Morgunblaðið - 25.05.1966, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 25.05.1966, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 25. maí 1966 Keflavík Tek að mér loftpressu- vinnu. Kolbeinn Pálsson. Sími 2458. fslenzkt birki beinvaxnar garðplöntur. Gróðrarstöðin Birkihlíð, Nýbýlaveg 7, Kópavogi. Sími 41881. Standsetjum lóðir Girðum og leggjum gang- stéttir. Sími 37434. Vanar saumastúlkur óskast. Upplýsingar í Fatagerðinni Flík, Skúlagötu 26. Sími 20765. Húsasmíðameistari getur hætt við sig verkum. Mætti vera úti á landi. Tilboð merkt „9342“ send- ist afgr. Mbl. eða í síma 21815. Svartflekkóttur köttur með blátt hálsband úr plasti er í óskilum. — Hamrahlíð 21. Sími 3-21-56. Skipstjóri vill taka að sér góðan bát á humar eða fiskitroll. Til- boð sendist fyrir kl. 16 fimmtudag merkt: „Vanur — 9785“. Hreinsum, gerum við og bikum steyptar þak- rennur. — Sími 15154. íbúð óskast 1 herbergja eða tveggja. Fyrirframgreiðsla, ef óskað er. Uppl. í síma 20964. Sveitavist Óska eftir að koma tveim bræðrum, 6 og 10 ára, á gott sveitaheimili yfir sumarmánuðina. Uppl. í síma 5-07-07. J Frystikista Frystikista nýleg óskast keypt. Sími 92-2210. Keflavík — Suðurnes Rúðumerkin komin. Ilagtrygging hf. Umboð Guðfinns Gíslason- ar, Hringbraut 93 B. Sími 2210. Trésmiðir Svefnherbergisskápa- o g sólbekkjasmíði. Simi 31124 á kvöldin. Rafvirki með langa starfsreynslu óskar eftir átvinnu. Tilboð merkt „9740“. Til sölu timbur, þakjárn, stálvask- ur og' hurðir. Notuð. Uppl. í síma 50875. Þessi mynd sem hér birt- ist, er af íslenzkum spuna- rokk, sem spunnið var á bandið úr ullinni, en bandið var svo venjulega handprjón að, í skjólfötin, sem heimilis- fólkið á sveitabæjunum á ís- landi, notaði áður á árum, einnig voru þá á flestum bæj- um vefstólar, og ofnir dúkar og efni í ytri fatnað fólksins. — Þetta ro>kkIag er æva- gamalt, og á þennan rokk var spunnið fyrr á öldum. „Þá var rokkur þeyttur dátt. og þá var vefur sleginn. að lesa hátt og kveða kátt var kvöldvökunnar megin. Menn beittu hamri, hnífi og sög, og hugur fylgdi verki. Því listhneigð glöð og höndin hög var hvers manns aðalsmerki.“ „Áður fyrr það altítt var, að hafa kvæða-vökur. Glitruðu þá sem gimsteinar, góðar rímna-stökur.“ Það má víst ábyggilega full yrða það, að kvöldvökurnar, voru vel þegnar og aðal- skemmtunin á heimilunum í gamla daga, og tilhlökkunin bjó í huga þess fólks, sem vann í sveita síns andlits, frá morgni til kvölds, að njóta þessarar andlegu upplyfting- ar, sem kvöldvökurnar færðu því, með lestri góðrar sögu, og rímna-kveðskapnum, og ekki má gleyma fallegu vís- unum, sem voru eftir þjóð- skáld hverrar aldar, og voru numin, af flestu alþýðufólki kynslóðanna, og svo kenndu mæðurnar börnum sínum ljóð in, og einnig ömmurnar barna-bömum sínum, og þannig hefir margur gim- steinn Ijóðagerðarinnar, varð veiztzt hjá fslenzku þjóðinni, og gleymzt en ekki glatazt. — En svo ég víki aftur að rokknum, og því hlutverki sem honum var ætlað, þá var það síður en svo, að hann væri nein kvöð á þeim sem spunnu bandið á honum, húsfreyjum heimilanna þótti vænt um hann, og einnig vinnu-stúlkunum, og ungu stúlkurar dreymdi dagdrauma er þær þeyttu rokkinn sinn, eins og þessi vísa ber með sér: „Rokkurinn suðar raular og kveður, rím-litil kvæðin sín, hlær mér í hjarta hugurinn glaður hálfnuð er snældan mín. Jólin mín bíða, ég fer til tíða. Bara ég sjái, þann sem ég þrái. Þá er min gleðin