Morgunblaðið - 13.04.1966, Side 30

Morgunblaðið - 13.04.1966, Side 30
30 MORGUNBLADIÐ Miðvikudagur 13. apríl 1966 Norðurlandam'ótið í körfuknattleik: Þriðja sætið vannst eftir sigur í framlengd- um leik við Dani Kolbeinn Píílsson kom mest á ovart og bjargaði sigrlnum Herlev — Köbenhavn, 11. apríl 1966. ÞÁ ER Polar Cup 1966 lolkið með sigri Finna eins og við var búizt. Svíar urðu númer tvö, og ísland númer þrjú eftir æsispennandi baráttu við Dani í framlengdum leik. Danir sigruðu síðan Norð- menn og sluppu þannig við neðsta sætið, sem Norðmennirnir skip- uðu, en það er reyndar ekki nema eölilegt, því þessir leikir hér í Polar Cup voru fyrstu landsleikir Norðmanna. inn létt og skemmtilega leikinn af beggja hálfu og líktist í mörgu æfingaleik milli tveggja félags- liða heldur en landsleik og lauk honum með stórum sigri Finna 92:47. Var þá lokið þátttöku ís- lands í mótinu og verður að telja að frammistaða íslenzka liðsins hafi verið til sóma, tveir sigrar, gegn Dönum og Norð- mönnum og tvö töp gegn Finn- um og Svíum, eftir góða baráttu liðsins í Svíaleiknum. Eru þessi úrslit fyllilega í samræmi við þær vonir sem við höfðum fyrir keppnina og sýnir okkur að við stöndum nokkuð jafnfætis Dön- um í körfuknattleik, en eigum enn góðan spöl í að ná Svíum og Finnum, en hjá þeim þjóðum báðum eru mjög vel skiplögð samtök um þróun körfuboltans og þarf ekki að því að spyrja að án slíkrar uppbyggingar þurfum við ekki að hugsa um að sækja sigra gegn þessum þjóðum, en við ræðum þau mál nánar hér á íþróttasíðunni þegar sagt verð- ur frá formannaráðstefnu körfu knattleikssambandanna á Norð- urlöndum, sem haldin var hér í Herlev s.l. laugardag. Gangur þeirra leikja í mótinu sem ísland lék verður nú rakinn hér, en aðrir leikir ekki raktir nákvæmlega, en úrslit þeirra sýnd, og um næstu helgi mun birt hér á síðunni statistik um mótið og verða þá ýmsir þættir úr ferðinni sjálfri ræddir. Islamd—IMoregur íslenzka liðið stóð sig vel i sínum leikjum og sigraði Norð menn í fyrsta leik mótsins með yfirburðum 74—39, eftir fremur slæma byrjun. Seinna sama dag, föstudaginn langa lék liðið móti Svíum og átti góðan leik var um tíma títill munur á liðunum en undir lokin náðu Svíarnir góð- um spretti einkum tveir stærstu menn þeirra Hanson og Aibert- son, hvor 2.03 metrar á hæð, og átti íslenzka vörnin ekkert svar gegn þessum risum og afleiðing- in var fremur stórt tap. Var þetta sannarlega föstu- dagurinn langi hjá íslenzka liðinu, sá lengsti sem liðs- menn þess hafa nokkru sinni átt í körfuknattleik, því fyrir utan leikina tvo var höfð létt æfing um morguninn til þess að venjast aðstæðunum. Dag- inn eftir, á laugardag, var svo klukkan 5.30 sá leikur sem mest reið á í ferðinni, baráttu leikurinn um 3. sætið, leikur- inn gegn gestgjöfunum hér, erfðafjendum vorum Dönum. Síðast þegar liðin mættust í Helsingfors 1964, urðu úrslit- in þau að ísland vann með einu stigi, sem skorað var nokkrum sekúndum fyrir leikslok. Leikurinn á laugar- dag var nær því endurtekning á leiknum í Finnlandi nema að þessu sinni varð að fram- lengja í fimm mínútur til þess að ná úrslitum, því eftir venjulegan leiktíma stóð 60—60. f framlengingunni höfðu Danir forystuna þegar r I Landsleikur við Frakka