Morgunblaðið - 14.06.1966, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 14.06.1966, Qupperneq 30
OU mUKUUIIDIiAVIV pnojuaagur 14. juni 19öB landsiið 2:1 BaráftuviEji og leikgleði sáust nú oft hjá bsB. Eiðinu ENSKA liðið Norwich City, sem hér dvelst í boði Akurnesinga, lék við tilraunalandslið landsliðsnefndar á Akranesi á sunnudaginn. — Akurnesingar tóku hlýlega á móti gestum sinum, en veðurguðirnir lögðu síður en svo blessun sína yfir móttökurnar eða leikinn. SA- slagveður var, hellirigning og hvasst. Um 600 borgandi gestir sáu leikinn og flestir munu þeir hafa getað undið föt sín að leik lokn- um. Við blaðamennirnir vorum þó svo heppnir að fá yfirtjaldaðan vörubílspall til okkar afnota og vegna tjaldsins var okkar aðstaða betri en á sjálfum Laugardaisvellinum. | 1-0 í hálfleik Leikurinn mótaðist mjög af hinum slæmu veðuraðstæðum, en vaf þó furðu góður. Mikil barátta var í leiknum og honum lyktaði með sigri Englendinga, 2-1, sem eftir gangi leiksins má telja réttlát úrslit. Englendingarnir náðu sterkum tökum á leiknum í byrjun og réðu gangi hans fyrsta stundar- fjórðunginn. Færi þeirra urðu þó ekki hættuleg og Guttormur Ól- afsson var vel á verði í markinu, en fékk þegar nóg að gera. Er líða tók á hálfleikinn fór úrvalsliðið áð falla betur saman, og ná laglegum sóknarlotum, sem allar voru þó með því marki brenndar, að herzlumuninn vant- aði á — eða þá snerpu sem ein getur sigurinn skapaoð. Englendingar fengu á fyrstu 40 minútum hálfleiksins aðeins tvö verulega hættuleg færi. Var Curran innherji í dauðafæri í bæði skiptin. í fyrra skiptið bjargaði Guttormur laglega í horn en í síðara skiptið straukst knötturinn utan stangar. Magnús Jónatansson fékk feezt færi „tilraunamanna", en skaut rétt yfir slá af góðu færi. Á 42. mínútu tókst Curran inn- herja fyrst vel upp. Fékk hann knöttinn sendann eftir laglega sókn, þar sem leikið var á Jón Leósson og annan varnarmann og skoraði með fallegu skoti af vitateig. Staðan var því 1-0 í hálf leik. | Jafn síðari hálfleikur Síðari hálfleikurinn var miklu jafnari, en Englendingarnir höfðu þó ívið betur, meiri þungi í sókn þeirra og skipulagðari leik ur. Baráttuvilji „tilraunamann- anna“ vó þó upp á móti. Tilraunaliðið skapaði sér dá- góð tækifæri en þau runnu út í sandinn vegna þess að framlínu- menn, sem ekki voru með knött- inn, voru staðir og „pressuðu" Aðdragandinn að marki íslenzka úrvalsins. Bolland miðherja og Hermanni miðherja hafði mistek- izt við fyrirsendingu Harðar Markan. Markmaöur hljóp út en var of seinn og Bergsveinn (ber rétt við markstöng) kemur aðvífandi og skorar. (Ljósmynd: Bj. Bj.) lítið sem ekki við mark Englend- inganna. Á 27. mínútu skoruðu Englend- ingar síðara mark sitt. Var Curr- an innherji aftur að verki með föstu og eldsnöggu skoti rétt inn- an vítateigs. Guttormur átti hei'ð- arlega tilraun til varnar og hefði efalítið tekizt, ef hann hefði ekki runnið í eðjunni í markinu. Loks á 41. mínútu tókst til- raunaliðinu að bíta frá sér. Hörð- ur Markan fékk góða sendingu • Werder Bremer, liðið er varð Þýzkalandsmeistari í knattspyrnu sl. sumar, hefur gert samning við danska leik manninn Ole Björnmose frá Óðinsvéum. Liðið hefur ann- an danskan leikmann, John Danielsen einnig frá Óðins- véum, meðal beztu leik- manna sinna. Olympínjárn- brant í Munchen Múnchen fær sína sérstöku „Olympíujárnbrautarstöð" og sérstaka „Olympíu-neðanjarðar- braut fyrir sumarleikina 1972. Borgarstjórnin í Múnchen hef ur samþykkt byggingaráætlun neðanjarðarbrautar sem er 4 km að lengd frá miðborginni að leikvanginum og bústað íþrótta- fólksins. Er þá hægt að komast úr miðborginni að íþróttasvæðun um á 