Morgunblaðið - 05.07.1966, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 05.07.1966, Qupperneq 7
Þriðjudagur 5. júlí 19GÍ MORCU NBLAÐIÐ 7 Reiðhestaminningar Jónu Sigriðar HIN gamalkunna hestakona, Jóna Sigríður Jónsdóttir, kom að máli við blaðið nú fyrir skemmstu og bað fyrir ofur- litla minningargrein um tvo látna vini sína, hesta, sem hún átti um langt árabil. Hún kvaðst hafa legið í lungna- bólgu í þrjá mánuði máttlaus í rúminu og auk þess væri hún nú orðin húsnæðislaus og lægi fyrir að bera hana út, því eigandinn þyrfti húsnæð- ið. Minningargrein þessi átti að koma fyrir augu manna miklu fyrr, en ýmislegt hefir tafdð hana. En þótt heilsa Jónu sé ekki sem bezt og á- stæður erfiðar vill hún samt ekki gleyma sínum gömlu vin um. Grein sína nefnir Jóna: Reiðhestaminning um vinina Gullfaxa og Ljóma. Mesti og bezti gleðigjafi, sem okkur mönnunum hefir verið gefinn frá náttúrunnar hendi, er hesturinn. Er þá fyrst og fremst átt við góð- lyndan og vitran reiðhest. Flest okkar, sem búin eru að lifa meira en hálfa öld, þekkj um gæðinginn. Við þekkjum gleðina af þessum mjúku, þýðu hreyfingum í gangi hests ins, sem engin önnur skepna getur veitt. Við, sem saman komum hér í dag, (þetta er minningarræða sem flytja átti þegar Ljómi var felldur), er- um að kveðja hér einn af landsins beztu gæðingum. Ég hef átt því láni að fagna að eiga tvo gæðinga, reglulega góðhesta. í>að er eins með hestana og með mennina, þeir eru misvitrir og mistraustir, alveg eins og mennirnir. Jóna Sigríður með Ljóma sinn. en þá er Ljómi 24 vetra. En allir verða að deyja. Enginn kemst hjá því. Og hvort sem dauðinn er til sorg- ar eða gleði fyrir þá, sem eftir lifa, þá er hann stað- reynd, sem ekki verður um- flúin. En hvort sem um er að ræða mann eða hest, sem fer, þá verður minningin meiri og bjartari, því meira virði sem okkur finnst sá sem farinn er. Myndin er tekin í júlí 1965 það varð að skjóta hann, þar sem hann lá. Ljómi var langt frá því að bera nokkur ör- kuml er mynd var tekin af honum í júlí 1965 (mynd sú fylgir þessari grein), en þá skyldi ég við hann og fór í ferðalag um Norður- og Aust urland. í september kom ég aftur og þá var hann svo lam- aður að hann gat ekki staðið upp. Þegar ég lenti í hrakning- unum á Stóra-Sandi gerðist það að Ljómi minn hljóp frá mér. Hvórt hann hræddist mink, tófu eða svip, veit ég ekki, en hann virtist skyndi- lega verða hræddur, stökk á mig og hrakti mig til hliðar. Þar með var ég gangandi og fór í humátt á eftir honum, því ég vissi að hann myndi fara heim. Og nú eru báðir þessir vin- ir mínir, Gullfaxi og Ljómi fallnir. Það er margs að minnast úr samlífinu við þá, en ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri. Blessuð sé minning þess- ara vina minna. Jóna Sigríður Jónsdóttir. Það urðu örlög Ljóma að hestur gekk svo frá honum að Gullfaxl 11 vetra 1934. Ó, þeasi blíða, daginn út og daginn inn, og sólin vermir mann ekapinn, og þó sáum við í al- manakinu, að eirwnitt í dag er eólin fjærst jörðu. Ja, hvernig skyldi hitinn vera, ef hún væri næst jörðu? Og nú notar fólkið sjóinn og 6Óiskinið af kappi, syndir jafn- vel út fyrir öll sker, flatmagar 1 fjörunni og kroppararnir litast brúnir, öllum til heilsubóta og þó nokkrum til augnayndis. En á leið minni í borgina í gær, hitti ég sóilbrúnan mann sem sat á brékkubrúninni hjá Artúni og virtist hafa sitthvað á samvizk- unnL Storkurinn: Er eitthvað, sem íþyngir þér í þessari blíðu, manni minn? Maðurinn á brekkubrúninni: Já, og einkanlega þessar bið- raðir, sem myndast, þegar bif- reiðar þurfa að komast inn í borgina eða úfcúr, einikanlega pó um helgar. Þetta er hreint vandræðaástand, sem úr verður að bæta strax, því að áreiðan- lega er of langt að bíða eftir „heildarskipulaginu“ með sína Fossvogsbraut. Mætti ekki gera annan veg til bráðabirgða, sem tæki við umferðinni að austan við hlið hinna tveggja? Auðvitað