Morgunblaðið - 24.04.1966, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 24.04.1966, Blaðsíða 19
Sunnudgaur 24. apríl 1966 MORCU NBLAÐIÐ 19 Erlend tíði ndi © Erlend tíði ndi Leonid Brezjnev í ræðustól á 23. flokksþingi sovézka kommún istaflokksins. — Að baki hans, í fyrstu röð, sjást: (f.v.) Sjele pin þá Poljanskij og Sverjnik. Að baki þeim Gromyko, utanrík- isráðherra og Malinovskij, var narmálaráðherra. . 23. ÞING kommúnistaflokks : Sovétríkjanna er nýafstaðið. Á i þinginu var ákveðið að fjölga meðlimum miðstjórnarinnar úr j 175 í 195. Fjöldi þeirra, sem síðar koma til greina, við kjör i í miðstjórnina, óx úr 155 í 165. ! Af þeim 175, sem í miðstjórn- inni höfðu setið, voru 141 end- urkjörnir. Allmargir stjórnar- meðlimir höfðu látizt frá því, að síðasti fundur var haldinn svo að þeir eru innan við 30, sem víkja urðu, vegna fráhvarfs ins frá „Krúsjéff-ismanum". Sá meðlimur miðstjórnarinn- ar, sem þekktastur er þeirra, sem ekki voru endurkjörnir, er, eins og að líkum lætur, Nikita Krúsjéff, fyrrverandi forsætis- ráðherra. Fjölmargir nánustu samstarfsmanna hans urðu einn ig að víkja. Nefna má tengda- son hans, Aleksei Adzjubei, og fyrrverandi aðalritstjóra „Prav da“, Pavel Satjukov. Það er athyglisvert, að fyrr- verandi formaður þeirrar deild ar miðstjórnarinnar, sem fæst við „hugsjónafræðileg“ vanda- mál, Leonid Iljitov, er ekki með al þeirra, sem síðar kemur til greina að verði kjörnir í mið- stjórnina. Þá þykir mörgum það ekki boða gott, að ritstjóri „Novyj Mirs“, Aleksander Tvardorskij, hlaut sömu örlög. Meðal þeirra, sem ekki voru endurkjörnir í miðstjórnina, eru einnig ritari miðstjórnar- innar, Nurutdin Muhitdonov, sem látinn var víkja 1961, og hefur, frá því 1962, gegnt em- bætti formanns neyzlusamtaka miðráðs Sovétríkjanna. Það, sem hvað mesta athygli vakti þó, var endurkjör Klim- entij Vorosjilovs, marskálks, sem nú er 85 ára. Hann var for- seti Sovétríkjanna á árunum 1953 til 1960. Á 22. flokksþing- inu réðst Krúsjeff harkalega gegn honum, og bar á hann, að hann hefði verið öflugur stuðningsmaður klíku Molo- tovs, Malenkovs og Kagano- TÍMARITIÐ Birtingur, 1,—3. hefti 12. árs 1966, er komið út fjölbreytt að efni. Það hefst á langri grein eftir Kára Marðar- son (Peter Carleton), bandarísk- an menntamann um Ljósvíking- inn, skáldsöguna og skáldið. Jón Óskar skrifar ritdóma um „Borg- arlíf“, „Svarta messu“ og „Org- elsmiðjuna". Auk þess á hann þar greinina „Lausavísur og þjóð legur metnaður“. Einar Bragi skrifar greinina „Af skornum skammti" og Thor Vilhjálmsson j^3yrpu“, en þær fjalla báðar um menningarmál og annað sem efst er á baugi í þjóðlífinu. Ljóðaþýðingar eru margar í heftinu. Einar Bragi hefur þýtt þrjá sænska sígaunasöngva, sjö pólsk ijóð (eftir Zbiginiew Her- bert, Tadiusz Rózewicz og Bob- dan Drozdowski) og tíu smáljóð —Utan úr heimi Framhald af bls. 16 framan af, en fráhverfur hon um síðar og árið 1939 sá hann eér þann kost vænstan að halda upp í svei't og settist að í smálbæ í Harzfjöllum. En hann var samur við sig fram eftir ævi. Árið 1941 skrifaði hann Lowell Thomas, sem skráð hafði ævisögu hans og •agði: „Skip mitt stendur enn ferðbúið í Stettin og bíð- ur nýrra aevintýra.