Morgunblaðið - 21.06.1966, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 21. jðnl 1^68
MORCUNBLAÐIÐ
19
____
Bændur og kaup þeirra
HÓGVÆRTR og lítillátir eru ís-
lenzkir bændur að þeir skuli svo
hljó'ðir vera og heima sitja að
undanskildum 7. júní er sunn-
lenzkir bændur fjölmenntu að
Selfossi en þar var um myndar-
skap að ræða að svo margir
skyldu mæta til að mótmæla
kjaraskerðingu bóndans.
Mánuður er liðinn síðan frétt
hirtist í útvarpi og blöðum um
gjöld er bændur skyldu greiða
eins og nokkurskonar j;ekt fyrir
hvern mjólkurlítra er þeir fram-
leiða til sölu. Ekki vantaði að
sniðug voru nöfnin og allt er
þá ef þrennt er:
Innvigtunargjald 50 au. pr. Itd.
Verðmiðlunargj. 30 au. pr. ltd.
Sumargjald 50 au. pr. ltd.
Enginn bóndi á að borga þetta,
en verði það samt af þeim tekið,
þá verða þeir að krefjast þess að
því vefði aftur skilað, ekki að
einhverju leyti, heldur öllu leyti
og að engu undanskildu. Aldrei
hefur neinni stétt verið
boðið slíkt síðan þrælahald var
afnumið á íslandi, en þeir. unnu
kauplaust (fengu þó fæði, föt, eitt
hvert húsnæði, sjálfsagt allt lé-
legt).
Hvað hafa bændur eftir þegar
þeir eru búnir að greiða þessi
gjöld? Það er mjög misjafnt. Þeir
sem framleiða mjólk greiða frá
30% upp í 140% af kaupi sínu
þann tíma sem okkur er sagt að
mest eigi að taka. Munurinn er
svona mikill vegna þess hve
bændur hafa verið misþægir að
hlíða því að stækka búin og auka
framleiðsluna. Þeir sem búa stórt
og hafa margt fólk í vinnu borga
mest.
Ekki skulu sauðfjárbændur
halda að þeir sleppi, lukkist þetta
með mjólkurbændur, munu þeir
heimsóttir með haustinu.
Bændur mega ekki líða að
þessi leið verði farin, því þá
verður hún notuð aftur, kannski
vísir að því sem koma skal og
verða skal til frambúðar.
Bændur eru ábirgir fyrir ýmsu.
Aðrir, sem beint og óbeint vinna
að framleiðslunni, hafa umsamið
kaup hvernig sem allt gengur og
eru hvergi ábyrgir. Ég leyfi mér
a'ð nefna nokkur dæmi og miða
við ef illa gengur eða óhöpp
verða.
Fyrst kemur fagmaður og mæl-
ir fyrir þurrkun lands, sem
þurrka skal til ræktunar. Ef það
mistekst svo að það þornar ekki
nógu vel, skilar það kannski
ekki nema hálfu grasi, þrátt fyrir
fullan skammt af áburði. Þetta
var nokkuð algengt. Bóndinn
ber ábyrgðina. Ef tæki, sem leigð
eru til þurrkunar lands og jarð-
vinnslu skila ekki fullum afköst-
um eða slétta ekki landið eins og
þarf og hljótast af því vandræði
þá skal bóndinn bera ábyrgðina.
Ef okkur bændum er seldur til-
búinn áburður, sem er gallaður,
t.d. hahðir kögglar í pokum, sem
kosta mikla vinnu að laga og
fullnýtist aldrei eða áburð sem
ekki þolir sunnlenzkar rigningar
skolast þá svo langt niður í jörð-
ina eða ofan í skurði og jurtirnar
ná aldrei til hans, en þetta er
því miður of algengt, þá skal
bóndinn borga það. Stundum er
bændum seldar vélar og ýmis
tæki, sem úrelt eru eftir 2—3 ár,
þá skal bóndinn kaupa annað.
