Morgunblaðið - 04.05.1966, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.05.1966, Blaðsíða 10
 10 MORGU N BLADID Miðvikudagur 4. maí 1966 UTAN AF LAIMDI LTAIM AF LANDI UTAN AF LANDI 1 UTAN AF LANDI snemmt er að spá nokkru um tilkomu siglfirzkrar varma- veitu á þessu stigi málsins. Því er *kki að neita að Siglufjarðarkaupstaður hef- ur staðið höllum fæti nú um nokkurt árabil. Veldur þar hvorttveggja, samfellt síldar leysi um langt árabil (en hér eru 4 síldarbræðslur og 20 söltunarstöðvar), sem og það að 68% af atvinnurekstri staðarins, sem er ríkisrekinn er meira og minna gjaldfrjáls til bæjarsjóðs. Þetta hefur sniðið bænum mjög þröngan stakk í fjármálum og fram- kvæmdum, og nú í tvö ár í röð valdið því, að útsvör, hækkuð um 20% frá gild- andi útsvarsstiga, hafa hvergi nærri nægt fyrir lög- og samningsbundnum útgjöld- um, og bilið milli tekna og gjalda verið brúað með aukaframlagi úr jöfnunar- sjóði. Þannig er þessi kaupstað- ur, sem fyrri helming þess- arar aldar var einn veiga- mesti hlekkurinn í gjaldeyns öflun þjóðarinnar, og peirri fjármagnsmyndun, er gerði m.ö. mögulega þá öru þjóð- félagsþróun til velmegunar sem nú er staðreynd, kom- inn á krossgötur, sem óhjá- kvæmilega krefjast einhverra ráðstafana. Hið einhæfa atvinnulíf og gjaldfrelsi tiltekinna fyrir- tækja, þarf að umbreyta í atvinnuöryggi og nægilega tekjuöflunarmöguleika sveit- arfélagsins. Löggjafinn og ríkisvaldið eiga skyldum að gegna í þessu efni. Þetta hef- ur ríkisstjórnin gert sér Ijóst, svo sem framkvæmda- áætlun fyrir Norðurland, se/n nú er unnið að, lögin um atvinnujöfnunarsjóð, aukin gjaldskylda ríkisfyrirtækja, (þó þar sé of skammt geng- ið), bera vitni um. Siglo-sild er sælgæti — og ekki skemma meyjarnar mynd- ina. Löndunarbryggja SR í endurbyggingu. m.a.:. Ný tunnuverksmiðja á- samt tunnugeymslu, ný veg- leg bókhlaða, yfirbyggð sundhöll, sem jafnframt verður íþróttahús, bygging Gagnfræðaskóla og endur- bygging Barnaskóla. Þá má og geta skuttogarans „Sigl- firðingur", sem er fyrsti skuttogarinn í eigu Islend- inga. Fyrirtækið Vermir sf. nef- ur framkvæmt ítarlega rann- sókn á fyrirhugaðri varma- veitu fyrir Siglufjarðarkaup- stað. Gefur sú athugun góð- ar vonir um, að virkja megi heitavatnslyndir í Skútudal, til upphitunar húsa hér. Frek ari tilraunaboranir verða framkvæmdar í sumar, en of Það er von Siglfirðinga, að öll ábyrg öfl í þjóðfélaginu leggi því máli lið, að skapa Siglufjarðarkaupstað . fram- tíðaröryggí og vaxtarmögu- leika, með þvi m.a., að hann megi skattleggja allan at- vinnurekstur hér, á sama hátt og aðrir kaupstaðir, og með því að hlú hér að nýjum greinum atvinnurekstrar, sem skapi atvinnuöryggi. Siglfirðingar hafa þraukað af ár erfiðleika, næstum á seigl- unni einni saman, og von- andi liggur nú leiðin upp á við á ný. — Stefán. -x ORÐIÐ eitt, Siglufjörður, minnir á 20 síldarleysissum- ur og jafnmörg ár hráefnis- skorts undirstöðuatvinnuveg- ar lítils bæjarfélags. Margur mun því álykta, að ekki sé stórra framkvæmda né mark- verðra frétta að vænta úr slíku byggðarlagi. Slík ályktun á rétt á sér — að vissu marki — og þó .... Ritstjóri Mbl. átti a.m.k. svo skáldlegt ímyndunarafl að fara fram á myndskreytt fréttabréf um framkvæmdir í Siglufirði. 