Morgunblaðið - 13.04.1966, Side 23

Morgunblaðið - 13.04.1966, Side 23
Miðvikudagur 13. apríl 1966 MORGUNBLAÐIÐ 23 Mikill fjöldi fólks sótti skíðavikuna, sem tókst mjög vel komu tókst að ná betri tíma. Meira að segja Kristinn Bene- diktsson, sem lór brautina án þess að hlekkjast á fékk sjö sekúndum lakari tíma, og hafn- aði í fimmta sæti. Röð sex fyrstu manna varð sem hér segir: 1. fvar Sigmundsson A. 2:06,61 2. Reynir Brynjólfsson A. 2:12,34 3. Björn Olsen S. 2:13,25 4. Árni Sigurðsson í. 2:13,34 5. Kristinn Benediktss. í. 2:13,73 6. Hafsteinn Sigurðsson í. 2:21,49 ' Þar sem maður stóð í hlíð Eyrarfjalls og fylgdist með stór- sviginu, mátti einnig sjá göngu- mennina í tíu kílómetra boðgöng unni, sem fór fram um sama leyti, arka hvern kílómeterinn á eftir öðrum frá Seljalandi, þar sem rásmarkið var, og inn eftir í Tungudal. Þar var keppnin fyrst og fremst milli A-sveitar Siglfirðinga og Fljótamanna. Skarphéðinn Guðmundsson gekk fyrstur fyrir Siglfirðinga en Guð mundur Sveinsson fyrstur fyrir Fljótamenn og Sigurður Sigurðs- son fyrir ísfirðinga. Var lítili munur á þessum þremur göngu- mönnum, en Guðmundur reynd- ist sterkastur undir lokin, og kom fyrstur að marki, en sára- lítill munur var á Skarphéðni, sem kom annar, og á Sigurði. En úr þessu fóru yfirburðir Sigl- firðinga að koma betur í ljós, Birgi Guðlaugssyni tókst að ná forystunni úr höndum Fljóta- manna, og Þórhallur Sveinsson bætti enn við hana. Og að lok- um kórónaði Gunnar Guðmunds- son sigurinn með því að fá bezta tímann í göngunni, eða 31 mín. 51 sek., og varð samanlagður tími sveitarinnar 2.14.25. Aðrir urðu Fljótamenn með 2:17.57 og þriðju ísfirðingar A-sveit með 2:19.37. Heimamenn hljóta fyrsta meistara sinn Á föstudaginn var ekki keppt, eins og áður segir, heldur kom Skíðaþing saman, og mun síðar verða skýrt frá því í blaðinu. En á laugardag var komið að þeirri grein, sem beðið var með hvað mestri eftirvæntingu, nefnilega Sigríður Júlíusdóttir, Sigiu- firði, í stórsviginu. en þar hafnaði hún í þriðja sæti. svigi karla. Það fór fram í Eyrar fjalli nokkru ofan við skíðaskál- ann. Var brautin 650 m löng með 64 hliðum, en hæðarmismunur- inn 165 m. Veður var mjög gott þegar keppnin hófst sól og logn, og fylgdist mikill mannfjöldi með keppninni í góða veðrinu. ísfirðingar höfðu beðið svigs- ins með mikilli eftirvæntingu, því að miklir möguleikar voru á því að þeir fengju þar fyrsta íslandsmeistara sinn fyrst þeir höfðu orðið af honum bæði í 15 km göngunni og í stórsviginu. Stærstu vonir ísfirðinga voru þeir Kristinn Benediktsson, ís- landsmeístarinn 1965, Árni Sig- urðsson og Hafsteinn Sigurðsson, en skæðustu keppinautarnir voru þeir Jóhann Vilbergsson, sem hafði nú náð sér eftir inflúens- una og Björn Olsen, báðir frá Siglufirði, Svanberg Þórðarson frá Ólafsfirði og þeir Reynir Brynjólfsson og ívar Sigmunds- son frá Akureyri. Keppendur í sviginu voru 31, og það var Árni Sigurðsson sem fór brautina fyrstur. Hann fór hana af miklu öryggi, og fékk var keppnin mjög hörð og jöfn. sex fyrstu manna varð þessi: 7) Kristján R. Guðmunds- son í. 1:37,18 c 