Morgunblaðið - 08.05.1966, Qupperneq 3
iBunnudagur 8. maí 1^6
MORGUNBLAÐÍÐ
Frá fundi yfirmanna Fiskmats ríkisins, talið frá vinstri: Bergsveinn Á. Bergsveinsson,
fiskmatssjóri, Níels Ingvarsson, fundarstjóri, yfirfiskmatsmaður á Neskaupstað, og Jón J.
Ólafsson, fundarrritari, yfirfiskmatsmaður, Reykjavík.
Yfir 200 manns vinna að
mati og flokkun fiskafurða
Sr. Jón Auðuns, dómprófasturs
Fagna&artíminn
MORGUNBLAÐDE) átti ný-
lega viðtal við Bergstein Á.
Bergsteinsson ,fiskmatsstjóra,
um starfsemi Fiskmats ríkis-
ins, en ársfundur stofnunar-
innar var haldinn fyrir
nokkru í Reykjavík.
Bergsteinn Á. Bergsteins-
son sagði:
— Fiskmat ríkisins sér um
mat á fiskafurðum, sem flutt-
ar eru út til manneldis, eða
nánar tiltekið á frystum fiski,
hrognum, síld, saltfiski,
skreið og ferskum fiski.
— Fiskmat ríkisins er því
eitt af þeim þjónustufyrir-
tækjum ríkisins sem
starfar um allt land. Aðal-
skrifstofurnar eru í Hamars-
húsinu í Reykjavík.
— Við Fiskmatið starfa
fiskmatsstjóni, ákrdfstofu-
stjóri, 2 ritarar, 13 yfirfisk-
matsmenn, úm 200 fiskmats-
menn og nokkrir lestunar-
stjórar.
— Yfirfiskmatsmenn eru
staðsettir víðsvegar á land-
inu og fer búseta þeirra eftir
ýmsu, t.d. framleiðslumagni
fiskafurða, samgöngum o.fl.
— Fiskmatsmennirnir meta
og flokka eftir gæðum hinar
ýmsu afurðir, undir stjórn
og samkvæmt leið'beiningum
yifirfiskmatsmanna. Starfi
þeirra lýkur ekki fyrr en
afurðimar eru komnar um
borð í skip, sem flytja þær til
hinna ýmsu markaða.
— Starfið er jafnan eril-
samt, en fjölbreytt, því segja
má að alla daga ársins, að
| undanteknum stórhátíðum, sé
verið að meta eða lesta fisk
til útflutnings.
— Störf yfirfiskm atsmanns
krefjast sífelldra ferðalaga,
lengri eða skemmri eftir að-
stæðum. Þung ábyrgð hvílir
á herðum þessara manna, svo
og fiskmatsmanna, því er
mikið komið undir því fyrir
þjóðina, að störf þessi séu
rækt af samvizkusemi.
— Útflutningur þessara
matsskyldu fiskafurða er mjög
ör og verður að leggja mikla
áherzlu á að allar fram-
kvæmdir gangi eðlilega og
vel. Þetta krefst daglegs
samstarfs útflytjenda, Fisk-
matsins og fleiri aðila, t.d.
útflutningsdeildar viðskipta
málaráðuneytisins og toll-
st j ór askrifstof unnar.
— Útflytjendur tilkynna
skrifstofu Fiskmatsins um
fiskafurðir er þeir ætla að
flytja út, og er þá haft sam-
band við viðkomandi yfir-
fiskmatsmann.
— Við lestun á fiskafurð-
um starfa lestunarstjórar að
því, að gera nákvæma skrá
um það sem lestað er og sjá
um góða meðferð vörunnar.
Þegar lestun er lokið gefur
s'krifstofa Fiskmatsins út
heildarvottorð um farmdnn,
þar sem m.a. er tilgreint um
gæðaflokka, fisktegunda,
þyngd og merkingar. Áður
þarf þó að bera saman vott-
orð frá fiskmatsmönnum við
lestunarlista og útflutnings-
skjöl útflytjenda. Þarf þetta
verk að vinnast fljótt og vel.
— Þess má geta, að árið
1965 þurfti að afgreiða 3.530
original“ útflutningsyottorð
með 304 skipsförmum eða
farmshlutum.
