Morgunblaðið - 24.04.1966, Qupperneq 3
Sunnuðgattr 24. apríl 1966
MORGUNBLAÚIÐ
Séra Jón Auðuns, dómprófastur:
Voryrkja
Merkileg sýning á nátt-
úrugripum opnuð
4 ÁHUGAMENN um náttúru-
íræði opnuðu í gae-r sýningu í
|;kjallanasalnum á Frikirkjuveg
tlll, á ýmsum náttúrugripum.
ÍÞessir menn heita Andrés Val-
berg, Bjarni Guðmundsson,
Björn Halldórsson og Pétur
Hólm.
Þeir hafa i undanförnum ár-
um safnað náttúrugripum á ferð
um sínum, eins og raunar mörgu
góðu fólki er tamt. Árangur
þ-essarar iðju þeirra geta menn
6éð á þessari sýningu, sem opin
verður út þennan mánuð frá kl.
2—10.
Á sýningunni kennir svo sann
arlega margra grasa, og þó er
iþað ekki réttnefni, því að þarna
eru steinar, krahbar og kuðung-
ar, steingerfingar úr Selárdal,
hauskúpur af mörgum dýrum,
Og yfirleitt er hægt að segja um
þessa sýningu, að þar sé eitthvað
fyrir alla.
Fjórmenningarnir hafa um
langt árabil safnað náttúrugrip-
um, haldið þeim til haga, og við
erum efins um að merkilegri
Reykjavík um
þeirra að máli,
sýningu geti í
íþessar mundir.
Við hittum 2
þá Andrés Valberg og Pétur
Hólm, þar sem þeir voru að koma
fyrir sýningargripum sínum.
Var reglulega gaman að hitta
þó og kynnast hinum mikla
áhuga þeirra fyrir náttúruskoð-
un.
Óþarfi ætti að vera áð hvetja
Reykvíkinga að skoða þessa sýn
ingu. Hún er fyrir alla, unga
sem gamla, og máski sérstaklega
fyrir skólana, sem þarna gefst
gullið tækifæri til að sýna nem-
endunum myndabók úr llfi nátt-
úrunnar til iþess að gera kennsl-
una líflegri. Á myndinni, sem
með þessu birtist eru þeir
Andrés Valberg og Pétur Hólm.
Blessaða vor, þú ert von
vetrarins sóllausu barna.
Harpa er mín hugarbót.
Svo speglast í ljóði sumar- og
sólarþrá. Hún á höfuðheim-
kynni í norðlægum löndum og
hefir búið í íslenzkum brjóstum
síðan land varð byggt, og hún
fylgdi raunar feðrunum hingað
sem norrænn eða- jafnvel írsk-
ur arfur.
Á mótum vetrar og sumars
eru trúarviðhorf tvenn; Þakkar
gjörð fyrir liðinn vetur, þá
blessan sem hann veitti, þá
handleiðslu, sem var lá'tin í té,
þá vernd, sem yfir okkur vakti,
— og lofgerð fyrir sumardagana,
sem eru í vændum.
Eins og Guð birti okkur mátt
sinn í veðrum vetrarins, svo
mun hann tala í blíðu sumardag
anna. Þegar sólin skín, ber
hver einstakur geisli sinn boð-
skap um hann. Þegar ilmandi
jörðin verður þakin gróðri, grös-
um og jurtum, á að vera auð-
Gunnar Orn Gunnarsson
Júlíus Helgason
Eyjólfur Bjarnason
Elísabet Agnarsðóttir
Ingólfur Eggertsson
Aflnfréttir
ui Skoga
Akranesi, 23. apriL
TÍU þorskanetjaibótar lönduðu
hér í dag samtals tæpum 96 tonn
um. Aflahæst vur Rán með 19,5
torm. Höfrungur IL fékk 19 og
Skárnir 1£ tonn.
Framboðslisti Sjálfstæðismanna á ísafirði
HER birtast myndir af 9 efstu
mönnum á framboðslista Sjálf
stæðismanna á ísafirði, en list- I heild.
inn hefur áður verið birtur í
Tveir framboðs-
listar á H ólmavík
Hólmavík, 23. apríl.
TVEIR listar hafa komið fratn
við hreppsnefndarkosningarnar
22. mad. Eru það framboðslisti
Framfarasinna, en að honum
standa: Sjálfstáeðismenn, óánægð
ir Framsóknarmenn, Alþýðu-
bandalagsmenn og óháðir kjós-
endur. Listixm hefur fengið ein-
kennisstafinn H og fiman efstu
sætin eru þannig skipuð: Sjöfh
Ásbjömsdóttir, kennari; Jón Sig
urðsson símstöðvarstjóri; Krist-
ján Jónsson, kennari; Brynjólfur
Sæmundsson héraðsráðunautur
og séra Andrés Ólafsson.