2. (13) Guðmundur Sveinsson F. 1:38,59 3. ( 4) Trausti Sveinsson F. 1:39,00 4. (15) Þórhallur Sxeinsson S. 1:41,04 5. (17) Gunnar Guðmundsson S. 1:41,49 6. (16) Haukur Sigurðsson í. 1:41,55 Um kvöldið hélt svo bæjar- stjórn ísafjarðar kaffisamsæti fyrir keppendur og starfsmenn mótsins, og þar afhenti Einar Ingvason, mótstjóri, sigurvegur- unum verðlaunin, og farastjórn- um flokkanna gripi til minning- ar um mótið. Margar ræður voru fluttar við þetta tækifæri, m. a. þökkuðu fararstjórar flokk anna ísfirðingum fyrir frábærar móttökur og færðu skíðaráði ísa- fjarðar gjafir. Að lokum þakk- aði forseti bæjarstjórnar kepp- endunum fyrir komuna, og sleit mótinu. Lauk þar með Skíðamóti íslands 1966, sem var í alla staði Séð úr brekkunni þar sem svigið fór fram niður að hinum glæsilega skíðaskála þeirra ísfirðinga. | vel heppnað og ánægjulegt, og kaupstaðnum til mikils sóma. tímann 51,81. Næstu þrír kepp- endur fengu allir lakari tíma, en Björn Olsen, sem hafði rásnúm- erið 4, náði hins vegar tímanum 51.68 og tók forystuna. Kristinn Benediktsson var næstur í braut inni. Hann fór hana af geysilegu öruggi, og sýndi mikla yfirburði, enda fékk hann lang bezta tím- ann til þessa eða 50.00. Næstu menn fengu allir lakari tíma, en Hafsteinn Sigurðsson, sem hafði rásnúmerið 9, náði næst bezta tímanum eða 51.62, en þeir Jó- hann Vilbergsson, Svanberg og fvar, sem þóttu hvað líklegastir til þess að skáka ísfirðingunum þremur, duttu allir fremur illa, og fengu talsvert lakari tíma. Það virtist því sem það væri að- eins Björn Olsen, sem gæti úr þessu komið í veg fyrir ísfirzkan sigur, en hann var eins og áður segir með þriðja bezta tímann. f síðari ferðinni fékk Árni Sigurðsson tímann 53.80, en þeir þrír næstu fengu allir nokkru lakari tíma. Og þá var komið að Birni Olsen. Hann fór braut- ina af miklu öryggi og keyrði mjög vel, og nú biðu allir með miklum spenningi að heyra hver tími hans hafði orðið. En hann kom aldrei. Einhver mistök höfðu orðið við tímatökuna, og Björn varð að gjöra svb vel að klífa aftur á brattann, og fara þriðju ferðina. Björn fór hana af mjög miklu öryggi að því er manni virtist, og tíminn kom — 53.54. Þar með var Björn orðinn fyrstur. En það olli þó ísfirðingum ekki svo miklum kvíða, því að bæði Kristinn og Hafsteinn áttu eftir að fara síðari ferðina. Kristinn var á undan í röðinni, næstur á eftir Birni Olsen. Hann fór greitt framan af og af miklu öryggi þræddi hann hvert hliðið á eftir öðru. En — þegar hann er kominn í miðja brekkuna missti hann jafnvægið, datt illa, og missti nokkrar dýrmætar sek- úndur. Hann reis þó á fætur aftur og hélt keppninni áfram, en timinn var 60.35. Þar með var sú von úti hjá ísfirðingum, en þeir hugguðu sig við það að Haf- steinn átti síðari ferðina eftir. Hafsteinn hefur líka gert sér grein fyrir því til hvers var ætlazt af honum, því að hann fór mjög geist af stað — og kannski fullgeist — því að hann datt tvívegis, og fékk talsvert lakari tíma en Kristinn eða 65.60. Þar með var allt útlit fyrir að Björn Olsen yrði sigurvegarinn í sviginu. En svo var þó ekki — brautarverðirnir áttu eftir að bera saman bækur sínar, og þá kom í ljós að Björn hafði sleppt einu eða tveimur hliðum. Hann var því dæmdur úr leik, og Árna Sigurðssyni dæmdur sigurinn. Röð sex fyrstu manna varð sem hér segir: 1. ( 1) Árni Sigurðsson í. 1. ferð 2. ferð Samt. 51,81 53,80 105,61 2. 