“ Lúokner lézt eins og áður sagði, í fyrri viku 85 ára gam »11, í Málmey í Svíþjóð. vitjs. Krúsjeff sagði þá, að Vorosjilov bæri ábyrgð á „fjöldakúgun“, og hefði gerzt sekur um niðurrifsstarfsemi. Sú virðing, sem Brezjnev sýnir nú Vorosjilov kann að tákna, að hann hafði verið þor- inn röngum sökum af Krúsjéff. Hins vegar má einnig vera, að' Brezjnev sé að koma til móts við gamla bolsévikka, og mar- skálka. Þó getur varla verið um að ræða afturhvarf til Stalín- ismans, þar eð Molotov, Malen- kov, Kaganaovitj og Bulganin hafa enn ekki verið „endur- reistir". í hópi þeirra, er nú hafa tek- ið sæti í miðstjórninni, eru: Nýkjörinn formaður skipu- lagsnefndar flokksins (Gos- plan), Nikolaj Bajbakov, vara- forsætisráðherra, sem fyrrum átti sæti í miðstjórninni, en féll í ónáð 1958, og var þá sendur til Krasnodar. Mihail Zimjanin, sem nú hef ur tekið við aðalritstjórn „Pra- vda“. Hann sat í miðstjórninni á árunum 1952 til 1956, en þá var hann gerður að sendiherra í Norður-Vietnam. Vladimir Stepakov, sem tekið hefur við aðalritstjórn „Izvest- ia“. Hann er sérfræðingur í á- róðri, og hefur hann verið með limur endurskoðunarnefndar miðstjóriiarinnar. Vladimir Matskevitj, er sat í miðstjórninni frá 1956, og þar til 22. flokksfundurinn var hald inn 1961. Hann var ekki endur- kjörinn þá. Matskevitj er nú landbúnaðarráðherra, en því em bætti gegndi hann áður (1955— 1960). Krúsjéff vék honum frá. Vladimir Semitjastnyi, for- maður öryggisnefndar mið- stjórnarinnar, sem tók við af Sjelepin í nóvember 1961, er hann lét af stjórn öryggislög- reglunnar. Semitjastnyi var í hópi þeirra, sem til greina komu nú, er kosið var í mið- stjórnina, og var kjörinn. V araf orsætisráðherrarnir tveir, Nikolaj Tihonov og Vladi eftir sænsk-finnska skáldið Gunn ar Björling. Magnús Á. Árnason þýddi ljóðið „Ákall“ eftir Alan Moray Williams. Jón úr Vör þýddi fimm kínversk ljóð (eftir Liu Yu-hsi, Ohang Ohi, Lin Tsung-Ynan og óþekkt skáld). Thor Vilhjálmsson þýddi ljóð eftir Zbigniew Herbert, Tékkann Miroslav Holub og Svíann Gör- an Sonnevi („Um stríðið í Víet- nam“). Sigurður A. Magnússon þýddi tvö ljóð eftir griska skáld- ið Nikos Gatsos og birtir um hann stutta grein. Jóhann Hjálm- arsson þýddi fjögur ljóð eftir Börje Sandelin, sem tvívegis hef ur gist ísland, og tvö prósaljóð eftir Zbigniew Herbert. Loks er löng myndskreytt grein um „Seiðleikhúsið í Opole“ eftir Eugenio Barba í þýðingu Baldurs Óskarssonar og önnur löng grein um Bertolt Brecht eftir Thor Vilhjálmsson. í ritinu mir Kirillin, voru einnig kjörn- ir nú. Ráðherra sá, sem fer með málefni þungaiðnaðar, orku- framleiðslu og flutningatækja- smíði, Vladimir Zjigalin, var nú á ný kjörinn í miðstjórnina. — Sömuleiðis Sergej Zverev, sem fer með málefni hergagnaiðn- aðarins. Nöfn miðstjórnarmeðlimanna nýju hafa birzt í „Pravda“, í stafrófsröð, en er Brezjnev las þau upp á flokksþinginu, var röðin öðru vísi, og nöfnunum raðað í fjóra flokka: 1. Brezjnev, Kosygin, Podgor nyi og Suslov. eru einnig birtir kaflar úr full- veldisræðu Sigurðar Líndals undir fyrirsögninni „Endurreisn íslenzkrar sjálfsvirðingar“. Athuga byggingui , j nys sjomanna- j heimilis í Rvík l m m ■ Einkaskeyti til MbL ■ Þórshöfn, 22. apríl. STJORN færeyska sjó-: mannaheimilisins í Reykja- j vík hefur fengið tilkynningu; um það frá borgarstjórninni,! að gamla heimilið við Skúla-; götu verði að flytja burtu I vegna gatnagerðar. • Stjórn sjómannaheimilisins. kannar nú möguleika á því,: að fá lóð fyrir nýtt heimili, j en endanlegar ákvarðanir um; byggingu þess hafa ekki ver-j ið teknar. — Arge.; 2. Voronov, Kirilenko og Sjelepin. 3. Mazurov, Poljanski og Sjelest. 