Morgunblaðið - 25.05.1966, Side 4

Morgunblaðið - 25.05.1966, Side 4
4 MORGUNBLAÐID Miðvikudagur 25. maí 1966 BÍLALEIGAN FERÐ SÍMI 34406 SENDUM LITLA bílnleigan Ingólfsstræti 11. Volkswagen 1200 og 1300. Sími 14970 ðt' RAUÐARÁRSTÍG 31 SÍMI 22022 Volkswagen 1965 og ’66. 8IFREIDALIIGAH VEGFERÐ Grettisgötu 10. Sími 14113. FjOlvirkar skuR-ÐGRÖFUR J D L V I R K I ÁVALT TIL REIÐU. N SÍmi: 40450 skiphoiti21 símar21190 eftir lokun stmi 40381 Rauða myllan Smurt brauð, beílar og náJfai sneiðar. Opið frá kl. 8—23,30. Sími 13628 Þorsteinn Júhusson héraðs'dómslögmaður Laugavegi 22. Opið 2—5. Sími 14045. B O É C H ÞOKULUKTIR BRÆÐURNIR ORMSSON Lágmúla 9. — Sími 38820. A Sá fyrsti Fyrsti laxinn kominn á land úr Elliðaánum. Frá því var sagt hér í blaðinu í gær. Venjan er sú, að Elliðaárnar eru „opnaðar“ á hverju vori við hátíðlega athöfn — og hef- ur borgarstjóranum þá verið boðið að draga þann fyrsta. En sá fyrsti b.eið ekki eftir borgarstjóranum. Hann stökk upp á þurrt, kom óbeðinn — á undan áætlun. Og þegar þeir byrja að veiða, verður sá fyrsti númer tvö. Jr Alþjóðamót Hér er haldið Norður- landamót í bridge. Þetta er fjölmennt mót og ekki eina al- þjóðlega mótið, sem haldið er hér á þessu ári. Þeir, sem sjá um mót með útlendingum hér á landi, miða venjulega við júní og júlí, enda eru þá mest- ar líkur á að gestirnir fái sæmilegt eða gott veður. Hinir, sem annast ferðamannamót- töku og flutninga hér á landi, hafa mælzt til þess undanfarin ár, að reynt verði að flytja sem flest mót fram á vor eða halda þau síðari hluta ágúst og í september, jafnvel október. Nú komu bridge-spilararnir síðari hluta maí. Ekkí þurfa þeir að vera óánægðir með veðrið, þeir hefðu jafnvel get- að komið fyrr. Þetta ættu fleiri að athuga. Kokkurinn Nú eru Bretarnir farnir að láta til sín taka á ísafirði á ný. Að vísu ekki alvarlega, skáru bara einn kokk á háls. Kokkarnir hafa komizt í hann krappann fyrr, hljóta ekki alltaf þakklæti fyrir dagsverk sitt, jafnvel þótt þeir kunni eitt o gannað fyrir sér í matar- gerðarlistinni. Og sá brezki vildi láta málið niður falla. Sennilega hefur grauturinn brunnið við hjá honum einhvern tíma og hann hefur talið sig í veikri aðstöðu til að verja líf sitt. Já, graut- urinn — eða eitthvað annað álíka alvarlegt, því ekki dunda menn við að skera náungann á háls nema að hann hafi gert sig sekan um mjög alvarlegt athæfi. Að drepa tímann Og nú fá bæði Keflvík- ingar og Vestmannaeyingar brennivínið sitt. Ekki svo að skilja, að við höldum, að þeir hafi ekki fengið það reglulega fram til þessa. En nú er hlut- verki póstþónustunnar lokið 1 brennivínsflutningum til þess- ara tveggja fyrrnefndu staða — og póstþjónar í Eyjum verða að finna einhverja leið til þess að drepa tímann. Vonandi rýrna tekjur pósts- ins ekki það mikið, þegar hann missir þennan stóra spón úr aski sínum, að hann taki upp á því að hækka öll burðargjöld, eins og pósturinn er vanur að gera þegar eitthvað bjátar á. Annars mátti heyra það i útvarpinu í viðtali við kefl- vískan góðborgara, að fram- sókn flaut þar inn í brennivini — og í raun rétti áður en brennivínið kom. Framsóknar- smalinn, sem átti að fá eina flösku, ef framsókn kæmi að fjórum, er væntanlega búinn að fá eina, eða voru þær fjór- ar? Og ríkið ætti ekki að tapa á kosningum. -Ar Opinn grunnur Austurbæingur skrifar: „Velvakandi góður. Mig langar að biðja þig að taka eitt mál föstum' tökum, en það er slysahættan. Við Vorsabæ 8—10 í hinu nýja íbúðarhverfi er grunnur undir tvö hús. Þessir hús- grunnar eru þannig að til vandræða horfir, hann er hálf- fullur af vatni, en enginn varnargirðing er í kringum hann. Þrjár eða fjórar mæður hafa nýlega náð börnum sín- um upp úr þessum stórhættu- lega forarpytti sama dag. Mér hefur Verið tjáð, að margsinnis hafi verið kært yfir þessu til ýmissa aðila, en því hefur aldrei verið sinnt. Á ekki að byrgja þennan forargrunn fyrr en banaslys hefur orðið í hon- um? Hver er ábyrgur fyrir þeim