Morgunblaðið - 24.04.1966, Blaðsíða 31
Sunnudgaur 24. apríl 196Í
MORGUNBLAÐJD
31
Castro ber af sér blak
1 Havana, 20. apríl, NTB, AP.
FIDEL CASTRO, forsætisráö-
herra Kúbu, sagrði í sjónvarps-
ræðu á mánudagskvöld að ef
Bandaríkin g-erðu innrás á
Kúbu, yrðu engir fangar teknir
Kommunisii«..<
tókst að bjóða
fram f
Garðahreppi
Makar.
meðmœlendur!
Frétt Mbl. í gær um að komm
únistar byðu ekki fram í Garða-
hxeppi reyndist ekki rétt. Listi
þeirra barst á síðustu stundu
u.þ.b. er framboðsfrestur var( að
renna út á miðnætti. Hafði þeim
tekizt á elleftu stund með mikl-
Um erfiðismunum að fá 10 menn
til þess að taka sæti á lisanum.
Meðmælendur skulu vera 10-20
og voru þeir 12 með lista komm-
únista, flestir makar frambjóð-
endanna!!
*
Avarp til
Grindvík-
inga
GÓÐIR Grindvíkingar, eins og
ykkur er kunnugt niisstu hjón-
in Þórir Stefánsson og Elín Árna
dóttir að Lundi hús sitt og inn-
bú í bruna að kvöldi mánudags-
ins 18. apríl sl. Húsið var að
vísu eitthvað v&tryggt, en inn-
búið ekki. Hafa þau hjónin
ásamt börnum sínum tveim því
orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni.
Þess vegna er hér með skorað á
alla þá, sem vilja leggja þess-
ari nauðstöddu fjölskyldu lið,
að koma framlögum sínum til
skrifstofu Grindavíkurhrepps,
sem opin er kl. 9—18 alla virka
daga. Gjöfunum verður veitt við
taka til 1. júní n.k.
Kvenfélag Grindavíkur.
Lionsklúbbur Grindavíkur.
— Jens-Otfo Krag
Framhald af bls. 1
Namara, Christian Herter og
fleiri ráðamenn.
Þetta er önnur heimsókn Krags
til Bandaríkjanna á tveimur ár-
um, hann fór vestur í fyrra til
viðræðna við Johnson Banda-
ríkjaforseta og mun ræða við
hann aftur á miðvikudag að lok-
innifjögurra daga ferð til Colo-
rado og Nebraska.
Krag ræddi einnig Víetnam-
málið á fundinum og sagði að
Danir væru eins og reyndar
margir aðrir bandamenn Banda-
ríkjanna, „mjög áhyggjufulir“
vegna þróunar mála þar. „Ég
lagði fast að U Thant, aðalritara
SÞ, að gera eitthvað í málinu,
bera fram raunhæfar tillögur
ég ætla mér ekki þá dul að segja
fyrir um hvað eigi að gera, en
eitthvað verður að gera í mál-
inu“, sagði Krag.
Þá kvað Krag Víetnam-styrjöld
ina einnig skyggja á „viðræður
Austurs og Vesturs“ sem hafnar
hefðu verið og gefið góða von
um bætta sambúð og sagði að
Kosygin, forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna, sem Krag sótti heim í
fyrra, væri sama sinnis. „Við
megum einskis láta ófreistað til
þess að bæta sambúð Austurs og
Vesturs", ságði Krag.
í þeirri styrjöld og engin misk-
únn sýnd. Ræðu þessa flutti
Castro af því tilefni aö liðin
eru fimm ár síðan gerð var hin
misheppnaða innrás á eyjuna,
er kúbanskir útlagar gengu þar
á land við Svínaflóa. „Við
munum meðhöndla sjóræningja
og glæpamenn sem sjóræningja
Húsvíkingar gefa til Skál-. .22
og glæpamenn“ sagði Castro.
Þá vísaði Castro einnig á bug
sögusögnum um að komið hefði
upp misklíð með ráðamönnum
á Kúibu og jafnvel verið gert sam
særi gegn honum. Sagði hann
það tóman uppspuna.
Loks ræddi Castro efnahags-
mál lands síns og lét vel yfir,
sagði að vist væri matvara
sköimmtuð en þá fengju líka
allir nægju sína en ekki aðeins
hinir ríku. Sagði Castro Kúbu
vera mikið þróunarland og for-
dæmi öðrum löndum í róm-
önsku Ameríku.
