Morgunblaðið - 04.05.1966, Side 3

Morgunblaðið - 04.05.1966, Side 3
MiðvTfrudagur 4. maí 1966 MORGUNBLAÐIÐ 3 — Óttast Framhald aí bls. 32. , kann að hafa haft á skemmd- irnar á olíufárminum. Ekki er enn vitað hversu mikið magn af benzíni og gasolíu hafi skemmzt en einn þeirra aðila, sem blaðið hafði samband við i í gær, Jóhann G. Stefánsson, ' framkvæmdastjóri Olíufélags- ins h.f., kvaðst málinu lítt kunnugur en hefði fregnað, að hér gæti verið um 2 millj. lítra að ræ’ða. Mun láta nærri að það séu um 1700 tonn. Blaðið hafði einnig sam- band við meðdómendur í sjó- réttinum, sem um málið fjall- ar og kváðust þeir engar upp- lýsingar geta um það gefið á þessu stigi. Orsakirnar til þessa atburðar væru næsta ó- i ljósar enn sem komið er, en hér gæti t.d. verið um leka ventla að ræða í dæluútbún- ! aði skipsins. | ' í dag kl. 4 verður sjóprófum haldið ófram og fæst þó vænt- anlega úr því skorið hversu | mikið magn olíufarmsins haifi skemmzt. Dómari í sjóréttin- um er Björn Friðfinnsson, full trúi borgardómara í Reykja- vík. Þess má geta, óð í nóvember sl. ár kom fyrir samskonar ó- happ í öðru finnsku skipi, „L1NDEN“, sem hingað kom með oliu- og benzínfarm. — Blönduðust þá saman 5000 tonn af benzíni og olíu. Var skipið sent með farminn aft ur til Ba1,umi, þaðan sem „INGA“ mun hafa komið* að þessu sinni. Var olían send gegnum hreinsunarstöðvarnar þar á nýjan leik. Karlakór Akur- eyrar heldur söngskemmtun Akureyri, 3. maí. KARLAKÓR Akureyrar heldur hina árlegu samsöngva sína um næstu helgi. Kórinn syngur í Nýja bíói kl. 5 á laugardaginn og í Sjálfstæðishúsinu á sunnudag kl. 4 og 8.30. Auk þess syngur hann fyrir vistmenn og sjúk- linga í Kristnesshæli, fjórðungs- sjúkrahúsinu og Elliheimili Ak- lireyrar. í Karlakór Akureyrar eru nú rúmlega 40 söngmenn, þar af koma 8 fram sem einsöngvarar að þessu sinni. Söngstjóri er Guð mundur Jóhannsson, en Áskell Jónsson, sem verið hefur söng- stjóri í 22 ár lét af því starfi í haust. Fröken Ingibjörg Stein- grimsdóttir söngkennari hefur kennt einstökum söngmönnum raddbeitingu um tíma og leið- beint á æfingum. Undirleikari er Kristinn Gestsson tónlistar- kennari. Á söngskrá eru 14 lög og er hún mjög fjölbreytt. M.a. verða frumflutt tvö lög eftir Jóhann Ó. Haraldsson tónskáld, sem lézt é sl. vetri. Auk þess minnist kór- inn Björgvins Guðmundssonar tónskálds, sem orðið hefði 75 ára 26. apríl sl., ef hann hefði lifað, með því að flytja verk eftir hann. Myndin sýnir sovézka varnareldflaug er sýnd var við hátíðahöldin 1. maí á Rauða torginu í Moskvu. Þessi eldflaug getur eyðiiagt árásareldflaugar óvina löngu áður en þær ná skot- marki sínu, þar eð hún fer sjálfkrafa á loft við radaraðvörjinarmerki. A hótíðisdegi verhalýðsins í Moskvu Myndin var tekin við tátíðahöldin í Moskvu 1. maí, og sýnir sovézku leiðtogana á grafhýsi Lenins. Xalið frá vinstri: A. Grechke marskálkur, Voroshilov, fyrrv. forseti, Malinovsky marskálkur, Breznev aðalritari kommúnistaflokksins, Kosykin forsætisráðherra, Podgorny forseti Sovétríkjanna, Suslov flokksritari og Anastas Mikoyan. SUKSIHW „Ævintýri Hoffmans" Frnmsýnt n. k. föstndng ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ frumsýnir nk. föstudag óperuna Ævintýri Hoff- mans eftir Offenbach. Leikstjóri er 27 ára Svíi, Leif Söderström að nafni, en hann er einn af yngstu leikstjórum Sænsku óper- unnar. Þetta er í annað skipti sem hann stjórnar óperu hér — <S>hin fyrri var Mademe Butterfly, er sýnd var á fjölum Þjóðleik- hússins í fyrravor. Magnús Jónsson fer með titil- hlutverkið í óperunni, en nú eru rétt tíu ár síðan Magnús söng hér síðast í óperu. Hann hefur und- anfarin ár sungið við óperuna í Kaupmannahöfn, og það má geta þess að í fyrra fór Magnús ein- 'v Xalið frá vinstri: Söderström, sænski leikstjórinn, Guðlaugur Rósenkranz, Þjóðleikhússtjóri, Wod- iszko, hljómsveitarstjóri, og Magnús Jónsson, söngvari, er fer með titilhlutverkið í óperunni. mitt með hlutverk