nóg. Gaman, og gleði nóg. Að endingu vildi ég mælast til þess ,við kennara þessa lands, að þegar þeir fara með nemendur sína í þjóðminja- safn íslands, að gleyma ekki að sýna þeim íslenzku rokk- ana, sem eiga sér langa sögu að baki. Ingibjörg Guðjónsdóttir. Strút- urinn sagði að storkurinn hefði þurft að bregða sér frá um stundarsakir, því að hann hefði verið orðinn svo þreyttur á kosningaamstr- inu. Önn dagsins svona rétt fyr- ir kosningar væri svo mikil, að nú þyrfti hann að hvíla sig svo- lítið, enda er varptiminn í nánd og ekki er það amalegt, því að nóg er af kirkjuturnum í Reykja vík. Strúturinn ætlar því að leysa storkinn af hólmi í nokkra daga, þótt hann hefði að vísu haft ó- skaplega löngun til þess að stinga höfðinu í sandinn svona eftir kosningarnar. Strúturinn hljóp út á torg og hitti manninn sítalandi. Maðurinn sítalandi sagði: Það er mikið, sem gengur á fyrir þessum herrum. Nú tala þeir allir um kosningamar. En mér vitandi dettur engum í hug að lagfæra Hafnarfjarðarveginn, sem ku vera einhver holóttasti vegarspotti á landinu um þessar mundir. Þá er það heldur ekki nóg að um holur sé að ræða, heldur eru hólar og hæðir bif- reiðum til trafala og ber þar hæst hólinn við Nýbýlaveginn, sem er nú að verða svo hár, að yfir hann er ekki fært nema fuglinum fljúgandi. Strúturinn var manninum sí- talandi alveg sammála, sagði að það gerði ef til vill ekki svo mikið til fyrir fleyga fugla eins og storkinn, þótt hóllinn hækk- aði. En fyrir strút, hlýtur hóll- inn að vera hinn mesti trafali, enda var hann nærri búinn að beinbrjóta sig, þegar hann var að klofa yfir hólinn nú á dögun- um. MIKILL er Ðrottinn vor og ríkur að veldi, speki hans er ómælanleg (Sálm. 147, 5). 1 dag er miðvikudagur 25. maí 1966 og er það 146. dagur ársins. Eftir lifa 219 dagar. Úrbanusarmessa Árdegisháflæði kl. 08:05. Síðdegisháflæði kl. 21:17. Næturvörður er í Vestur- bæjarapóteki vikuna 21/5—28/5. Sunnudagur: Vakt í Austurbæj- arapóteki. Upplýsingar um læknaþjón- ustu í borginnj gefnar í sím- svara Læknafélags Reykjavikur, Siminn er 18888. Slysavarðstofan í Heilsuvernd- arstöðinni. Opin allan sólarhring inn — aðeins móttaka slasaðra — sími: 2-12-30. Næturlæknir í Hafnarfirði að- faranótt 26. maí er Kristján Jó- hannesson, sími 50056. Næturlæknir í Keflavík 19/5 — 20/5 er Arnbjörn Ólafsson sími 1840, 21/5—22/5 er Guðjón Klemenzson sími 1567 23/5 Jón K. Jóhannsson sími 1800, 24/5 Kjartan Ólafsson, sími 1700; 25/5 Arnbjörn Ólafsson sími 1840. Kópavogsapótek er opið alla virka daga frá kl. 9:15—20. laug- ardaga frá kl. 9:15—16, helgidaga frá kl. 13—16. Holtsapótek, Garðsapótek, Soga veg 108, Laugarnesapótek og Apótek Keflavíkur eru opin alla virka dagakl. 9—7, nema laugar- daga frá kl. 9—4 og helgidaga frá kl. 1—4. Framvegis verður tekið á móti þelm, er gefa vilja blóð i Blóðbankann, sem hér segir: Mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga frá kl 9—11 f.h. og 2—4 e.h. MIÐVIKUDAGA frá kl. 2—8 e.h. Laugardaga frá kl. 9—11 f.h. Sérstök athygli skal vakin á mið- vikudögum, vegna kvöldtímans. Bilanasími Rafmagnsveitu Reykja- víkur á skrifstofutíma 18222. Nætur- og helgidagavarzla 18230. Upplýsingaþjónusta AA samtakanna Hverfisgötu 116, sími 16373. Opin alla virka daga frá kl. 6—7. RMR-25-5-20,30-Brkv-Fl. sá NÆST bezti Árni heitinn Pálsson prófessor tók fyrr á árum mikinn þátt 1 stjórnmálum, var Sjálfstæðismaður og bauð sig fram til alþingis