Morgunblaðið - 05.07.1966, Qupperneq 11
Þriðjudagur 5. júlí 19W
MOnCUNBLADID
11
borgararétti. Ég hlustaði á hann
halda ræðu og svara fyrirspurn-
um á fundi fyrir nokkru og hvað
sem heilbrigði hans líður var
fróðlegt á hann að hlýða. Hann
var spurður að því hvernig það
mætti vera, að kjörsókn í landi
hans, Sovétríkjunum, væri svo
mikil og almenningur svo sam-
mála um frambjóðendur, að milli
99% og 100% kysu þann eina
lista, sem í framboði væri. Hann
svaraði því til» að hann hefði
eitt sinn sjálfur starfað í kjör-
stjórn. Hún settist niður og byrj-
aði að drekka vodka. Þegar leið
að kvöldi fóru þeir að ræða um
það, hvað þeir ættu að segja,
að kjörsókn hefði verið mikiL
„Ja, við skulum segja 97,4%.“
Síðan var það ákveðið og hald-
ið áfram að drekka vodka. Ekki
skal ég segja um, hvort þetta
er satt, þó að það bregði mann-
legri blæ á margt það, sem þarna
gerist og sýni, að ekki megi taka
það alltof alvarlega. Hitt verður
að taka alvarlega og það ræður
úrslitum: Þessi maður var einn
ig spurður, hvernig á því stæðL
að fólkið unir bessu og hann svar
aði: f nútímaþjóðfélagi, þar sem
sterkur her er fyrir hendL er
ekki nokkur leið að gera bylt-
ingu. Meðan ríkisstjórnin hefur
herinn með sér er hún örugg í
sessi. — Um þessa skýringu þarf
ekki að efast. Þetta er alveg það
sama og sannaðist í Mið-Evrópu
á timum nazisla.
Um þetta er hollt að hugsa,
þegar við erum nýbúin að kjósa
og ár er til næstu kosninga. Hér
getur enginn verið fyrirfram
viss um sigur. Of mikil sigur-
vissa og það, að þykjast góður
af verkum sínum getur haft al-
varlegar afleiðingar í för með
sér. Ýmsir hafa gert mikið úr
þvL að Sjálfstæðisflokkurinn
hafi tapa'ð atkvæðum í nýafstöðn
um borgarstjórnarkosningum í
Reykjavík. Mér virðist þó að
mestu máli skipti, að við unn-
um þessar kosningar. Við unnum
orustuna. Fleiri eða færri at-
kvæði skipta ekki svo miklu máli
í samanburði við það. Við get-
um hins vegar látið okkur það
að kenningu verða og til brýn-
ingar að ári, að svo litlu mun-
aðL Við vorum of sigurviss, viss-
um að við höfðum gert vel og
jafnvel andstæðingarnir sögðu
okkur vissa um sigur. En þótt
litlu munaði sýndu úrslitin nú,
að það er komið undir okkar eig-
in baráttuhug, hvort við vinn-
um sigur í Aiþingiskosningun-
um að ári. Baráttan verður hörð
og ef við leggjum okkur ekki
öll fram kann sigurir.n að ganga
okkur úr greipum.
* Að ári liðnu eigum við að
kjósa um það, hvort valfrelsið
eigi að vera borgaranna sjálfra
e'ða einhverra yfirvalda. Þær
fjölmörgu konur, sem hér eru
geta ráðið því með atkvæði sinu,
hvort þær fá að velja sér sínar
eigin vörur eða hvort einhverjir
menn á stjórnarskrifstofum eiga
að skammta þekn að sinni vild.
Ég held, að ef almenningur átt-
ar sig á þvL að þess eigið val-
frelsi er 1 veðL þurfum við engu
að kvíða. En fólkið verður að
skilja, hvað er undir þess eigin
atkvæði komið. Þess eigin gæfa
og vellíðan er í húfi. Með því að
velja það, sem því sjálfu er fyr-
ir beztu velur það þann veg,
sem er íslandi farsælastur."
Hluti þátttakenda við Skógafoss þar sem hádegisverður var snæddur.
