Morgunblaðið - 05.07.1966, Qupperneq 2
2
MORGUNBLADIÐ
Þriðjudagur 5. júlí 1966
Tvísaga um
aðsföðugjöldin
EINS og fram hefur komið í
Mbl. hefur Þjóðviljinn verið
staðinn að beinum rangfærsi-
um í skrifum um skattgreiðsl-
ur félaga og einstaklinga að
þessu sinni. 1 útreikningum
sínum um hlutföll milli ein-
staklinga og félaga sleppti
blaðið öllum aðstöðugjöldum
félaga. Þegar Mbl. vakti at-
hygli á þessari staðreynd
birti Þjóðviljinn ramma-
klausu á forsíðu sl. sunnudag
þar sem segir:
„En aðstöðugjöldin eru á
engan hátt sambærileg við
útsvör, þau eru reiknuð út
frá umsvifum fyrirtækja án
tillits til afkomu þeirra og
fyrirtækin láta þau fara beint
út í verðlagið — viðskipta-
vinirnir borga. Aðstöðugjöld-
in eru hliðstæð söluskatti,
fyrirtækin greiða þau gjöld
ekki í raun og veru, heldur
innheimta þau aðeins fyrir
borgarsjóð. Ef reikna á að-
stöðugjöldin með væri miklu
rökréttara að bæta þeim við
útsvarsupphæð þá, sem al-
menningur greiðir".
Þegar fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir árið
1966 var afgreidd um sl. ára-
mót lögðu fulltrúar kommún-
ista í borgarstjóm hinsvegar
til að aðstöðugjöld yrðu
hækkuð um samtals 45 millj-
ónir, yrðu 175 milljónir í
stað 130 millj., sem ráðgert
var í fjárhagsáætluninni. Um
þessa tillögu kommúnista
sagði Guðmundur Vigfússon:
„Sjálfstæðisflokkurinn heldur
enn gjaldskrá aðstöðugjalda
langt fyrir neðan lögleg mörk
á sama tíma og útsvarsstig-
inn verður greinilega nýttur
til hins ítrasta. Þannig er enn
streitzt við að vernda hags-
muni verzlunarauðvaldsins
og annarra atvinnurekenda á
kostnað annarra útsvars-
greiðenda . . . . “ Fróðlegt
væri að fá skýringar Þjóð-
viljans á því misræmi sem
fram kemur í málflutningi
blaðsins nú og málflutningi
fulltrúa þess fyrir hálfu ári.
Nánar er rætt um mál þetta í
ritstjórnargrein blaðsins i
dag.
Gífurleg umferð úr
borginni á sunnudag
UMFERÐIN frá og til Reykja-
víkur var með almesta móti eftir
hádegi laugardag og sunnudag
og frá kl. 18—20, báða þessa
daga. Horfði til vandræða í Ár-
túnsbrekkunni siðdegis á sunnu-
dag, og er einsýnt að þar hefði
skapazt umferðaröngþveiti, ef
umferðarlögreglumenn h e f ð u
ekki tekið til sinna ráða. Stöðv-
uðu þeir umferð frá Reykjavik,
sem var tiltölulega lítil, og
hleyptu tvöfaldri umferð niður
Ártúnsbrekku og Suðurlands-
braut.
Gizkað er á, að frá 10—12 þús.
bifreiðar hafi farið um Suður-
landsbrautina á sunnudag, og
flestar á tímanum frá kl. 17—20.
Blaðið hafði samband við
Magnús Einarsson varðstjóra hjá
Umferðardeiid Reykjavíkuriög-
reglunnar. Kvað Magnús tilhög-
un þá, sem umferðarlögreglu-
menn gripu til síðdegis á sunnu-
dag í Ártúnsbrekkunni hafa gef-
ið mjög góða raun. Að vísu væru
á henni þeir vankantar, að um-
ferðin frá borginni tefðist, en
hins vegar væri hún hverfandi
hjá þeim fjölda bifreiða, sem
koma til borgarinnar. Sagði
Magnús, að varla yrði hjá því
komizt að grípa til svipaðra að-
gerða, meðan akvegurinn á þess-
um stað og brýrnar yfir Elliðaár
væru ekki breikkaðar, sem brýna
nauðsyn bæri til.
Fjórir lögreglumenn frá Um-
ferðardeildinni stjórnuðu um-
ferðinni í Ártúnsbrekku og við
Miklubraut, og er það mál
manna, að þeim hafi farizt það
verk prýðilega úr hendi, þrátt
fyrir aðsteðjandi erfiðleika, en í
tvær stundir samfleytt var óslit-
in bifreiðalest niður Suðurlands-
braut, og er það í raun og veru
meira en akvegurinn þolir, að
því er Magnús Einarsson tjáði
blaðinu.
