Morgunblaðið - 13.04.1966, Page 28

Morgunblaðið - 13.04.1966, Page 28
/ 28 MORGUNBLAÐIÐ 1 Miðvikudagur 13. apríl 1966 SUZANNE EBEL: ELTINGALEIKUR — Nokkuð sem ég get hjálpað þér, mamma? — Ég vil nú helzt berjast í björtu, sagði hann þegar þöfuð- ið á einum dólgi Rochels stakkst út um gluggann á bílnum en hvarf samstundis aftur. — Þeir geta niú ekki skotið okkur fyrr en við komum á eitt- hvert óbyggt svæði. Sumar borgirnar, sem við ók- um gegn um, voru þegar teknar að rumska. Verkamenn fóru út í myrkrið á hjólunum sínum. Hópur frá kolanámu skrölti heim leiðis og andgufan rauk frá þeim í kuldanum. Við Rod sátum í hálfgerðu hnipri í bílnum, með byssurnar á hnjánum. Ég laut fram og kveikti á út- varpinu í bílnum. Nú voru klukk an sex-fréttirnar. Við hrukkum við, þegar nafn Prudence Caxton var nefnt, aftur og aftur. Það hafði verið „eitthvað í sambandi við byssu“ á fundinum í gær- kvöldi, sagði þulurinn — hún hafði niú ekki orðið fyrir skot- inu, en einn maður hafði verið tekinn fastur til nánari rann- sóknar. — Þeir eru farnir að flýta sér, sagði Rod. Ég hallaði mér aftur i sæt- inu og fór að íhuga nóttina, sem liðin var. Það var Monsieur Philippe, sem ég var aðallega að hugsa um. Rochel var að vísu andstyggilegur, en þannig menn hafði ég rekizt á fyrr. En hinn maðurinn var tegund, sem ég kannaðist ekki við. Ég mundi eftir lýsingu Rods á þessum skín andi demanti á fingrinum, og þessari hægu og rólegu rödd. Hvað skyldi hann hugsa um okkur Rod — svona bjána og við vaninga með pipar og góða ásetn inga að vopni? Líklega hugsaði hann alls ekki um okkur. Við værum bara tveir skrokkar, sem hægt væri að setja í vélina hans, sagði Rod. Hann fann, að ég skalf og sagði: — Þér er kalt. Fáðu þér sopa af konjaki. Þetta verður löng ferð hjá okkur. Sólin var tekin að gera vart við sig upp yfir dökkleitar hæð- irnar. Daimlerinn ók áfram, og við á eftir í hæfilegri fjarlægð Þetta var meiri skrípaleikurinn. — Hversvegna hafast þeir ekki eitthvað að? sagði ég loks- ins. — Ég er að búast við, að þeir skjóti á okkur. Þeir vita ‘þó, að þetta erum við á eftir þeim. □-----------------------------□ 23 □—*—--------------------------□ — Þarna er ástæðan til þess, að þeir geta ekkert gert. Tod gerði bendingu með höfðinu í átt ina að kapellu úr timbri, þaðan sem ljós skinu út í myrkrið. — Og svo hann......og hann...... og hann benti á tvo menn, sem flýttu sér framhjá. — Og auðvit að þessa .... og hann benti á lögreglustöð við veginn. — En Iþegar við komum upp í Hálönd- in, getur orðið öðru máli að gegna. Það birti, en samt fanst mér ekkert bjartara en áður. Himinn inn var þungbúinn og mér fannst hann vera snjólegur. Hæðirnar, sem urðu æ brattari, voru huldar þoku, Og vegurinn hélt áfram, upp í móti og niður í móti, yfir öldótt landslag Láglandanna. Bíll inn á undan okkur ók það, sem hann komst og virtist eiga það eitt áhugamál og losna við okk- ur. En við vorum hraðskreiðari og einbeittari og höfðum ásett okkur að missa aldrei sjónar á Daimlernum. Nú fór að verða vart við ofur lftinn snjó á rúðunum hjá okk- ur. Þar sem ég sat við hliðina á Rod og hallaði mér upp að hon um, fannst mér þetta ferðalag okkar vera orðið hálfgerð mar- tröð, og við værum að færast meir og meir í áttina til einhvers sem ég hafði fundið á mér vik- um saman, eða alveg frá þeim degi, er við komum saman að kofanum í Bosham. f fyrstunni hafði þetta verið eins og ofur- lítill spenningur, tilfinning um, að „eitthvað myndi ske“, sem losaði mig við tilbreytingarleysið í daglegu starfi mínu, sem mér var svo mjög tekið að leiðast. En svo hafði það orðið að hlutverki — að málefni að berjast fyrir. En nú var það skuggalegt og framundan einhver óhugnaður, sem ekki var hægt að lýsa, og lá í leyni fyrir okkur. Nú tók landslagið að breytast, þorpin urðu strjálli og alltaf var á fótinn, og þokan og snjókom- an fór vaxandi. — Sjáðu til, sagði Rod. — Þarna er vatn. Við ókum framhjá stöðuvatni, sem var stálblátt á litinn, en á bakka þess var lítill steinkastali, dimmur og veðurbar inn. Við ókum hratt gegnum Glen- coe-skarðið, þar sem fjallatind- arnir voru þegar orðnir hvítir, en landslagið gróðurlaust og