Morgunblaðið - 05.07.1966, Page 3

Morgunblaðið - 05.07.1966, Page 3
A>JLlOjUUcl£Ul O. JUIX 1ÖUU >r« a« <**r «« •*> Gladwyn lávarður á blaðamannafundk: Vantrúaiur á samvinnu Frakka og Rússa GLADWYN lávarður, forseti ATA-ráSstefnunnar, sem haldin var í Reykjavík fyrir helgina, sagði í viðtali við blaðamenn í gær, að ráðstefna þessi hefði verið ein hin bezt heppnaða og hezt skipulagða, sem hann hefði setið. Lávarðurinn raeddi stundár- korn við blaðamenn í gær og var þar drepið á ýmis mál, sem nú eru umdeild á Alþjóðavettvangi. Veru'legur hiuti viðræðnanna snerist þó um de Gaulle, forseta Frakklands og stefnu hans, ný- afstaðnar aðgerðir hans innan Atlantshafsbandalagsins og för hans til Sovétríkjanna. Gladwyn lávarður sagði, að lnnan NATO væri eðiilega ríkj- andi óánægja með stefnu Frakk- íandsforseta og flestir þar þeirr- ar skoðunar, að hann væri á xangri leið. Þess væri og að gæta, að í kvörtunum sínum yfir skipu- lagi NATO á síðustu árum, hefði franska stjórnin aldrei borið fram ákveðnar tillögur til úr- bóta og aldrei gert fyllilega ljóst, hvað hún vildi að yrði gert. Framan af hefði mönnum ekki verið fyllilega ljóst hvað fyrir Frökkum vakti —en nú væri það Ijóst orðið, Fraklelandsfor- seti gerði sér vonir um að taka forystu fyrir einskonar „þriðja ®fli“, sem gæti orðið samnings- aðili milli Vesturveldanna og Kommúnistaríkjanna. Sannleik- urinn væri sá, að þetta hefði lengi verið hugmynd de Gaulle, hún hefði komið í ljós, þegar í striðslokin og kæml einnig fram í endurminningum hans. Lávarðurinn kvaðst ekki hafa mikla trú á, að de Gaulle næði tilgangi-sínum, Frakkland væri ekki nógu stórt ríki eða öflugt og þar við bættist, að Þjóðverjar myndu tæpast nokkurn tíma fall- ast á forystu Frakka, Giadwyn lávarður sagði, að raunar hefði de Gaulle torseti fengið fæstu framgengt af því, er hann hefði ætiað á sviði utan- ríkismála. Sem dæmi mætti nefna stefnu hans í Afríku. Hann hefði ætlað að leysa Alsír-málið þannig, að þar stæði effir franskt Alsír, þ.e.a.s. ‘að Frakkar yrðu þar um kyrrt og hjáipuðu til við uppbyggingu landsins meira og minna samkvæmt frönskum hug- myndum. Raunin hefði orðið önnur — Alsír væri nú alsírskt sósíalískt riiki, og fléstir Frakkar farnir þaðan. Um aðrar Afríku- nýlendur mætti segja svipaða sögu — de Gaulle hefði ætlað sér að koma á laggirnar einskonar „Frönsku samveldi" en ekkert hefði orðið úr því. Þá mætti nefna vináttusamning Þýzka- lands og Frakklands, sem lítið væri annað en nafnið tómt, og ferðalag hans til S-Ameríku sem svo mikils hefði verið vænzt af — Ekki væri sjáanlegt að við- skipfi Frakka og S-Ameríku riikja hefðu aukizt að ráði eftir þá ferð og de Gaulle og stefna hans væri alls ekki vinsæl þar. Og nú reyndi hann við Sovét- ríkin, — en mér segði svo hugur, að ekki yrði mikill árangur af samvinnu Rússa og Frakka, því að allt benti til þess, að Sovét- stjórnin hefði fyrst og fremst áhuga á samvinnu við Banda- ríkin. Lávarðurinn ræddi nokkuð um sínar eigin hugmyndir um Evrópumálin, sem hann hefur sett fram í nýútkominni bók sinni „The European Idea“. Hann er ákafur talsmaður ein- ingar Evrópu, eins og kunnugt er, og baráttumaður fyrir aðild B r e t a að Efnahagsbandalagi Evrópu. Sagði hann, að fylgi við aðild Breta færi vaxandi innan