Morgunblaðið - 25.05.1966, Side 27
Miftvikudagur 25. maf 1968
MORGU NBLAÐIÐ
27
Stöðvar NATO
fluttar til Briissel
Erhard og brezkir ráðherrar scgðir
sammála um
London, 24. maí. — NTB.
HAFT er eftir áreiðanlegum
heimildum í London í dagr, að
meðlimariki Atiantshafsbanda-
lagsins, önnur en Frakkland, séu
nú á góðri leið með að ná sam-
komulagi um að flytja aðal-
stöðvar bandalagsins frá París
til Briissel. Er hér um að ræða
aðalstöðvar yfirherstjórnarinnar
í Evrópu (SACEUR) og aðal-
skrifstofurnar (SHAPE).
Frá þessu var skýrt, að lokn-
flutninginn
um fundi kanzlara V-Þýzkalands,
Ludwig Erhard, og brezkra ráð-
herra, sem haldinn var í London
í dag.
Heimi'ldimar herma, að miklar
líkur séu til þess, að fastaráð
Atlantshafsbandalagsins verði
flutt til Briissel 7. og 8. júní n.k.
Ráðgert mun jafnframt að endur
skipuleggja alla starfsemi banda-
lagsstofnananna, er flutningurinn
á sér stað.
12 þús. manns hafa séð
Nýja skipið Hvalur 9 heldur til veiða úr Reykjavíkurhöfn. í baksýn Hvalur 6 á leið út.
Fyrstu hvalirnir komn-
ir í Hvalstöðina
Bátarnir fjórir héldu út á sunnudag
FYRSTU hvalirnir á þessari ver-
tíð bárust á land í Hvalstöð-
inni í Hvalfirði í gær. Hvalur
7 kom með fyrsta hvalinn kl. 4
í gær. Og á leið inn voru Hvalur
6 og Hvalur 9 með sinn hvorn
hvalinn. Bátarnir voru allir
með langreyði, sem þeir höfðu
fengið langt úti.
Hvalveiðiskipin héldu til
veiða úr Reykjavíkurhöfn kl. 9
á sunnudagskvöld. Þau eru að
venju fjögur talsíns. í staðinn
fyrir Hval 5 er nú komið hið
nýja hvalveiðiskip Hvalur 9,
sem er 650 tonn og stærst hval-
veiðiskipanna. Á nýja skipinu
er skipstjóri Ingólfur Þórðarson.
Billedbladðt lýsir viðbrögðum
íslendingo í handritamólinu
og birtu ummæli ráðherranna
dr. Bjarna Benedktssonar og dr.
Gylfa Þ. Gíslasonar, og auk þess
viðbrögð fólks á götunni, Neín-
ist greinin í Billedbladed „Glæd
esbud fra Köbenhavn."
ÞEGAR dómur féll í landsrétti í
Kaupmannahöfn í handritamál-
inu sendi danska Billedbladed
fréttamann og ljósmynd^ra til ís
lands, þá Henrik Mortensen og
Egon Engmann, til að fe;sta á
blað og filmu viðbrögð íslend-
inga. í blaðinu 13. maí birtist
frásögn þeirra í máli og mynd-
um á þremur síðum.
Þeir félagar komu fyrst á rit-
stjórn Mbl. og birta myndir og
frásagnir af viðbrögðum við
fréttinni þar, ásamt ummælum
Matthíasar Johannessen rit-
stjóra. Þá komu þeir í Lands-
bókasafnið og hittu Finnboga
Guðmundsson, landsbókavörð og
Lárus H. Blöndal, bókavörð,
einnig í handritastofnunina þar
sem þeir hittu m.a. Jónas Krist-
jánsson. Þá hittu þeir að máii
— Peking
Framhald af bls. 1
hyggju að hefja styrjöld gegn
okkur ásamt Bandaríkja-
mönnum.“
Chen-yi sagði enn fremur,
að það væri ætlun Sovétríkj-
anna að taka höndum saman
við Bandaríkin og leggja
undir sig heiminn.
Jafnframt sagði utanríkis-
ráðherrann, að sér virtist, að
meiri háttar átök við Banda-
ríkjamenn vera óumflýjan-
leg.
— Vegirnir
Framhald af bls. 28.
opna þær. Og Oddskarð var
opnað í fyrradag. Vegurinn kem
ur þó svo blautur undan snjón-
um, að þar er rétt jeppafært.
Byrjaður er mokstur á Fjarð-
arheiði beggja megin.
Á Vestfjörðum eru heiðar enn
lokaðar í snjó, en opið víða
milli fjarða. Þingmannaheiði er
enn lokuð og þaðan vestur úr.
~ Fjársöfnun
Framhald af bls. 27
menn samtök á Sauðárkróki haf-
izt handa um fjársöfnun til sjóð-
stofnunar til að standa straum af
slíkum kostnaði, og verður safn-
að dagana 7. og 8. maí n.k.
Kvenfélögin á Sauðárkróki og
í Skagafirði munu annast söfn-
un hvort á síftu svæði, en í kaup
stöðunum og Reykjavík munu
stjórnir átthagafélaga Skagfirð-
inga veita framlögum viðtöku.
Aðalféhirðir söfnunarinnar er
Guttormur Óskarsson, gjaldkeri
hjá Kaupfélagi Skagfirðinga og
geta þeir, sem vilja leggja þessu
máli lið einnig sent framlög sin
beint til hans. — jón.
Á Hval 8 er skipstjóri Sigur-
sveinn Þórðarson. Tveir af skip-
stjórunum frá í fyrra eru nú
hættir, en í staðinn eru komnir
Ragnar Guðmundsson á Hval 6
og Friðbert Ely Gíslason á Hval
7. Hvalveiðiskipin kvörtuðu yfir
slæmu skyggni þessa fyrstu
daga vertíðarinnar, en rigning
er úti fyrir.
