Morgunblaðið - 04.05.1966, Side 5
OTKJvfkudagur 4. maí 1966
MORGUNBLAÐIÐ
5
í L>a Canterina einungis fjór-
ar. í>að verður t>ví sannarlega
hvíld í því að fást við hana
móts við Ævintýri Ho-ffmans.
— Og samvinnan við hina
íslenzku söngvara?
— Hún hefur verið með
ágætum. J>eir hafa verið
mjög samvinnuþýðir og elsku
legir. Kórinn er góður og það
sem mest er um vert: hann
er mjög áhugasamur, sem er
því miður meira en hægt er
að segja um svipaða kóra í
Svíþjóð. Og Magnús Jónsson
hefur mjög góða og þjálfaða
rödd, við Magnús erum reynd
ar gamlir kunningjar. Ég var
aðeins 13 ára gamail, þegar
ég hitti hann fyrst í Svíþjóð.
— Hvað getið þér sagt okk
ur um óperuna sjálfa?
— Hún er sérstæð fyrir
margra hluta sakir. Hún er
eins og kunnugt er byggð á
skáldsögum Hoffmans, sem
var ákaflega rómantiskur
maður, og ef til vill dálítið
„hysterískur“ á stundum.
Tveir rithöfundar í París sáu
í þessum skáldsögum góðan
efnivið í leikrit, og í því
gerðu þeir Hoffman sjálfan
að höfuðpersónunni. Offen-
bach samdi óperuna með hlið
sjón af leikritinu og einnig
þar er Hoffman ávallt sögu-
hetjan. Óperuhús voru fyrr á
tímum tímum treg til að sýna
óperuna, sem stafaði fyrst og
fremt af hjátrú, en svo ein-
kennilega vildi til, að þegar
hún var frumsýnd í Vín brann
óperuhúsið meðan á sýningu
stóð og margir biðu bana í
eldsvoðanum. Hið sama skeði
í París, þegar óperan var
frumsýnd þar. Um efni óper-
unnar er óþarfi að fjölyrða,
sjón er sögu ríkari.
Eins og fyrr greinir á Söder
ström að baki langa reynslu
í sviðssetmngu óperu þrátt
fyrir ungan aidur, en hann
heldur einmitt í dag hátíðlegt
28 ára afmæli sitt.
Rætt við leikstjórann Leif Söderström
ström, sem íslenzkum óperu-
gestum er að góðu kunnur,
en hann færði upp óperuna
Madame Butterfly í Þjóðleik-
húsinu fyrir u.þ.b. ári.
Með stærstu hlutverkin í
Ævintýri Hoffmans fara
Magnús Jónsson, er sýngur
Hoffman sjálfan, en Magnús
lét nýlega af starfi hjá Kon-
unglega leikhúsinu í Kaup-
mannahöfn og er nú alkom-
inn til íslands. Guðmundur
Jónsson syngur fjögur hlut-
verk í óperunni og stærstu
kvenhlutverkin syngja þær
Svala Nielsen, Eygló Viktors-
dóttir og Þuríður Pálsdóttir.
Aðrir söngvarar íslenzkir,
sem koma fram í óperunni má
nefna Sigurveigp Hjalteste-.',
Guðmund Guðjónsson, Hjálm
ar Kjartansson og Sverri
Kjartansson.
Leikstjórinn Leif Söder-
ström er ungur að árum, en
á að baki langa og marg
háttaða reynslu í uppsetn-
ingu ópera bæði fyrir svið og
sjónvarp í Svíþjóð. Við svið-
setningu Ævintýri Hoffmans
hér á landi hefur hann ekki
einungis á hendi leikstjórn
heldur hefur hann einnig
teiknað búninga og leiktjöld
sjálfur. Fréttamaður Mbl.
hitti þennan hæfileikaríka og
glaðsinnaða Sváa að máli í her
bergi hans í Þjóðleikhúsinu
og lagði fyrir hann fáeinar
spurningar varðandi hann
sjálfan og starf hans hér:
— Ég kom hingað til ís-
lands 1. apríl sl., sagði Söder-
ström, — og síðan höfum við
æft óperuna tvisvar á dag,
að undanteknum einum fimm
hvimleiðum dögum, sem ég
lá veikur í innflúenzu. En á
meðan æfðu söngvararnir og
kórinn að sjálfsögðu. Ég gat
ekki komið því við í fyrra
þegar Madame Butterfly var
frumsýnd, að vera hér við-
staddur, en ég er ákveðinn í
að láta það ekki henda aftur,
en ég fer heim aftur 8. maí.
Það 'bíða min næg verkeíni
í Svíþjóð. í tilefni af 200 ára
afmæli Drottning Holms
Slots Teater sem byggt var
1766, á að sýna óperuna La
Canterina eftir Haydn, en t
henni á ég að annast leik-
stjórn. Það er, vel á minnst,
reginmunur á þessum tveim-
ur óperum; í óperu Offen-
bachs eru um 60 persónur en
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
ÆVINTÝRI Hoffmans — hin
víðfræga ópera Offenbachs
verður frumsýnt á sviði Þjóð
leikhússins 6. maj n.k. í óper
unni koma fram 12 einsöngv-
arar, 28 manna kór, 6 ballett-
stúlkur og yfir 30 manna
hljómsveit. Leikstjóri óper-
unnar er Svíinn Leif Söder- Magnús Jónsson í lilutvcrki Hoffipans. Að baki hans er Þjóðleikhúskórinn. (Ljósm. Bj Bj.)