Bretlands, taldi til dæmis nokk- urn veginn víst, áð þriðjungur þingflokks Verkamannaflokksins mundi greiða atkvæði með aðild nú, — þriðji hlutinn væri henni algerlega andvígur og þriðjungur óákveðinn. Þingmenn íhalds- flokksins og Frjálslynda flokks- ins væru yfirleitt fylgjandi aðild. Sem kunnugt er, fylgir lávarð- urinn Frjálslynda flokknum og er í iávarðadeildinni talsmaður hans í utanríkismálum. Hann upplýsti að fulltrúar flokksins þar væru 30—40 talsins, en benti á að aðeins nokkur hluti þeirra, er sæti eiga í Lávarðadeildinni sæti fundi nokkurn veginn reglu- lega — enda væri það eins gott, því að þeir væru svo margir, að ógerlegt yrði að halda uppi þing- störfum ef þeir kæmu allir á fundi. Lávarðadeildin, sagði lá- varðurinn að væri hin sérkenni- legasta stofnun, — hún væri sem næst valdalaus en gerði þó marg- víslegt gagn, breytti og fágaði mörg frumvörp, er þau færu gegnum hana og umræður þar Gladwyn lávarður væru hinar gagnlegustu. Hann sagði, að nú hefði komið til tals að sjónvarpa frá umræðum í brezka þinginu bæði Lávarða- deildinni og Neðri málstofunni en ekki vissi hann hvað úr því yrði — . á hinn bóginn væru margir merkis menn í Lávarða- deildinni sem eflaust yrðu vin- sælt sjónvarpsefni. Aðspurður um fylgi Frjáls- lynda flokksins sagði lávarður- inn, að það væri öllu meira en þingmannatalan í Neðri málstof- unni segði til um — þeir hafa nú 12 þingsæti þar, — en þetta stafaði af kjördæmaskipuninni, sem flokkurinn vildi umfram allt fá breytt. Hann kvað frjálslynd- um hafa gengið miður í síðustu kosningum en þar áður, m. a. sökum þess, að sú skoðun hefði verið ríkjandi í Bretlandi, að stjórn Wilsons hefði sýnt það mikla viðleitni við að ráða fram úr þeim vandamáium, er hún hefði tekið við að hún ætti skil- ið að fá tækifæri ti.l að gera enn betur. Virtist lávarðurinn hins- vegar bjartsýnn á, að Frjáls- lyndi fiokkurinn vinni á í næstu kosningum — sem hann sagði, að gætu orðið fyrr en eftir fjög- ur ár — aldrei væri að vita hvernig núverandi stjórn gengi að halda um stjórnartaumana. Hæstu skattgreiðendurnir HÉR FER á eftir listi yfir nokkra hæstu skattgreiðendurna að þessu sinni, einstaklinga og fyrirtæki. Er þar samanlagt tekjuskattur, tekjuútsvar, eigna- útsvar og aðstöðugjald. Einstaklingarnir eru þessir: Pólmi Jónsson, Álfheimum 40, 1206.723. Þórður Þórðarson, Skeiðar- vogi 97, 895.891. Sturlaugur Jónsson, Bergstaða etræti 14, 864.425. Kjartan Guðmundsson, Ásvalla götu 44, 840.249. Pétur Pétursson, Sundlauga- vegi 18, 776,251. Þorvaldur Guðmundsson, Háu- hlíð 12, 749,697. Þórður Kristjánsson, Berg- staðastræti 60, 722,355. Guðmundur Jónasson, Miklu- braut 5, 618,776; Þorvaldur Árnason, Kapla- skjólsvegi 4, 606.581. Páll H. Pálsson, Mávahlíð 47. 602.975. Arnbjörn Kristinsson, Nesveg- ur 9. 585.012. Árni Jónsson, Miklubraut 18. 574,784. Friðjón Árnason, Víðimel 58. 550.847. Björn Þorfinnsson, Stóragerði 8, 522.164. Daníel Þórarinsson, Gnoðar- vogi 76, 516.135. Friðrik A. Jónsson, Garða- etræti 11, 513.158. Ingimundur Ingimundarson, Sólheimum 38, 480.331. Birgir Ágústsson, Meistaravell ir 7, 478.856. Haukur Þorsteinsson, Boga- hlíð 22, 478.551. Hörður Björnsson, Klepps- vegi 6. 