2 ) Reynir Brynjólfsson A. 52,37 55,34 107,71 3. ( 3) Ágúst Stefánsson S. 53.56 55,04 108,60 4. ( 6) Kristinn Benediksson I. 50,00 60,35 110,35 5. (11) Svanberg Þórðarson Ó. 56,88 55,16 112,04 6. ( 7) Magnús Ingólfsson A. 54,61 57,51 112,12 Þegar úrslit voru orðin kunn í sviginu, lá það ljóst fyrir hver hafði orðið sigurvegari í alpa- tvíkeppni karla (svig og stór- svig) en það var Árni Sigurðs- son, hann hafði hlotið fyrsta sæti í sviginu og fjórða sæti í stór- sviginu. Röð sex fyrstu manna í alpa- tvíkeppni varð þessi: 1. Árni Sigurðsson f. Stórsvig Svig Samt. 32,96 00,00 32,96 2. Reynit Brynjólfsson A. 26.16 10,70 36,86 3. Kristinn Benediktsson í. 34,66 23,26 57,92 4. Svanberg Þórðarson Ó. 79,46 31,28 110,74 5. Hafsteinn Sigurðsson í. 69.56 54,94 124,5(0 6. Ágúst Stefánsson S. 116,10 15,10 131,20 Þennan dag fór ennfremur fram keppni í svigi kvenna. Keppendur voru sjö talsins, og luku þær allar keppni. Hinn öruggi sigurvegari varð Árdís Þórðardóttir frá Siglufirði, og sjást yfirburðir hennar bezt á því að hún var tæpum 8 sekúnd- um á undan stöllu sinni, Sigríði Júlíusdóttur sem varð önnur. Annars urðu úrslitin sem hér segir: 1. ( 3) Árdís Þórðardóttir S. 1. ferð 2. ferð Samt. 45,26 44,90 90,16 2. ( 9) Sigríður Júlíusdóttir S. 49,31 48,23 97,54 3. ( 6) Jóna E. Jónsdóttir í. 52,51 52,27 104,78 4. ( 5) Hrafnhildur Helgad. R. 53,43 52,88 106,31 5. ( 4) Guðrún Sigurlaugsd. A. 58,76 54,92 113,68 6. (10) Karólína Guðmundsd. A. 58,86 59,72 118,58 7. ( 2) Marta B. Guðmundsd. R. 52,06 71,57 123,63 Sigurdagur fyrir ísafjörð Páskadagurinn varð síðasti keppnisdagurinn og var þá keppt I sveitasvigi, stórsvigi kvenna og 30 km göngu. Það varð strax í upphafi ljóst að baráttan um sigurinn í sveitasviginu myndi verða milli sveitar ísafjarðar, sem tefldi fram þeim Árna Sig- urðssyni, Hafsteini Sigurðssyni, Samúel Gústafssyni, og Kristni Benediktssyni, og sveitar Siglu fjarðar, sem tefldi fram þeim Jó- hanni Vilbergssyni, Ágústi Stef- ánssyni, Sigurbirni Jóhannssyni og Birni Olsen. Eftir fyrri um- ferðina höfðu Siglfirðingar for- ystuna með samt. 213.07 stigum, en ísfirðingar voru alveg á hæl- unum á þeim með 219,99. En í síðari umferð sleppti einn sigl- firzku keppendanna hliði, svo að sveitin var dæmd úr leik, en fs- firðingar ‘hlutu sigurinn, fengu samtals 446,71 sek. Aðrir urðu Reykvíkingar með 521,58 sek., þriðju Akureyringar með 530,78 sek. Sveit Ólafsfjarðar hætti keppni. í stórsvigi kvenna sigraði Karólína Guðmundsdóttir nokk- uð óvart, því að f-lestir höfðu búizt við sigri Árdísar í þessari grein. En bæði hún og Sigríður Júlíusdóttir, sem einnig er frá Siglufirði, urðu fyrir því óhappi að detta - á nákvæmlega sama stað, en höfnuðu þrátt fyrir það í öðru og þriðja sæti. Annars urðu úrslitin sem hér segir: 1. ( 8) Karólína Guðmundsd. A. 70,71 