Hann ber ábyrgðina. Svipaða
sögu er að segja um byggingar-
listina, þar eru bændur oft til-
raunadýr og þeir skulu bera á-
byrgðina. Ef mjólkurflutninga-
bílar bila og mjólk skemmist af
því þeir fara út af veginum,
mjólk fer niður af því misheppn-
un verður á einhverri vöru, sem
framleidd er í búunum, mjólk
eða mjólkurvörur skemmast í
sölubúðum, t.d. súrna, skulu
bændur vera ábyrgir fyrir þessu
öllu, og borga það. Nú gera
mjólkurfræðingar, búðarstúlkur
eða einhverjir sem að þessu
vinna, verkfall. Bændur skulu
taka afurðatjóni því er þeir verða
fyrir af þessum sö'kum sem sjálf-
sögðum’hlut. Ef öllu því er að
framan greinir og ýmsu fleira,
skulu bændur einir bera ábyrgð-
ina.
Undanfarin fjölda mörg ár
hafa bændur verið hvattir til og
beinlínis verið sagt að stækka
búin og framleiða meirá.' Þetta
hafa framámenn og forystumenn
okkar svo og háttvirtar ríkis-
stjórnir og ráðamenn þjóðarinn-
ar gert.
Eiga bændur einir að bera á-
byrgðina í þessu ábyrgðarlausa
þjóðfélagi?
Þeir eiga ekki að bera ábyrgð
á þeim vanda sem nú hefur skap-
azt af offramleiðslu, en því ná
ekki leyna, að sá er vandinn sem
leysa þarf. I framtíðinni leysa
bændur þennan vanda sjálfir. Til
þess þurfa þeir að fá vald, en þá
munu þeir líka finna úrræði sem
eru varanleg. Aldrei hefur mér
sýnst sú leið vera framtíðarlausn
að mjálma utan í hverja ríkis-
stjórn sem að völdum situr
hverju sinni um lausn allra mála.
Við bændur erum vanir að taka
misjafnri veðráttu og ráða fram
úr ýmsu smávegis, en það sem
við eigum ekki sök á og illa fer
borgum við ekki. Þegar við höf-
um fengið vald til að leysa þann
vanda sem í framtíðinni fellst í
því að framleiða meira en fyrir
íslenzkan markað þá er aðallega
um þrennt að ræða.
1. Banna alla sportframleiðslu
í hvaða mynd sem hún er rekin,
af bæjarfélagi, ríkinu eða ein-
staklingum. Ég held að enginn sé
svo ósanngjarn að álíta að sá sem
hefur landbúnað að atvinnu óg á
lífsafkomu sína undir sölu á land
búnaðarvörum eigi að borga veru
legan hluta af kaupi sínu til að
aðrir geti rekið sportbúskap.
2. Bændastéttinni sé lokað og
bændur einir ráði hvenær og hve
margir bætist í stéttina. Þá fyrst
er hægt a’ð gera bændur ábyrga
fyrir offramleiðslu. Svo er það
önnur saga hvað neitendur vilja
hafa umfram framleiðsluna (það
sem út þarf að flytja) mikla í góð
ærum til að vera öruggir þegar
verr árar og útflutningsuppbæt-
ur i samræmi við það. Þær borga
bændur aldrei.
3. Bændastéttin verður að
skipuleggja hváð skuli framleitt
á hverjum stað og ei má gera
hávaða úr því þó afskekktir stað-
ir, sem ei geta boðið fólki upp á
venjuleg lífskjör leggist í eyði.
Það er eðlilegt. ísland minnkar
ekki við það, en það minnkar
þegar blómlegar sveitir á beztu
framleiðslustöðum landsins leggj
ast í auðn, en það mun gerast ef
bændur sem þar búa, eiga að
fara að verða kauplausir að
mestu lengri eða skemmri tíma
ársins,
Að síðustu vil ég segja. Vinnu-
dagur bóndans er langur og það
eru margir vinnudagar í einu
ári. Kaupið er ekki meira en
svo, a'ð af því má ekkert taka.
