Morgunblaðið - 08.05.1966, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.05.1966, Blaðsíða 1
32 síður og Lesbók 53. árgangur. 103. tbl. — Sunnudagur 8; maí 1966 Prentsmiðja Morgunblaðsins. I stuttu isjafnar skoðanir danskra blaða á dómi landsréttarins - Joigen Jörgensen, fynvetonái ráðheirn lýsir anægju sinni yfir undirrétl udóntinum Einkasbeyti til Morgunblaðsins. Kaupm.höín, 7. maí — Rytgaard. ÍSLANDSVINURINN, Jörg- en Jörgensen, íyrrverandi menntamálaráðherra, sem frá upphafi hefur verið hlynntur afhendingu handritanna í Árnasafni, hefur, í viðtali við fréttaritara Mbl., látið í ljós álit sitt á dómi Eystra Lands- réttar, sem kveðinn var upp í fyrradag. Kemst hann þannig að orði: Ég er glaður og ánægður yfir dóminum, og tel, að hann eigi eftir að bæta mjög sam- búð íslendinga og Dana. — Dómurinn kom mér ekki á óvart, því að ég hef alltaf bú- izt við þessari niðurstöðu. Af- hendingin hefur mætt and- stöðu, en við getum verið ánægð með þessa ákvörðun." Stjórnarblaðið „Aktuelt" seg- ir m.a.: „Dómur Landsréttarins í handritamólinu er ekki síðasta orðið, en hann virðist svo ákveð- inn, að hæpið verður að teljast, að hæstiréttur breyti honum. — Heizt er að búast við, að harðar verði kveðið að orði um sýknun tfræðslumálaráðueytisins, og þá um leið staðfest sú ákvörðun þingsins að afhenda handritin. Atkvæðagreiðsian fór, eins og kunnugt er, þannig, að 104 greiddu atkvæði með, en 58 á móti. Landsréttardómurinn fjallar einkum um það atriði, hvort um sé að ræða eignarnám. Fyrrver- andi ríkisstjórn leit svo á, að ekki væri um eignarnám að ræða en til þess að valda ekki óþörf- um deilum um það atriði, var ákveðið að fresta ákvörðun, þar til nýtt þing hefði komið sam- an. Tillagan var því samþykkt ó- breytt, en hún var lögð fram á nýjan leik. >ó hefur einnig ver- ið um það rætt, hvort hugsan- legt eignarnám væri hægt að verja á þann hátt, að það væri í þágu almennings. Við lítum þannig á, að dómurinn gefi til kynna, að um almannaheill sé að ræða, þar eð afhendingin leysi viðkvæmt vandamál í sambúð íslendinga og Dana. Endanleg ákvörðun verður, eins og fyrr segir, tekin af hæstarétti, en við trúum því, að íslenzka bræðra- þjóðin þurfi ekkert að óttast." „Politiken" segir um dóminn í handritamálinu, að hann líkist „tritlandi fræðilegri gildru41 (trippedans mellem teoretiske fælder). Eystri Landsréttur hafi leitt hjá sér að varpa ljósi á hugtök, sem þarfnast hafi skýr- ingar. Nú viti hvorki lærðir né leikir, hvort Árnasafn sé einka- stofnun eða opinber. Dómararn- ir segi, að hún sé hvoru tveggja, en ieggi áherzlu á það siðar- nefnda. Þá telur blaðiið ekki, að menn séu neinu nær um, hvort um sé að ræða þvingunarafhend- ingu, með tilliti til 73. greinar stjórnarskrárinnar. >á hafi rétt- urinn lýst því yfir, að erfitt sé að skiigreina eignaréttinn, þegar hann sé í senn andlegur og ver- aldlegur. >essu hafi þó margir velt fyrir sér, og því sé hægt að fullyrða, að bezt megi iesa sér til um það, sem býr að baki dómnum, aftarlega í forsendum