Morgunblaðið - 13.04.1966, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 13. apríl 196
Skíðalandsirtótið á ísafirði:
Sigffiröingar fengu fimm meistara,
en ísfirðingar fylgdu fast
á eftir með f jóra
wm y" ■' -» m - - - -
SKflÐAMÓT tslands 1966,
31. í röðinni var sett á ísa-
firði mánudagskvöldið 4. apríl
á Silfurtorgi. Lúðrasveit ísafjarð
ar lék fyrst nokkur lög, en síðan
setti Björgvin Sighvatsson, vara-
forseti bæjarstjómar mótið með
stuttu ávarpi. Að því loknu var
gengið undir fánum í kirkju og
hlýtt messu Sigurðar Kristjáns-
son, prófasts. Á þriðjudag hófst
svo sjálft mótið með keppni í
í 10 km ;J >ngu 17-19 ára. Á mið-
vikudag var keppt í stökki, og
göngu karla eldri en 20 ára, og
norrænni tvíkeppni, og á fimmtu
dag var keppt í stórsvigi karla
og 10 km boðgöngu, en aftur
á móti var stórsvigi kvenna, sem
ennfremur átti að fara fram þenn
an dag, frestað fram á páska-
dag. Á föstudaginn langa var
ekki keppt, heldur var þá hald-
inn fundur Skíðasambands is-
lands. En á laugardag var hófst
keppni aftur, og þá keppt í svigi
karla og kvenna, og á sunnu-
dag, sem var sáðasti keppnis-
dagurinn var keppt í 30 km
göngu og sveitarsvigi. Síðar um
daginn fór svo fram verðlauna-
afhending og mótsslit í sameigin-
legu hófi keppenda og starfs-
manna, sem bæjarstjórn ísafjarð
ar hélt í Góðtemplarahúsinn.
Það voru Siglfirðingar sem
hlutu flesta islandsmeistaratitl-
ana eða fimm talsins, tsfirðingar
fengu fjóra, Akureyringar tvo
og Ólafsfirðingar einn.
Mikill viðbúnaður.
Mikill viðbúnaður var að
hálfu ísfirðinga fyrir þetta mót,
og einskis til sparað að það færi
sem bezt fram, enda var mótið
liður í afmælishátið ísfirðinga
vegna 100 ára afmælis kaup-
staðarins. Hvert einasta kvöld
meðan keppnin stóð yfir var
eitthvað til skemmtunar fyrir að
komumenn og borgarbúa í sam-
komuhúsum borgarinnar, og
höfðu ýmsir kunnir skemmti-
kraftar verið fengnir að frá höf-
uðborginni til þess að sjá um
skemmtiatriði, og á auglýsinga-
spjöldum samkomuhúsanna, sem
víða hafði verið komið fyrir í
búðargluggum, mátti sjá nöfn
eins og hinn landskunna, ómar
Ragnarsson, gamanvísnarfingvar-
ann, þjóðlagasöngvarana Jónas
og Heimi, Rondotríóið frá Reykja
vík, auk þess sem bæjarbúar
■Z. /' ~ ‘jt,
P ,* * .-r-t ' ■
• . v íM.c'
hiðlögðu líka sitt af mörkum, tvær
danshljómsveitir, leikklúbb, er
flutti gamanleik o. fl. o. fl.
Og ómögulegt er að segja að
ísfirðingar hafi þurft að kvarta
undan því að ekki hafi verið vel
sótt á skíðamótið. Hvert ein-
asta laust herbergi í bænum var
nú upptekið, og oft kostaði það
mikil íheilabrot fyrir þá, sem
sáu um mótið, að finna leiðir
til þess að koma síðbúnustu gest
unum fyrir á einhvern hátt. Fólk
frá nálægum fjörðum streymdi
til Isafjarðar til þess að njóta
páskavikunnar þar, og fjölmarg-
ir komu annars staðar frá. T.d.
mun Flugfélag slands hafa flutt
á fimmta hundrað manns frá
Reykjavík og Akureyri til ísa-
fjarðar fyrir páskana, og um
fjögur hundruð manns munu
hafa komið með Esjunni til ísa-
fjarðar frá Reykjavík. Og svona
mætti lengi telja.
