Morgunblaðið - 13.04.1966, Side 31

Morgunblaðið - 13.04.1966, Side 31
MiðvikuSagur 13. apríl 1966 MORGUNBLAÐIÐ 31 íslenzka liðsins að skotin vildu ekki í körfuna hvað sem tautaði og voru Kolbeinn og Gunnar þeir einu sem voru virkilega í essinu sínu í þessum leik. Þor- steinn og Einar sem höfðu skor- að flest stigin daginn áður hittu nú illa og hafði það sín áhrif til hins verra. Danska liðið átti skínandi leik og gerði íslenzku vörninni erfitt fyrir með leikað- ferðum og góðri hittni. Ekki bætti það heldur skapið að tíma- vörðurinn, danskur að sjálf- sögðu, gaf ekki merki til hálf- leiks fyrr en sjö sekúndum eftir að klukkan sýndi að fyrri hálf- leik var lokið, og einmitt rétt þegar hann loksins flautaði, var dæmd villa á Þorstein hans þriðja villa. Þessi mistök voru svo augljós að allir sáu, en dóm- ararnir neituðu að taka til baka villudóminn og þarf ekki að taka fram hversu mikil áhrif það hef- ur að þegar jafn sterkur varnar- leikmaður og Þorsteinn þarf að draga af sér vegna hættu á að þurfa að víkja af velli með fimm villur. Til gamans má geta þess að tímavörðurinn Axel Poulsen dæmdi einnig leik milli íslands og Danmerkur árið 1961 og rak hvorki meira né minna en fimm íslendinga út af á síðustu mínútu leiksins og hreinlega vann leik- inn fyrir Dani, en hann endaði með 4 stiga mun fyrir þá. Okkur hefði þótt skrambi hart að tapa leik í annað sinn fyrir hlut- drægni þessa danska manns. Stað an í hálfleik var hnífjöfn 32—32 og hafði ísland náð upp forskoti Dananna frá 26—32. Byrjun síð- ari hálfleiks var góð hjá íslend- ingunum og komust þeir í sjö stiga forystu, en vörnin var veik ari en nauðsynlegt var fyrir það að Þorsteinn fékk dæmda á sig villu skömmu fyrir hlé og gat ekki beitt sér sem skyldi og sömu leiðis Birgir, sem svo fékk sína fimmtu villu í framlengingunni. Einnig fékk ísland á sig stig fyrir rugling í vörninni þegar Danir skiptu' inn á og Fiala hjá þeim skoraði nokkrar þýðingarmiklar körfur. Leið nú að lokum þessa s^ennandi og harða leiks og sýndi það sig að taugar liðs- manna þoldu ekki álagið og kom það beriega í ljós þegar hvað eftir annað mistókust vítaköst og í allt í leiknum misnotuðu liðin hvorki meira né minna en 22 vítaköst. Spennan var gífurleg og á- horfendur voru ef svo má til orða taka snaróðir. Þeir sem horfðu á leikinn í sjón- varpinu sögðu okkur daginn og spenning hefðu þeir aldrei eftir að annan eins bardaga séð í dönskum íþróttum. Þeg- ar tímavörður gaf merki til leiksloka var staðan )ifn 60-60, en ísland hafði átt góða sóknartilraun rétt þeg- ar tíminn var á enda en skot- ið rúllaði á körfuhringnum og útaf. Framlengingin bauð upp á jafn mikla spennu og áður og þegar u.þ.b. 30 sekúndur voru til leiksloka var staðan 66:67 fyrir Dani og þeir höfðu knöttinn. en fyrir óþolinmæði þeirra glopra þeir boltanum og ísland nær upphlaupi, Kol- beinn er hindraður og fær tækifæri til þess að jafna. Það ríkir dauðaþögn í salnum, stað an er 66:67 fyrir Danmörku u.þ.b. 15 sekúndur eftir af leiktíma og Kolbeinn stillir sér upp og kastar, og hittir, 67:67:, og honum er fagnað innilega af áhangendum ís- lands. Aftur stillir Kolbeinn sér upp, og skotið fer beint í körfuna 68Í67, fyrir Island Danir ná upphlaupi en fyrir klaufaskap reyna þeir von- laust skot og Kristinn nær þýðingarmesta frákasti sem hann hefur hingað til tekið ©g Island er sigurvegari með einu stigi. 