handknattleik á morgun SÍÐASTI landsleikur fslend- inga í handknattleik á þessum vetri verður leikinn annað kvöld í fþróttahöllinni. Mót- herjar eru Frakkar en lands- lið þeirra hefur þegar tryggt sér rétt til keppni í úrslita- orustu heimsmeistarakeppn- innar — og taki ísland sæti Túnis í þeirri keppni, sem hugsanlegt er að sögn þá hitt- ast þessi lið aftur í lokaor- ustunni, því Frakkar eru í riðli með Tékkum, Dönum og T-únis (eða íslandi). Leikurinn hefst annað kvöld kl. 8,30 síðd. Enginn forleikur verður en Lúðra- sveit Reykjavíkur leikur fyrir leikinn og í hléi. Frakkarnir voru væntan- legir í nótt (aðfaranótt mið- vikudags), heimsækja franska sendiherrann á morgun, sitja boð menntamálaráðherra eftir leikinn og halda utan á föstu- dag. íslenzka landsliðið hefur verið valið og eru gerðar á því þrjár breytingar frá leikn- um við Dani. Hjalti Einars- son markvörður er lótinn víkja ásamt Karli Jóhanns- syni og Auðuni Óskarssyni. Liðið er þannig: Þorsteinn Björnsson og Jón Br. Ólafsson í markinu, Birg- ir Björnsson, sem nú leikur sinn 25. landsleik og er 4. ísl. leikmaðurinn sem nær þeim áfanga, Geir Hallsteinsson, Gunnlaugur Hjálmarsson, fyr irliði, Hermann Gunnarsson, Hörður Kristinsson, Ingólfur Óskarsson, Sigurður Einars- son, Stefán Jónsson og Stefán Sandholt. Jón Breiðfjörð Ólafsson er nýliði, Stefán Jónsson hefur leikið einn leik. >eir tveir ásamt Birgi taka stöður þeirra er látnir eru víkja. Franska liðið er gott lið. Tvívegis hafa Islendingar leik ið við Frakka, fyrst í HM 1961 og unnum við þá 20:13 en síð- an í París 1963 og unnu þá Frakkar með 23:14. Frakkar hafa náð athyglisverðum ár- angri í vetur, léku m.a. við Pólverja í Póllandi og töpuðu þar aðeins með 3 marka mun 23:26. Dómari í leiknum verður Svíinn Lennart Larsson. u.þ.b. 30 sekúndur voru eftir 67:66, en íslenzka liðið nær boltanum og Kolbeinn fær tvö vítaköst þegar brotið er á hon um í skottilraun. Sýndi hann mikla yfirvegun og tauga- styrk og skoraði úr báðum skotunum og vann leikinn fyrir ísland 68—67. Skall þar sannarlega hurð nærri hæl- um, og hefði verið mjög sárt að tapa þessum leik, og er vel hægt að hugsa sér að Dönum sárni því pressan hafði talað nokkuð um að nú ætti að vinna ísland og ná 3. sæti, og var þetta eini leikurinn í mót inu sem var sjónvarpað. Á sunnudagsmorgun var síð- asti leikur íslenzka liðsins, gegn Finnum. Var ekki gengið til hans með neinar sigurvonir í brjósti því Finnar eru okkur stórum betri í þessari íþrótt. Var leikur- 74-39 Eftir setningarathöfn, þar sem þjóðsöngvum allra þjóðanna var misþyrmt allhressilega, af danskri skátahljómsveit, hófst fyrsti leikur mótsins og fyrsti landsleikur Norðmanna. íslenzka liðinu tókst ekki alitof vel upp í byrjun og náðu Norðmenn for- ystu og héldu henni um tíma, en íslendingarnir áttuðu sig von bráðar á aðstæðum og hristu af sér slenið og taka frumkvæðið í sínar hendur og í hléi var stað- an 39—22. Síðari hálfleikur var létt og vel leikinn af íslenzka liðinu og var heldur slegið af til þess að eiga eitthvað eftir í leik- inn gegn Svíum síðar um dag- inn. Stöðugt dró sundur með lið unum og var greinilegt að Norð- mennirnir Voru óvanir harðri keppni og skorti á samspil og samvinnu í liðinu hjá þeim. Reyndar