Morgunblaðið - 21.06.1966, Side 2
2
MORGUNBLAÐJD
Þriðjudagur 21. júní 1966
• 17. júní hátíðahöldin í Hafnarfirði fóru vel fram, veðrið eins og bezt verður á kosið og þátt-
taka mikil. Hefur ekki áður verið eins margt fólk á hátíðasvæðinu á Hörðuvöllum og nú og
skrúðgangan var mjög fjölmenn. — Einnig var margt um manninn við barnaskólann um
kvöldið, — og litið um ölvun. — Myndin er tekin af hátiðasvæðinu á Ilörðuvöllum. —
Lljósm. Asa.
Prestastefna
hefst í dag
Aðalmál hennar er presfakallaskipunin
SYNODUS hefst í dag með
messu í dómkirkjunni kl. 10.30
árdegis. Séra Þorbergur Krist-
jánsson frá Bolungarvík pre-
dikar, fyrir altari þjóna séra
Birgir Snæbjörnsson, Akureyri,
og séra Magnús Guðjónsson,
Eyrarbakka. Eftir messuna
ganga prestar í kirkjugarðinn
við Suðurgötu, þar sem lagður
verður blómsveigur á leiði dr.
Jóns Helgasonar, biskups.
Kl. 14 verður prestastefnan
sett í kapellu háskóJans. Biskup
flytur ávarp og yfirlit og lagðar
verða fram starfsskýrslur prest-
anna. Kl. 15 verður sameiginleg
kaffidrykkja í Garði í boði
biskups, en prestskonur eru
boðnar til kaffidrykkju á heimili
biskups.
Kl. 16 verður tekið fyrir aðal-
mál prestastefnunnar, presta-
kallaskipunin. Framsögumenn
verða séra Ingólfur Ástmarsson,
biskupsritari, og séra Sigurður
Haukdal, Bergþórshvoli. Eftir
það verða umræður. skipað í
FUNDUR með viðræðunefnd-
um vinnuveitenda og verkalýðs
ins hefur verið ákveðinn kl. 2
siðdegis í dag.
Á fundi í framkvæmdanefnd
Vinnuveitendasambands íslands
í gær var formaður sambands-
ins, Kjartan Thors, Gunnar
Guðjónsson og Barði Friðriks-
son tilnefndir í viðræðunéfnd
vinnuveitenda, en í henni mun
umræðuhópa og nefndir.
Kl. 18 flytur söngmálastjóri
þjóðkirkjunnar, dr. Róbert A.
Ottóson, ávarp. Kl. 18.15 ávarp-
ar séra Finn Tulinius presta-
stefnuna og flytur erindi.
Kl. 20 verður útvarpserindi.
Séra Jón Guðnason fyrrv. skjala
vörður, flytur erindi um Jón
Helgasc?i, biskup, aldarminning.
Prestastefnunni lýkur n.k.
fimmtudag.
í Lesbók Mbl. verður birt
grein n.k. sunnudag um Jón
Helgason, biskup, eftir séra
Óskar J. Þorláksson.
LEIT var hafin í gær að vél-
bátnum Sævari frá Bíldudal,
sem er 4 tonn að stærð, en hann
hafði farið í róður sl. laugar-
einnig eiga sæti Hjörtur Hjart-
ar frá Vinnumálasámbandi sam
vinnufélaganna.
1 viðræðunefnd Verkamanna-
sambands íslands eiga sæti fjór-
ir meðlimir í framkvæmdanefnd
þess, þau Eðvarð Sigurðsson,
Björn Jónsson, Jóna Guðjóns-
dóttir og Hermann Guðmunds-
son.
Orður 17. júní
FORSETI fslands hefur í dag
sæmt eftirgreinda íslendinga ridd
arakrossi hinnar islenzku fálka-
orðu:
Harald V. Ólafsson, forstjóra,
fyrir kynningu á íslenzkri tónlist
og íslenzkum listamönnum.
Jóhann Þorkelsson, héraðs-
lækni, Akureyri, fyrir embættis-
og félagsmálastörf.
Jón Auðuns, dómprófast, fyrir
embættisstörf.
Frú Teresíu Guðmundsson,
fyrrv. veðurstofustjóra, fyrir emb
ættisstörf.
Þorgils Ingvarsson, fulltrúa,
fyrir bankastörf.
Þórhall Jónasson, hreppstjóra,
Breiðavaði, Eiðaþinghá, fyrir
búnaðar- og félagsmálastörf.
Reykjavík, 17. júní 1966.