Hoffmans þar, og hlaut mjög góða dóma fyrir túlkun sína. Með önnur helztu hlutverkin í óperunni fara: Guðmundur Jónsson, Jón Sigurbjörnsson, Sverrir Kjartansson og Sigurður Fransson. Með aðalkvenhlutverk- in fara: Þuríður Pálsdóttir, Sig- urveig Hjaltestedt, Svala Nilsen og Eygló Viktorsdóttir. Alls koma fram í óperuna um 80 manns, þegar kór, sem telur um 24 manns, og 34 manna hljóm- sveit er meðtalin, og sagði Þjóð- leikhússstjóri, á fundi með fréttamönnum, að þetta væri dýrasta verkið sem leikhúsið hefur fært upp. Teikningar að búningum og leiktjöldum hefur Leif Söder- ström gert, en Lárus Ingólfsson hefur útfært :þá. Dansana í óper- unni, en í henni koma sex ballet- dansarar fram, hefur Fay Wern- er, balletmeistari Þjóðleikhússins gert. Bohdan Wodiszko stjórnar flutningi tónlistarinnar í óper- unni. Óperan verður flutt á íslenzku, en þýðinguna að verkinu hefur Egili Bjarnason gert. □------------:----□ Sjá nánar á >bls. 5. □-----------------D Þögn XIMINN þegir enn þunnu hljóði um klofning Framsóknarflokks- ins í tveimur stórmálum, sem fyrir Alþingi hafa komið að þessu sinni. Að visu hefur blað- ið skýrt frá því í fréttum, að þrír þingmenn flokksins hafi hlaupizt undan merkjum í at- kvæðagreiðslu um álsamningana og kísligúrverksmiðjuna, en eng in tilraun hefur verið gerð til þess að skýra fyrir lesendum blaðsins ástæðurnar til þess á einn eða annan hátt. Á hinn bóg inn hefur ekki verið hjá því komizt að túlka skrif blaðsins, sérstaklega um álsamningana, sem beina og hatrama árás á þingmennina tvo, sem sátu hjá við atkvæðagreiðslu þá. En sú staðreynd, að þrír þingmenn Framsóknarflokksins hafa neit- að að hlýðnast fyrirskipunum Eysteins í tveimur stórmálum, er einkar athyglisverð og sýnir, svo ekki verður um villzt, að óánægjan í Framsóknarflokkn- um er nú að nálgast suðupunkt, reyndar er byrjað að sjóða upp úr. Mönnum hefur lengi verið það ljóst, að undir forustu Ey- steins Jónssonar hefur flokkur- inn stöðugt stefnt í afturhalds- átt, og ofstækisfull þröngsýni hefur einkennt stefnu og starf flokksins í vaxandi maeli. Af- staða Framsóknarflokksins til álsamninganna og kísligúrverk- smiðju við Mýva^jn, er auðvitað eingöngu byggð á pólitískri tækifærismennsku. En lið Ey- steins Jónssonar er nú orðið svo órólegt og kvíðið um það, hvað framtíðin ber í skauti sér, eða öllu heldur ber ekki í skauti sér fyrir flokkinn undir hans for- ustu, að hann megnar ekki leng- ur að halda handjárnunum á þingmönnum sínum. Þeir brjót- ast nú einn af öðrum undan flokksaganum, og neita að fara að orðum Eysteins. „Sér grefur gröf „Sér grefur gröf þott grafi“, stendur einhvers staðar, og á það vissulega við um Framsókn- arflokkinn. Óheilindi, ábyrgðar- leysi og tækifærismennska hafa einkennt stefnu hans og störf í stjórnarandstöðunni. Hann hef- ur jafnan sett flokkshag ofar þjóðarheill. Um nokkurt árabil hefur flokkurinn nú biðlað til vinstri manna um fylgi í því skyni einu, að reyna að nota þau atkvæði til þess að koma sér í ríkisstjórn með Sjálfstæðis- flokknum. En Framsóknarflokk- urinn hefur ekki styrkzt við það vinstra fylgi, sem honum hefur tekizt að reita af kommúnistum, heldur þvert á móti. Djúpstæður skoðanaágreiningur er innan flokksins um mikilvægustu mál, og Eysteini Jónssyni hefur reynzt gjörsamlega ókleift að halda flokknum saman á þeim grundvelli, sem hann hefur sjálfur skapað honum. Þannig koma nú brestirnir stöðugt bet- ur og betur í ljós, og eru þeir þegar farnir að hafa lamandi álirif á alit félags- og flokksstarf Framsóknarmanna. Örvænting forustuliðsins kemur svo greini- lega fram í fáránlegum skrif- um Xímans, sem hafa fyllt ;iafnt andstæðinga sem fylgismenn blaðsins algjörum viðbjóði á ábyrgðarlausum og ósvífnum skrifum þess. Þannig má með sanni segja, áð sér grefur gröf þ<>tt grafi, og Framsóknarmönn- um hefnist nú fyrir óheilindi og tækifærismennsku undanfar- inna ára.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.