Skdk
DANSKI stórmeistarinn Bent
Larsen hefur nú nýlega bætt við
fyrri afrek sin. Hann sigraði
Rússann E. Geller í keppni um
hvor ætti að verða varamaður
í næsta áskorendamót, eða með
öðrum orðum, hver skipaði 3ja
sætið í síðasta áskorendamóti.
Þessi árangur Larsens gengur
næst frammistöðu Reshewskys í
Zurich 1953. en þá varð Reshew
sky í 2.—4. sæti á áskorenda-
mótinu. Hér fylgir fyrsta skákin
úr einvíginu.
Hvítt: B. Larsen.
- Svart: E. Geller.
Sikileyjarvöm.
1. e4, c5. 2. Rf3, d6. 3. Rc3,
Rf6. 4. e5, dxe5. 5. Rxe5, Rbd7.
6. Rc4, e6. 7. b3, Be7. 8. Bb2, 0-0.
9. Df3, Hb8. 10. a4, b6. 11. Bb3,
Bd7. 12. Dh3, a6. 13. 0-0, Bc6.
14. Hfel, He8 (?) 15. Re5, Rxe5.
16. Hxe5, g6. 17. Bxa6, Dxd2.
18. He2, Df4. 19. Bb5!, Bxb6.
20. Rxb5, Rg4. 21. Hael, Hed8?
22. f3, Bf6. 23. Dxg4, Dxg4. 24.
fxg4, Bxb2. 25. c3!, Bxc3. 26.
Rxc3, Hdd4. 27. g5, Hbd8. 28.
He2e3, Hb4. 29. Re4, Kg7. 30. Hfl,
c4. 31. bxc4, Hxc4. 32. Rc3, Hd7.
33. g3, h6. 34. Hff4, Hc5. 35.
gxh6f, Kxh6. 36. Hfb4, Hdc7.
37. Re4, He5. 38. Rf2, Hclf. 39.
Kg2, Ha5. 40. Hf3, Hc7. 41. Rg4t,
Kg7. 42. Rf6 (?) (42. Re3 og c4!).
42. —Hc2f. 43. Kh3, Ha8. 44. Hh4,
g5. 45. Rh5f, Kf8. 46. Hhb4,
Ke7(?) (46. —f5!). 47. Hxb6!, f5.
48. Hb7f, Kd6'. 49. Hd3t, Kc6.
50. Hdd7!, g4t. 51. Kh4, Hxh2.
52. Kg5, Hxa4. 53. Rf4, He4. 54.
Hdc7f, Kd6. 55. Hc3, Hhd2. 56.
Hb6f, Kd7. 57. Rh5, He2. 58. Rf6t
Kd8. 59. Kg6, gefið.
I. R. Jóh.
Frá Iðnskólanum
á Sauðárkróki
Iðnskólanum á Sauðárkróki
var sagt upp í 20asta skipti hinn
hinn 6. apríl s.l.
Nemendur voru 32 i tveim
bekkjum. Þar af 18 í öðrum
bekk, en 14 brautskráðust.
Kennarar voru 7 auk skóla-
stjórans. Skólaslit fóru fram að
þessu sinni við hátíðlega athöfn
þar, sem viðstaddir voru fjöl-
margir af eldri nemendum skól-
ans.
Tildrög að stofnun hans voru
þau að tveir eða fleiri ungir
menn vildu læra iðn á Sauðár-
króki, en gátu það ekki fullkom-
lega nema iðnskóli væri starf-
andi á staðnum. Séra Helgi heit-
inn Konráðsson ásamt nokkrum
iðnaðarm/önnum gerðu hugmynd
ina um iðnskóla að veruleika í
ársbyrjun 1947.
Á þessu 20 ára tímabili befur
skólinn útskrifað á annað hundr
að iðnnema, sem starfa nú sem
iðnaðarmenn víðs vegar um
landið.
Fyrsti skólastjóri var séra
Helgi heitinn Konráðsson og
gegndi hann því hlutverki í 4
ár. Friðrik Margeirsson magist-
er var skólastjóri í 13 ár og nú-
verandi skólastjóri, Jóhann Guð-
jónsson múrarameistari hefur
annast starfið í 3 ár. Kennarar
hafa verið margir sumir aðeins
eitt tímabil, aðrir lengur og
einn kennarinn allan tímann, og
er það Árni Þorbjörnsson lög-
fræðingur.
\ Erlendur Hansen rafvirki,
skýrði frá fyrir hönd fyrstu
nemenda skólans að þeir ætluðu
að gefa skólanum málverk af
fyrsta skólastjóra hans séra
Helga Konráðssyni.