1 hánorður frá kaupstaðn- um rís fjallið Strákar, teyg- í iðrum Strákafjalls er unnið að fyrstu jarðgöngunum í þjóðvegakerfi landsins. Þeir, sem hafa seigluna, hafa sigurinn ir toppa til himins og þver- hnýpt björg í sjó fram. Þar fóru fáir yfir, utan fuglar og flugvélar. Nú er unnið þar að jarðgöngum, þeim einu í þjóðvegakerfi landsins, 700— 800 m. löngum. Verktaki er Efra-fall, sem hóf undirbún- ingsstörf í júlímánuði s.l., sprengingar í ágúst, og nú eru Efra-falls menn komnir nær 500 m. inn í bergið. (í þeirra hópi virðist enginn Ólafur Liljurós). Verk þetta hefur gengið samkyæmt áætlun, þrátt fyr- ir óvenjuharðan vetur, sem tafið hefur flutning manna og tækja að og frá vinnustað, og þrátt fyrir að móhellulög í berginu hafi í tvígang seinkað verkinu. Komi ekk- ert ófyrirséð fyrir, koma þeir Efra-fallsmenn, sem grófu sig inn í bergið Sigluf jarðar- megin í ágúst s.l., út úr fjall- inu Norðan Sauðaness í júlí- mánuði n.k., og hafa þá „skrifað“ nýjan kapitula í samgöngumálum þjóðarinn- ar. Og að hausti má gera ráð fyrir að bílar aki gegn um fjallið, um þau jarðgöng, sem fámennur söfnuður Stalíns hér í Siglufirði trúir enn (sem nokkurskonar sálu- hjálparatriði) að séu „íhalds- ins kosningalygar", og gera væntanlega áfram akandi hinn nýja Stákaveg. Sunnan fjarðarins og norð ur með honum austanmegin hefur verið dælt upp um 700 m. langri flugbraut, sem verður „jöfnuð og borin slit- lagi í sumar.“ Flugbraut þessi verður síðar lengd til norðurs — en tilkoma henn- ar, ásamt hinum nýja Stráka vegi, marka tímamót í sam- göngumálum Siglufjarðar. Ingólfur Jónsson, samgöngu málaráðherra, hefur sýnt þessum málum báðum sér- stakan velvilja og fyrir- greiðslu, sem Siglfirðingar kunna honum þakkir fyrir. Hér er í smíðum nýtt og glæsilegt sjúkrahús, sem væntanlega verður tekið í notkun síðla sumars í ár. Er það um 7000 ferm. að stærð, rúmar 45 sjúklinga (með elli deild). Sigurjón Sveinsson, arkitekt, teiknaði bygging- úna, en byggingarmeistari er Skúli Jónasson. Nýtt póst- og símahús er og hér í byggingu og verður væntanlega fullgert á þessu ári. Byggingameistari er Þór- Niðursuðuverksmiðja SR í byggingu. arinn Vilbergsson. Þar er nú til húsa sjálfvirk símstöð, sem tekin var í notkun fyrir nokkrum mánuðum. Miklar framkvæmdir eru og á vegum S.R. hér. Má þar t.d. nefna byggingu efri hæð- ar niðurlagningarverksmiðju S.R., endurbyggingu aðal- löndunarbryggju S.R. Bygg- ingarmeistari Páll G. Jóns- son. Þá eru bæði SR og Rauðka að fá fullkomnar vog ir, en öll síld verður keypt vegin í sumar hjá siidar- bræðslunum hér. Það helzta í framkvæmd- um undanfarinna ára hér er » UTAIM AF LAIMDI UTAIM AF LAIMDI UTAN AF LANDI UtAN AF LANDI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.