Árni Óla ritstjóri var leiðsögumaður í ferðinni og lýsti þeim
héruðum, sem farið var nm. Hér ræðir hann við Ásgeir frá
Æðey.
Ihægt að yfirstiga, ef sanngjam-
Qega er að því unnið. Landbún-
aðarráðherra sagðist stundum
Ihafa verið sakaður um það að
draga taum bændastéttarinnar
um of. Hann sagði að það væri
rangt, hann vildi aðeins að bænd-
ur hefðu lífskjör til samræmis
við aðrar stéttir.
Dvalizt við Skógafoss
Síðan var haldið áfram i einni
Uotu að Skógafossi, ekið um
Þjórsárholtin, eitt hið mesta og
írjósamasta samfellda gróður-
Band hér á landi. 'Neðst í því
landi er Safamýri, nafntogaðasta
engi landsins, sem stundum gaf
ef sér eitt þúsund kúafóður.
Þegar komið var að Skógafossi
var hádegisverður fram borinn
og síðan flutti Bjarni Benedikts-
eon, forsætisráðherra ræðu þá,
sem skýrt er frá annars staðar
í blaðinu í dag. Þá tók til máls
Þórður Tómasson, safnvörður á
Skógum. Lýsti hann nokkuð
staðháttum og byggðasafninu að
Skógum, en síðan fóru þátttak-
endur í Varðarferðinni að Skóg-
um og skoðuðu hið myndarlega
byggðasafn, sem þar hefur verið
komið upp. Eftir tveggja
klukkutíma dvöl að Skógum var
snúið við og ekið að Seljalands-
fossi, sem þátttakendur skoðuðu,
síðan sem leið liggur um Fljóts-
hlíðina. Höfð var stutt viðstaða í
Múlakoti, og loks haldið áleiðis
heim á leið, en stanzað í Varma-
dal nálægt Hellu, þar sem kvöld-
verður var snæddur. Þar ræddi
Árni Óla um Rangártþing. 1
Reykjavík var svo komið kl.
10.30 um kvöldið. Það voru
þreyttir en ánægðir sferðalangar
sem stigu út úr hinum 25 lang-
ferðabifreiðum við Austurvöll
um kvöldið, eftir velheppnaða
og ánægjulega Varðarferð. Sum-
arferðir Varðar njóta nú vaxandi
vinsælda og eru án efa fjölmenn-
ustu hópferðir sem farnar eru
hér á landi, og eru þær Varðar-
félaginu til hins mesta sóma.
— Ræða Bjarna
Framh. af bls. 1
Það er ekki einungis fljótfarn-
ara um okkar land nú, heldur
erum við fljótari milli landa.
Margir koma nú til íslands lang-
ar leiðir. Fyrir nokkrum vikum
var staddur í Reykjavík maður,
sem hefur verið gerður útlægur
frá sínu landi. Slíkir útlagar eru
ekki margir nú á dögum, en
skýringin, sem okkur er gefin á
útlegð hans er sú, að þessi mað-
ur sé ekki með fullu viti og er
það óneitanlega nokkuð frumleg
ástæða fyrir a'ð svifta mann
— Konungsríkið
Framhald af bls. 1S.
eru kostaðar af sjóðum, sem
myndaðir hafa verið af olíu-
tekjunum, og með aðstoð banda
rískra, japanskra og franskra
jarðfræðinga.
Það er sérstaklega mikil-
vægt að finna leiðir til vatns-
öflunar í landi, þar sem sums
staðar fellur aldrei dropi úr
íofti og þar sem hvergi er vötn
eða ár að finna. Án vatns mun
ekki verða unnt að iðnvæða
landið að nokkru ráði eða auka
ræktun, en þetta er mjög þýð-
ingarmikið í landi, sem leitast
við að finna Bedúínum sínum
samastað og sem verður að
flytja inn 80% af matvælum
sínum.
Það hefur verið vitað um
langt árabil, að mikið vatns-
magn er neðanjarðar í Saudi-
Arabíu. Sumir sérfræðingar eru
þeirrar skoðunar, að það sé
meira en nægilegt til að breyta
öllum skaganum í grænar
grúndir, aðeins af unnt verði
að ná því upp á yfirborðið.
