Morgunblaðið - 14.06.1966, Síða 31
f>r!SJudagur 14. júní 1966
MORGUNBLAÐCD
31
Krús]eff við kjörborðið:
! „Ég les blöðin
44
Mo9kvu, 13. júní.
— AP-NTB.
NIKITA Krúsjeff kom fram
opinberlega í fyrsta sinn í
meira en ár, nú á sunnudaginn
og þá þeirra erinda að greiða
atkvæði sitt manninum sem
tók sseti hans sem forsætisráð
herra Sovétríkjanna, Alexei
Kosygin.
Krúsjeff var holdgrennri en
áður og allur ellilegri og sýnd
ist ekki til stórræðanna. Að-
spurður hvort.hann hefði ver-
ið veikur, anzaði hann því
játandi og sagði að svona væri
J>etta nú einu sinni, men-n
veiktust og þá væri bara að
taka því, það væri ekkert eins
dæmi. Nína kona hans lagði
þá orð í belg og sagði að
manni sxnum liði harla vel,
hann hefði nú alveg náð sér
eftir veikindin.
Aðspurður hvað hann hefði
fyrir stafni sagði Krúsjeff:
„Ég les, mér þvkir mjög gam-
an að lesa, dagblöðin og allt
mögulegt. Svo fer ég í göngu-
ferðir. Nei, ég hef hreint ekki
í hyggju að setjast við skrift-
ir núna og ætla mér alls ekki
að fara að semja ævisögu
mína“.
Krúsjeff átti sæti í Æðsta-
ráðinu eða á þingi Sovétríkj-
anna, meðan hann var for-
sætisráðherra lands síns rétt
eins og Alexei Kosygin nú.
Hann hélt sæti sínu í Æðsta-
ráðinu eftir að honum var
vikið frá völdum í október
1964 en hefur ekki sótt fundi
þess síðan og var ekki á fram-
bjóðendaskrá nú.
Krúsjeff virtist óragur að
ræða við fréttamenn en hrað-
aði þó förinni heldur og vildi
ekki tefja. Hann kom á kjör-
stað í bíl frá sveitasetri sínu
í Petrovsky Daliyer og hélt
brott þegar er hann hafði
kosið. Með honum voru kona
hans, frú Nína, ekillinn og
lífvörður Krúsjeffs, og fimm
lögreglumenn munu hafa ver
ið nærstaddir að því er fregn-
ir herma.
Fréttamaður innti forsætis-
ráðherrann fyrrverandi eftir
því, hvort hann myndi hitta
að máli de Gaulle Frakklands
forseta, sem kemur í opinbera
heimsókn til Sovétríkjanna
eftir viku. Krúsjeff taldi
það ólíklegt en kvaðst
minnast viðræðna þeirra áður
og sagði: „en vilji hann hitta
mig, hefði ég ekki nema gam-
an af því“. Krúsjeff hefur
ekkert hitt af erlendum fyrir-
mönnum svo vitað sé síðan
honum var vikið frá völdum.
Ekki var Krúsjeff einn fall-
inna leiðtoga Sovétríkjanna
til þess að skjóta upp kollin-
um úr gleymsku tímans og
koma að kjósa á sunnudag.
Molotov, sem bæði hefur ver-
ið forsætis- og utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna og var
um skeið keppinautur Krús-
jeffs um æðstu völd í land-
inu, maður frægur fyrir allt
annað en brosmildan svip kom
hýrleitur á kjörstað á sunnu-
dag, ásamt konu sinni, og
greiddi atkvæði sitt. Molotov
er líka kominn á eftirlaun og
Ferðamannastraum-
urinn til Akureyrar
að byrja
Hótelin þar þegar oróin nær
ftiliskipuð — Hitabylgja yfir
bænum
MJÖG gott veður var um helg-
ina á Norðurlandi, og náði hit-
inn 21 stigi á Akureyri í fyrra-
dag. Sólskin var og víðast hvar
fyrir norðan um helgina. Ferða-
mannastraumurinn norðanlands
er nú að hefjast. Mbl. aflaði sér
upplýsingar um hvernig ástand-
ið væri nú á hótelunum á Akur-
eyri og í hótelunum tveimur
við Mývatn, Reynihlíð og
Reykjahlíð, og hvernlg útlitið
væri í sumar.