Talsmaður 10 ára nemenda
Stefán Petersen ljósmyndari,
lagði fram kr. 5.500.00, sem vera
skyldi stofn að tæknibókasafni
skólans. #
Skólastjórinn þakkaði hinar
virðulegu gjafir og skýrði jafn-
framt frá þeirri vitneskju sinni
að lóð undir væntanlegar bygg-
ingar Iðnfræðsluskóla í Norður-
landskjördæmi vestra yrði ákveð
inn staður í samráði við skipu-
lagsyfirvöld ríkisins, en mikill
og almennur áhugi er fyrir að
sá skóli verði á Sauðárkróki.
— Jón.
Mnlcom Frager
kemur í maí
BANDARÍSKI píanóleikarinn
Malcolm Frager er væntanlegur
hingað í byrjun maí og mun
hann halda eina tónleika í Þjóð
leikhúsinu þann 9. mai 20:30.
Frager mun einnig leika á ísa-
firði.
Hingað kemur Frager frá
Evrópu, en þar hefur hann ver-
ið í hljópileikaferð. Fyrir
skömmu skeði sá merkisatburð-
ur í Hollandi, að Frager og
Asihkenazy léku þar tvo píanó-
konserta á sömu tónleikunum.
Frager stjórnaði hljómsveitinni
í konserti þeim er Asihkenazy
lék og sá síðarneifndi stjórnaði
síðan hljómsveitinni í konserti
þeim er hinn fyrrnefndi lék.
Tónleikar þessir vöktu mikla at
hygli sem vænta mátti.
; Björgunarskip Tryggingar- ;
; félagana, Goðinn, siglir inn
I í Reykjavíkurhöfn. Skipið ■
; sigldi ekkert yfir páskana, þar ;
I sem skipshöfnin lá öll í in- j
; flúensunni, eo fór siðan út í ;
I þriðja í páskum, og hafði að- j
■ stoðað á sumardaginn fyrsta ;
; tíu skip, þar af átta með
! köfun, en dregið t\tö skip til
; hafnar.
Fjórðungsglímti-
mót Sunnlend-
ingafjórðungs
FJÓRÐUNGSGLfMUMÓT Sunn
lendingafjórðungs verður háð í
Samkomuhúsinu að Garðaholti
laugardaginn 30. apríl og hefst
kl. 4 eftir hádegi.
Er þetta í fyrsta sinn sem
fjórðungsglimumót Sunnlend-
ingafjórðungs er haldið. Verðu.r
keppt um glæsilegt glímuhorn
sem Mjólkurbú Flóamanna hef-
ur gefið til þessarar keppni. Auk
þess verða • þrenn önnur verð-
laun.
Ungmennasamiband Kjalarnes
þings sér um keppnina að þessu
sinni. Þátttökutilkynningar ber-
ist fyrir 28. apríl næstkomandi,
til Sigurðar Geirdal form. Umf.
Breiðabliks í Kópavogi eða for-
manns Ungmennasambands Kjal
arnesþings Ulfars Ármannsson-
ar.
I
Það óhapp varð sl. föstudag,
er steypubill var að flytja
steinsteypu að Lsbiminum hf.,
inni, svo hún hafði nærri olt-
að bakki brast undan bifreið-
ið. Rann steinsteypan út úr
bifreiðinni, en ekki varð
neitt annað tjón.
Fró Fulltrúaráði Sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík
STARFANDI eru á vegum Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík eftirtaldar hverfaskrifstofur i borginni. Skrif-
stofurnar eru opnar milli kl. 2—10 e. h. alla virka daga nema
laugardaga milli kl. 9—4.
VESTUR- og MIÐBÆJARHVERFI
Hafnarstræti 19
Sími: 22719
NES- OG MELAHVERFI
Tómasarhaga 31
Simi: 24376
AUSTUR- OG NORÐURMÝRARHVERFI ||
Bergþórugötu 23
Sími: 22673 -
HLÍÐA- OG HOLTAHVERFI
Mjölnisholti 12
Sími: 22674
LAUGARNESHVERFI
Laugarnesvegi 114
Simi: 38517
LANGHOLTS-, VOGA- OG HEIMAHVERFI
Sunnuvegi 27
Sími: 38519
SMÁÍBÚÐA-, BÚSTA® A- OG HÁALEITISHVERFI
Starmýri 2
Sinti: 38518