Morgunblaðið - 25.05.1966, Síða 2

Morgunblaðið - 25.05.1966, Síða 2
MORCU N BLAÐiÐ Miðvikudagur 25. maí 1966 i Þrjú irönsk herskip í Reykjavík — Það má gjarnan hafa það eftir mér, að þetta var ekki skipstjóranum okksir að kenna. Ég hef alltaf haft ótrú á þessum Grimsby-togurum, en það máttu ekki hafa eftir mér. — Skemmdust persónuleg- ar eignir ykkar við árekstur- inn? DAGANA 27. til 31. mai n.k. heimsækja Keykjavík þrjú frönsk herskip undir stjórn Salmon’s aðmíráls. Skip þessi eru frá franska sjóhernum, „Marine Nationale Francaise". Nöfn skipanna eru: „Surcouf", „Bouvet“ og „Le Picard“. Tvö hin fyrrnefndu eru tund- urspillar 2.750 tn., 130 metrar á lengd og 13 metrar á breidd. „Surcouf" er sérstaklega útbúið sem aðmírálsskip, og var tekið í þjónustu flotans árið 1955. Skip- i'ð er búið 6 127 m/m og 4 57 m/m loftvarnarbyssum, einnig 6 tundurskeytahlaupum sem beint er gegn kafbátum. „Bouvet", sem tekið var í notk un 1956, er búið vopnakerfi bæði til loftvarna og fyrir sjóorustur. Auk þess hefir skipið stórskota- útbúnað með 57 m/m byssum, 6 tundurskeytarör, og sexfalda sprengjuvörpu gegn kafbátum. „Le Picard" er hraðskreiður tundurspillir, 1.290 tn. og 100 m á lengd og 10,30 m á breidd. — Skipið var tekið í notkun 1956 og er búið 6 57 m/m loftvarnarbyss- um, 12 tundurskeytarörurii og sexfaldri eldflaugavörpu gegn kafbátum. Áhafnir þessara þriggja skipa eru samtals 821 maður. „Surcouf" dregur nafn sitt jslí Robert Surcouf, sem er fæddur í Saint Malo árfð 1775 og dáinn 1827. Var hann frægur sægarp- ur í styrjöldum frönsku bylting- arinnar og keisaratímabilsins. Pierre Bouvet, þekktur aðmír- áll, fæddur 1775 og dáinn 1860, barðist einkum á Kyrrahafinu. Almenningur mun fá tækifæri til þess að skoða skipin „Bouvet" og „Le Picard“ 28. og 29. maí eftir hádegi báða dagana. Sjókempan Ballantine og Ian Clark 2. vélstjóri. Stjórnsemi um bori eftir áreksturinn á Halamiðum q Rætt við tvo skipsmenra Admiral Burnett Áiengisútsölur í Keflovík og Eyjum JAFNFRAMT bæjar- og sveitar- stjórnarkosningunum voru greidd atkvæði um hvort opna skyldi áfengisútsölur í Vest- mannaeyjum og Keflavík. Úrslit urðu þau að í Keflavík sögðu 1254 já og 773 nei, og í Eyjum sögðu 1342 já en 6Í4 nei. Vatnslitumynda- sýning og vor Elsku litla Fín: Ef maður horfir á andlitið og svolítið meira — sumir kalla það af og frá — og áframhaldið sjónarinnar áhorfandans hafði komizt í uppstreymi — fagra djarfa veröld myndanna allt um kring — og afkoma þrátt fyr- ir skáldagrillur og þegnskap borgarmenningar hlustandi á vorkvöldum sjónar almættis- ins — þarna er trúin á lífið, jafnvel móthugsuður stjaldr- . ar við fæti. Amenico Pascvf. Jóh. S. I^jarval. Brasilía vann Chile 1-0 í landsleik í Rio de Janeiro í sl. viku. Brasilíumenn, sem eru heimsmeistarar í knatt- spyrnu, eru í riðli með Búlga ríu, Portúgal og Ungverja- landi í lokakeppninni um heimstitil í sumar. EINS og frá var skýrt í blað- inu í gær varð harður árekst- ur milli brezku togaranna Admiral Burnett frá Fleet- wood og Ross Howe frá Grimsby, er skipin voru að veiðum á Halamiðum á mánu dagsmorgun sl. Skipsmenn fyrrnefnda togarans yfirgáfu hann rétt eftir að árekstur- inn varð, en annar brezkur togari dró Admiral Burnett inn til ísafjarðar. Skipsmenn af Admiral Bur nett komu til Reykjavíkur í gærdag, en héðan halda þeir á fimmtudag. Á rfteðan þeir bíða eftir flugfari dvelja þeir að Hafnarbúðum og á City Hótel. Fréttamaður blaðsins hitti tvo skipsmenn togarans að máli yfir kvöldverðarborði í Hafnarbúðum og skýrði þá annar vélstjóri, geðþekkur maður að nafni Ian Clark, frá nánari atvikum viðvíkj- andi árekstrinum. — Við héldum kyrru fyrir er áreksturinn varð og ég var þá enn sofandi en vaknaði við illan draum er ég kast- aðist fram úr kojunni og út á gólfið. Ég slapp þó með öllu ómeiddur og sem betur fór slasaðist enginn um borð. Ég varð mjög hrifinn af þeirri stillingu, sem ríkti meðal áhafnarinnar þrátt fyrir þennan leiða atburð, og allt fór vel og skipulega fram undir röggsamri stjórn okkar ágæta skipstjóra, Jack Shard. Það var engu líkara, en skips- höfnin hefði ekki haft annað fyrir stafni um dagana en að lenda í stórárekstrum úti á rúmsjó. Við