Ævintýri Hoffmans í Þjdðleikhúsinu
X DX D
Utankjörstaðakosning
Þeir sem ekki verða heima á kjördegi geta kosið hjá sýslumönnum,
bæjarfógetum og hreppstjórum og í Reykjavík hjá borgarfógeta.
Erlendis er hægt að kjósa hjá islenzkum sendiráðum og ræðis-
mönnum sem tala íslenzku.
Kosningaskrifstofa borgarfógeta í Reykjavík er í Búnaðar-
félagshúsinu við Lækjargötu. — Skrifstofan er opin sem hér
segir: Alla virka daga kl. 10—12, 2—6, 8—10 og sunnudaga 2—6.
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, Hafnarstræti 19, 3. hæð,
veitir allar uppiýsingar og aðstoð í sambandi við utan
kjörstaðaatkvæðagreiðsluna.
Skrifstofan er opin daglega frá kl. 10—10. Símar: 22637 og 22708.
Upplýsingar um kjörskrá eru veittar i síma 22756.
2ja herb. íbúðarhæð
Til sölu er óvenju glæsileg 2ja herb. íbúð á 2. hæð
í nýju sambýlishúsi á bezta stað í Vesturborginni,
tvöfalt gler, harðviðarinnréttingar, teppalögð, sér
geymsla, í kjallara og hlutdeild í vélaþvottahúsi og
teppalÖgðu stigahúsi.
Skipa- og íasteignasalan sEr,Vi::°",
Sumarbúðir heimatrúboðsins
f dag og á morgun þurfa þeir sem óskað hafa eftir
dvöl fyrir telpu að Lækjamóti í Mosfellssveit að
hafa samband við forstöðumann starfsins í síma
1627» frá kl. 4—7 e.h.
Hódegisverðor-
fundur íslenzk-
umerísku fél.
ÍSLENZK-ameríska félagið held
ur hádegisverðarfund í Þjóðleik-
húskjallaranum miðvikudaginn
4. maí og hefst hann kl. 12,10
stundvíslega.
Gestur fundarins verður pró-
fessor John Teal frá háskólanum
í Alaska og mun hann flytja er-
indi og sýna stutta kvikmynd
um Alaska og tamningu og rækt-
un sauðnauta (musk oxen).
Prófessor John Teal hefur há-
skólapróf frá Harvard og Yale
og er nú sem stendur prófessor
við Alaskaháskóla. Hefur hann
lagt sérstaka rækt við rannsókn
ir á sauðnautum og sýnt fram
á með tilraunum, að hægt er að
temja þessi dýr og hafa mikil
not af ull þeirra. Telur hann ís-
land vel fallið til ræktunar sauð-
nauta, og mun fjalla um það í
erindi sínu.
Hádegisverðurinn kostar kr.
130,00 og óskast þátttaka til-
kynnt í síma 2-34-90 fyrir þriðju
dagskvöld.
Skorað er á félagsmenn að fjöl
menna og taka með sér gesti.
Aðalfundur félagsins verður
haldinn í Þjóðleikhúskjallaran-
um miðvikudaginn 25. maí kl.
8,30 e.'h. og er þess óskað, að fé-
lagsmenn fjölmenni á fundinn,
sem verður nánar auglýstur
í dagblöðunum.
Sveinn H. Valdimarsson
hæstaréttarlögmaður
Sólfhólsgötu 4 (Sambandshús)
Símar 23338 og 12343
KRISTINN EINARSSON
héraðsdómslögmaður
Hverfisgötu 50 (frá Vatnsstíg)
Símar 10260 og 40128
Kosningasjóður D-listans
FRAMLÓGUM í kosningasjóð D-listans er veitt mót-
taka í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Sjálfstæðis-
húsinu við Austurvöll og í Valhöll við Suðurgötu 39
(simi 17100).
M atvöruverzlun
í eigin húsnæði, ásamt með sambyggðum söluturni,
olíu- og benzínsölu, í nágrenni baejarins, er til sölu.
Iðnfyrirtœki
Gott saumaverkstæði, sem framleiðir nýtízku kven-
fatnað, er til sölu. Nýjar vélar. Gott húsnæði.
Nokkrar efnisbirgðir og góð sölusambönd fylgja við
söluna.
fasteignasalah
HÚSaEIGNIR
BANKASTKÆTI 4
Upplýsingar aðeins veitt-
ar á skrifstofunni,
(ekki í síma),
Bankastræti 6.
Söltunarstöð
til leigu
Lítil en hentug söltunarstöð Jakobssen-
stöð) er til leigu á Siglufirði.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður.
Siglufirði, 20. apríl 1966.
Bæjarstjórinn (sími 7-13-15).