fyrir flokk þeirra. Kom hann þar fram, svo sem á öðrum sviðum, svipmikill í máli og rökviss og orðheppinn. Áhrifa hans í stjórn- málum gætti þó furðu lítið, enda lét hann merkið niður falla opin- berlega, ejr hann kom heim úr fundaleiðangri. Tryggvi Þórhallsson var forsætisráðherra og Jónas Jónsson dóms málaráðherra í stjórn Framsóknarmanna 1927 — 1931. Margt var rætt um þá stjórn og ekki allt sem Ijúflegast hjá andstæðingunum. Eftirfarandi saga er sögð af Árna: Þá var það í samkvæmi, þar sem Ámi var staddur, að mjög var deilt á stjórnaraðgerðir þeirra samherjanna og þó einkum Jónasar, Þá sagði maður, sem taldi sig vera kunnugan í Framsóknar- flokknum: „Mér er sagt að Tryggvi sé búinn að setja einhver höft á Jónaa í flokknum." Þá varð Áma að orði: „Ég trúi nú meira á hrossið en hnappelduna.“ LÆKNAR F J AR VERANDI Bjarni Jónsson fjv. frá 1. mal til 9. júll Stg.: J6n G Hallgrímsson. Eyþór Gunnarsson fjarverandl ó- ókveSið. StaSgengill: Erlingur Þor- steinsson, Stefán Ólafsson, GuS- mundur Eyjólfsson, Viktor Gestsson og Björn Þ. ÞórSarson. Gunnar Guðmundsson fjarv. um ókveðinn tlma. Halldór Arinbjarnar fjarverandl frá 21. marz óákveSiS. StaSgengill: Ragn- ar Arinbjarnar. Hörður Þorleifsson fjarverandi frá 12. april til 30. september. Staðgengill: Þórhallur Ólafsson, Lækjargötu 2. Jón G. Nikulásson fjv. frá 20/5— 20/6. Stg. Ólafur Jóhannsson. Karl Jónsson verSur fjarverandl frá 22. mai, óákveðiS. Staðgengill er Jón Gunnlaugsson sem heimilislæknir. Ölafur Helgason fjarv frá 26. april til 1. júni. StaSgengill: Karl S. Jónas- son. Ólafur Jónsson fjv. frá 15/5—1/8. Staðgengill Þórhallur Ólafson, Lækj- argötu 2. Tryggvi Þorsteinsson fjv. frá 21/2 i 4—5 mánuði. Stg. Jón R. Arnason, ASalstrætl 18. Xómas Á. Jónasson fjarverandi L apríl. Óákveðið. Skúli Thoroddsen fjarverandi frá 25/4. til 1/6. Stg. (heimilislæknir) Þórhallur Ólafsson, Lækjargötu 2, síml 20442 og heima 31215. (augnlæknir) Pétur Traustason. Úlfur Ragnarsson fjarv. frá 13. mal til 1. júni. Staðg. Jón Gunnlaugsson. Valtýr Albertssón fjv. frá 20/5— 24/5. Stg. Ragnar Arinbjarnar. Áheit og gjafir Áheit og gjafir á Strandarkirkjn afh. Mbl.: 15x1x9 125; BVK 200; MB 100; NN 125; HÓ 250; Örvar 250; HG 100; AS 25; Elísabet 100; ÁJ 25; NN 100; MH 100; MB 300; BH 300; SMH 50; W 100; KV 100; MS 500; gömul kona 100; Ester 250; VI 100; áheit 100; RJ 100; GGG 50 GB 100 Þóra 100; kona 200; HFP 100; Guðí 200; Jóh. H. Jóh. 500; SJ 60; RR 100; ónefndur 75; NN 1000; Pellý 1000; SG 25; Sigríður 100; BM 75; Kristján 25; NN 500; EJ 200; Maria Ólafsd. 100; Óskar 1000; ómerkt 100; ómerkt 200; Sólborg Jónsd 110; >Þ 100; ómerkt 300; PH 200; SÞ 100; NN 100; EÞ 50; NN 100; JB 100; KH 25; GT 100; 19 ára 100; PÓ 500; NN 75; SBJ 200; HJH 100; GS 300; PGB 200; NN 200; JG 300; PA 25; ó- merkt 50; DS 100; AH 200. Gáta dagsins í skólaleyfi nemanda nokkurs dvaldi hann á heimili vinai síns. Hann var spurður að því, hve gamall hann væri, og hann svaraði: — í fyrradag var ég 19 ára og á næsta ári verð ég 22. í hvers konar leyfi var pilturinn og á hvaða degi hafði ham getað gefið þetta svar? ■BJ? ZZ N? SB ua sep xe uuiq ‘SJB iz uueq igJif jb euies -TuunSuTUJnds uueq TgejeAS eq ue ‘bjb OZ uueq jba jenuef q uuth 'eje gl uueq jba •sep 0£ suiq TpipAq gy •jnSnijAi uueq qjba sap qg uujq ua ‘jenuef ’I uujq TuunguTUjnds jbJbas uueq ‘TjÁoieipC jo gijiCaq lusneq;

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.