yfirgáfum flestir togarann nær sam- stundis, meðal annars af því, að ókyrrt var í sjó og hætta á að leki kæmi að honum þá og þegar. Aðmírállinn var síðan dreginn inn til ísa- fjarðar og í dag kom umboðs maður fyrirtækisins í Fleet- wood, sem á togarann, til að líta á skemmdirnar. Við höfð- um verið að veiðum í nokkra daga og afli var fremur lítill. Ég geri ráð fyrir að hann verði nýttur á Isafirði. — Hafið þið nokkra hug- mynd um hversvegna árekst- urinn varð? — Það liggur ekki ljóst fyrir ennþá. Við höfum að vísu okkar grunsemdir, en því miður get ég ekki látið þær uppi vegna sjóprófanna, sem fara eiga fram í Eng- landi. Hér grípur snareygur og veðurbitinn háseti, Ballan- tine fram í: Skipsmenn Admiral Burnett við komuna til Reykjavíkur. (Ljósm. Sv. Þorm.). — lan Clark verður fyrir ; svörum: 3 — Þeir, sem höfðu sínar « vistarverur stjórnborðsmeg- : in, þar sem Ross Howe kom ; á okkur, urðu fyrir nokkrum : skakkaföllum vegna þess, að ; olía og vatn komst í föt þeirra : og skóbúnað. Áreksturinn var ; mjög harður og sviplegur, og : það voru fleiri en ég sem ; þeyttust steinsofandi fram úr ; hlýjum rúmum. — Þannig fór líka fyrir | mér, segir Ballantine. — Ég ;i var í fastasvefni og dreymdi ■ konur og vín. Þessvegna kom « þetta verr við mig en flesta ; aðra, að ég hygg, auk þess ; sem hvorugur okkar hefur ; lent í neinu svipuðu áður. Ég ; hef verið að veiðum við ís- ;j landsstrendur í mörg ár og ; allt hefur það gengið snurðu- j laust fyrir sig. Ég vil í því ; sambandi geta þess sérstak- : lega, að við höfum aldrei ; verið teknir að veiðum í land : helginni ykkar; þó er ekki - loku fyrir það skotið, að við : kynnum að hafa læðzt inn ;j fyrir mörkin öðru hvoru, og I nú rekur þessi glettni sjó- ; maður upp tröllahlátur. 3 — Er það gamalt skip, ;j Admiral Burnett? 3 — Nei, svara Clark vél- : stjóri. — Skipið er tiltölu- ; lega nýtt, byggt árið 1962 og 3 þess utan afburðagott sjó- ;i skip. Það er því sannarlega : óheppilegt, að svona skyldi ; fara. Það verður gert við « skemmdirnar á skipinu á ísa ; firði, að ég hygg, og við er- jj um að gera að því skóna, að ; það verði tilbúið innan 3 þriggja vikna, en það er ; mikil bjartsýni, sagði Ian j Clark að lokum. — et. ; Hægur austanvindur var á vík. landinu í gær og víða smá- Lægðirnar suður í hafi eru á skúrir, en él og dumbung- hreyfingu austur og ekki ur á hálendinu. Hitinn var verulegra veðrabrigða að 1 stig á Kili, eins á Horn- vænta. ströndum, en 10 stig í Reykja Með bólgin raddbönd á óperusviði IViagnús Jonsson ofreynir sig sem Hoffmann Á SUNNUDAGSSÝNINGUNNI á Æfintýruin Hoffmanns í Þjóð- leikhúsinu, gerðist það að aðal- söngvarinn, Magnús Jónsson, fékk illt í hálsinn og missti við það röddina, svo hann gat varla talað að aflokinni sýningu. Kom í Ijós að raddböndin í honum höfðu bólgnað illa, og versnuðu við áreynsluna eftir því sem á sýningu leið. I gær var Magnús strax betri, og vona hann og læknar haas að hann verði orð- inn góður fyrir sýninguna á ann an i hvítasunnu, en aflýsa verður sýningunni í kvöld. Mbl. átti stutt sanutal við Magnús í síma í gærkvöldi. Hann kvaðst hafa fundið að röddin byrjaði að svíkja hann eftir fyrsta atriðið og þá orðið tauga- óstyrkur. Var gert hlé á sýning- unni og hálslæknir til kvaddur, sem sagði að raddböndin væru bólgin og vildi hann að söngvar- inn hætti við sýninguna. En Magnús og aðrir í leikhúsinu trúðu ekki að þetta væri svona alvarlegt. og hélt söngvarinn að ef hann gæti sungið sig frá tauga óstyrknum, kæmist' hann í gegn um sýninguna, eins og dæmi eru til að söngvarar hafi gert með bólgin radd'bönd. Sýningin verð- ur að halda áfram, eins og leik- húsfólk segir, hvað sem í skerst. — En það var Bjarnargreiði við áheyrendur, sagði Magnús. — Ég hefði átt að hætta. Þetta er niér bara alveg óþekkt. Það hefur aldrei komið fyrir mig fyrr og ég gerði mér ekki grein fyrir hve alvarlegt það var. Mér þykir það bara leitt vegna áheyrenda. En slíkt kernur fyrir í óperu- húsum. Og nú er söngvarinn sem betur fer strax farinn að ná sér, sem fyrr er sagt, og verður vænt anlega heiLl heiísu á sínum stað á sýningunni á annan hvíta- sunnudag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.