1 annað sinn verða Danir að þola tap gegn Islandi með einu stigi. Sannarlega súrt í broti fyrir jafn stolta þjóð og Dani. í þessum leik átti Kolbeinn stór- glæsilegan leik bæði í sókn þar aem hann var stigahæstur með 24 stig og einnig í vörn þar sem hann var sífellt ógnun fyrir Dan- ina að komast í sendingar frá þeim og ná þannig hraðupphlaup um. Einnig áttu Gunnar með 18 stig og Þorsteinn og Birgir mjög góðan leik. Hjá Dönum var Arne Petersen, Fleming Wich og Birger Fiala með mjög góðan leik, og reyndar einnig Scauman. Dómarar í leiknum voru þeir Petterson frá Svíþjóð og Jantunen frá Finnlandi og dæmdu þeir vel fyrir utan þessi mistök með villuna í lok seinni hálfleiks. EsSand—Finnland 47-92 Eins og áður var talað um var leikurinn létt og skemmtilega leikinn af báðum liðum og voru Finnarnir yfirburðamenn fyrir okkar lið. Höfðu þeir yfir allan leikinn og voru í alla staði betri íslendingunum. Reyndar var munurinn ekki nema átján stig í hléi en reyndist það skammgóð- ur vermir og lauk leiknum með 45 stiga mun 92—47. Beztir hjá íslandi voru Birgir Örn og Þor- steinn báðir með 12 stig. Ðómarar í leiknum voru Pet- erson og Dan Christensen. Síðar á Sunnudeginum var úrslitaleikurinn milli Finna og Svía, var búizt við jöfnum leik. og töluðu Svíarnir stórum um að vinna Finna og treystu þar á sína stóru tvo. En Finnar reynd- ust algerir ofjarlar Svíanna og með góðu samspili og harðri vörn tættu þeir Sænska liðið í sund- ur og eftir skamma stund var staða Svíanna vonlaus og höfðu Finnarnir með stöðuna 41—16 í hálfleik, gert útaf við sigurvonir Svía og veitt þeim góða kennsl-u stund í því hvernig lið á að vinna saman. Lauk þannig þessu skemmtilega móti með sanngjörn um sigri Finna. Lýkur svo þessu spjalli héðan frá Herlev en um næstu helgi verður meira rætt um hina ýmsu þætti mótsins og aðbúnað og dvöl íslenzka liðsins. Herlev-Kaupinhöfn. EMatth. Frá óeirðunum í Hong Kong ueirðir í Hongkong Hong Kong, 12. apríl. NTB—AP. ýý IJM átta þúsund manna lið brezkra lögreglu- og hermanna hefur gætt þess að halda lögum og reglu á Kowloon svæðinu í Hong Kong um páskahelgina vegna óeirðanna, sem þar urðu um miðja síðustu viku. Útgöngu bann hefur verið um nætur og brezki landsstjórinn, Sir David Trench, hefur lýst yfir. að hann muni beita þeim ráðum, er hann telji nauðsynleg, til að kyrrð haldizt. ár Óeirðirnar hófust á miðviku dag, þegar haldin var mótmæla- fundur vegna fyrirhugaðrar 5% hækkunar á ferjufargjöldum. Sauð upp úr fyrr en nokkurn varði og telja fréttamenn, að Skipverji flýr pólskan togara Tókst að komast í land í Skotlandi eftir 30 klst. hrakninga SÁ ATBURÐUR gerðist um kl. 5 á sunnudagsmorgun, að skip- verji á pólska togaranum Olza flúði frá borði í litlum gúmbáti. Togarinn var þá staddur um 7 sjómilur undan ströndum Skot- lands. Veður var mjög slæmt á þessum slóðum. Skipverjinn heitir Jakob Sienkiewicz og er 20 ára að aldri. Reyndi hann að róa að landi, en gúmbátinn rak undan veðrinu 25 mílur til hafs. Togarinn gerði skozkum yfir- völdum aðvart um atburðinn og var björgunarbátur sendur til að leita að skipverjanum, en hann fannst ekki. Eftir nær 30 tíma hrakninga tókst Sienkiewicz að komast upp að ströndinni, en þar hvolfdi bátnum. Tókst honum að synda Morð Framhald af bls 1 fyrir starfsmann sinn og síðan sjálfan sig. Og í Suður-Svíþjóð skaut bóndi nokkur móður sína og sjálfan sig á eftir. Þessir hörmulegu atburðir hafa vakið mikla athygli og um- ræður í Svíþjóð. Varpa margir fram þeirri spurningu, hvort taugaspenna og sálrænir erfið- leikar nútíma þjóðfélags séu slík ir, að haft geti svo skelfilegar afleiðingar. í land. Gekk hann upp að vegi, sem þar er og stöðvaði vöruflutn ingabíl. Ökumaðurinn flutti Pól- verjann til bæjarins Embo í Sutherlandsskíri, og lögreglan þar tók hann í sína vörzlu. Var hann svo fluttur til Aberdeen. Búizt var við, að skipverjinn óskaði eftir hæli i Bretlandi, en togarinn fór inn á Mory-fjörð til að bíða eftir ákvörðun berzkra yfirvalda um, hvað gert skuli við Sienkiewicz. — Kvikmynduð Framhald af bls. 17 ótímabundin og allir búningar íburðarlausir. Búninga teiknar hinn kunni Lundgren, en hann hefur m.a. teiknað alla búninga við kvikmyndir Ingimars