Fyrsti fslandsmeistarinn 1966.
En srjium okkur nú að sjálfri
keppninni. Keppni í 15 km göngu
hófst á Tungubóli, neðarlega í
Dagverðardal, og var genginn
lítill hringur á Dagverðardal, og
annar stærri í Tungudal, og þessi
leið genginn tvívegis. Þegar
gangan hófst var slydda, en
breyttist í rigningu og hvass-
viðri, þegar leið á gönguna. Af
þeim ffökum varð færið breyti-
legt, og yfirleitt fremur slæmt.
20 keppendur voru ræstir I
keppnina. Gunnar Guðmundsson
frá Siglufirði leiddi gönguna
lengst af, en hann hafði rás-
númerið 3. En undir lokin fór
Þórhallur Sveinsson einnig frá
Siglufirði fram úr honum og
kom í mark sem hinn öruggi
sigurvegari með tímann 1.22.14,
sem er ágætur árangur miðað
við aðstæður. Fimm keppendur
hættu keppni, og í þeirra hópi
vsu- íslandsmeistarinn frá í fyrra
Kristján Guðmundsson frá ísa-
firði.
1. Þórhallur Sveinsson S
2. Birgir Guðlaugsson S
3. Haraldur Erlendsson S
4. Trausti Sveinsson F
5. Gunnar Guðmunds. S
6. Gunnar Pétursson í
Úrslitin í 10 km göngu
ára urðu sem hér segir:
1. (4) Sigurjón Erlends. S 51,30
2. (2) Skarph. Guðmunds. S 53,02
3. (1) Magnús Kristjáns. 1 1:03,13
1:22.14
1:28.06
1:28.27
1:28.30
1:28.30
1:32.27
17-19
Sigursveit Isfirðinga í sveitasviginu: T.v. Samúel Gústafsson, Kristinn Benediktsson,
Sigurðsson, íslandsmeistarinn í sviginu og alpatvíkeppninni, og Hafsteinn Sigurðsson.
Árni
4. (3) Jón Stefánsson í 1:12,35
Keppendur í þessari grein
voru aðeins fjórir og luku þeir
allir keppni.
Svanberg vinnur stökkið.
Á miðvikudag var haldið inn
í Hauganes, en þar átti að fara
fram keppni í stökki eldri en
20 ára, svo og í stökki 17-19 ára,
og loks stökkkeppni, sem var
liður í norrænu tvíkeppninni.
Veður var ágætt þegar keppnin
hófst, logn og frostlaust. Fyrstur
stökk Haukur Sigurðsson frá ísa-
firði og náði hann 17,5 metrum,
en lengsta stökkið í fyrstu um-
ferð átti Sveinn Sveinsson Siglu
firði eða 24,5 metra. Og hann
átti einnig lengsta sKökkið í
næstu umferð ásamt Birni Þór
Ólafssyni frá Ólafsfirði, íslands-
meistaranum í þessari grein í
fyrra. En fast á eftir þeim kom
svo Svanberg Þórðarson Ólafs-
firði með 27 metra rétta, en í
fyrstu umferð hafði hann stokk-
ið 22,5 m. Þess vegna var þriðju
umferðar beðið með nokkurri
eftirvæntingu, því að ljóst var
að sigurinn myndi hafna hjá
einhverjum þessara þriggja.
Fyrstur þeirra þriggja stökk
Sveinn og náði hann 24 m. rétt-
um. Þá var komin nokkur gola
sem háði stökkmönnunum nokk-
uð. Svanberg stökk næstur. Hann
náði mikilli ferð í aðrennslinu,
— og það fór kliður um mann-
fjöldann, sem fylgdist með stökk
inu, þegar Svanberg lenti loks
fast við 27 metra markið. Og
litlu síðar tilkynnti þulurinn að
Svanberg hefði stokkið 27 metra
rétta. Síðastur þeirra stökk svo
Bjöm Þór, en honum gekk ekki
eins vel — náði 24 metrum rétt
um
En nú áttu dómararnir, þeir
Sigurður Jónsson, Helgi Sveins-
son og Pétur Pétursson, eftir að
bera saman bækur sínar og gefa
stig fyrir stökkin. Féll dómur
þeirra þannig að sigurvegari og
íslandsmeistari 1966 varð Svan-
berg Þórðarson JErá Ólafsfirði,
hlaut 221.8 stig.