Mikil aðsókn hefur verið að
Hótel KEA það sem af er júní-
mánuði, en fyrirfram er búið að
panta álíka mikið og í fyrra. Er
þar enn ekki fullskipað í öll
herbergi, en segja má að nokkuð
sé ásetið 14—1 mánuð fram í
tímann, og ennfremur mikið
búið að panta í júlí og ágúst.
Kvað hótelstjóri KEA horfur nú
í sumar ekki vera síðri en í
fyrra.
Hvert herbergi er pantað að
Hótel Valborg eins og stendur,
og ennfremur er mikið búið að
panta þar fram í tímann. í»ar
hefur alltaf verið fullt bæði í
júlí og ágúst undanfarin ár, að
sögn hótelstjórans, og horfur á
að svo muni enn verða.
Nikita Krúsjeff.
Iét þess getið við fréttamenn
að sér liði „skki sem verst“
og sæti mikið að skriftum.
Molotov var vikið frá völdum
1957 og var Krúsjeff þar að
verki.
Loks kom svo Kosygin á
sama kjörstað og Molotov —
en Krúsjeff var á kjörskrá
annars staðar — og greiddi
þar atkvæði. íBrki bar þó
saman fundum þeirra. Molo- \
tovs, enda Kosygin klukku- í
stundu síðar þar á ferð. '
Á kjörskrá í Sovétríkjun-
um nú eru rúmlega 140 millj.
manna. Aðeins eínn listi er í
kjöri og þar efstir Leonid
Brezhnev, aðalritari flokksins
og Alexei Kosygin, forsætis-
ráðherra. í Æðsta ráðinu eiga
sæti 1.517 menn.
Bráðabirgðatölur sýna að
99.94% muni hafa neytt kosn-
ingaréttar síns en úrslit verða
ekki kunn fyrr en talið hefur
verið í öllum kjördeildum eða
15. júní.
Að Hótel Akureyri er nú nær
hvert herbergi skipað, og verð-
ur það alveg áskipað í kringum
17. júní. Hins vegar hefur ekki
verið pantað mikið eftir Jóns-
messu.
Allmikið hefur líka verið
pantað af gistiherbergjum hjá
skíðahótelinu, sérstaklega þó í
kringum 17. júni Auk þess er
búizt við að hótejið verði full-
skipað í sambandi við guðspeki-
þing og landsmót í golfi, sem þar
verður haldið í sumar. Hefur
aðsókn verið ágæt það sem af er
júní og snöggtum meiri en í
fyrra. Sl. sumar varð raunin sú
að ekki var mikið pantað af her-
bergjum fyrirfram, en hótelið þó
oftast nær fullt.
Mjög gestkvæmt var hjá báð-
um hótelunum við Mývatn,
Reykjahlíð og Reynihlíð um
helgina. Þar er einnig búið að
panta mikið fyrir sumarið, en
þó lítið meira en verið hefur
undanfarin ár.
Heildarsíldarafl-
inn 56,286 lestir
Seyðisfjörður hæsti löndunarstaðurinn
FYRRI hluta vikunnar 5—11.
þ.m. voru síldveiðiskipin að veið
um 190 — 200 sjómílur NA af
Langanesi. Veður gott og afli
sæmilegur. Um miðja vikuna fór
veður versnandi og héldu skipin
þá norður á bóginn. Siðari hluta
vikunnar voru skipin SA af Jan
Mayen og þar fékkst sæmilegur
afli þrátt fyrir óhagstætt veður.