4. Pelsje. Talið er, að þeir fjórir, sem fyrst eru taldir, Brezjnev, að- alritari, Kosygin, forsætisráð- herra, Podgornyi, forseti og Sus lov, ritari miðstjórnar, séu eins konar „innri stjórn“. Af því leiðir, að Sjelepin virðist standa fjær þeim, sem með æðstu völd fara, en margir hafa tal- ið. Hins vegar leikur ekki á því neinn vafi, að Sjelepin hefur gert tilraun til þess að hrifsa völdin í eigin hendur, en Brezj- nev gekk með sigur af hólmi í þeirri baráttu. Sennilega þó ekki vegna þess, að Brezjnev hafi notið víðtæks fylgis stjórn málamanna, heldur vegna þess, að Sjelepin á sér marga mót- stöðumenn. Þá er það einnig athyglisvert, að Aleksander Sjelepin, eftir því sem fundarmenn segja, tók aldrei til máls á flokksþinginu. Hér er greinilega ekki um til- viljun að ræða. í „Pravda“ er einnig getið um framkvæmdanefnd flokks- ins, og „Izvestia" hefur einnig um hana fjallað. Þótt nöfnum væri þar ráðað í stafrófsröð, voru þau lesin upp í annarri röð af Brezjnev, á flokksþing- inu. Hér birtast nöfn nefndar- manna í þeirri röð, sem Brezj- nev las þau, (röðin eftir rúss- neska starfrófinu í svigum): Demitjev (2), Grisjin (1), Mziavmadze (5), Rasjidov (6), Ustinov (7), Sterbitsij (8), Kun ajev (3), Masjerov (4). Þessi upptalning sýnir, að Demitjev, miðstjórnarritari, er jafnframt er formaður „hug- sjónafræðilegrar“ deildar mið- stjórnarinnar, er nr. 1, og stend ur framar Grisjin. Edward Crankshaw, sem að staðaldri ritar um sovézk mál- efni í brezka blaðið „Observer“, segir um valdabaráttu Brezj- nevs og Sjelepins, að þeir hafi loks orðið ásáttir um að opin- bera ekki togstreituna, þótt þá hefði þegar um hana spurzt, en starfa heldur saman. Opinber barátta myndi skaða þá menn, sem nýlega hefðu tekið æðstu völd í sínar hendur. Baráttan stóð um sjálf völd- in, ekki atriði hugmyndafræði legs eðlis. Sagt er, að Kosygin hafi ekki viljað neinn þátt í henni taka, og eftirfarandi orð eru eftir honum höfð: „Það skiptir mig litlu máli, hver verður aðalritari, svo fram arlega sem hann fer ekki að hafa óeðlileg afskipti af mínu starfi, efnahagsmálaskipulagn- ingunni". Áður hefur komið fram, að Kosygin hafi hótað því að segja af sér. Þá mun Sjelepin hafa lát ið undan, endanlega. Því eru þeir f jórir menn, sem nú ráða mestu: Brezjnev, Kosy gin, Podgoriiyi og Suslov. — Margir telja, að Suslov sé sá, sem næstæðstur sé að völdum, þótt embætti hans gefi það ekki til kynna. Nauðungaruppboð Eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík o. fl. fer nauðungaruppboð fram hjá Stálvinnslunni h.f. Súð arvogi 54, Reykjavík, mánudaginn 25. apríl 1966 kl. 3,30 síðdegis og verður þar selt: 2 stórir renni bekkir, fræsivél og rennibekkur (Sath Bend). Greiðsla fari fram við hamarshögg. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Kjötiðnaður Karlmaður óskast til starfa í kjötvinnslu, helzt kjötiðnaðarmaður eða maður vanur slíkum störfum. Nánari upplýsingar í skrifstofunni. Kaupfélag Suðurnesja N auðungaruppboð Eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík fer nauð- ungaruppboð fram hjá Gólfteppagerðinni h.f., Skúla götu 51, hér í borg, þriðjudaginn 26. apríl 1966, kl. 1,30 síðdegis og verður þar seldur vefstóll. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. N auðungaruppboð Eftir kröfi* Gjaldheimtunnar í Reykjavík fer nauð- ungaruppboð fram hjá Steinhúðun h.f. Sogahlíð, Sogavegi, hér í borg, mánudaginn 25. apríl 1966, kl. 2 síðdegis og verður þar seld hrærivél fyrir Colarcrit. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Borgarfógetaenibættið í Reykjavík. Birtingur 1 .-3. hefti 1966

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.