(Fréttatilkynning frá orðuritara)
dagsmorgun. Á bátnum var einn
maður, Hallgrímur Ottósson frá
Sæbakka, Bíldudal, rúmlega sex
tugur að aldri.
Gengið var með víkum frá
Bíldudal í gær, en ekki varð
þess vart að Sævar hefði komið
að landi. Þá var landhelgisgæzlu
vélin Sif fengin til að leita að
bátnum.
Vélbáturinn Þórður Ólafsson
fór frá Bíldudal um hádegi í
gær til að svipast eftir Sævari
og fann hann út af Látrabjargi.
Sævar var þá á leið inn til
Bíldudals og ástæðan yrir því.
að hann var svo lengi úti er sú,
að hann réri sunnarlega og heim
ferðin gekk stirt vegna nokk-
urrar brælu.
Þórður Ólafsson fylgdist með
Sævári þar til hann var kominn
inn í fjörðinn og kom hann til
Bíldudals um 7 leytið í gær-
kvöldi.
Einn lestar-
ræningjanna
dæmdur
Leicester, 20. júní, AP.
JAMES Edward White var í dag
dæmdur til 18 ára fangelsisvist-
ar fyrir aðild sína að lestarrán-
inu mikla 1963. Við dómsupp-
kvaðningu var tillit tekið til þess
að White var ekki einn höfuð-
pauranna, heldur sá er lagði á
ráðin um hvernig koma skyldi
ránsfengnum undan. Lestarræn-
ingjarnir höfðu á brott með sér
meira en 2.500.000 sterlingspund
ag hefur áðeins lítill hluti þessa
fjár náðst aftur.
LÆGÐIN suðaustur af land- flug bæði þar og á Norðaust- /
inu var á hreyfingu vestur og urlandi. Sunnan lands var 11— 1
olli vaxandi rigningu hér á 15 stiga hiti, en kaldara fyrir
landi. Var mikið úrfelli á norðan, kaidast 4 stig á Horni,
Austfjörðum og erfitt um
Viðræðufundur um
launamálin ■ dag
Báturinn, sem leitað
var, kom fram í gærkvöldi
Tvennt siasast er bíll
steypist í Spjarará
HINN 17. júní sl. varð bifreiða-
slys í Grundarfirði. Vildi slysið
til á Eyrarsveitarvegi skammt
frá Setbergi. Fólksbifreið, 6
manna Chevrolet, ók út af veg-
inum og lenti á brúarstólpa við
Spjarará.
Lögreglunni i Stykkishólmi
barst tilkynning um slysið
kl. 13.20 og fór hún strax á vett-
vang ásamt héraðslækni Guð-
mundi Þórðarsyni. Þegar þeir
komu á slysstað kom í ljós að
tvennt hafði verið í bifreiðinni.
Ökumaðurinn, Guðmundur Jóns-
son, Réttarholtsvegi 83, Reykja-
vík, og farþegi, Marid Davíðs-
dóttir Bergþórugötu 23, Reykja-
vík, ,þau eru innan við tvítugt.
Bæði voru mikið slösuð, opið
beinbrot á fæti ökumanns og
stúlkan síðubrotin og auk þess
höfðu þau hlotið mörg önnur
smærri meðsli, sérstaklega öku-
maður, sem hafði fengið heila-
hristing.
Hin slösuðu voru flutt þegar
í sjúkrahúsið í Stykkishólmi þar
sem þeim var veitt nauðsynleg-
asta hjálp, en síðan kom sjúkra-
flugvél Björns Pálssonar síðar
um daginn og flutti þau á sjúkra
hús í Reykjavík.
Lögregluþjónninn sem fór á
slysstað lætur þess getið að ekki
verði annað séð en bifreiðin haíi
ekið með ofsa hraða því skammt
fyrir norðan slysstaðinn er
beygja á veginum og virðist sem
ökumaður hafi þar misst stjórn
á bifreiðinni, lent í lausamöl og
henst frá einum vegkanti til
annars þar til hann lenti á brú-
arstólpa, sem er 103 metra frá
fyrrnefndri beygju. Þegar bif-
reiðin lenti á brúarstöplinum,
snerist hún í loftinu, kom niður
á hjólin ofan ána, sem brúin er
yfir, en það er þriggja metra
fall. Bifreiðin virðist vera gjör-
ónýt. — Fréttaritari.