Vikuaflinn nam 12476 lestum og
var heiidaraflinn á miðnætti á
laugardag orðinn 56.286 lestir.
Aflinn hefur allur farið í
bræðslu.
Aflinn skiptist þannig niður á
löndunarstaði: til Reykjavíkur
hafa borizt 6080 lestir, sem síld-
arflutningaskipið Síldin hefur
komið með, tíl Bolungavíkur
hafa borizt 795 lestir, sem Dag-
stjarnan hefur flutt, til Ólafs-
fjarðar 571 lestir, Krossanes 110
lestir, Húsavíkur 379 lestir,
Raufarhafnar 8063 lestir, Vopna-
fjarðar 5395, Seyðisfjarðar
Eskifjarðar 6579 lestir, Reyðar-
12332, Neskaupstaðar 9420 lestir,
fjarðar 3165 lestir, Fáskrúðsfjarð
ar 3272 lestir, og til Djúpavogs
226 lestiri
Sólbráð olli samgöngu
truflunum norðanlands
Vatn fléði yfir vegi á þremiir
stöðtam
SÓLSKIN og hiti var um mest
allt Norðurland um helgina, og
var hitinn frá 15—28 stig, heitast
á Akureyri eða 21 stig. Samkv.
upplýsingum frá Vegagerð ríkis-
ins olli þessi hiti mikilli sólbráð
fyrir norðan, og t.d. höfðu ræsin
í veginum í Giljareit á Öxna-
dalsheiði ekki við, og rann þar
á köflum yfir veginn. Var gert
strax við veginn, en á hinn bóg-
inn var enn mikil hláka þar í
gær, og því hætta á að þetta end-
urtæki sig.
Sólbráðin olli því einnig að
mjög óx í öllum ám fyrir norðan,
og í gær rann Svarfaðardalsá
yfir veginn á kafla, og ennfremur
rann Gufudalsá í Barðastrandar-
sýslu yfir veginn. þar rétt við
brúna. Er Vesturlandsvegur þar
því lokaður í bili. Annars staðar
frá hafa ekki borizt neinar fregn-
ir um skemmdir á vegum vegna
vatnavaxta.
Hér sunnanlands rigndi mjög
mikið um helgina, og brotnuðu
vegirnir viða upp, sérstaklega þó
í Árnes- og Borgarfjarðarsýs'lu.
Hafa þar víða komið hvörf í
vegina, sem þó er reynt að gera
við jafnóðum.
Ekki eru allir vegir landsiris
orðnir færir öllum bifreiðum enn.
þá, t.d. eru Þingmannaheiði og
Þorskafjarðarheiði lokaðar öllum
bifreiðum, nema jeppum. Fært er
orðið til Raufarhafnar öllum bi£-
reiðum, en á milli Raufarhafnar
og Kópaskers er vart nema jeppa
fært. Þá er búið að moka niður
í Vopnafjörð, en sú leið varð
strax ófær vegna aurbleytu.
Möðrudalsöræfin eða Austur-
landsvegur eru nú orðinn vel
fær, en þó er þar enn aðekis
leyfður 5 tonna hámarksöxul-
þungi. Fjarðarheiði er í bili að-
eins jepi>afær. Loks er þess að
geta að takmarkanir þær, sem
verið hafa við Hraun í Fljót-
um, vegna vegagerðar, eru nú
fallnar úr gildi, og vegurinn op-
inn allan sólarhringinn.
— Sildarsaltendur
Framhald af bls. 32
var ekki seld nein síld að undan-
teknum um 7200 tunnum, sem
seldar voru þangað nú í vor. Að
nokkru leyti hækkaði meðalverð
ið við það, að ekki var nein sala
til Rússlands á síðastliðnu ári á
saltsíld frá Norður- og Austur-
landi, en salan þanagð hafði í
mörg undanfarin ár lækkað
meðalverð saltsíldar.