461.367. Kristján Siggeirsson, Hverfis- götu 26, 457.525. Halldór Benediktsson, Hvassa- leiti 30, 453.013. Guðbjörn Þorsteináson, Glað- heimum 8, 445.759. Tómas Vigfússon, Víðimel 57, 443.133 Gunnar Magnússon, Hvassa- leiti 99, 416.725. Jón L. Þórðarson, Hagamel 8, 409.499. Karl S. Jónsson, Ásvallagötu 24, 409.090. Guðmundur A. Ásgeirsson Grenimel 30, 399.518. Guðmundur Kristjánsson, Safa mýri 87, 396.981. Einar Sigurðsson, Bárugötu 2, 370.600. Fyrirtækin eru þessi: Samband ísl. samvinnufélaga 10.829.332. Eimskipafélag íslands 6.852.017. Loftleiðir h.f. 6.165.679. Oiíuverzlun íslands h.f. 5.914.386. Heildverzl. Hekla h.f. 5.233.152. MJÖG mikið annriki var hjá Loftleiðum nú um helgina, því margar ferðir voru farn- ar með farþega, auk venju- legs áætlunarflugs. Á laugardag kom ein af Rolis Royce vélum félagsins til landsins með 189 góðtempl ara frá Norðurlöndum. Á sunnudag kom ein af Cloudmaster vélum Loftleiða með 50 góðtemplara og íþrótta menn. Sama dag fór Cloud- mastervél með 82 góðtempl- ara til Akureyrar og aftur suður um kvödið. BARBADOS, V-Indíum, 4. júlí Tilkynnt var í Nýlendumála- ráðuneytinu brezka í dag, að Barbados í V-Indium myndi hljóta sjálfstæði 30. nóvember n.k. Bretar hafa farið. þar með öll völd í þrjár aldir. Tilkynn- ingin var gefin út að loknum síðasta fundi stjórnarskrárráð- stefriu Barbados sem staðið hef- ur yfir í London síðan 20. júní. Eggert Kristjánsson & Co. h.f. 4.281.020. Vélsmiðjan Héðinn 4.209.454. Flugfélag fs'lands h.f. 3.192.159. Sláturfélag Suðuriands 3.095.673. Siippfélagið h.f. 3.084.519. Kassagerð Reykjavík- ur 2.972.443. Olíufélagið Skelj- ungur h.f. 2.971.063. Silli og Valdi 2.495.448. Ásbjörn Ólafsson h.f. 2.372.082. Egill Vilhjálmsson h.f. 2.294.799. Fálkinn h.f. 2.233.476. Verksmiðjan Vífilfell h.f. 2.156.967. Samvinnutrygg- ingar 2.087.492. Hamar h.f. 2.051.098. (Tekið skal fram að svo getur verið, að einhverjir greiði hærri gjöld, en þeir, sem neðstir eru í upptalningunni). Þá fór Cloudmastervél með 82 fSrþega á vegum starfs- mannafélags samvinnumanna á Akureyri þaðan til Kúíusuk og heim aftur um kvöldið. Loks fór Cloudmastervél fullskipuð farþegum til Kaup mannahafnar á vegum ferða- skrifstofunnar Útsýnar. UNNIÐ er nú að framkvæmdum við endurbyggingu vegarins frá ísafjarðarkaupstað og út að flug- vellinum, þ.e. frá Vestfjarðar- vegi við Tungu í Skutulsfirði og út á móts við flugvöllinn. Er þessi vegagerð alls um 4 kíló- metrar. Á leiðinni var áður búið að endurbyggja brúna yfir Úifsa, — Sildaraflinn Framhald af bls. 28. tonn: í frystingu ... 16 í salt .. 175 (1.296 upps. tunnur) í bræðslu 123.450 Á sama tíma í fyrra var aflinn sem hér segir: í salt 25.433 upps.tn. tonn) (3.433 frystingu 1.271 uppm. tn. (137 tonn) 1 bræðsilu 617.612 mál 378 tonn) (83. Aflinn skiptist þannig á löndunai staði: tonn: Reykjavík 12.253 Bolungavík 1.703 Siglufjörður 586 Ólafsfjörður 1.641 Hjalteyri 411 Krossanes 4.060 Húsavík 1.328 Raufarhöfn 13.803 Vopnafjörður 8.197 Borgarfjörður eystri . . .. 