hans, þar sem taiað er um sér- stakar kringumstæður, sem sýni, að ákvörðunin (um afhending- una) brjóti ekki í bága við 73. grein stjórnarskrárinnar. Það standi svart á hvítu, og því sé ekki þörf á frekari vangaveltu. Framhald á bls. 31. Dppgíöf koini á iffiiflan - samnEnguEn — Kúbustjóm gagnrýnir stjóm Júgóslavíu Havana, 7. maí — NTB MÁLGAGN kúbanska komm únistaflokksins „Granna“ réðst í dag harkalega á stjórn Júgóslavíu. Er því lýst yfir í blaðinu, að júgóslavneskir ráðamenn séu gengnir á band með bandarískum heimsvalda sinnum í Vietnammálinua, Árás þessi á valdhafa Júgó- siavíu er sú þriðja, sem ieið- togar Kúbu standa fyrir ó nokkr- um dögum. Fréttaritarar í Havana telja, að árásin sé gerð nú, vegna þess, að undanfarið hafi blöð í Júgósiaviu gert harða hríð að kúbönsku ráða mönnum, og sagt þá öfgasinna og ævintýramenn. r ramhald á bls. 31. Feking, 7. maí. — NTB. ALÞÝÐULÝÐVELDIÐ Kína og Albanía hafa tekið hönd- um saman í baráttunni gegn sovézkum endurskoðunarsinn- um og bandarískum heims- valdasinnum, sem ráðamenn komimiúnistaríkjanna tveggja telja vinna saman að því 'að ná heimsyfirráðum. Frá þessu skýrði fréttastofan „Nýja- Kina“ í gær, eftir að haldinn hafði verið fjöldafundur i Shanghai, vegna heimsóknar forsætisráðh. Aiibaníu, Meh- met Shehu, til Kína. Rúmiega 10.000 manns sóttu fundinn. Brússel, 7. maí. — NTB. FYR.RVERANDI utanríkisráð- herra Belgíu, Paul Henry Spaak, réðst í gær harkalega á stefnu de Gauile, Frakk- landsforseta, og sagði hann stefna öryggi V-Evrópu í hættu. Kanzlari V-Þýzkalands, Lud wig Erhard, rceddi einnig utan ríkisstefnu Prakklands í gær, ag taidi ástæðu til að ótttast, að de Gaulle myndi svíkja Vesturlönd, er hann færi í heimsókm sína til Moskvu, nú innan tíðar. í GÆR hélt Heimdallur, félag ungra Sjálfstæöis- manna ánægjulegan fund unga fólksins í Reykjavík. Var fundurinn haldinn í Sjálf stæðishúsinu, og sóííi hann margt manna. Á sviði húss- ins gaf að líta orðið ÁFRAM en það er kjörorð Sjálf- stæðismanna j borgar- stjórnarkosningxuxum. Það táknar í senn, að Reyk- víkingar vilji áfram miklar framfarir, það er baráttu- hvatning, og síðast en ekki sízt er það yfirlýsing borgar- búa um það, að þeir vilji á- fram trausta og örugga for- ustu, þeir vilji Geir Hall- grímssonar, borgatrstjóra, á- fram. Á fundinum fluttu níu ung ir menn og konur stutt á- vörp og ræður, þau Birgir ísl. Gunnarsson, borgarfull- trúi, Magnús L. Sveinsson, verzlunarmaður, Jón Magn- ússon, menntaskólanemi, Sverrir Guðvarðsson, stýri- maður, Katrín Fjelsteð, menntaiskólanemi, Bragi Hannesson, bankastjóri, Magnús Gunnarsson, verzl- unarskólanemi, Kristipn Kristjánsson, húsasmiður, og Styrmir Gunnarsson, lög- fræðingur. Geir Hallgrims- son, borgarstjóri flutti loka- orð. Fundarstjóri var Ólafur B. Thors, en fundarritarar Anna Guðnadóttir og Gunn- ar Felixson. Frá fundi unga fólksins í Sjálfstæðishúsinu i gær jr Anægjulegur fundur reykvískrar æsku undir kjörorðinu 'AFHMM %

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.