Morgunblaðið - 05.07.1966, Page 4
4
MORGUNBLADIÐ
Þriðjudagur 5. júlí 1966
BÍLALEIGAN
FERÐ
Daggjald kr. 400.
Kr. 3,50 per km.
SfAff 34406
SENDUM
\^» S,M' 3-lí-GO
mnifíff/fí
Volkswagen 1965 og ’66.
LITLA
bíloleigon
Ingólfsstræti 11.
Volkswagen 1200 og 1300.
Slmi 14970
IVIAGIM ÚSAR
SKIPHOLTI21 SiMAR 21190
eftir lokun simi 40381
1 FjÖLVIRKAR SKURDGRdfUfi ]
I
0
v
I
R K
I ÁVALT N N TIL REIÐU.
Siffll: 40450
Fjaðrir, f jaðrablóð, hljóðkútar
púströr o.fl. varahlutír
í margar gerðir bifreiða.
Bílavörubúðin KJÖÐRIN
Laugavegi 168. — Simi 24180.
BOSCH
Þurrkumótorar
24 volt
12 volt
6 volt
Brœðurnir Ormsson
laágmúla 9. — Simi 38820.
'A Heimskuskrif
um skógrækt
„Kæri Velvakandi!
Mér þykir mjög leiðinlegt,
að undanfarið hafa birzt í
dálkum þínum allskonar
heimskuskrif um skógrækt.
Það þykir mér blaði þínu eng-
an veginn samboðið. Mér dett-
ur ekki í hug að fara að kapp-
ræða við bréfritara þína um
gildi skógræktar. Hitt vil ég
segja, að reynslan hefur fyrir
löngu sannað, að hér á íslandi
er hægt að rækta skóg, ef menn
aðeins vilja. Litizt aðeins um
hér í Reykjavík, á Akureyri
og víðsvegar annars staðar um
land, og sjáið, hvað gert hefur
▼erið. Farið austur á Hailorms-
stað, norður í Vaglaskóg, aust-
ur í Skaftafellssýslur, upp í
Borgarfjörð, austur í Hauka-
dal og sjáið hvað þar er að
gerast. Ótal trjátegundir vaxa
og dafna. Látið svo nöldur-
skjóðurnar eiga sig. Þjóðin
hlustar ekki á þær. Nýir skóg-
ar rísa, og fsland verður fall-
egra og byggilegra, en nöldur-
skjóðurnar og úrtölumennina
dagar uppi fyrir brún rísandi
dags.
Þetta veit ég, að þú veizt,
Velvakandi minn, eins og
Valtýr heitinn Stefánsson og
núverandi forystumenn skóg-
ræktarmálanna. I>ess vegna
finnst mér hörmulegt að sjá
blaðrið og þvættinginn, sem þú
hefur verið að birta undanfar-
ið um skógræktarmálin.
Vertu svo blessaður ævin-
lega.
þinn
Gróandi Gróandason".
•Jr Hvar er Sveinbjörn
Ólafsson ?
Velvakanda hefur borizt
bréf frá bandarískri konu, Edith
L. Larson, sem var hér á ferð
seinni partinn í maí. Hún segir
m.a; í bréfi sínu:
„Áður ,en ég fór til fslands,
lofaði ég tveimur systrum í
Warren í Pennsylvaníuríki að
hafa upp á íslenzkum vini
þeirra, sem heitir (eða hét)
Sveinbjörn Ólafsson". Konan
ritar nafnið þannig: Svein-
björnan Olofsson). „Nöfnsystr-
anna og heimilisföng eru:
Mrs Warren Bauer (áður
Mabel Erickson), 607 West
St., Warren, Pa., U8.A.
og
Miss Edith Erickson,
16 Water St., Warren, Pa.,
U.S.A.
Þessi íslenzki vinur þeirra
var við nám í Valparaiso Uni-
versity í Valparaiso í Indiana
fyrir u.þ.b. þrjátíu árum. Hann
fcom þangað frá íslandi. Svein-
björn Ólafsson var góður vin-
ur manns, sem hét Clifford
Strand. Strand var ættaður frá
Kane í Pennsylvania, en var
síðar lögfræðingur og löggiltur
endurskoðandi í Chicago, Ilii-
nois. Hann lézt árið 1960.
Meðan ég dvaldist í íslandi,
hélt ég uppi spurnum um
Sveinbjörn Ólafsson. Ég spurði
um hann í Hótel Loftleiðum,
þar sem ég bjó, ég spurðist fyr-
ir um hann í pósthúsinu, í lög-
reglustöðinni, í manntalsskrif-
stofunni, og ég spurði jafnvel
fólk í strætisvögnum og á göt-
um úti í hinni fallegu og vin-
gjarnlegu höfuðborg ykkar.
Allir tóku kvabbi mínu með
alúð og vinsemd, en allt kom
fyrir ekki. Þó fékk ég . nafn,
heimilisfang og símanúmer
verkfræðings með þessu nafni
hjá manntalsskrifstofunni, en
þegar ég hringdi til mannsins,
kom í ljós, að hann hafði aldrei
til Bandaríkjanna komið.