Annars varð ifóð fimm fyrstu
manna sem hér segir:
1. (6) Svanberg Þórðarson Ó
221,8 stig.
2. (4) Sveinn Sveinsson S
220.5 stig.
3. (11) Bjöm Þór Ólafsson Ó
209.6 stig.
4. (7) Þórhallur Sveinsson S
208,0 stig.
5. (5) Birgir Guðlaugsson S
196,5 stig.
í norrænu tvíkeppninni, stökki
og göngu, sigraði Þórhallur
Sveinsson frá Siglufirði með tals
verðum yfirburðum, og varð
þetta því annar íslandsmeistara-
titillinn sem hann hlaut. Fimm
keppendur tóku þátt í keppn-
inni, og varð röð þeirra sem hér
segir:
1 Þórhallur Sveinsson S
194.80 Stökk st.
240,00 Göngu st.
434.80 Samtals
2 Haraldur Erlendsson S
196,00 Stökk st.
224.46 Göngu st.
420.46 samtals
3. Birgir Guðlaugsson S
193.20 Stökk st.
225,77 Glöngu st.
418,97 Samtals
4. Sveinn Sveinsson S
223,00 Stökk st.
194.85 Göngu st
417.85 Samtals
5. Haukur Sigurðsson I
192,70 Stökk st.
118,50. Göngu st.
311.20 Samtals
I sfókki og norrænni tvíkeppni
17-19 ára var aðeins einn kepp-
andi, Sigurjón Erlendsson frá
Siglufirði, mjög efnilegur skíða-
maður. Hann hlaut samtals
446,50 stig í norrænu tvíkeppn-
inni en 206,5 stig samtals í stökk
inu.
Stórsvigið.
Á skírdag var keppt í tveim-
ur greinum, stórsvigi karla og
boðgöngu, ,en stórsvigi kvenna
sem einnig átti að fara fram
þennan dag, var frestað fram á
páskadag. Veður var ágætt til
keppni, logn en sólarlaust að
mestu. Einar Valur Kristjáns-
son lagði brautina, en hún var
2650 metrar að lengd með 58
hliðum, og var hæðarmismunur-
inn 640 metrar. Er þetta með
allengstu brautum sem hér hafa
verið lagðar, en hún hófst efst
á brún Eyjarfjalls, lá niður f
Seljarlandsdal, yfir veginn upp
að skíðaskála þeirra ísfirðinga,
og endaði á túninu við Seljaland,
Til leiks í stórsviginu voru
mættir 31 keppandi, þar á meðal
allflestir okkar beztu svigmanna,
en nokkrir höfðu þó forfallast á
síðustu stundu vegna inflúenz-
unni, sem hér gengur, og má þar
nefna Jóhann Vilbergsson,
Guðna Sigfússon og Þorberg Ey-
steinsson. Ýmsar spár voru á
lofti um það hver myndi hreppa
sigurinn í þessari grein, en
flestir hölluðust þó að því að
það myndi verða Kristinn Bene-
diktsson frá ísafirði, íslands-
meistarinn frá tveimur undan-
förnum Skíðamótum íslands.
Það var Reynir Brynjólfsson
frá Akureyri, sem fór brautina
fyrstur. Hann keyrði mjög vel,
og komst klakklaust í mark, enda
fékk hann ágætan tíma eða
2 mínútur 12,34. Næstur í braut-
inni var Hafsteinn Sigurðsson
ísafirði, sem margir álitu mjög
sigurstranglegan í þessari grein.
Hann fór brautina af öryggi, en
rennsli var hins vegar ekki eins
gott hjá honum og Reyni, enda
fékk hann talsvert lakari tíma.
Þá var komið að ívari Sigmunds
syni frá Akureyri. Hann náði
strax mjög góðri ferð, þræddi
hvert hliðið á eftir öðru af miklu
öryggi, og hlekktist hvergi á.
Fékk hann tímann 2:06,61, og
engum keppendana, sem síðar