Hvalstöðin er nú að verða til-
búin til að bræða og mikið af
fólkinu komið þangað, en
Hvalstöðinni starfa um 80
manns. Var Loftur Bjarnason,
útgerðarmaður, sjálfur staddur
þar uppfrá, er Mbl. hafði sam-
band við stöðina í gærkyöldi.
Þögnina í Hafnarfj.báó
SÆNSKA kvikmyndin „Þögn-
in“ eftir Ingmar Bergman hefur
gengið í Hafnarfjarðarbíó í 6
vikur og hafa rúm 12 þús. manns
séð hana, að því er Níels Árna-
son, bíóstjóri, tjáði okkur i gær.
Dálítið er nú farið að draga úr
aðsókn og því sagðist hann ekki
þora að spá um hve lífseig
myndin yrði úr þessu.
Hafnarfjarðarbió hefur sýnt 9
af kvikmyndum hins kunna
kvikmyndagerðarmanns, Ing-
mars Bergmans við auknar vin-
sældir. Sá hópur stækkar óðum,
sem áhuga hefur á að sjá þær.
Síðasta myndin eftir hann á und
Sigfús Guðmundsson
Reynir Zoega
S5
Hinir nýkjörnn bæjarfulltrúar
júlistæðismanna í Neskaupsstoð
Sjálfstæðismenn unnu sigur í Reynir Zoega og Sigfús Guð-
kosningunum í Neskaupstað. munciss011'
Hafa þeir aðeins átt 1 bæjar-
fulltrúa um langt árabil, en
fengu nú tvo kjörna. Þeir eru
Konungurinn í
Buganda í haldi
Deilt um, hvort skilja skuli
Buganda frá Uganda
Kampala, 24. maí —• AP-NTB
HERINN í Uganda réðst í dag á
höll konungsins í Buganda, sem
er hluti Uganda. Varð lífvörð-
ur konungs að láta í minni pok-
ann, eftir nokkurra klukku-
stunda harða bardaga. Herma
síðustu fréttir, að konungur, Sir
Edward Frederick Mutesa, sé nú
hafður í haldi.
Atburður þessi fylgir í kjöl-
far mikilla átaka, sem átt hafa
sér stað milli konungs og for-
seta Uganda, Dr. Milton Obote,
að undanförnu. Mutesa varð for
seti í Uganda, ári eftir að land-
ið fékk sjálfstæði frá Bretum,
en í febrúar sl. rifti Obote stjórn
arskránni, rak Mutesa fra og
tók sjálfur við embætti forseta.
Sl. föstudag fékk Mutesa sam-
þykkta tillögu á þingi, þar sem
þess var krafizt, að Obote flytti
aðsetur stjórnar landsins frá
Kampala í Buganda, sem kon-
ungur telur á sínu umráðasvæði,
en Obote svaraði í dag með því
að senda herlið til hallar kon-
ungs. Mutesa hefur lengi viljað
skilia Buaanda frá Ueanda.
an „Þögninni“ var gamanmynd-
in „Flísin í auga Kölska“, sem
gekk í 73 daga, en ekki eins
skarpt og Þögnin. Var fremur
jöfn aðsókn að henni. Sagði
Niels að á sýningum á Þögn-
inni væri ákaflega kyrrt í saln-
um og mikil spenna meðal áhorf
enda.
Niels kvaðst hafa tryggt sér
sýningarrétt á fjórum af kvik-
myndum Bergmans til viðbótar,
en mundi dreifa þeim nokkuð,
líklega ekki fá nema tvær á
þessu ári. Yrðu það líklega nýj-
asta myndin „Alla mina Kvinn-
or“ og ein af eldri myndunum,
sem ekki hefur verið sýnd hér
áður.
— S-Vietnam
Framhald af bls. 1.
gerður, ef það mætti verða til
að lægja óánægjuöldur þær, sem
risið hafa að undanförnu, og ógn
að hafa ráðamönnum.
Jafnframt var tekið fram,
eins og áður segir, að öllum til-
raunum til að efna til nýrra
óeirða yrði mætt með harðari
aðgerðum en áður hefðu þekkzt.
Ekki ræddu forsetinn og forsætis
ráðherrann nánar í hverju þess-
ar aðgerðir myndu fólgnar.
Þrátt fyxir yfirlýsingar ráða-
mannanna kom enn til minni
háttar óeirða í norðurhluta S-
Vietnam í dag, einkum í bæn-
um Hue. Þá fóru stúdentar í
Saigon í mótmælagöngu, og var
þess krafizt af þeim, að stjórn
Ky segði af sér.
Hins vegar er ljóst, að stjórn-
in þykist nú trygg í sessi, eftir
að tókst að brjóta á bak aftour
andspyrnuna í Danang.
Vörugeymsla
Innflutningsfyrirtæki óskar eftir ca. 150 ferm.
vörugeymsluhúsnæði á jarðhæð, nú þegar.
Upplýsingar í síma 15159 og 12230.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
GUÐMUNDUR SVEINSSON
Kárastíg 3
andaðist á Landsspítalanum 22. þ.m., jarðarförin fer fram
frá Fossvogskapellu 27. þ.m. kl. 1.30 e.h.
Ragnheiður Guðmundsdóttir Sveinn Benónýsson
Hulda Guðmundsdóttir
Snorri Guðmundsson
Haraldur Guðmundsson
Þorfinnur Guðmundsson
og barnabörn.
Jóhann Eliasson
Jóhanna Sigurbjörnsdóttir
Sigurbjörg Bjarnadóttir
Kristin Kristjánsdóttir