12 mínútum. Framkvæmdin mun kosta sam kv. áætlun rúml. 1200 miilj. ísl. kr. út á hægri kant, sótti fram og gaf vel fyrir. Þeir lentu i návígi Hermann og Bolland miðherji, en misstu báðir af knettinum, sem Bergsveinn fékk svo nýtt vel. ♦ Liðin Tilraunaliðið kom dável frá þessum leik. Það var að vísu eng- inn glæsibragur yfir leik þess, en leikurinn mótaðist af baráttu- vilja og tilraunum til góðs leiks. Liðíð var jafnt, enginn skar sig úr, en allir áttu betri leik en á dögunum gegn Dundee Utd., enda verður vart lægra lotið en þá var gert. Vörn liðsins var betri helming- urinn og vafalaust er þarna að finna kjarnann í vörn væntan- legs landsliðs. Eyleifur var loks líkur sjálfum sér og Guðjón og Hörður Markan stóðu vel fyrir sínu. En sem fyrr segir allt liðið átti dágóðan leik. Vafalaust hefur rokið verið verstur óvinur Englendinganna, enda fengu þeir ekki uppskeru af þeirri knatttækni sem þeir ó- neitanlega hafa umfram okkar menn. í liðinu voru fjórar breyt- ingar frá leiknum við Akranes. Þeirra breytinga varð lítið vart, en liði’ð er langt frá því að vera jafnsterkt Dundee Utd. Öómari var Magnús Pétursson og dæmdi vel. — A. St. • Norðmenn og Finnar áttust við í landskeppni í frjálsum íþróttum um helgina. Finnar unnu með 108 gegn 104 stig- um. Er þetta minnsti munur sem verið hefur milli lands- liða þjóðanna í þessari grein frá upphafi. Fengu Finnar 2 stig yfir hvorn keppnisdag. 19 ára Bandaríkja- ntaður setur heimsmet Jim Ryun 19 ára Banda- ríkjamaður frá Kansas setti nýtt heimsemt sl. laugardag í hálfrar mílu hlaupi (880 vrds.) 804,5 metrar). Tíminn ,1.44.9 er 2/10 betri en heims- met Peter Snell var. eÞssi timi er talinn jafngilda 1.44.0 í 800 metra hlaupi. Á dögunum hljóp Ryun miiuvegalengd á 1:53.7 sem er 1/10 úr sek. lakari en heimsmet Snels. Má vafalítið telja að þessi ungi Banda- ríkjamaður muni fljótlega eiga það heimsmet einnig. Ryun hefur s.l. 3 ár verið í röð beztu Bandarikjamanna á vegalengdinni, lagt mikla al úð við þjálfun og uppsker nú laun erfiðis síns. ! Þróttur—IBK I ó Meluvellinunt : í KVÖLD fer fram leikur ; ■ í 1. deild íslandsmótsins milli : ; þróttar og Keflvíkinga. Leik ! I urinn verður leikinn á Mela- ; ; velli og er fluttur þangað : : vegna þess hve Laugardals- « ■ leikvangurinn er illa farinn ■ ; eftir langvarandi rigningar, !| ; kal og marga leiki. Vonandi ; ; verður þetta eini leikur ís- !j : landsmótsins sem fram fer á ; ; malarvelli, en í leikja niður- : ; röðun eru leikir settir Laug- ; ■ dalsvöllinn með áskildum ; ; rétti til flutnings ef þurfa ; ; þykir. ; Sundmeisturu- mótið í Nes- kuupstuð Sundmeistaramót fslands verð ur haldið á Neskaupstað laugar- daginn 25. júní og sunnudaginn 26. júní keppt verður í eftirtöld- um greinum: Fyrri dagur: 100 m. skriðsund karla, 100 m. bringusund karla, 200 m. bringusund kvenna, 200 m. flugsund karla, 400 m. skrið- sund kvenna, 200 m. baksund karla, 100 m. baksund kvenna, 200 m. fjórsund karla, 4x100 m. skriðsund kvenna, 4x1000 m- fjórsund karla. Síðari dagur: 400 m. skrið- sund karla, 100 m. flugsund kvenna, 200 m. bringusund kvenna, 100 m. baksund karia, 100 m. skriðsund kvenna, 100 m. flugsund karla, 200 m. fjórsund kvenna, 4x200 m. skriðsund karla, 4x100 m. skriðsund kvenna. Keppt er um Pálsbikarinn er Forseti íslands Hr. Ásgeir Ás- geirsson gaf, og vinnst hann fyrir bezta afrek mótsins sam- kvæmt gildandi stigatöflu. Þátttökutilkynningar berist til Stefáns Þorleifssonar, sjúkra- húsráðsmanns Neskaupstað, fyrir 13. júní 1966. Einnig verður Sundþing Sundsambands ís- lands haldið um leið og meist- aramótið. Sundsamband íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.