Morgunblaðið - 14.06.1966, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 14.06.1966, Qupperneq 3
pnöjuaagur i«. juni i»oo invftuvnufcMviv Margeir J. Magnússon á sunúi tii lands. Staðunnn þar sem kajaknum hvolídi er mer með svörtum krossi. Kajak hvolfir við Örfyrisey lyaðurinn synnti í land — um 500 metra UM FJÖGXJR leytið á laugar daginn hvolfdi kajak út und ir hólmunum við Örfirisey, um hálfan km. frá landi. — Ljósmyndari Mbl., Sveinn Þormóðsson, var vitni að at- burðinum og segir svo frá, að hann hafi séð er maðurinn lét kajakinn reka frá landi. Sat maðurinn aftarlega í hon um og stóð því stefnið hátt upp. Lét maðurinn kajakinn reka um hálfs km. leið frá landi, en fór þá að reyna að snúa honum i átt til lands. Reyndist það ógjörningur, sökum þess hve stefnið var hátt upp og snerist kajakinn alltaf undan vindi, en all- hvasst var af austri. Fór þá Sveinn til vaktmanns olíu- stöðvarinnar í Örfirisey og bað hann að hringja í lögregl una. í sömu svifum hvolfdi kajaknum og maðurinn hóf sund í land. Maðurinn hafði náð taki á kajaksárinni og synti í fyrstu nokkuð mikið á móti vindi. Bar þá að mann er gerði hon um skiljanlegt með bending um að synda meira undan vindinum og reyna að ná yzta tanganum, sem jafnframt var stytzta sundleiðin. Þegar maðurinn átti eftir um það bil 50—60 metra í land kom lögreglan á vett- vang og tókst henni að koma kaðli út til mannsins og draga hann í land. Kom þá í ljós að hér var um að ræða Margeir J. Magnússon og var hann orðinn allþrekaður, en hresst ist brátt. Lögreglumennirnir Lárus Salúmonsson og Kristleifur Guð- björnsson aðstoða Margeir. — (Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.). Asmundui B. Olsen. oddviti ú Futreksliiði Jóhannes Árnason endurkjörinn sveitarstjóri FYRSTI fundur hinnar ný- kjörnu hreppsnefndar á Patreks firði var haldinn 26. maí síðast- Jóhannes Árnason, sveitarstjóri. liðinn. Á fundinum oru kosnar nefndír og starfsmenn hrepps- ins fyrir yfirstandandi kjörthna biii. Oddviti Patrekshrepps var kjörinn Asmundúr B. Olsen, kaupmaður (S) með 7 atkvæð- um, en varaoddviti Svavar Jó- hannsson útibússtjóri (F). Samþykkt ar að ráða sveitar- stjóra til næstu fjögurra ára. Var Jóhannes Árnason, lögfræð ingur (S) kjörinn sveitarstjóri með 7 atkvæðum. Hann hefur gegnt sveitarstjórastarfi á Pat- reksfirði síðastliðin 3 ár. Formaður hafnarnefndar var kjörinn Ólafur G. Ólafsson, verkstjóri (A) og með honum í nefndina Bogi Þórðarson og Hallgrímur Matthíasson. Ásmundur B. Olsen oddviti. STAÐARBAKKA, Miðfirði, 11. júní. — Hér hefur verið góðviðri alla undanfarna viku og hefur grassprettu farið mikið fram. Sauðburði er tæplega iokið, en hann hefur hins vegar gengið vel. Ekki er jörð klakalaus enn, en þó hafa tún þornað mikið. Vegir hafa yfirleitt verið góð ir í vor. \j * Samtal v/ð forsætisráðh. SMSTHAR Framh. af bls. 1 skortir ekki áhuga fyrir að koma samningum á ef unnt er. í maímánuði voru setiar niður nokkrar viðræðunefndir milli fuíltrúa aðilja og ríkisstjórnar- innar til að greiða fyrir samning- um. Þannig skyldi sérstaklega athugað hvað gera mætti til styttingar vinnutíma og lenging- ar orlofs. _Aðrir áttu að athuga hugsanlegar aðgerðir í húsnæðis- málum og enn aðrir hvað gera mætti til að bæta atvinnuástand úti á landi, þar sem aflaleysi hef- ur orði’ð. Loks skyldi fara fram athugun á orsökum verðhækkana frá því að júní-samkomulagið var gert árið 1964. Nýr vísitölugrundvöllir Þá hefur einnig undanfarið verið unnið að nýjum vísitölu- grundvelli og hefur kauplags- nefnd sent frá sér sínar tillögur og eru þær nú til athugunar hjá verkalýðsfélögunum. Engar af þessum nefndum hafa enn lokið störfum", segir forsætisráðherra“, eða afhent að- iljum skýrslur sínar og tillögur. Hefur mér skilizt að þær væru allar sammála um að enginn á- mælisverður dráttur hefði átt sér stað heldur væri þar um svo mikfð verk að ræða, að það hlyti að taka nokkurn tíma. Meðal annars þess vegna mun hafa komið upp sú hugmynd að fresta aðalsamningum til hausts, og hefur það vissulega bæði kosti og galla í för með sér. Eftir að verðlagsvísitala var afnumin á sínum tíma leiddi af því að samningar voru ýmist langtímum saman alveg lausir eða einungis gerðir til skamms tíma, þannig að kaupdeilur voru yfirvofandi oft á ári hjá sömu fé- lögunum. Þetta skapaði hættu- lega óvissu í atvinnurekstri. Þess vegna var það eitt af megin- atriðum júní-samkomulagsins 1964 að verðlagsvísitala skyldi tekin upp áð nýju, enda yrði þá samið a.m.k. til eins árs í senn. Augljóslega brostin