Morgunblaðið - 08.05.1966, Side 21

Morgunblaðið - 08.05.1966, Side 21
Summdagur 8. maí 1966 MORGUHBLAÐIÐ 2i Pálína Pálsdóttir 75 ára „Andaðu frá þér kærleika eins eðlilega og blómin ilmi sínum og láttu alla í návist þinni draga að sér þann guðlega andblæ.“ ÞESSI orð sækja á huga minn, þegar ég lít yfir ævistarf Pálínu vinkonu minnar á þessum tíma- imótum. En afmælisdagurinn er á morgun 9. maí. Störf hennar hafa verið óvenju fjölþætt og hefir þar hvort tveggja haldizt í hendur, alhliða hæfileikar og atgjörvi. Skerfur hennar til menningarauka á Eyr- arbakka mun seint metin að verð ieikum. Hún tók virkan þátt í félagslífi staðarins. f kvenfélaginu starfaði hún mikið, sérstaklega fyrr á ár- vm, og mörg voru hlutverkin sem hún skilaði hjá Leikfélagi Eyrarbakka, sem lengi starfaði þar með miklum blóma, og hvar 6em var sungið var hún sjálf- sögð með sína fallegu sópran- rödd og músíknæmi og það eru ekki allmörg ár, síðan hún hætti að syngja* í kirkjukórnum. í stúkunni „Eyrarrós“ vann hún einnig vel og dyggilega. í>á er ótalið starf hennar í þágu kirkju- mála, sem mun vera fágætt af leikmanni. í sóknarnefnd hefir hún setið árum saman og um margra árabil verið formaður hennar og er enn og einnig er hún kirkjuhaldari. En það starf hefir hún rækt af slíkri alúð, að vakið hefir athygli innlendra og erlendra, sem mér er persónu- lega kunnugt um. Það er dýrmætur auður að eignast í vöggugjöf slíka hæfi- leika og bera gæfu til að ávaxta sitt þund svo vel, sem hún Pá- lína hefir gjört. Hún kann að miðla öðrum af þeim auði sín- >um og hefur með því öðlazt frá- bæran skilning og vilja, til að leysa hvers manns vanda, er til hennar hafa leitað, bæði vanda- manna og vandalausra. Þess vegna hefur margur kosið að dvelja í návist hennar um lengri eða skemmri tíma og leita sér andlegrar og líkamlegrar hvíld- ar, jafnt kotungar sem heims- borgarar. Það er ekki hægt að segja að Pálína hafi farið varhluta af reynslu lífsins, frekar en flestir á hennar aldursskeiði. Foreldrar hennar voru þau Þorgerður Halldórsdóttir af Rauðnesstaðaætt á Rangárvöll- um og Páll Guðmundsson frá Strönd í Meðallandi. Bjuggu þau hjón fyrsta árið hjá Ingveldi, móður Þorgerðar, sem þá var orðin ekkja, í Háakoti í Fljóts- hlíð. Páll fór til sjóróðra út á Eyrarbakka hinn fyrsta vetur, er þau Þorgerður voru I hjóna- bandi, en lézt þar úr lungna- bólgu. Var Pálína þá ekki fædd, ■vo snemma syrti í álinn fyrir Þorgerði. Fluttist hún upp úr því til Eyrarbakka með litlu dótturina og móður sína. Með elju, sparsemi og þolgæði kom- ust þær af. — Pálína hefir tjáð «nér, að amma sín hafi verið sér- •takur persónuleiki og eigi hún henni mikið að þakka, ásamt uoóður sinni, en á sambúð þeirra bar aldrei skugga. Þegar Pálína var 1S ára réð- kit hún í þjónustu til þeirra heiðurshjóna Eugeníu og Peter Nielsen, sem þá veitti forstöðu Lefoli-verzluninni á Eyrarbakka. Þar fékk hún, ásamt fleirum, sem þar unnu, góðan skóla. Nielsensfjölskyldan sá fljótt hvað með Pálínu bjó og má segja að þar yrði hennar annað heim- ili, þar til hún stofnaði sitt eig- ið. Tókst mikil vinátta með þeirri fjölskyldu og mæðgunum þrem. Mættust þar íslenzk og dönsk menning, sem mér þykir ekki ólíklegt, að til samans hafi mótað Pálínu og gert hana m.a. að þeirri hefðarkonu, sem hún er-, Árið 1913 giftist Pálína Guð- mundi Ebenezersyni, skósmið og kaupmanni, hinum ágætasta manni. Mat hann konu sína að verðleikum og var það gagn- kvæmt frá hennar hálfu. Heim- ili þeirra hjóna stóð jafnan op- ið öllum og óvíða hef ég séð jafn ótvíræða merkingu gamla máls- háttarins að: „Þar sem er hjarta- rúm, þar er húsrúm.“ Þegar ég sendi þér þessa kveðju Pálína mín, hafa margir Eyrbekkingar, sem fluttir eru að heiman, beðið mig fyrir sína hönd að þakka þér trygga vin- áttu og fyrir þann skerf, sem þú hefir lagt af mörkum til menningarmála á Eyrarbakka. Við óskum þér allrar blessun- ar um tíma og eilífð. Sigrún Gísladóttir. T ækif æriskaup GERIÐ HAGKVÆM KAUP Á PEVSUIVI ÞESSA VIKU GRÍPIÐ GOTT TÆKIFÆRI STORKURINN KJÖRGAROI Til sölu er LINCOLN CAPRI fólksbifreið smíðaár 1955. Ennfremur sjálfskiptur mótor með öllu tilheyrandi í Lineoln, Fordmotor í ýmsar nýjustu gerðir með öllu tilheyrandi, einnig mótor í Pontiac sömuleiðis með öllu tilheyrandi. (Jpplýsingar í síma 11118 í dag og eftir kl. 20:00 næstu kvöld. Hvítasunnuferð Karlakdr Keflavíkur fer í söngferð til VESTFJARÐA um hvítasunnuna með M.S. ESJU. Viðkomustaðir: ísafjörður, Bolungarvík, Patreks- fjörður. Nokkur pláss laus. — Upplýsingar í síma 1520 Keflavík. Kvikmyndahús í Kaupstað úti á landi, til sölu nú þegar, eða í haust. Rannveig Þorsteinsdóttir hrl. Laufásveg 2. Sími 13243. MP. STALOFNAR Húsbyggjendur í dag vllja stílhreina og fyrirferðalitla ofna, sem hafa hóan hitastuðul. Um gœði MP ofnanna þarf ekki að fjölyrða, því að þeir eru sœnsk úrvalsframleiðsla. Ofnana má tengja við hitaveitukerfi Reykjavíkur. ATHYGUSVERÐ ÞJÓNUSTA Ráðgefandi þjónusta tryggir rétt val. Lokaðar umbúðir fyrir sérhverja pöntun tryggir rétta og hagkvæma afgreiðslu ÓKEYPIS á byggingarstað í Stór-Reykjavík. MJÖG HAGSTÆTT VERÐ. Leitið frekari upplýsinga eða pantið bœkling frá fyrirtœkinu. HEILDVERZUN HVERFISGÖTU 70 SÍMl 16462 REYKJAVÍK.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.