er landslið þeirra byggt upp af tveimur félagsliðum aðal- lega, OSI og Bærum, og eru þau tvö langsterkustu liðin í Noregi. Kom þessi félagaskipting greini- lega í Ijós leik Norðmanna og Dana, en þá lét þjálfari Norð- mannanna félagsliðin leika til skiptis, þ. e. skipti algerlega um lið með stuttu millibili og gafst bara vel, því í hálfleik höfðu Danir ekki nema tveggja stiga forystu, þótt þeir í síðari hálf- leik næðu sér á strik og ynnu örugglega. En víkjum aftur að leiknum ísland Noregur. Loka- tölur leiksins urðu 74—39 og áttu þeir Þorsteinn, Kolbeinn og Einar Matth. beztan leik hjá ís- landi og skoraði Þorsteinn 16 stig en Einar og Kolbeinn 15 stig hvor. Hjá Norðmönnunum eru margir efnilegir ungir piltar, en einna skemmtilegastur er Fred- rik Clausen, nítján ára snaggara- legur nóungi með skemmtilega knattmeðferð og gott auga fyrir spili. Dómarar í leiknum voru Jantunen frá Finnlandi og Bert- ram frá Danmörku og dæmdu þeir vel, en íslenzka liðið var nokkuð gjarnt á að taka skref en túlkun í Evrópu er ekki sú sama og við eigum að venjast. Háði þetta liðinu nokkuð eink- um í tveimur fyrstu leikjunum. Svíþjóð—ísland 85-62 Eins og leiknum um morgun- inn var íslenzka liðið seint í gang, reyndar eins og einhver taugaspenna sé í liðinu fyrstu minúturnar í þýðingarmiklum leikjum. Svíar ná undirtökunum í leiknum og hafa- í hálfleik tryggt sér gott forskot 43:29. ís- lenzka liðið átti þó langt frá því slæman dag, það barðist geysi- vel og átti góðar sóknarlotur, eini vandi þess var að stöðva risana tvo Albertson og Hanson, 2.03 metra á hæð, en þeir eru langbeztu leikmenn Svíanna og er mjög erfitt að varna þeim að skora því bóðir hafa þeir mikinn stökkkraft og góða burði þannig að fátt stenzt fyrir þeim. Reynd- ar er Albertsson þekktur há- stökkvari og hefur stokkið 2.11, og sagðist hann oft hafa mætt Ólafsyni frá íslandi í keppni. Þessir tveir leikmenn skoruðu samtals 64 stig af 85 stigum sem liðið skoraði í heild, Albertsson 38 og Hanson 26, og sýnir það bezt hve mikils virði þeir eru fyrir lið sitt, og eru þá ótalin þau fráköst sem þeir taka. í síð- ari hálfleik átti íslenzka liðið mjög góðan kafla og komst um tíma í ellefu stiga mun, en eins og áður var sagt sviptu Svíarnir tveir okkur öllum sigurvonum með góðum endaspretti. íslenzka liðið átti í heild góðan leik og hefur sjaldan barizt eins vel og nú. Leikaðferðir þær sem æfðar voru fyrir þessa ferð tókust vel og fer liðinu stöðugt fram við að útfæra leikaðferðir í hörðum leik gegn sér betri liðum og er það stórt framfaraskref því góð leikaðferð getur unnið bug á liði einstaklingshyggjunnar eins og t. d. sænska liðinu. Flest stig skoruðu fyrir ísland Einar Matth. 20 og Þorsteinn 17. Hjá Svíum voru þeir tveir áður- ■ nefndu beztir en bakvörðurinn Gröndlund átti einnig góðan leik. Dómarar voru Dan Christ- , ensen frá Danmörku og Jantun- en og dæmdu þeir mjög vel eink- um þó Daninn. Ísland-Danmórk 68-67 Frá fyrstu mínútu var þessi leikur hnífjafn og spennandi. Liðin skiptust á að skora og var eins og hvorugt liðanna gæti náð afgerandi forystu, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og geysilega baráttu. Ekki bætti það stöðu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.