Verð það, sem Rússar gefa nú
kost á að greiða, er um 350 krón-
um lægra fyrir tunnuna en aðrir
kaupendur greiða og auk þess
krefjast þeir endurmatsréttar á
síldinni, sem framkvæmd sé af
rússneskum yfirtökumönnum,
þótt síldin hafi verið viðurkennd
sem fuilgild vara af íslenzka síld
armatinu.
Eftirfarandi tillaga var sam-
þykkt í einu hljóði:
„Fundurinn telur, að ekki komi
til greina að selja síld til Sovét-
ríkjanna fyrir lægra verð eða
með öðrum óhagstæðari skilmál-
um en aðrir kaupendur sæta. —
Þá telur fundurinn óviðunandi
með öllu, að ervdurmat kaupenda
fari fram á síld, sem metin hefur
verið og samþykkt af Síldarmati
ríkisins".
Stjórn félagsins var endurkos-
in, en hana skipa:
Sveinn Benediktsson, formað-
ur; Sveinn Guðmundsson, vara-
formaður; Aðalsteinn Jónsson,
Jón Þ. Árnason og Valtýr Þor-
steinsson.
í varastjórn voru kosnir:
Jóhannes Stefánsson, Neskaup-
stað; Þorsteinn Sveinsson, Djúpa
vogi; Eyþór Hallsson, Siglufirði;
Jóhann Antoníusson, Fáskrúðis-
firði og Guðmundur Bjömsson,
Stöðvarfirði.
F.S.NA. 10 ára.
Félagið hélt hóf í Þjóðleikhús-
kjallaranum s.l. laugardagskvöld
í tilefni afmælisins.
Var þar fjöldi síldarsaltenda
og gesta. Kveðjur báfust frá Jóni
Áraasyni, alþingismanni, for-
manni Félags síldarsaltenda á
Suður- og Vesturlandi og frá
Gunnari Flóventz, framkvæmda-
stjóra.
Sveinn Benediktsson, sem nú
var endurkjörinn formaður, hef-
ur verið formaður félagsins frá
upphafi. Auk hans hafa verið í
stjórn þess frá uþphafi þeir Jón
Þ. Árnason og Valtýr Þorsteins-
son.
Yfir 70 farast
í Hong Kong
— af völdum úrfellis og jarðrasks
Hong Kong, 13. júní, NTB — AP
A ÁTTUNDA tug manna
munu hafa farízt í Hong Kong
um helgina af völdum óskap-
legs úrfellis sem þar varð og
skriðufalla. Yfir 10« byggingar
eyðilögðust og talið er að nær
2000 manns hafi misst heimili
sín. Öilum skólum er lokað í
Hong Kong í dag og og skrii-
stofuin víða og hefur lögreglan
beðið fólk að hafa börn sin
heima af ótta af frekari skriðu-
föll. því veðurfræðingar spú auk
inní úrkomu.
Björgunarstarf er unnið af
kappi og legjast þar á eitt opin-
berir aðilar og einkafyrirtæki
og einstaklingar. í sutnum borg-
arhverfunum er ekki mat að fá,
því skriðuföU á akvegum hamla
öllum flutningum þangað og
víða hafa menn hvorki rafmagn,
vatn né gas. Brezka flugvéianaóð
skipið „Eagle“ hefur léð þyrlur
sinar til björgunarstarfa ög unn
ið er að því að ryðja götur og
vegi eftir náttúruhamfarirnar.
Til marks um það, hersu mik-
ið úrfelli var í Hon Kong í
gær má hafa það, að mælar
veðurstofu sýndu 38.1 em. úr-
komu eftir 11 klukkustunda rign
ingu og stytti þó upp öðru hvoru
en rigndi þeim mun meir á
eftir., Ekki stafar úríellið þó af
því að Hong Kong hafi verið
afskipt í þeim efnum, því frá
mánaðamótum hefur rignt þar
rúmum 60 cm. að því er veður-
fræðingar herma.