjóðanna í þessu máli. Hafnarstjórinn í Durban, C. A. E. Deakin, sagði í dag að ef um- boðsmenn Manuela óskuðu þess, væri ekkert því til fyrirstöðu að skipið leggðist að bryggju og setti farm sinn á land í Durban. Fengi skipið þar sömu af- greiðslu og önnur olíuflutninga- skip. London, 12. apríl, NTB—AP. • KRISTNIR menn um heim allan héldu hátíðlega Páska með guðsþjónustum og messusöng að venju. Á Péturstorginu í Róm hlýddu 250.000 manns páska- boðskap og messusöng Páls púfa VI. I Jerúsalem voru 25.000 manns við páskaguðsþjónustuna við hina helgu gröf — og í Moskvu gerðu þúsundir unglinga aðsúg að kirkjugestum, er hlýddu miðnæturmessu Alexis patriarka í grísk kaþólsku Yelok hovsky dómkirkjunni á Páska- dagskvöld. Páskahald og messusöngur i Rómaborg náði hámarki á Páska daginn sjálfan, er Páll páfi VI flutti mannkyninu boðskap sinn. Þar brýndi hann fyrir mönnun- um að ganga brautir friðar og mannkærleika. Hann sagði, að þjóðir heims stæðu á vogarskál stríðs og friðar. Annars vegar væri leiðin fram á við og mögu- leikarnir á nýjum og betri, rétt- látari og friðsamlegri heimi, hinsvegar leiðin aftur á bak, til hinna gömlu sjónarmiða, er byggðust á vopnabraki og skammsýnum stjórnmálastefn- um. Varaði páfi þjóðir heims við pólitískum refskákum, einræðis- stefnum, kynþáttastefnum, öfga- fengnum þjóðernisstefnum og stéttabaráttu, sem aðeins myndu leiða til sundrungar og ófriðar. Sagði páfi, að ófriðarhættan ( heiminum og skortur á samvinnu þjóðanna vörpuðu skugga á gleðiboðskap páskadagsins. Heim urinn þarfnast vizku og upp- fræðslu siðferðisstyrks og vonar, sem aðeins trúin á Krist getur veitt“, sagði Páll páfL X-' f kirkjum Jerúsalem tóku tug- þúsundir manna þátt í messu- söng. í hinni aldagömlu kirkju við hina helgu gröf voru saman- komnir um 25.000 manns, þar á meðal þúsundir pílagríma hvað- anæva að úr heiminum. Lög- regla átti fullt í fangi með að halda mannfjöldanum í skefjum, einkum á laugardagskvöld, er pílagrímar þyrptust æpandi inn í kirkjuna til þess að verða sem fyrstir til þess að kveikja á kert- um sínum við hinn heilaga eld. ★ ★ ★ f Sovétríkjunum var víða mikil kirkjusókn um páskana. Aðalathöfnin í Moskvu fór fram í grísk kaþólsku kirkjunni Yleok hovsky, þar sem Alexei patriarki Rússa söng miðnæturmessu, er tók fjórar klukkustundir. Kirkj- an var þéttsetin og höfðu kirkju- gestir beðið lengi úti fyrir kirkj- unni, áður en athöfnin hófst, til þess að tryggja sér sæti. Sérstök stúka var fyrir útlendinga og sátu þar fjölmargir starfsmenn erlendra sendiráða í borginni. Hámark guðsþjónustunnar var skrúðganga umhverfis kirkjuna, sem er táknræn athöfn fyrir leit- ina að hinum krossfesta kristi. Fyrir göngunni fór patriarkinn, lágvaxinn maður, 87 ára að aldri og síðan prestar og djúknar og aðrir kirkjunnar menn og báru allir logandi kyndla og kerti. Meðan á guðsþjónustunni stóð höfðu u. þ. b. 5000 ung- menni safnazt saman úti fyrir kirkjunni og höfðu uppi mikla háreysti sem stundum yfirgnæfði messusönginn inni fyrir. Há- marki náðu lætin meðan á skrúð göngunni stóð. Voru þá sungin dægurlög með gitarspili og síð- hærðir unglingar dönsuðu og hoppuðu eftir slætti kirkju- klukknanna. Eftir að göngunni lauk tvístraði lögregla hópnum. Slík háreysti hefur oft verið á páskum í Moskvu úti fyrir kirkjum krisinni, en var með allra mesta móti nú. Hafa yfir- leitt staðið fyrir þeim unglingar, en í skólum landsins er sérstök áherzla lögð á að innræta nem- endum trúleysi. f Póllandi var um PáskahátW- ina minnzt þess, að þúsund ár eru liðin frá kristnitöku þar í landi. Milljónir manna . sóttu guðsþjónustur víðsvegar um landið. í Berlín var mikið um ferða- lög milli Vestur- og Austurhluta borgarinnar. Um 300.000 V- Berlínarbúar heimsóttu ættingja og vini í austurhluta borgarinn- ar. írar héldu hátíðlega Páska og minntust þess jafnframt, að hálf öld er liðin frá uppreisninni og hinni blóðugu baráttu, er leiddi til sjálfstæðis landsins. Á Trafalgartorgi í London komu 20.000 manns saman til þess að mótmæla smíði og notk- un kjarnorkuvopna. ‘10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.