Hinn listinn er B-listi Fram-
sóknarmanna og eru fimm efstu
sætin þannig skipuð: Bjarni Hall
dórsson, vélgæzlumaður, Karl
Loftsson kaupmaður; Hans Sig-
urðsson verkamaður; Benedikt
Sæmundsson, bóndi og Hrólfur
Guðmundsson bifreiðastjóri.
— Andrés.
Skothríð
í Berlín
Berlín, 23. april. — AP’
LANDAMÆRAVERÐIR í A-
Berlín skutu í gærkvöld yíir
til V-Berlínar, skömmu eftir
að tveir a-þýzkir landamæra-
verðir flúðu ytfir til hins
frjálsa hluta borgarinnar.
Fflóttamennirnir stóðu inn
an landamæranna, að vestan-
verðu er skothríð hófst á þá.
Var beitt vélbyssum. Nær-
staddir lögreglumenn svöruðu
skothríðinni. Ekki kom til
frekari átaka, og engan sak-
aði, svo að vitað sé.
lesið hið volduga mál um misk-
un Guðs, speki hans og elsku.
Þegar blómin svigna undan regn
þunganum, minnir sú sjóh þig
það, að á jörðunni glitra tár
Guðs, hans sem sjálfur bar
þungann af sorg alheimsins og
syndum mannanna.
Og þegar regnþunganum létt-
ir og sólstafimir hellast aftur
yfir jörðina, er Guð að minna
þig á, að tárin eiga sitt afmælda
skeið og að öll þjáning er tima-
bundin.
Hver dagur, sem nú er fram-
undan, er sem dýrmæt bók. Á
sérhvert minnsta liljufolað er
heill kapítuli úr kærleiks- og
vísdómsbók Drottins.
f»á bók hlakkar þú til að lesa.
Þú fagnar vorgróðrinum og vilt
feginn ganga til samstarfs við
Guð um að hlynna að þeim
gróðri.
En vorið minnir okkur á
annan vorgróður en þann, sem
á grundinni grœr. Það minnir á
vorgróður mannlífsins, æskuna.
Og þá ekki sízt þær fylkingar
hinna ungu, sem síðustu vikurn-
ar hafa gengið upp að altari
Guðs og endurnýjað skírnarsátt-
málann á fermingardegi.
Þau vorblóm eru veik. „Ein
frostnótt í maí“ getur orðið
þeim þung. Og því er áþyrgð
okkar, hinna fuilorðnu mikil.
Sumarið fer í hönd. Garður-
inn umhverfis húsið þitt fer nú
að kalla á umhyggju þína og al-
úð, ef hann á að verða fallegur
á komandi sumri. Þar hefir ein-
mitt voryrkjan ótrúlega mikið
að segja. Hún er þýðingarmeiri
en allt annað, sem þú gerir £yr-
ir garðinn þinn.
En minnir ekki þetta þig á
aðra voryrkju, sem þú skuldar
þarninu þínu, eða unglingnum,
sem á einhverja samleið með
þér? Barnssálin er eins og garð-
ur sem þér er falið að rækta.
Veiztu ekki að voryrkjan í þeim
garði skiptir miklu máli? Er
ekki þar einhver veikur vor-
gróður, sem bíður þess, að mild-
ar, mjúkar hendur hlúi að hon-
um? Veiztu ekki að garðurinn sá
getur um aldúr borið þess menj-
ar ef enginn er til að annast vo<r-
yrkjuna? En veiztu ekki líka
það, hve mildar og mjúkar
hendur verða þar að vera að
verki?
Margir foreldrar hafa tjáð
mér vandkvæði sán um voryrkj-
una, sem þeir vildu leysa af
hendi sem bezt, en fannst þar
vera við ofurefli að etja.
Öll okkar verk eru í molum,
ekki sízt þau, sem við vildum
•helzt geta unnið bezt. En við
getum ekki nema sáð. Guði
verðum við að fela vöxtinn.
Láttu það ekki svipta þig von,
og trú, að þér sýnist árangurinn
lítill og vafasamur. Þú ert ékki
að sá fyrir fáein jarðnesk ár,
þegar þú sáir í barnssálina.
Barnið er ódauðlegt guðsbarn
og því ert þú að sá fyrir eiláfa
tíð. Kannski þú verðir að leggj-
ast til hvfldar án þess að fá að
sjá blóm í garðinum, sem þú
vildir rækta bezt í sálu barnsins
þíns. En fræið festir rætur og
gróðurinn vex inn í himin Guðs,
inn í eilífðina sjálfa, ef þú séir
með trúmennsku og þolinmæði,
og sáir í Jesú nafni.
Garðurinn við húsið þitt fer
að kalla þig til voryrkju, sem
þú verður að vinna, ef hann ,á
að verða fallegur í sumar.
En það eru líka önnur vor-
blóm, sem þú mátt ekki gleyma.
Það er önnur voryrkja, sem þú
mátt ekki með nokkru móti láta
undir höfuð leggjast.
Láttu vordagana og fylkingar
fermingarbarnanna minna þig á
bað