Þá var mikil umferð á Þing-
völlum, þó ekki með mesta móti,
að því er Jón Eiríksson tjáði
blaðinu í gær, enda var sólar-
laust mikinn hluta úr degi og
rigndi lítilsháttar síðdegis. Lög-
reglumenn úr Reykjavík önnuð-
ust umferðarstjórnina á Þing-
völlum. Þrátt fyrir þunga um-
ferð þar kom ekki til samskonar
erfiðleika og þar sköpuðust fyrir
tveimur vikum, en þá var gífur-
legur mannfjöldi samankominn
á þingvöllum. •
í GÆR var hægviðri hér á
landi og sömuleiðs á nokkuð
stóru svæði umhverfis landið.
Smálægð og tilheyrandi regn-
svæði fyrir suðvestan land
ætti að þokast austur fyrir
án þess að hafa teljandi áhrif
hér.
r
Víðast var sólarlaust eða
sólarlítið í gær en yfirleitt
þurrt veður. í gær var gott
veður í New York, en hitinn
full mikill fyrir íslenzkan
smekk, 31 stig á celsiua kl. 7
um morguninn í skugganum.
Þátttakendur á ungtemplaram ótinu fóru í heimsókn til Bessastaða í gær. Hér sést forseú
íslands heilsa nokkrum erlendu fulltrúanna. .
50 ára afmælismót norrænna
ungtemplara hefst hér í dag
ilm 200 erlendir þátttakendur
í DAG kl. 5 verður sett í Dóm-
kirkjunni 50 ára afmælismót
Norrænna ungtemplarasambands
ins, en mótið mun standa til 10.
þ.m. Þetta er í fyrsta skipti sem
Norrænir ungtemplarar efna til
slíks móts hér á landi Þátttak-
endur eru um 400, þar af helm-
ingur erlendir ungtemplarar, en
þeir komu flestir til landsins sl.
laugardag og fóru um 100 þeirra
til Norðurlandsins á sunnudag.
Á morgun verður þing sam-
bandsins sett í Þjóðleikhúsinu,
en þingfundir verða að öðru
leyti í Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar. Mótsdagana verður efnt
til samkoma á ýmsum stöðum í
borginni og farið verður í ferða-
VARÐSKIPIÐ Albert tók a»-
faranótt mánudags vélbátinn
Magnús IV., RE 18, að meintum
ólöglegum veiðum innan fisk-
veiðitakmarkanna • á Faxaflóa.
Sinnti báturinn ekki stöðvunar-
merki varðskipsins og varð að
skjóta að honum 4 púðurskotum.
Varðskipið fór með bátinn til
Reykjavíkur, þar sem mál skip-
stjórans var tekið fyrir í saka-
dómi í gær.
Málsatvik eru þau, að varðskip
ið Albert, skipstjóri Gunnar Ól-
afsson, varð var við bát um 1-8
mílur innan 12 mílna fiskveiði-
lögsögunnar á Faxaflóa og virt-
ist varðskipsmönnum ýmislegt
grunsamlegt við athafnir hans.
Hélt Albert til bátsins og kom
í ljós að þar var um að ræða
Magnús" IV., RE 18. Gaf varð-
skipið bátnum stöðvunarmerki,
en skipstjóri hans, Kristófer
Reykdal, sinnti því ekki. Hélt
Al'bert þá á fullri ferð á eftir
bátnum og skaut að honum fjór-
um púðurskotum. «
Þegar Albert kom að bátnum
var hann 19,5 málur innan fisk-
veiðitakmarkanna og virtist ný-
hættur togveiðum að áliti varð-
skipsmanna. Skipstjóri neitaði
ákæru um ólöglegar fiskveiðar
og kvaðst hafa verið við staðar-
ákvarðanir.
Annar íslenzkur bátur, Valur,
RE 1, sem var að löglegum drag-
nótaveiðum á þessu svæði, kom
þarna að. Skipstjóri hans, Ing-
ólfur Kristjánsson, staðhæfði við
varðskipsmenn. að Magnús IV.
hefði verið nýbúinn að hífa upp
er varðskipið kom að honum.
Varðskipið fór með Magnús IV.
til Reykjavíkur og var mál skip-
lög. Síðasta mótsdaginn, sem er
n.k. sunnudag verður farið
fylktu liði um götur borgarinnar
og efnt til útisamkomu við Aust-
urvöll, en um kvöldið verður
mótinu slitið með hófi að Hótel
Sögu.
Dr. Kristján Eldjárn, þjóð-
minjavörður, flytur á þingi sam-
takanna erindi um ísland og
séra Eiríkur J. Eiríksson, þjóð-
garðsvörðúr, fræðir um sögu
Þingvalla, þegar þátttakendur
koma þangað á fimmtudag.
