Morgunblaðið - 08.05.1966, Síða 30

Morgunblaðið - 08.05.1966, Síða 30
33 MORGUNBLADÍD Sunmidagur 8. maí 19&6 LINDARBÆR Leikfélag Hveragerðis sýnir hið heimsfræga og umdeilda leikrit r> ■ Ovænt heimsókn eftir J. B. Priestley í Lindarbae n.k. mánud. kl. 9 e.h. Leikstjóri: Gísli Halldórsson. Aðgöngumiðasala í Lindarbæ á sunnudag og mánu- dag frá kl. 2 e.h; báða dagana. Leikfélag Hveragerðis. Stórt fyrirtæki óskar að ráða verkfræðing, tæknifræðing með reynslu á verzlunarsviði eða verzlunarmann með áhuga á tæknilegum verkefnum. Skilyrði: íslenzkur ríkisborgari, 30—40 ára, góð kunnátta í þýzku eða ensku, framtakssamur, hug- myndaríkur, sjálfstæður í hugsun og framkvæmd, reynsla á sviði iðnaðar og verzlunar. Umsóknir með curriculum vitae, ljósmynd og öðr- um skilríkjum ásamt kaupkröfum, sendist til Mál- flutningsskrifstofu Einars B. Guðmundssonar, Guð- laugs Þorlákssongr og Guðmundar Péturssonar, Pósthólf 127, Reykjavík, fyrir 26. maí n.k. merktar: „STÓRT FYRIRTÆKI — 9070“. — híelgi Bergmann Framhald af bls. 5 um snittum með nauatungu og rækjum, ásamt laxi a. en þá var klukikan orðin anzi margt, svo að við urðum að kveðja Helga Bergmann að sinnL Að endingu: Sýning hans hefst fyrir almenning á sunnu dag, þ.e. í dag, kl. 7 i Neðri salnum í Félagsheimili Kópa- vogs. Næg bílastæði, og gnótt af strætisvagna ferðum. Svo verður sýningin opin frá kl. 4-10 á hverjum degi, „og auð- vitað er þetta sölusýning“, kallaði Helgi á eftir okkur um leið og við héldum út í nepjuna i annarri viku sum- ars og hröðuðum okkur norð- ur Grundarstíg. Fr. S. Bifreiðaeigendur Við höfum nú fengið fullkomið tæki til að stilla fyrir ykkur hleðslu frá dýnamónum. — Prófum einnig og gerum við „Alternatora“. __ _ r ^ • Rafvélaverkstæði H.B. Olasonar Síðumúla 17 sími 30470. Hraun|>rýði minnist lokadagsins HAFNARFIRÐI — Slysavama- deildin Hraunprýði minnist 11. maí næstkomandi (lokadagsins) eins og undanfarin ár með merkja- og kaffisölu. Verða merkin afhent í Bæjarbíói þann dag frá kl. 9 fyrir hádegi og kaffi selt í báðum samkomu- húsunum frá kl. 3 til 11:30. —- Er starfshópum sérstaklega bent á síðdegiskaffið, en þeir hafa jafnan fjölmennt í kaflfið og heimabökuðu kökurnar. Slysavarnadeildin Hraunprýði hefir starfað vel á árinu og stendur starfsemin með blóma. Miá t.d. geta þess, að deildin afhenti SVFÍ rúmar 92 þúsund krónur. — Er ekki að efa að Hafnfirðingar munu nú sem fyrr styrkja deildina á lokadaginn með því að kaupa merki dags- ins og koma í kaffi í Alþýðu- og Sjálfstæðishúsið einhvern tíma frá klukkan þrjú og til 11:30 á lokadaginn, næstkom- ítndi miðvikudag. Sjötugur í dag Á morgun verður sjötugur Þorsteinn Jónasson, hrepps- stjóri, Jörfa, Haukadal, Dala- sýslu. Hinn 26. apríl s.l. varð Mar- grét Oddsdóttir, kona hans, sextug. TERVLENEFRAKKAR POPPLINEFRAKKAR Stuttir, síðir Vortízkan ANDERNEW OG LAUTH HF.@ KYNNINGAR KVÖLDVAKA Sjálfstæðiskvennafélagsins Hvatar verður í Sjálfstæðishúsinu þriðjudaginn 10. maí kl. 8:30 e.h. GEIR HALLGRÍMSSON, borgarstjóri talar Ávörp flytja: Sigurlaug Bjarnadóttir Geirþrúður H. Bernhöft Gróa Pétursdóttir Sigurbjörg Sigurjónsdóttir Auður Auðims SKEMMTIA T RIÐI: Frú Þóra Borg Einarsson les upp. ^ Magnús Jónsson óperusöngvari syngur ^ Þjóðdansafélagið sýnir dansa og gamla búninga. KAFFIDRYKKJA — Félagskonur fjölmennið og takið með ykkur gesti. Aðrar sjálfstæðiskonur velkomnar meðan húsrúm leyfir. STJÓRNIN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.