Á einum stað neðanjarðar
undir eyðimerkursöndunum
suður af Riy&dh er talið vera
svo mikið vatnsmagn, að það
sé meira en í öllum Persaflóa.
Ríkisstjórn Saudi-Arabíu er
nú um það bil að hefjast handa
við tilraunir til að láta nýta
þetta mikla vatnsmagn, en
mörgum árum hefur verið eytt
í skriffinnsku við undirbúning-
inn. Það var ekki fyrr en á ár-
inu 1964, sem fyrsti samning-
urinn var undirritaður um
rarinsóknir og ieit að vatni neð-
anjarðar. Þessar athuganir
hafa nú staðið. yfir í eitt ár.
Þrjú til fjögur ár munu líða
þar til allt landið hefur verið
kannað og niðurstöður rann-
sóknanna liggja fyrir.
Hvað tekur við af konunginum?
Það er mjög erfitt fyrir þann
sem heimsækir Saudi-Arabíu
að greina nokkur merki um
stjórnmálalegan óróa þar, að
nokkru leyti vegna þess að
mestur hluti fólksins hefur lít
inn áhuga á breytingum, jafn-
vel hinir órósömu verkamenn
í olíustöðvunum og borgunum
eru aðeins lítið brot af þjóð-
inni í heild. Fyrir fáeinum árum
heyrðust þær raddir á Vest-
urlöndum, að til blóðugrar upp
reisnar hlyti að koma fyrr eða
síðar. En í dag heyrist minna
um það.
Ein ástæðan er sú, að fólk
finnur ekki til stjórnmálalegr-
ar kúgunar, í íardinu er ekki
það sama andrúmsloft lögreglu-
ríkis og vart verður í þróaðri
löndum eins og til dæmis
Egyptalandi. Pólitískir fangar
eru í Saudi-Arabíu, en þeir eru
fáir.
Faisal konungur hefur einnig
gætt ítrustu varkárni í stjórn
sinni og meðferð á hernum.
Eins og í flestum löndum í
þessum heimshluta eru það
liðsforingjarnir í hernum, sem
líklegastir væru til að ógna
valdi Faisals. Konungurinn
hefur nákvæmt eftirlit með
hernum, sem er þjálfaður af
bandarískum hernaðarsérfræð-
ingum um þessar mundir. Þeir
liðsforingjar, sem hugsanlegt
er að einhver hætta kunni að
stafa af, eru fiarlægðir í kyrr-
þey.
Hvað muni gerast í Saudi-
Arabíu að Faisal horfnum er
ómögulegt að spá fyrir um.
Ríkiserfinginn, Khaled krón-
prins, sem er vngri bróðir kon-
ungsins, ei almennt álitinn dug-
lítQL Valdabarátta milli ann-
arra meðlima konungsættar-
innar gæti fylgt í kjölfarið og
árangurinn orðið ný stefna
fyrir Saudi-Arabíu.
En svo lengi sem Faisal verð
ur við völd er líklegt að Saudi-
Arabía haldi áfram á þeirri
braut, sem nú er farin. Hæg-
fara en ákveðinni stefnu verð-
ur fylgt í áttina til forystuhlut-
verks í Miðausturlöndum.
<Þýtt úr U.S News & World
Report).
Til leigu
4ra herbergja íbúð við Nóatún til leigu. —
Einhver fyrirframgreiðsla. — Tilboð leggist inn á
afgr. Mbl., merkt: „Leiga — 8919“ fryir 10. þ.m.
Ferðaklæðnaður
FYRIR UNGA FÓLKIÐ
Flauelsblússur
Röndóttir sportbolir
Mjaðmabuxur
Hinir sænsku
CRESCENT
utanborðsmótorar
eru mest seldu utanborðsmót-
orarnir í Evrópu, enda viður-
kenndir fyrir gæði og verðið
mjög hagstætt.
Höfum nú á boðstólum eftir-
taldar stærðir:
4 hestafla kr. 6.841,00
8 hestafla kr. 13.364,00
25 hestafla kr. 24.944,00
VARAHLUTIR —
VIÐGERÐARÞJÓNUSTA
Gisti J. Johnsen hf.
Vesturgötu 45 — Sími 12747.