Morgunblaðið - 08.05.1966, Qupperneq 14
14
MQHCU MBLABID
Sunnu<Sagur %. maf
Stúlkca
Stúlka óskast til starfa við vélabókhald
o.fl. Verzlunarskóla eða hliðstæð menntun
æskileg. — Framtíðarstarf.
Upplýsingar á skrifstofu okkar frá kl.
2 — 5 e.h.
H. Benediktsson hf.
Suðurlandsbraut 4.
Laxveiði
ivn
Nokkrir stangaveiðidagar eru til sölu í eftirtöldum
ám í sumar.
Leirvogsá verð frá.......kr. 600
Laxá í Kjós — ........ — 900
Víðidalsá —............•— 900
Ölfusá — — 650
Stóra-Laxá í Hr. —..........— 650
Upplýsingar á skrifstofu vorri kl. 2—6 e.h.
STANGAVEIÐIFÉLAG REYKJAVÍKUR.
Bergstaðastræti 12 B. Sími 19525.
þegar þér cruð að velja eitthvað fallegt fyrir vorið
og sumarið, þurfið þér að líta á úrvalið hjá okkur.
NÝJAR VÖRUR:
Á Laugavegi 11 og Strandgötu 9, Hf.
Ljós og hvít ullarefni í dragtir og pils.
Einlit og köflótt terylenefni.
Köflótt ullarefni í buxnadragtir.
Hekluð efni, með og án svampfóðurs.
Crimpleneefni í kjóla og dragtir, slétt og þlisseruð.
Fóður, tillegg, tízkuhnappar.
Á Skólavörðustíg 12, Strandgötu 9, Hf.
Einlit og rósótt teryleneciffon.
— — tricelefni.
Blúnduefni
Hekluð og netofin efni.
Þvottaflauel, margir litir.
Strigaefni, Crépefni.
Fóður, tillegg, tízkuhnappar, bönd,
borðar og kjólaleggingar.
McCall-SNIÐ.
Ítyögue
— Bókaþáttur
Framhald af bls. 10
verði skáldinu það beinlínis ó-
sjálfrátt og þá um leið að fullu
eðlilegt að grípa til hins órím-
aða ljóðforms, en þá er fastmót-
uð stemning fegurðarskyns, ást-
ar, hljóðláts trega eða angur-
værrar og ljúfrar minningar
knýr á, falli orðin gjarnan í hátt-
bundnar áherzlusamstöður og
ljóðstafað rím,-
Ekki er síður auðsætt af Ijóð-
unum í þessari bók en þeim í
Jörðu úr Ægi, að skáldið er í
óvenjulegum mæli barn sinnar
tíðar. Hann sér sínum innri sjón-
um til allra átta leika háan hyrr
við himin sjálfan — en hins veg-
ar er svo það. að fáir munu
eiga sér jafnríkulegt mótvægi og
hann. Margir takast alls ekki á
við þann bölmóð, sem hefur grip-
ið þá og virðist hjá ýmsum hafa
kæft hina annars eðlislægu hvöt
ungs manns og vaxandi til að
glæða með sér hugsjónir og gæða
þær orku til flugs. En Matthíasi
er ekki þannig farið. Hann ann
af ástríðukenndum funa fegurð
og unaði gróandans, hvort sem
hann birtist í angan og litum
jarðargróðans, vexti og viðgangi
ferfætlinga eða í kvaki og hreið-
urönnum fuglanna, sem knúnir
ómótstæðilegri eðlishvöt fljúga
hingað yfir lönd og höf með
hækkandi sól. Og honum verður
það undursamleg og óviðjafnan-
leg dásemd, svo oft sem það hef-
ur endurtekið sig, að ást manns
og konu beri ávöxt nýs lífs, til
verði ný mannvera, sem brátt
brosi ósjálfbjarga við móður- og
föðuraugum og fálmi eftir gliti
sólar. Það er honum óbærileg til-
hugsun, að þessi lífvera og hvað
annað, sem fær notið vaxtar og
þroska, eigi ef til vill skyndilega
að tortímast — jafnvel sjálf móð
ir jörð, sem skáldið segir um,
þegar hann gengur á einmæli við
lífsins föður, að sé þrátt fyrir
allt fegursta tréð í hans garði.. .
Unaður alls, sem lifir og grær,
þrunginn fyrirheitum um nýtt líf
eins og sólglituð blómkróna á
daggsælum vormorgni — og hinn
nístandi gustur frá hliðum Helj-
ar, — þetta eru þær ósættan-
legu andstæður, sem svo að segja
hvarvetna eru til staðar, beint
eða óbeint, í Ijóðum Matthíasar
— og gæða þau undarlegu seið-
magni.
Honum er oft myrkt fyrir aug-
um í ljóðum þessarar bókar, ekki
sízt i flokknum Friðsamleg sam-
búð, en svo sem hann er háður
bólmóðri samtíð sinni, váspám
hennar og heljarugg, svo er hann
og tengdur allt frá bernsku þeim
„sem sólina skóp“ — og á hans
vit gengur hann í Sálmum á
atómöld, lengsta og að ýmsu for-
vitnilegasta ljóðaflokki bókar-
innar. Auðmjúkur er hann þar,
en eigi að síður ámóta þrásæk-
inn og Jakob, þegar hann sagði:
„Ég sleppi þér ekki fyrr en þú
blessar mig,“ enda segir hann
um Drottin, að þó að hann sé
þögull, sé návist hans lögmál.
Og þar kemur, að hann skilur
þögn hans og ávarpar hann þann-
ig: „Með þögninni eyðir þú öll-
um misskilningi eins og sól
þurrki dögg af morgungrænum
blöðum."
Þó að heluggur og hrakspár
leggist tíðum sem lítt þolandi
farg á hug hins einlæga og nær-
fellt barnslega opinskáa skálds,
verður sízt um hann sagt, að
hann sé einnig haldinn þeirri
tilhneigingu til sefjandi böl-
mæði, sem mjög er ríkjandi í
bókmenntum samtímans og virð-
ist beinlínis liggja í loftinu og
jafnvel grípa æskuna slíkum
tökum, að hún viti hvorki veg né
stíg og hafi sér engu að una. Og
þegar hann hefur gengið á ein-
tal við sinn þögla Drottin, varp-
ar hann af sér farginu um stund-
ar sakir og nýtur alls, sem vek-
ur uhað og gróðrargleði manns
og moldar. Hann leyfir sér að
hlakka til vorsins og yrkir ljóð
eins og Fögnuð, sem er hið fyrsta
í flokknum Hér slær þitt hjarta,
land. Þetta er þar niðurlagið:
„Og þá mun einnig þiðna klaka-
spöng
úr þínu brjósti, nótt þess myrk
og löng
mun leita uppi ljós og sólaryl.
Þér leggst á hverju vori eitthvað
til.“
Guðmundur Gíslason Hagalín.
Eignist nýja vini
Pennavinir frá 100 löndum
óska eftir bréfasambandi við
yður. Uppl. og 150 myndir
sendar ókeypis.
Correspondence Club Hermes
1 Berlín 11, Box 17, Germany
„Geisha“ sófasettið
Þetta vinsæla sófasett getum við nú út-
vegað í teak og eik.
Margir litir af áklæði fyrirliggjandi.
Húsgagnaverzlunin Kaj Pind
Grettisgötu 46. Sími 22584.