Auk ungtemplara frá Norður-
löndum, mun Lars Spjuth, for-
maður alþjóðasambands ung-
templara, sem búsettur er í
Ástralíu koma til mótsins. Sömu
stjórans tekið fyrir í sakadómi
Reykjavíkur í gær.
— Sláftur
Framhald af bls. 28. .
strönd kvað slátt rétt að hefj-
ast á nokkrum bæjum, en ekki
taldi hann hann almennt mundi
hefjast fyrr en um miðjan mán-
uðinn. Tún kvað hann illa sprott
in og kal víða mikið, skipti sums
staðar hekturum lands. Hann
kvað að undanförnu hafa verið
kalt í veðri og þá sprottið lítið.
í Norður-Þingeyjarsýslu kvað
Jón Sigfússon á Ærlæk, slátt
ekki hafinn, en vera um það bil
að hefjast. Hann kvað sprettu
hafa verið góða að undanförnu
og væru sæmilegt hljóð í fólki
þar eystra. Hann sagði, að borið
hefði á kali í vor, en~það væri
víðast hvar minna en i fyrra.
í Vopnafirði er nokkuð víða
hafinn sláttur og er grasspretta
talin sæmileg og sums staðar
góð, að því er Ragnar Guðjóns-
son tjáir blaðinu.
Páll Guðmundsson á Gilsár-
stekk í Breiðdal kveður slátt
tæpast hafinn, nema á prests-
setrinu að Heydölum. Seint hafi
verið borið á tún í vor, en veðr-
ið verið vætusamt og virtist
spretta ætla að verða góð.
Jón Ólafsson í Geldingarholti
í Árnessý&lu segir slátt ekki haf-
inn þar í sveitum. Grasspretta
sé ekki góð, en þó nokkuð mis-
jöfn. Menn væru bjartsýnir, það
hefði einungis vorað svo seint.
Rúning sauðfjár er nú að hefjast
og sláttur mun hefjast í næstu
viku
leiðs umdæmistemplarar IOGT í
Japan og einn fulltrúi frá Tyrk-
landi, svo segja má að svipur
mótsins sé alþjóðlegur, enda
eðlilegt þar sem starfsemi templ-
ara nær til marga landa í öllum
heimsálfum. Þá sækir mótið
Karl Wennberg, framkvæmda-
stjóri Norræna góðtemplararáðs-
ins.
Miðstöð ungtemplaramótsins
er í hinu nýja húsi IOGT við
Eiríksgötu og er þetta fyrsta
notkun hússins í þágu templara.
Að lokum má geta þess, að móts-
stjórn hefur fengið Freymóð
Jóhannsson, listmálara til að
halda sýningu á nokkrum
mynda sinna í IOGT húsinu með
an mótið stendur.
Happdrætti DAS
í GÆR var dregið í 3. fl. Happ-
drættis D.A.S. um 250 vinninga
og féllu vinningar þannig:
íbúð eftir eigin vali fyrir kr.
500.000.00 kom á nr. 11297.
Umboð Aðalumboð.
Bifreið eftir eigin vali kr.
200.000,00 kom á nr. 42751. —•
Umboð Aðalumboð.
Bifreiðir eftir eigin vali kr.
150.000.00 komu á nr. 18168,
Ólafsvík, 18251, Borgarnes, 29502,
30312 Aðalumboð.
Húsbúnaður eftir eigin vali
fyrir kr. 35 þús. kom á nr. 9317,
Aðalumbo’ð.
Húsbúnaður eftir eigin vali fyr
ir kr. 25 þús. kom á nr. 40898,
Seyðisfjörður.
Húsbúnaður eftir eigin vall
fyrir kr. 20 þús. kom á nr.
11374, Húsavík og 26577, Aðal-
umboð.
Húsbúnaður eftir eigin vali
fyrir kr. 15 þús. kom á nr. 6915
Aðalumboð, 8238 Borgarnes,
18407 Akranes.
Eftirtalin númer hlutu hús-
búnað fyrir kr. 10.000,00 hvert:
1466 4640 6784 12670 16668
20822 22847 23656 36817 29704
29908 31945 32498 32590 35104
44153 44392 45682 49020 51361
(Birt án ábyrgðar).
Brotizt inn í
kjötbúðina Borg
BROTIZT var inn aðfaranótt
mánudags í kjötbúðina Borg vlð
Laugaveg.
Innbrotsmaðurinn fór inn um
þakglugga og rótaði til í varn-
ingi í verzluninni, en ekki er
vitað, hvort nokkrum vörum var
stolið. Engir peningar voru
geymdir þar.
Albert tekur bát að
togveiðum á Faxaflóa