Mér skilst, að Morgunblaðið
komi fyrir augu flestra íslend-
inga. Þess vegna vona ég, að
Sveinbjörn ólafsson, ef hann
er enn á lífi, lesi þessar Iínur
og skrifi systrunum. Sé hann
hins vegar látinn, þætti mér
vænt um, ef ættingjar haras eða
kunningjar skrifuðu systrun-
um og létu þær vita um afdrif
hans.
Ég vil að lokum nota þetta
tækifæri til þess að koma á
framfæri innilegum þökkum til
allra þeirra, sem hlustuðu á
erindi mitt og sinntu því. Allir
voru reiðubúnir til að greiða
götu mína og vörðu oft miklum
tima til þess, þótt þeir hefðu
ekki erindi sem erfiði. — Kær-
ar þakkir til ykkar allra.
Edith L. Larson,
Box 183,
Ludlow, Pa. 16333,
U.S.A.
A- John Sim er í
Singapore
Velvakanda hefur borizt
bréf frá 18 ára gömlum pilti í
Singapore, sem langar til þess
að eignast bréfavin á íslandi.
Hann skrifar á ensku og segist
hafa áhuga á söfnun frímerkja
og póstkorta með útsýnis- og
landslagsmyndum. Einnig hef-
ur hann áhuga á bókalestri og
því að skiptast á smágjöfum
við bréfavini sína. Nafn hans
og heimilisfang er:
John Sim,
21, Goon Hiang Road,
Singapore 19,
Maiaysia.
A- Skærin og mjólkur
hyrnurnar
„Húsfreyja“ skrifar:
„Ég leyfi mér að þakka ágætt
bréf frá „Afa“, sem birtist í
dálkum Velvakanda í dag
(föstudaginn 1. júlí). Þar er
varað við alls konar hættum,
sem geta verið á vegi ungra
barna innan veggja heimilisins.
Meðal annars vitnar hann 1
hið gamla orðtæki, sem oft var
hamrað á í bernsku minni, að
„hnífar og skæri eru ekki
barna meðfæri". Þessa reglu
hef ég reynt að halda í heiðri
á mínu heimili, en á síðari ár-
um hefur Mjólkursamsalan
gert mér erfiðara fyrir. Hjá
mér er fullt hús af börnum og
margir pottar af mjólk drukkn
ir daglega í eldhúsinu. Þess
vegna eru skærin alltaf á Iofti,
eða síðan „undrapatentið",
hyrnan stórkostlega, kom til
sögunnar. Krakkarnir verða oft
að geta bjargað sér sjálfir, ef
þá langar í mjólk, og þá tjóar
ekki að fela skærin. En þetta
eru nú bara ein óþægindin af
mörgum við þetta hyrnufyrir-
komulag. Hve margir giga-
lítrar á ári skyldu skvettast,
spýtast og gusast upp úr og
fram úr þessum ólánshyrnum?
Það er alveg sama, þó að lag-
inn maður eigi í hlut, alltaf
skal koma pollur á borðið.
Sagt hefur mér verið, að í einu
sambandslýðveldinu í Þýzka-
landi hafi húsmæður afsagt
hyrnurnar og borið því við
sem höfuðástæðu, auk alls
annars, að þær yrðu að bera
skaðann af allri mjólkinni, sem
helltist niður. Þýzkar húsmæð-
ur eru hagsýnar, og því neit-
uðu þær að kaupa hyrnumjólk.
Hvenær skyldu íslenzkar hús-
mæður sýna slíkan samtaka-
mátt og félagsþroska? Mjóikur-
samsalan veit sem er, að það
má bjóða þeim allt, því miður.
Hymukarlarnir þýzku ætluðu
samt ekki að gefa sig strax,
heldur héldu þeir fund með
forsprökkum húsmæðra, neyt-
endasamtaka og blaðamönnum.
Þar ætlaði sjálfur yfir-horna-
Móisesinn að „demonstrera“ —.
sýna viðstöddum, hvernig ætti
að hella mjólkinni á faglegan
hátt í glas, án þess að dropi
færi til spiliis. En viti menn!
Þegar honum hafði tekizt að
læða mjólkurbuninni ofan 1
glasið og er að setja hyrnuna
ofboð varlega frá sér á borðið,
kemur þá ekki snögglega smá-
gusa upp úr henni! Blaða-
mennirnir hlógu sig máttlausa
ásamt húsmæðrunum, og þegar
skýrt var frá þessu í blöðum
og myndir látnar fylgja, var
málið ónýtt í höndum hyrn-
inga. Húsmæður féllust á að
veita hornakörlunum frest
(eða aðlögunartíma, eins og
það heitir víst nú orðið), til
þess að selja allt hornavéla-
draslið (sennilega til Kongó eða
fslands) og taka upp nýtízku
mjólkurumbúðir. Sama ætti að
gera hér.
Húsfreyja**.
HOTEL
ÞÝZKI JAFNVÆGISSNILLING-
URINN CLAUS BECKERS
SKEMMTIR I VÍKINGASALNUM
í KVÖLD OG NÆSTU KVÖLD
Skrifstofustarf
Ougleg stúlka vön vélritun óskast nú
þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Heildverzlun
Páls Sæmundssonar
Laugavegi 18a 5. hæð
r 9 r ALIILIÐA LYFIUÞJÓNUSTA"
' UPPSETNINGAR ■ EFTIRUT
OTISLYFTUR sf.
k A Grjótagölu 7 sími 2-4250