Berg- man. Gabriel hefur sjálfur samið handritið, en danska skáldið Frank Jæger hluta af textanum. Kvikmyndunin fer fram bæði norðanlands og sunnan og verða þar miklar orustur. Kostnaður við myndina er áætlaður um 12 til 15 millj. ísl. kr., en hún verður tekin í cinemascope og litum. þarna hafi brotizt út almenn óánægja með síhækkandi verð- lag á nauðsynjum. A fimmtudags kvöldið logaði svæðið í óeirðum og notaði lögreglan um þúsund táragassprengjur til þess að koma á kyrrð. Fólk streymdi í stór- hópum um göturnar, velti bif- reiðum og kveikti í þeim, rændi og rupplaði í verzlunum, braut rúður í gistihúsum og kveikti í hfbýlum. Er talið að valdið hafi verið tjóni, er nemur hundruð milljóna Hong kong-dollara. Fréttir frá Hong.kong herma, að þar sé nú allt með kyrrum kjörum, en ólga sé undir niðri. Unglingar hafa verið staðnir að því að leynast uppi á húsiþökum og grýta brezka borgara. Hand- tökur hafa verið tíðar. Jafntefli í 1. skákinni EINVÍGIÐ um heimsmeistara titilinn í skák hófst þann 11. apríl í Moskva. Spassky dró hvíta liðið í fyrstu skákinni. t Petrosjan beitti Carro-Kann vörn. f þrítugasta leik lék Petrosjan ekki bezta leiknum og í 37. leik sömdu keppendur jafntefli. Tefldar verða 24 skákir og þarf Spassky að ná 12% vinning til þess að hafa sigul-, en Petrosjan nægja 12 vinn-1 ingar sem núverandi heims- ( meistari. Yfirdómari í ein- víginu er O’Kelly, en Dr. M. j Filip er aðstoðarmaður hans. * Önnur skákin verður tefld| 13. apríl. Ferming Ferming í Háteigskirkju 2. páskadag, 11. april. Séra Arngrímur Jónsson. Piltar: Aron Björnsson, Háaleitisbr. 28. Axel Erlendur Sigurðsson, Lönguhlíð 21. Geir Þórólfsson, Bólstaðarhlíð 29. Guðjón Sigþór Jensson, Stiga- hlíð 22. Ingvar Ólafsson, Blönduhlíð 4. ísleifur Hólm Guðmundsson, Háa leitisbraut 123. Jón Viðar Ágústsson, Skúla- götu 78. Karl Gunnarsson, Bólstaðarhlíð 60. Lárus Þórarinn Björnsson Blön- dal, Miklubraut 52. Níels Viðar Hjaltason, Háaleitis- braut 26. Ólafur Friðrik Magnússon, Skaftahlíð 22. Páll Pálsson, Lönguhlíð 29. Sigfús Blöndahl Cassata, Flóka- götu 45. Sigurður Jónsson, Mávahlíð 2. Steinar Harðarson, Stórholti 45. Stúlkur: Fanney Guðjónsdóttir, Háaleitis- braut 151. Guðlaug Sveinsdóttir, Háaleitis- braut 101. Guðmunda Alda Ingólfsdóttir, Stórholti 29. Hafdís Óskarsdóttir, Flókagötu 58. Lilly Valgerður Oddsdóttir, Flókagötu 54. Sigríður Lóa Jónsdóttir, Skafta- hlíð 3. Steinunn Guðbjörg Kristins- dóttir, Hátúni 8. Þóra Elín Guðjónsdóttir, Hamra- hlíð 23. (Þessi fermingarlisti átti að birtast í blaðinu á skírdag, en féll þá niður. Biður blaðið af- sökunar á því). Boðið inn í bíl - veskinu stolið MAÐUR kærði yfir því til rann- sóknarlögreglunnar á föstudag- inn langa, að nóttina áður hafi veski hans verið stolið. Málsatvik eru þau, að maður- inn kvaðst hafa verið að ganga kl. 5:30 um nóttina frá Lauga- vegi niður Höfðatún. Er hann var kominn á móts við Miðtún kom bíll á eftir honum og voru í honum 5 menn. Bíllinn stanzaði og einn mann- anna kom út og vildi fiá vegfar- anda inn í bílinn og settist hann í framsætið. Við hiið ökumans sat maður með rautt alskegg, en fyrir aftan hann nokkuð stór maður. Nú var ekið inn Miðtún, en er bíllinn nálgaðist Nóatún var hann stöðvaður og mennirnir báðu vegfarandann að fara út. Á þessum stutta spotta hafði sá stóri í aftursætinu hallað sér fram og lagt hendur yfir axlir vegtfaranda. Er hann var kom- inn út úr bílnum og hann horf- inn úr augsýn tók hann eftir því, að veski has var horfið, en það var í innri jakkavasa. f þvi áttu að vera 1625 krónuc »g ávísanahefti. Vegfarandinn telur, að bítt- inn hatfi verið af gerðinni Mer- cedes Benz, bláleitur. Skorað er á mennina í bílnum að gefa sig fram við rannsókn- arlögregluna hið fyrsta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.