Kjartan Hannesson.
Margrét K. Hannesdóttir
IHinning
Fædd 23. desember 1873.
Dáin 13. júní 1986.
KVEÐJA
Á enda þinn vegur er genginn,
og lífstíðarbarátta unnin.
Hve löng er hvers lífstið veit
enginn
fyrr en siðasti þráður er brunn-
inn.
Lýst hefir ljósið þitt lengi,
þin lifandi trú vakið gleði.
Gott er að eiga þá strengi
með almættis hugsjón að friði.
Löng er þín lífstíðarsaga,
og hjarta þitt stundum mátt bif-
ast.
En lýsti þér myrkvaða daga,
þín trú kom þér ei til að efast.'
Nú fagna.þér ástvinir handan
vi'ð hafið,
heim ertu komin og fullnægð þín
þrá.
í heimi þíns Drottins, allt kær-
leik er vafið,
hann veiti þér náð til að skilja
og sjá.
Hér kveðja þig börnin, er unnir
þú mest,
og barnabörnin ömmuna sína.
Sértu með Guði og Guð sé þér
vörn,
hann greiði þér mildina þína.
G. T.
Staðfestið pantanir
Allir þeir, sem eiga pantað
far á Heimsmeistarakeppn-
ina í knattspyrnu í London
í júlí nk.,staðfesti þær fyrir
25. júní, ella getum við ekki
ábyrgst að þeir fái far.
Fyrirkomulag ferðar
Upphaflega var áætlað að
taka á leigu flugvél til ferð-
arinnar. Frá því var horfið,
’vegna þess hve margir ósk-
uðu eftir að framlengja ferð
ina, eða fara fyrr af stað og
dveljast annarsstaðar áður,
Geta menn því sameinað
þessa ferð og aðrar, sem
þeir kunna að vilja fara.
Verð ferðarinnar
Verð ferðaiinnar er frá kr.
10.900.00, og miðast það við
8 daga ferð. Innifalið í verði
er flug báðar leiðir, gisting-
ar og morgunmatur, flutn-
ingur til og frá flugvelli og
á leikina, ferðir inn í bæinn,
bæði til að verzla og
skemmta sér, fararstjórn og
söluskattur. Einnig eru inni
faldir stæðismiðar á leikina.
Verð ferðarinnar verður
nokkru hærra, ef dvalist er
lengur en 8 daga.
Gististaðir
Sökum mikilla húsnæðis-
vandræða í London á þessu
tímabili, og einnig vegna ó-
eðlilegs verðs á húsnæði á
þessum tíma, var horfið að
því ráði að fá húsnæði utan
London, í Herne Bay, sem
er út við ströndina. Gefst
því tækifæri til að sóla sig
á ströndinni, þá daga sem
ekki eru leikir. Eins og fyrr
segir er séð fyrir ferðum á
leikina og einnig innifaldar
ferðir inn í London, þá daga
sem ekki eru leikir.
Fararstjórar
Fararstjórar verða tveir og
eru báðir kunnir meðal á-
hugamanna um íþróttir. —
Þeir eru Jón Ásgeirsson,
íþróttafréttamaður og Magn
ús Pétursson, knattspyrnu-
dómari. Munu þeir sjá um
að fólk komist á leikina,
taka á móti farþegum á flug
velli, aðstoða við að skipu
leggja þær ferðir, sem fólk
óskar að fara og aðstoða far
þega á annan hátt, eftir
getu.
skriístoíunni
Lausir miðar
Nokkrir miðar hafa losnað
og er nauðsynlegt að panta
sem fyrst. Sérstaklega er á-
ríðandi að þeir, sem ætla
lengra, eða vilja fara fyrr
af stað, hafi samband við
okkur sem íyrst. Athugið að
eftirspurn er mikil. —•
Dragið ekki að panta.
Allar frekari upplýsingar á
LÖND & LEIÐIR HF. SÍMAR: 20800 OG 24313