slysum sem kynnu að verða á þessum stað og hvern á að ásaka ef barn drukknar þarna? Það má víst ekki hreyfa við þessum stórhættulega vítis slysastað af því einu, að það eru tveir „lögregluþjónar" sem eiga þarna grunna. Það á að girða fyrir alla slysahættu, og það á að girða slíkán stað eins og grunnana að Vorsabæ 8—10. Ég vona að það verði gert, svo að húsmæð- urnar í þessu hverfi geti verið rólegar í náinni framtíð. Austurbæingur“ ★ Ungleg Ein 21-árs skrifar: „Velvakandi góður! Ég brá mér á Hótel Sögu eitt laugardagskvöld fyrir sköijimu, sem ekki er í frásögur færandi. Ég hef oft komið þar áður. sérstaklega í miðri viku, því þá er yfirleitt ekki eins margt fólk og um helgar. Þá hef ég alltaf gengið inn án þess að nokkur hafi skipti sér af því, en nú brá svo undarlega við, að dyravörðurinn _ spyr mig hvað ég sé gömul. Ég segi auð- vitað eins og satt er að ég sé 21 árs. Hann spyr mig um „passa“, og ég segist því miður ekki hafa hann við hendina; hélt hreinlega að ég þyrfti þess ekki nú frekar en áður. En dyravörðurinn gerði auðvitað skyldu sina og sagði kurteis- lega að hann gæti því miður ekki hleypt mér inn nema ég sýndi „passa“. Þá fauk , mig og ég spurði hvers vegna í ósköpunum ég hefði aldrei þurft þess fyrr. Þá bliðkaðist hann og sagði: „Þú hlýtur bara að vera svona ungleg í kvöld!“ Ég viðurkenni að þetta var ákaflega vel mælt á stundu sem þessari og ég roðnaði út undir bæði og spurði hvort hann gerði sér grein fyrir því að það kostaði stórfé að sækja „passann“ minn, því ég ætti heima all- langt í burtu og yrði að fara í leigubíl. En það var náttúru- lega ekki honum að kenna, það var bara asnaskapur úr mér að eiga ekki heima nær Hótel Sögu, fyrst ég á annað borð fer þangað eins oft og raun ber vitni. Svo náði ég í passann minn. dyravörðurinn kom hlaupandi út og opnaði fyrir mér bíl- hurðina eins og góðum dyra- verði sæmir, — en ég var í vondu skapi allt kvöldið út af þessu smáræði. Nú langar mig að spyrja: Hafa dyraverðirnir leyfi til að hleypa fólki inn alla daga nema laugardaga án þess að fá að líta á „passann"? Eð er öllum hleypt inn sem vilja, aðeins til að þjónarnir sofni ekki af leiðindum yfir að hafa ekkert að gera? Kærar þakkir. Ein 21 árs.“ 'tr Jón Oddgeir Enn skrifar Austurbæing- ur: „Kæri Velvakandi! Mig langar að biðja þig að koma fáeinum línum fyrir mig á framfæri. Það hefur verið skrifað margt um „Hjálp í viðlögum", og það var þá kannski hallað nokkuð á stjórn R.K.Í. fyrir slóðaskap, en ekki má gleyma því sem vel er gert. R.K.f. auglýsti námskeið og var það haldið nú í vikunni, eða nánar tiltekið frá og með 13/4 til 16/4 1966. Námskeið þessi voru mjög fjölmenn. Hóparnir voru fjórir og 30—40 manns í hverjum. Ég hygg að fólk hafi lært mikið á þessúm tíma, en margir spurðu um fleiri námskeið, og væri von- ándi að úr þeim yrði. Ég vil leyfa mér fyrir mína hönd og raunar þeirra sem á námskeiðið komu að færa R.K.í. þakkir fyrir að halda þetta námskeið, og færa Jóni Oddgeir Jónssyni þakkir fyrir góða kennslu. Hann hefur eins og margir vita, ódrepandi áhuga á að fræða fótkið. En betur má ef duga skal. Nú þarf R.K.Í. að halda kennaranám- skeið, eða fá einhvern sem þessa hluti kann og hægt er að treysta (auk Jóns O. Jónsson- ar) og veita honum kennara- réttindi. Ég endurtek þakklæti mitt til R.K.f. og kennarans Jóns O. Jónssonar. Og ég vil undir- strika það að ég álít að það þurfi að auka kennaratöluna með því að halda kennaranám- skeið eða veita réttindi ein- hverjum þeim, sem R.K.f. Jg Jón O. Jónsson treysta til að kenna. Ég er viss um að ef það yrði gert, þá væri hægt að halda fleiri námskeið. Austurbæingur". Víbratorar 220 Volta 1 fasa. Eínnig útvegum við frá Master fjölda annarra tækja, svo sem: Gólfslípivélar Vibra-þjöppur Steinsagir Litla vélknúna vagna (hjólbörur) hentugar fyrir byggingar, og hina velþekktu hitablásara. i mMiiiiM t iiiiiii n. Grjótagötu 7. — Sími 24250.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.