Björn Gunn-
bugsson, læknir,
látinn
BJÖRN Gunnlaugsson, læknir,
varð bráðkvaddur á heimili sinu
í Reykjavik í gærkvöldi, tæp-
lega 67 ára að aldri. Björn var
með þekktari læknum í höfuð-
borginni, þar sem hann hafði
starfað í nær 40 ár. Hann var
um árabil kennari og prófdómari
við læknadeild Háskóla íslands.
Bjöm Gunnlaugsson fæddist
þann 24. nóvember 1899 í Einars-
nesi á MýrUm, sonur hjónanna
Gunnlaugs Einarssonar, bónda
þar, og síðari konu hans, Þóru
Friðriku Friðgeirsdóttur.
Hann varð stúdent frá MR
1920 og cand, ined. frá Háskóla
íslands 1926. Björn stundaði fram
haldsnám í Kaupmannahöfn og
Hamborg og fékk viðurkenningu
sem sérfræðingur í lyflæknis-
fræði árið 1931.
Björn var kvæntur Elínu Hlíð-
dal og áttu þau þrjá syni, Gunn-
' laug, Þorvald og Guðmund.
Mikil gróður-
setning á Heiðmörk
í GÆR hafði Morgunblaðið
samband við Einar G. E. Sæ-
mundsen framkvæmdastjóra
Skógræktarfélags Reykjavíkur
og spurðist fyrir um vorstörfin
á Heiðmörk.
Einar sagði, að segja mætti að
þrátt fyrir óvenjulega mikið
frost í jörðu og miklar rigning-
ar, fyrri hluta júnímánaðar,
þafi vorgróðursetningin gengið
ótrúlega vel. Að kveldi 16. júní
var búið að g''óðursetja tæpar
70 þúsund plöntur af 150 þús-
unum, sem áætlað er að gróður-
setja í vor og seinnihluta
sumars. Þessar plöntur eru
gróðursettar af landnemum, þ.e.
sjálfboðaliðum úr félögum, sem
hafa spildur á Heimörk og hafa
starfað að gróðursetningu urn
15 ára skeið, sum hver. Þá hefir
Vmnuskóli Reykjavíkur unnið
verulegan hluta að þessu og svo
vinnuflokkar frá Skógræktarfé-
lagi Reykjavíkur.
Áætlað er að ljúka vorgróð-
ursetningunni um næstu helgi
og ér áríðandi að þau félög lano
nema, sem ekki hafa lokið gróð
ursetningu á þessu vori geri það
fyrir þann tíma.
Bent skal á, að félögin þurfa
að tilkynna gróðursetningardag
til skrifstofu Skógræktarfélaga
Reykj avíkur í síma 40300 eða
40313.
Vegir i Heiðmörk voru
óvenju seint færir vegna aur-
bleytu á þessu vori, en nú um
síðustu helgi voru þeir allir
orðnir færir, enda létu Reykvík.
ingar ekki á sér standa að koma
í griðland sitt. Á laugardag voru
bifreiðir svo hundruðum skipti,
og enn fleiri á sunnudag. Voru
bílar á ölium útskotum og bíla-
stæðum og fólk í hverri laut,
sagði Einar G. E. Sæmundseu
að lokum.
Norrænt lögreglukóromót sett
—Samsöngur við Menntaskólann i kvöld
í GÆR kl. 18.30 var sett mót
norrænna lögreglukóra. — Er
þetta þriðja söngmótið sem
kórarnir halda. Hið fyrsta var
í Stokkhólmi árið 1950, og í
Ósló var haldið mót árið 1961.
Þátttakendur í mótum þess-
um eru lögreglukórar frá höf-
uðborgum allra Norðurland-
anna. Fjöldi þeirra söng-
manna, sem sækja mótið í
Reykjavík að þessu sinni eru
144 talsins.
f kvöld kl. 20.00 munu allir
kórarnir fara í skúðgöngu frá
Snorrabraut, niður Laugarveg
og Lækjargötu og að Mennta-
skólanum. Þar munu allir kór-
arnir efna til útisöngs. Þeir
munu syngja sitt í hvoru lagi og
einnig munu þeir syngja fimm
lög saman og munu hinir fimm
söngstjórar skipta lögunum á
milli sín. Útitónleikarnir munu
hefjast á því að kórarnir munu
sameiginlega syngja lagið „Á
samhljómsvæng]um“ eftir Pál
ísólfsson við texta eftir Stein-
grím Thorsteinsson. Kórarnir
munu einnig efna til samsöngs
í Háskólabíói og verða þeir tón-
leikar ». k. fimmtudag kl. 17.15.