— Þetta sama ár var magn
útfluttra fiskafurða, sem
falla undir starfsemi Fisk-
mats ríkisins, sem hér segir:
Frystur 56.678,8 tonn,
FRUMKRISTNIN lifði og
hrærðist í þeim magnmikla
fögnuði, sem páskasannfæring-
unni fylgdi. Líf hennar, sigrar og
kraftur komu henni framar öllu
öðru frá gersamlega efalausri
vissu um upprisu Krists, eilíft
líf og ódauðleika.
Og eldmóður páskavissunnar
entist kristninni lengi. Svo var
umhorfs erm um aldamótin 200,
og þó lengur, að tímabilið allt
frá páskadegi og til hvítasunnu
var samfelld fagnaðarhátíð og
þessi tími var nefndur fagnaðar-
timinn. Menn héldu allan þenn-
an tíma gleðihátíð og upprisu-
fögnuðurinn var grunntónn
helgihaldsins.
Að sjálfsögðu gerðu menn
ekki alla þessa 50 fagnaðardaga
að verklausum hvíldardögum,
heldur að lifandi trúarhátíð.
Og svo var helgi mikil á þessu
tímabili, að þennan helgasta
tíma ársins, að skilningi forn-
kirkjunnar, átti helzt að skíra
alla þá, sem skíra skyldi á því
ári.
Þessi fögnuður lifir ekki í
kristninni lengur. Þó ætti öll-
um að vera ljóst, að með því að
glata honum glatar kristin
kirkja þeim kjarna, sem hún
lifði á, meðan hún var sterk,
sjálfum grundvellinum, sem hún
var reist á. Og annað er ljóst:
Af sjónarhóli páskanna, eilífðar
vissunnar skoðuðu kynslóðir
hinnar sigrandi, sterku kirkju
fryst síld 25.621.5 tonn ,fryst
hrogn 2.255.3 tonn, saltfiskur
31.912.3 tonn, skreið 12.144.6
tonn, ísvarinn fiskur 70.5
tonn, ísvarin síld 11.553.1
tonn eða alls 140.236.1 tonn.
— Til fróðleiks má geta
þess, að að yfirmenn Fisk-
mats ríkisins halda sameigin-
lega fundi reglulega og lauk
einum hér í Reykjavík fyrir
nokkrum vikum. Fundir þess-
ir eru veigamiklir þættir í
starfsemi stofnunarinnar.
Yfirmenn Fiskmatsins á fundinum í Reykjavík. Á myndinni eru, talið frá vinstri, fremri
röð: Finnbogi Árnason, Lýður Jónsson, Ólafur Árnason. Næstfremsta röð: Kristján Elías-
son, Þorleifur Ágústsson, Bjö rn Björnsson. Næstaftasta röð: Jón Þ. Ólafsson, Bragi I. Ólafs-
son. Aftasta röð: Jóhann Eiríksson, Axel Jóhannsson, Sigfús Magnússon og Gunnar Sigurðs-
son.
Norðurlandamót í
bridge haldið hér
Um 80 erlendii bridgespilarar koma
NORRÆ5NA bridgemótið fer
fram að Hótel Sögu dagana 22.
maí til 27. maí Nú hafa þátttöku-
þjóðirnar til'kynnt hvaða spilar-
arar skipa liðin sín, en hver
þjóð sendir þrjár sveitir til
keppni, tvær í opna flokkinn
og eina í kvennaflokkinn. Stig
þau, sem báðar sveitir hverrar
þjóðar fá í opna flokknum eru
lögð saman og er sú þjóð sigur-
vegari, sem þannig fær flest
vinningsstig. í kvennaflokknum
er aðeins ein sveit frá hverri
þjóð og þar verður sigurvegari
eins og venjulega sú þjóð, sem
á þá sveit, sem flest stig fær.
Keppendurnir á mótinu verða
þessir:
ísland I.
Hörður Þórðarson, fyrirliði,
Ásmundur Pálsson,
Einar Þorfinnsson,
Gunnar Guðmundsson,
Hjalti Elíasson,
Símon Símonarson,
Þorgeir Sigurðsson.
ísland II.
Sveinn Ingvarsson, fyrirliði
Agnar Jörgensson,
Benedikt Jóhannsson,
Ingólfur Isebarn,
Jóhann Jónsson,
Jón Arason,
Sigurður Helgason.
tsland — Kvennaflokkur
Þórir Sigurðsson, fyrirliði
Elín Jónsdóttir,
Kristjana Steingrímsdóttir,
Magnea Kjartansdóttir,
Margrét Jensdóttir,
Ósk Kristjánsdóttir,'
Rósa Þorsteinsdóttir.
Danmörk I.