al- sett stórum klöppum. Lengst í fjarska sáum við silfurlitt strik, og eftir kortinu átti það að vera Loch Leven. Mikið gat þetta allt verið eyðilegt. Og draugalegt, hugsaði ég og hrollur fór um mig. — Mér heyrðist þú segja, að þeir mundu skjóta á okkur, þeg- ar við værum komin í nógu mikl ar ðbyggðir. Þú sagðir, að þeir hefðu látið okkur í friði, ein- ungis vegna þess, að við vorum í mannabyggðum. En hvað er þá þetta hérna? Við gætum eins vel verið á tunglinu, sagði ég önug. Rod setti up eitthvert sjálfs- ánægjuibros. ■— Það er bílaferja yfir vatnið. Ég hef farið á henni sjálfur. Vinir okkar hafa vist komið sér niður á því, að það væri betra að sleppa frá okkur en að fara að skjóta á okkur. Og iþeir þurfa fjandans mikið að flýta sér. Þeir ætla að taka ferj- una og sjá til þess, að hiún flytji ekki okkur. — Hvernig ertu svona stað- kunnugur hérna? spurði ég og hætti að hugsa um eltingaleikinn en varð forvitin í staðinn. — Ég var í sumarfríi á Hálönd unum í fyrra. — Hver var með þér? — Þú meinar það ekki? Hann glotti. — Við ættum held ur að krækja kring um vatnið. Það er nokkrum mílum lengra, en það er hins vegar staut við að koma bíinum upp á ferjuna og það getur tafið þá talsvert. Við verðum ekki svo mjög langt á eftir þeim. Það skal að minnsta kosti ekki verða mér að kenna. Hann herti á bílnum og við ókum á sjötíu niður eftir brekkunni og ókum svo bratta braut uppi i hæðinni, sem lá að vatninu. Hún var mjó og hlykkjótt, en ekki sér iega óslétt, og enda þótt farið vœri að snjóa, var færðin ekki sem verst. — Við erum heppin, að það skuli ekki vera farið að frjósa, sagði Rod. — En það get- ur orðið á hverri stundu. Hann benti á snæfokið. Stundum var eins og við værum að aka beint á fjallshlíðina. En svo kom lang- ur, beinn kafli meðfram vatninu og Rod ók á áttatiu áleiðis tii Fort 'William. Félag óháðra borgara Hafnarfirði heldur félagsfund í Góðtemplarahúsinu, Hafnar- firði, fimmtudaginn 14. apríl kl. 8,30 e.h. FUNDAREFNI: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Tillaga uppstillinganefndar um framboðs- lista félagsins í bæjarstjórnarkosningunum. 3. Rætt um kosningaundirbúning. Fundurinn er fyrir félagsmenn og þá, sem gerast vilja félagar. STJÓRNIN. / FERMINGA R VEIZLUNA SMURT BRAUÐ BRAU-ÐTERTUR SNITTUR FJÖLBREYTT ALEGG MUNIÐ AÐ PANTA TIMANLEGA Til sölu Rambler Classic árg. 1964 einn glæsilegasti bíllinn á markaðnum í dag. Skipti koma til greina. Bílosola Guðmundar Bergþórugötu 3. íbúð til leigu Tilboð er greini fjölskyldustærð, atvinnu og verð, óskast í íbúð, tvö svefnherbergi og stofa 3,60x8,30, eldhús og bað, á jarðhæð í Austurbænum. — Tilboð sendist afgr. Mbl., merkt: „íbúð — 8804“. Lagermaður — Bílstjóri Duglegur og reglusamur maður óskast nú þegar til lagerstarfa og að aka vörubíl, nauðsynlegt að við komandi sé vanur að vinna npeð gaffallyftara. Upplýsingar á skrifstofunni, Hallveigarstíg 10. Hannes Þorsteinsson heildv. — Stelpa. Til sölu íbúð við Tómasarhaga. — Fjögur herbergi og eld- hús. — Sér hiti. — Nánari upplýsingar gefur: MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar, Guðmundar Péturssonar Aðalstrgeti 6. — Simar 1-2002, 1-3202 og 1-3602. Stúlka Rösk stúlka óskast í bókaverzlun. Góð enskukunn- átta nauðsynleg. — Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf sendist í pósthólf 124. Orðsending til félags- manna í Félagi ísl. bifreiðaeigenda Þar sem bifreiðaskoðun fer nú í hönd víða um land, vill félagið benda á að samkvæmt hinum nýju ljósastillingaleiðbeiningum bifreiðaeftirlits ríkisins, frá 1. febrúar 1966 fær enginn bifreið fullnægjandi skoðun án þess að hafa ljósastiilingarvottorð. — Til þess að forða félagsmönnum frá mikilli bið þegar skoðun er hafin viljum við hvetja menn til að koma sem fyrst með bifreiðir sínar til stillingar. Á eftirtöldum stöðum fá félagsmenn afslátt af föstu 1 jósasti llingarverði: Ljósastillingastöð F. í. B., Langholtsvegi 171. Bifreiðaverkstæði Kaupfél. Árnesinga, Selfossi. Bifreiðaverkstæðinu Vísi, Akranesi. BHaverkstæði Einars og Sigurðar, Njarðvík. (Fleiri verkstæði auglýst síðar). Félag ísl. bifreiðaeigenda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.