Morgunblaðið - 14.06.1966, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 14.06.1966, Qupperneq 5
I Þriðjuðagur 14. Júní 1966 MORGUNBLAÐIÐ 5 ÚR ÖLLUM ÁTTUM ÍSLENZKI fáninn blakti í hálfa stögn í gær, daginn er stúdentsefnin gengu undir síðasta prófið. Kristinn Ár- mannsson fyrrum rektoir var látinn. Ánægja nemenda yfir náðum áfanga var því nokk- uð blandin, vegna fráfalls þessa mæta mann, sem starf- að hafði við skólann á fimmta áratug. Á efri hæð sitja í stigan- um bekkjasystkin og er stúlkan að lesa óreglulegar franskar sagnir. Herrann er mjög kampagleiður, augsýni- lega nýkominn úr prófi. Þau segjast heita Ragnheiður Ás- grímsdóttir og Kjartan Lár- usson. Við tökum þau tali og spyrjum, hvort þau séu í stærðfræðideild. — Við viljum ekkert hafa með stærðfræðideildina að gera, segir Kjartan snúðugur og lítur á Ragnheiði, sem brosir. — Úr hvaða prófi varst þú að koma? spyrjum við Kjart an — Þýzku, segir hann og gekk bara ágætlega. — Og heldur þú að þú sjáir ekki eftir skólanum? spyrjum við. — Nei, áreiðanlega ekki. Hann er hundleiðinlegur. — Mér finnst hann svo ágætur, segir þá Ragnheiður, en virðist staðráðin í að láta hvorki félagann né blaða- • manninn trufla sig frá frönsk unni, því að hún sekkur sér niður í bókina, sem hún hef- ur á hnjánum. Á neðri hæð eru nokkrar stúlkur, sem eru nýkomnar úr latínuprófi. Þær spjalla mikið um prófið, og við spyrj um þær, hvort margar séu eftir, og þær svara: — Sú síðasta er inni, og hún hýtur að fara að koma út. Hún er búin að vera inni heila eilífð. Og von bráðar birtist próf- stúlkan í dyrunum og rýkur upp um hálsinn á stallsyst- ur sinni ,þegar hún er loks laus. — Aha, ég er búin og mér gekk svo vel. Jón Júlíusson, kennari, og dr. Jón Gíslason, prófdómari, prófa tvær verðandi stúdínur i íatinu. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.) Við lok stddentsprófs Heimsókn í MR og spjallað við nokkra verðandi stúdenta — Upp f hverju komstu, segja stallsystumar í kór. — Ég kom upp í skelkuðu konunum, sem urðu að láta af hroka sínum, Catalina eða hvað það nú heitir. — Og um hvað spurði Jón JúL? segja hinar. —• Hann spurði . fjarska lítið um deponentsagnir, hann var alveg draumur. — Hvenær fáum við ein- kunnirnar? — Þegar þeir em búnir að bera saman bækur sínar prófdómarinn og kennarinn. — Nú truflum við samræð ur stúlknanna og spyrjum, hvernig þeim hafi gengið í prófunum. — Ágætlega segja þær flestar, en Sigríður Gunnars dóttir heldur áfram: — Ég ar orðin so sljó á laugardagskvöldið að ég var alveg komin á núllpunktinn, en þetta lagaðist allt yfir helgina. — Hve margir stúdentar út skrifast nú? — 192, minnir mig, segir Svava Guðmundsdóttir. — Eruð þið stallsystumar þá allar búnar? — Nei, ein er eftir, Hrafn- hildur B. Egilsdófctir. Hún fék botnlangakast fyrir nokkrum dögum og þeir eru að fara upp á spítala til þess að prófa hana. — Nú kemur kennarinn Jón Júlíusson út úr stofunnj og les upp einkunnirnar, og stúlkumar hlusta hljóðar á úrskurðinn. Við tökum nú Jón Júlíus- son tali og spyrjum hann um þá sjúku. — Já hún fékk botnlanga- kast um daginn og við erum að fara að prófa hana á sjúkra húsinu. í minni kennaratíð er þetta í fyrsta skipti, sem slíkt kemur fyrir. Það er handagangur í öskjunni í anddyri skólans. Ung stúlka situr og er að selja miða á dansleikinn, sem haldinn er að loknum próf- um. Hjá henni situr Sverrir IHólmarsson kennari og spjail ar við hana en í því kemur eiginkona hans Guðrún Helga dóttir, ritari rektors, og kall- ar: — Sverrir, komdu og tal- aðu við mig og hættu að „kókettera" við hana Höllu, og Sverrir hleypur af stað. — Hvað kosta miðamir?, spyrjum við. — 400 krónur í kvöld, en 450 krónur á 16. ballið, segir Hallgrímur Snorrason, inspekt or sóholae. Nokkrar verðandi stúdínur standa álengdar og rabba saman. — Ég er búin að verzla fýr ir 12000 krónur og svo verð- ur þetta ekki annað en að við vöðum vatnselginn á há- hæluðum skóm úti í Hljóm- skálagarði og missum hælana Framhald á bls. 23 Jón Júlíusson les upp einkunnir prófa í latínu og stúlkurnar hlusta spenntar á. ALHLIÐA LYFTUÞJÓNUSTA UPPSETNINGAR - EFTIRLIT OTISLYFTUR sf. Grjótagötu 7 sími 2-4250^ I. DEILD MELAVÖLLUR: í kvöld (þriðjudag) kl. 20,30 leika Þróttur — Í.B.K. Dómari: Hreiðar Ársælsson. Línuverðir: Baldur Scheving og Sveinn Kristjánsson. Mótanefnd. Auglýst eftir vitni AÐFARANÓTT laugardagsins 4. þ. m. féll færeyskur maður í Reykjavíkurhöfn og drukknaði. Bifreiðastjóri leigubíls, sem ók manni þessum og félaga niður á Faxagarð rétt áður en slysið varð, er beðinn um að hafa tal af rannsóknarlögreglunni. Tvö bílainbrot BROTIZt var inn í bifreið f fyrrinótt, sem stóð við Ljósvalla götu 8, og stolið úr henni ferða- tæki. Ennfremur var brotizt inn í bifreið, sem stóð við Urðarstíg. Var augsýnilega gerð tilraun til þess að stela bifreiðinni, sem ekki tókst, vegna kunnáttuleysis þjófsins. Á hinn bóginn hafði hann á brott með sér myndavél, sem var í bifreiðinni. Ungbarnaföt Mikið úrval af fallegum amerískum ung- barnafötum úr 100% næíon. Jakkarnir með loðáferð, en buxurnar úr stretchefnum. — Stærðir frá 3ja mán- aða til 2ja ára. Verð kr. 348 — llliniMIIIII'IHIM'tMIMMtl' Miklatorgi — Lækjargötu 4 og Akureyri. Bezt ú auglýsa í Morgunblaðinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.