Per Grön'borg, fyrirliði,
S. Steen Möller,
Th. Ipsen,
Stig Werdelin,
Gunnar Andersen,
Axel Voigt,
Johs Hulgaard.
Danmörk II.
Carlo Mogensen, fyrirliði,
Aage Petersen,
Vibeke Petersen,
Rob. Rioe,
Henning Schultz,
Framhald á bls. 25.
örlög sín og atvik öll hins dag-
lega lífs.
En nú spyrja menn á valdi
óvissu og kaldra efasemda: Er
hún ekki varhugaverð sú kenn-
ing, að allt hljóti kristinn mað-
ur að skoða af sjónarhóli eilífð^
ar- og ódauðleikatrúar? Á ekki
jarðneskur heimur með öllum
sínum óteljandi vandamálurn
og viðfangsefnum heimtingu á
athygli okkar einbeittri og
óskiptri? Á okkur ekki að vera
nóg að lifa í einum heimi í
senn? Missa menn ekki fótfestu
í þessum heimi, ef þeir hugsa
svo mjög um annan heim?
Reynslan er ólygnust og hún
sýnir, að einmitt þeir, sem eru
heilir og sannir páskatrúarmenn,
verða hæfari til að lifa þessu
lífi, betri borgarar hins jarð-
neska félags.
Með eilífðarútsýnið framund-
an eiga menn einmitt að kunna á
því hin réttu tök, að taka með
skynsamlegri hófsemd gleði og,
velgengni, ög með rósemi sorg-
um og andstreymi. Einmitt ef
við eigum þá sannfæringu
trausta, að maðurinn er ódauð-
legt guðsbarn, eigum við að
kunna á því betri skil, að taka
margháttaðri lífsreynslu tökum
hins fullorðna manns en ekki
fálmi barnsins.
Þegar okkur er orðið það ljóst,
að jarðlífið er ekki nema einn
áfangi á ósegjanlega miklu
lengri leið, eigum við að vita,
hve miklu máli trúmennska í
jarðneskum störfum skiptir. Við
útsýni páskavissunnar lærum
við bezt að elska þetta líf, gleðj-
ast yfir fegurð þess og hryggj-
ast með hófsemd og skilningi
yfir harmefnum þess.
Einmitt þegar okkur verður
það ljóst, að mannverurnar, sem
örlögin leiða oft samgn að und-
arlegum og óvæntum vegum,
mætast hér og eiga síðan óra-
langa sameiginlega framtið í
vændum, — einmitt þá á okkur^
að lærast betur en annars er
unnt, að lifa í samræmi við þau
blóðbönd, sem binda okkur sam-
an, — Guð einn veit hve lengi
og hve langt inn í aðra heima.
Er það háskasamlegt að skoða
lífið af sjónarhóli páskanna?
Mun ekki hitt sanni nær, að
ef við gleymum eilífðinni er
hætt við því, að einnig gleymist
helgustu skyldurnar við jörð-
ina og mannlegt félag?
Ef við lítum á mannfélagið
sem samfélag ódauðlegra guðs-
'barna, sem eiga óralanga sam-
eiginlega framtíð fyrir höndum
hinum megin við jarðneskan
sjónarhring, á okkur að vera
sjálfsagt og ljúft að bera byrðar^
jarðneska samfélagsins, greiða
okkar skerf af skuldum þess um
leið og við þiggjum úr sameig-
inlegum sjóði þess.
Þannig skiljum við bræðra-
lagshugsjónina nýjum og dýpri
skilningi, þegar við förum að
líta á lífsrásina alla af sjónar-
hóli páskatrúarmannsins.
Á þann sjónarhól er mörgum
erfitt að komast. Svo margar
eru þær kenningar, hugmyndir
og stefnur, sem læða bölvun
efans um ódauðleika inn í sálir
mannanna. Og sumar þær kenn-
ingar, hugmyndir og stefnur
hafa jafnvel haft mikil áhrif á
guðfræðina. Enda gefa skoðana-
kannanir í skyn, að í kristnum^
heimi fjölgi óhugnanlega þeim,
sem ýmist eru í fullum vafa um
ódauðleika eða neita honum al-
gerlega sem hugsanlegum mögu-
leika.
En að kristnum skilningi er
vonlaust með öllu, að geta áttað
sig á stöðu sinni £ tilverunni
fyrr en það lærist, að líta á
manninn sem eilífðarbarn og að
skoða örlög hans frá sjónarhóli
eilífðar en ekki jarðneskra ára
einna.