591 Seyðisfjörður 30.332 Neskaupstaður 22.140 Eskifjörður 11.203 Reyðarfjörður 6.680 Fáskrúðsfjörður 6.220 Breiðdalsvík 798 Djúpivogur 1.6S5 en nú er unnið að endurbygg- ingu brúar yfir Khkjubólsá. Áætlað er, að framkvæmdir þessar kosti um 3.6 milljónir króna og er gert ráð fyrir að þeim ljúki á þessu sumri. Vegurinn frá kaupstaðnum og út á flugvöllinn hefur verið mjög leiðinlegur, krókóttur og mjór, en nú verður úr því bætt. Mikið annríki hjá Lofíleiðum um helgina Veguínn frá ísdjcr-arlisu^EJxS og að OnpeUinam enúcrliielEcr ,^p- STAKSTFIMAR Skattskráin Útkoma skattskrárinnar veknr jafnan mikla athygli og umræð- ur manna á meðal. Menn bregð- ast á mismunandi veg við skött- um sinum. Fæstir eru ánægðir með þá, en gera sér þó grein fyrir nauðsyn þess, að borgar- arnir Jeggi fram nokkurt fé í sam eiginlegan sjóð til sameiginlegra þarfa. Mikið er um það að menn beri sig saman við aðra, sem líkar tekjur hafa, og veldur þá mismunur á sköttum oft nokk- urri furðu. Þá er þess ekki alltaf gætt, að þótt menn hafi nokkuð álíka tekjur geta aðstæður verið ólikar, sumir hafa meiri frá- drátt en aðrir, bæði vegna stærri fjölskyldu, e.t.v. vegna þess að þeir hafa staðið í byggingar- framkvæmdum og svo framveg- is. Þá er einnig nokkuð um það aS menn, sem hafa hækkað mikið í tekjum milli ára finnst hart að sér gengið. Þeir gæta þess þá ekki að vegna minni tekna árið áður hafa fyrirframgreiðslur þeirra ekki verið i samræmi við þá skatta, sem þeir mega búast við á þessu ári, og þeir geta raunar reiknað út strax og þeir hafa gert sína skattskýrslu. Af þeim sökum leggjast skattgreiðsl ur með meiri þunga siðari hluta ársins á þá sem hækkað hafa mikið i tekjum milli ára. Þetta mundi verða mönnum mun auð- veldara viðfangs ef þeir hefðu nokkra fyrirhyggju og reiknuðu út þá skatta. sem líklegt er að þeir fái á þessu ári og greiddu siðan meira fyrirfram en þeim er gert að greiða. Þannig jafn- ast skattgreiðslurnar betur yfii árið og koma ekki eins þungt niður á siðari hluta ársins. Staðgreiðslukerfi skatta • Enginn vafi er á því, að skatt- greiðendur munu fagna þeirri breytingu, sem fyrirhugað er að koma á á næsta ári, að tekið verði upp staðgreiðslukerfi skatta, í stað þess að skattar eru nú teknir af tekjum ársins áður. Að þessu máli hefur verið unnið í mörg ár, en það krefst mikils undirbúnings. t stefnuyf- irlýsingu ríkisstjórnarinnar á síðastliðnu hausti var stað- greiðslukerfi skatta á árinu 1967 eitt þeirra atriða, sem ríkisstjórn in kvaðst mundu ieggja áherzlu á. Það mun vafalaust ieysa ýmis vandamál, sem nú koma upp vegna þess greiðslukerfis skatta, sem hér hefur ríkt og oft veldur óþægindum, þegar miklar breyt- ingar verða á tekjum manna frá einu ári til annars. Starfsemi skatta- eftirlitsins Starfsemi skattaeftirlitsins hef- ur vakið mikla athygli og um- I tal, en það er eitt af þeim nýj- | ungum, sem ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir í skattamálum. Það er á allra vitorði, að skattsvik hafa mjög tíðkazt hér á landi um íangan aldur. Það skapar hins vegar ranglæti í greiðslu opin- berra gjalda þegar fastlauna- menn, sem enga möguleika hafa á að skjóta tekjum undan skatti verða að greiða skatta hinna, sem meira tækifæri hafa til þess. 'Skattaeftirlitinu er ætlað að vinna að því, að þessi leiði þjóð- ariöstur hverfi, og það er rök- stutt mat manna nú, að starf- semi þess hingað til hafi borið verulegan árangur í þessum efn- um. Með því er stefnt að þvi að eyða því ranglæti sem stundum hefur orðið i skattaálagningum vegna skattsvika.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.