þyrfti að byggja brú til bráðabirgða, yfir Elliðaár, en annað eins hefur nú verið gert. Þetta er alveg rétt athugað hjá þér, og hafðu sæli mælt, sagði storkur, og reyni nú einu sinni vegayfirvöldin að sýna, að það þurfi ekki að taka mörg ár að framkvæma svona lítilræði, og með það flaug hann upp á „silóið" hjá Steypustöðinni, sem selur okkur gæðasteypuna, sem máski mætti nota í brúna nýju yfir árnar. FRÉTTIR Kvenfélag Lágafellssóknar, MosfelLasveit, fer skemmtiferð mánudaginn 11. júlí. Farið verð- ur til Vatnsfjarðar. Gist í Bjark- arlundi og Reykhólum. Einnig stanzað í Búðardal í boði kven- félagsins þar. Ferðin tekur 2 til dag. Þátttaka tilkynnist sem fyrst til Ólafiu, Laugabóli, Krist- ínar sími 13259, Ingerðar sími 36043, sem veita allar upplýs- ingar. Kvenfélag Laugarnessóknar minnir á saumafundinn miðviku dagskvöldið 6. júlí. Stjórnin. Fóta aðgerðir í kjallara Laugarnes- kirkju falla niðuc i júlí og ágúst. Kvenfélag Laugarnessóknar. KVENFÉLAGIÐ KEÐJAN. Fyrirhuguð skemmtiferð félagsins er ákveðin þriðju daginn 5. júlí. Upplýsingar í símum 36441, 36451 og 13120 sunnudaginn 3. júlí, í dag, frá klukkan 10—6. Kvenfélag Langholtssafnaðar fer í skemmtiferð þriðjudaginn 5. júlí. Farið verður frá Safn- aðarheimilinu kl. 9. árdegis. Far- ið verður um Þingvelli til Borg- arfjarðar. Upplýsingar í símum 33395, 34095 og 32646. Ferða- nefndin. Kvenfélag Asprestakalls fer skemmtiferð í Þjórsárdal þriðju- daginn 5. júlí. Lagt af stað frá Sunnutorgi kl. 9. árdegis og kom ið aftur kl. 10 að kvöldi sama dags. Tilkynnið þátttöku í sím- um 31191, (Rósa), 32543 (Guð- munda) og 32195 (Guðrún) Stjórnin. ALMENN FJÁRSÖFNUN STENDUR NÚ YFIR TIL HÁTEIGSKIRKJU Kirkjan verður opin næstu daga kl. 5—7 og 8—9 á kvöldin. Sími kirkjunnar er 12 4 0 7. Einning má tilkynna gjafir í eftirtalda síma: 11613, 15818, 12925, 12898 og 20972. Ódýrar kvenkápur til sölu, staerðix frá 34—46. Sími 41103. íbúð óskast Tveggja herberga íbúð ósk ast. Upplýsingar í sima 37361. Stúlka óskast til afgreiðslustarfa. Vakta- vinna. Uppl. í síma 16660 kl. 10—4 í dag. Brauðborg Frakkastíg 14. Meiraprófsbflstjóri óskast strax. Sími 20969. Til leigu 4ra herb. íbúð í fjölbýlis- Ihúsi í Ljósheimum, sér- þvottahús á hæðinni. Árs- fyrirframgreiðsla. Uppl. í síma 36720 mil'li kl. 5—6. íbúð eða tvö herbergi með eld- húsaðgangi óskast til leigu í Reykjavík handa 3 dönsk uim arkitekt-stúdenitum, (2 stúlkur og karhnaður) frá 5. júlí til 25. sept. Uppl. í síma 13013 kl. 9—12. Ibúð óskast Óska eftir 2ja herb. íbúð sem fyrst, helzt með sér- inngangi. Tilboð sendist Mbl., merkt: „8923“. Ung stúlka (16 ára) óskar eftir vinnu á kvöldin. Er vön af- greiðslu, margt annað kem- ur til greina. Uppl. í síma 19772 milli 7 og 8 á kvöld- in. A T H U G I » Þegar miðað er við útbreiðslu, er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu en öðrum blöðum. Til sölu Volkswagen ’63. Uppl. í sima 51249. Túnþökur til sölu vélskornar. UppL í 41896 og 22564. síma Til leigu er rúmgott herb., eldhús, þvottahús, geymsla og bað á Patreksfirði fyrir mið- al-dra fólk. Shni 167, PatTeksfirðL P 544 Volvo ’64 árgangur, til Uppl. í síma 4177L sölu. Unglingspflt van-tar til verzlunarstarfa. UppL í síma 12555 kl. 3—5 e. h. Einbýlishús eða 5-6 herbergja íbúð óskast frá 1. ágúst nk. — Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: „Ágúst — 8920“. Tiésmiðii — Veikstæði Plastlagðar spónaplötur, margar tegundir. MAGNÚS JENSSON H.F. Austurstræti 12. — Sími 14174. Iðja, félag verksmiðjufólks FÉLAGSFUNDUR verður haldinn miðvikudaginn 6. júlí 1966, kl. 8,30 e.h. í Iðnó. DAGSKRÁ: SAMNINGARNIR Stjórnin. Eignarland Til sölu eru ca. 10—15 ha. lands á góðum stað ca. 100 km. frá Reykjavík. Hitavatnsréttindi fást kaypt með ef óskað er. — Landið liggur að veiðiá. Nánari upplýsingar gefur. Mýja fasteignasalan Laugavegi 12 — Sími 24300.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.