forsenda Ef nú ætti að taka þann hátt upp að gera einungis samninga til þriggja til fjögurra mánaða með 5% grunnkaupshækkunum, eins og talað var um, þá er þar með augljóslega brotið á móti þeirri forsendu fyrir verðlags- visitölunni, sem allir voru sam- mála um árið 1964. Ef menn telja ómögu.egt að gera samninga nú nema með grunnkaupshækkun, þá sýnist vera eðlilegt að samningstíminn sé a.m.k. miðaður við eitt ár, úr því að vísitöluákvæðin haldast. Gegn því sto'ðar ekki að segja að vísitölugrundvöllurinn sé skakk- ur, því að einmitt tillögur um nýjan grundvöll liggja nú fyrir, og eru þær eitt af því sem á- kvörðun þarf að taka um. Eins og á stendur finnst mér því alltof snemmt að segja að samningaviðræður séu farnar út um þúfur, því að eftir þvi sem ég veit bezt, þá hefur ekki verið efnislega rætt um það, hvert efni árssamnings skyldi vera“, segir Bjarni Benediktsson, forsætisráð- herra að lokum. Athugasemd Miólkursamralan Sl. sunnudag segir Alþýðu- blaðið: „Mjólkursamsalan hefur sömu leiðis oft verið gagnrýnd fyrir aö taka ekki upp heimsendingu á mjólk eins og t.d. er gert í Englandi. Heimsending á mjólk einni sér er nú víða úr sögunni, þar sem matvöruverzlanir, er senda vörur heim, hafa hvar- vetna í auknum mæli tekið að sér mjólkursölu og það svo, aö nsjólkurbúðir sem slíkar munu nú víðast óþekkt fyrirbrigði nema á íslandi. í þeim 56 mjólkurbúðum sem Mjólkursamsalan í Reykjavík starfrækir starfa a.m.k. 150 til 200 stúlkur. Hjá samsölunni starfa 3 eftirlitsmenn með mjólk urbúðum og að auki starfrækir samsalan sérstakt trésmiðaverk- stæði, sem m.a. annast viðliald og innréttingar í verzlunum. Mjólkursamsalan í Reykjavík er sameign mjólkurbúanna á mjólkursvæði sem nær frá Gils- fjarðarbotni austur í Skaftafells sýslur. Mjólkurbúin kjósa full- trúa á aðalfundi Samsölunnar, sem síðan velja henni stjórn. Neytendur hafa enga aðstöðu til að hafa áhrif á stjórn þessa fyr- irtækis, sem lögum samkvæmt hefur einokunaraðstöðu á mark- aðnurn, og % lilutar landsmanna verða að skipta við, hvort sem þeim likar betur eða verr“. i* Tíminn flytur rangt mál Á fundi bænda á Selfossi í fyrri viku flutti Gunnar Guð- bjartsson, formaður Stéttarsam- bands bænda ræðu, þar sem hann sagði m.a.: „Það var því leitað til ríkis- stjórnarinnar um áramótin um leiðir til þess að mæta þessu. 1 fyrsta lagi var farið fram á hækkun á útflutningsuppbótum. Því var strax svarað þannig, að ekki væri hægt að hækka þær“. Fcrmaður Stéttarsambands ’ bænda fór þarna með rangt mál og því svaraði Ingólfur Jónsson, landbúnaðarráðherra í viðtali hér i blaðinu og fórust þannig orð: „Tíminn hefur bað rangt eft- ir Gunnari Guðbjartssyni, að hann hafi fullyrt, að ríkisstjórn in hafi synjað um auknar út- flutningsuppbætur. Það var aldrei rætt í ríkisstjórninni hvort heimila skyldi auknar út- flutningsuppbætur frá því sem gildandi lög heimila. Aukafund- ur Stéttarsambands bænda, sem halinn var í desember síðastliðn um, ræddi verðlagsmálin og út- flutningsuppbæturnar. Fundur- inn samþykkti áskorun á ríkis- stjórnina að skerða ekki útflutn- % ingsuppbæturnar. Fundurinn fór ekki fram á að lögum um Fram- leiðsluráð yrði breytt í þá átt að auka útflutningsuppbætur, enda hafa bændur gert sér Ijóst að útflutningsuppbætur á mjólk urvörum eru um 300%, og þvi ekki eðlilegt að þær verði aukn- ar. Rikisstjórnin varð við áskor- un fundarins að skerða ekki út- flutningsuppbæturnar, og ég vil segja að frá mínu sjónarmiði kom aldrei til greina að gera það“. STEFÁN Stephensen, eigandi Viðeyjar biður þess getið að kirkjunni í Viðey sé vel við haldið, og það sé því ranghermi, Ó£annindin Þrátt fyrir þessa skýlausu yfir lýsingu Ingólfs Jónssonar. land- sem sagt var hér í blaðinu sl. sunnudag að hún sé umhirðu- lítil eða umhirðulaus. v ------------------------ AKRANESI, 11. júní. — Sölu- skála mikinn ásamt drykkjasal og snyrtiherbergjum er verið að reisa á Ferstiklu á Hvalfjarðar- strönd. Olíufélagið BP stendur að byggingu þessari. Nýlega ók bill yfir kött, sem Gísli Búason, hreppstjóri ó Fer- stiklu átti. — Oddur. búnaðarráðherra, þar sem gjör- samlega er hrakin sú fullyrðing, að ríkisstjórnin hafi neitað um útflutningsuppbætur, endurtek- ur Timinn sl. sunnudag ummæli Gunnars Guðbjartsso.nar. Er það að vísu ekki nýtt, að Tíminn umgangist sannleikann frjáls- lega, en hinsvegar hefði mátt vænta þess að formaður Stéttar- sambands bænda leiðrétti þetta mishermi, eða a.m.k. sæi um að það væri ekki endurtekið. —

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.