2. ( 4) Árdís Þórðard. S. 72,13 3. (10) Sigríður Júlíusd. S. 75,00 4. ( 1) Marta B. Guðmundsd. R. 76,41 1 5. ( 3) Jón E. Jónsdóttir í. 77,65 6. ( 6) Guðrún Sigurlaugsd. A. 86,76 f alpatvíkeppni kvenna var röð stúlknanna þessi: 1. Árdís Þórðardóttir S. Svig Stórsvig Samt. 00,00 11,20 11,20 2. Sigríður Júlíusdóttir S. 42,90 32,72 75,62 3. Jóna E. Jónsdóttir S. 78,46 51,58 129,94 4. Karólína Guðmundsdóttir A. 137,30 00,00 137,30 5. Guðrún Sigurlaugsdóttir A. 117,40 73,16 190,56 6. Marta B. Guðmundsdóttir R. 156.80 42,91 199,71 7. Hrafnhildur Helgadóttir R. 85,25 13246, 217,71 Siðasta greinin sem keppt var í, var 30 km ganga. í henni voru 16 keppendur og luku allir nema einn keppni. Sigurvegari varð Kristján R. Guðmundsson frá ísafirði, og hefndi hann nú fyrir ófarirnar í 15 km göngu, er hann varð að hættá keppni. Annars - Utan úr heimi Framhald af bls. 16 NÝ 5 ÁRA ÁÆTLUN Meðal þess, sem hvað mesta athygli vakti á flokksþinginu var hin nýja fimm ára efnahagsáætl un Sovétríkjanna, sem Alexei Kosygin forsætisráðherra gerði grein fyrir s.l. þriðjudag. Kosygin gagnrýndi harðlega síðustu sjö ára áætlun, án þess að nefna á nafn upphafsmann hennar, Nikita Krúsjeff, fyrrum forsætisráðh. Hann sagði, að þar hefði verið stefnt óafsakanlega hátt og afköstin í landbúnaðinum hefðu orðið minni vegna þess hve stefnan var lítt hugsuð. Af þess- um sökum er markið sétt lægra á sumum sviðum í nýju áætlun- inni. Sú fyrri var byggð á röng- um útreikningum, sagði Kosygin. Merkasta þjóðfélagsverkefni nýju áætlunarinnar sagði Kos- ygin vera að skapa bætt lífs- kjör og minni mun milli sveita og bæja. Þungaiðnaðurinn hefur enn sérstöðu, en jafnframt verð- ur aukin framleiðsla neyzluvarn- ings. Ráðherrann sagði að á flokksþinginu í október 1964, sem hrakti Krúsjeff frá völdum, hefði verið bundinn endi á notkun rangra aðferða í efnahagslífinu, og þeirra í stað horfið að grund- vallarreglum Lenins til að móta stefnuna í efnahagsmálunum. — Nýja áætlunin byggist á vísind- um Marx-Leninismans, og þeirri reynslu, sem fengizt hefur í Sovétríkjunum og öðrum lönd- um kommúnismans. Höfuð til- gangurinn verður að vera sá að tryggja verulegan vöxt iðnaðar- ins og auka þróun landbúnaðar- ins. sagði Kosygin. Varðandi varnarmálin sagði ráðherrann að varnir Sovétríkj- anna yrðu stöðugt fullkomnari, og vopnasmíði færi vaxandi. Meira fé verður að verja til land- varna vegna styrjaldarinnar í Vietnam og árásaraðgerða heims- valdasinna, sagði Kosygin. En hann bætti því við að sovézki herinn væri búinn öllum nýjustu vopnum. Ráðherrann sagði að þegar takmark síðustu sjö ára áætlun- ar var sett, hefði ekki verið tekið tillit til afkastagetu iðnaðarins. Nú verður því dregið úr hinni stórbrotnu áætlun Krúsjeffs varð andi efnaiðnaðinn, en orkufrám- leiðslan hinsvegar aukin um 70% á næstu fimm árum. Kosygin gaf í skyn að áfram yrði haldið til- raunum tii að láta verksmiðj- urnar skila arði. Landbúnaðar- framleiðslan yrði aukin um 25%, og hagnaður af landbúnaði ætti að hækka um 25—40% kvæmt nýju áætluninni sam-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.