Morgunblaðið - 05.07.1966, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 05.07.1966, Qupperneq 14
14 MORGU N B LAÐIÐ Þriðjudagur 5. júlí 1966 Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Ritst j órnarf ulltrúi: Auglýsingar: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 105.00 i 1 lausasöiu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstrseti 6. Aðaistræti S. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakiff. RÆKTUNARSAM- BÖNDIN 20 úra Á rið 1945 voru sett lög um jarðræktar- og húsagerð- arsamþykktir í sveitum. Flutningsmenn frv. voru Jón Sigurðsson á Reynistað, Bjarni Ásgeirsson og Pétur Ottesen. Á árinu 1946 var svo sett reglugerð um fram- kvæmd þessara laga og sama ári voru stofnuð fyrstu ræktunarsamböndin á grund' velli laganna. Árni G. Eylands hefur ný- lega rætt þýðingu ræktunar- sambandanna í ágætum greinum hér í blaðinu. En aðalnýmæli laganna voru þau að búnaðarsambönd, eða hluti af sambandi, gátu sett sér ræktunarsamþykkt. Að slíkri samþykkt samþykktri gátu þau ræktunarsambönd eða ræktunarfélög er þannig komust á fót hlotið framlag til kaupa á ræktunarvélum til félagsnota, eftir því sem Verkfæranefnd ríkisins áætl- aði þeim, og taldi nauðsyn- legt. Var í þessu skyni lögð fram veruleg upphæð frá ríkinu. Bændur tóku myndarlega á móti þessari nýju löggjöf. Fyrsta ræktunarsambandið sem stofnað var á grundvelli hennar var Ræktunarsam- band Skagfirðinga. En sam- tals voru stofnuð 65 ræktun- arsambönd, sem náðu til flest allra jarða, sem þá voru í byggð á landinu. Ræktunar- samböndin höfðu síðan for- ystu um stórfellda ræktun í sveitum landsins. Þau áttu ríkastan þátt í að bændur tóku hina nýju tækni í þjón- ustu sína, í senn til ræktun- ar og annarra bústarfa. Til þess er vissulega rík ástæða að fagna þeirri stað- jreynd að túnþýfinu hefur að mestu verið útrýmt á íslandi. í stað þeirra eru komnar rennisléttar og arðgæfar flat- ir. Meginhluti allra túna í landinu er orðinn véltækur. Sveitirnar hafa þannig á þeim tuttugu árum sem rækt- unarsamböndin hafa starfað breytt að verulegu leyti um svip. Ræktunarbúskapur er kominn í stað gamla engja- heyskaparins. Landið er orð- ið'betra og byggilegra. Yfir þessum staðreyndum í ræktunarmálum hvílir aðeins sá skuggi að framleiðsla ein- stakra tegunda landbúnaðar- afurða virðist nú í bili vera orðin of mikil. Veldur það bændastéttinni og þjóðinni í heild í senn erfiðleikum og á- hyggjum. En í þessu sam- bandi ber þó að gæta þess að þjóðinni fjölgar ört, og víðs vegar um heim ríkir mikill og tilfinnanlegur skortur á matvælum. Á það verður einnig að leggja mikla á- herzlu að íslenzk landbúnað- arframleiðsla verði fjölbreytt ari en hún er í dag. Margar þjóðir eiga við svipaða erfið leika að etja í landbúnaðar málum sínum og við íslend- ingar eigum nú. Okkar vand- kvæði á þessu sviði eru vissu- lega ekkert einsdæmi. Engu að síður verður að snúa sér að því að leysa þau af festu og raunsæi. En framhjá þeirri staðreynd verður ekki gengið, að hin mikla ræktun síðustu áratuga hefur verið framfara- og heillaspor, sem gert hefur landið betra og byggilegra, og mun skila því fegurra og arðgæfara í hend- ur framtíðarinnar. ÞJÓÐVILJINN TVÍSAGA Ij’ins og Morgunblaðið benti ^ á fyrir nokkrum dögum hefur hlutur félaga í greiðslu heildarútsvara aukizt úr 24% árið 1960 í 26,8% 1966. Eru þá veltuútsvör meðtalin 1960 og aðstöðugjöld 1966. í ramma- klausu á forsíðu kommúnista- málgagnsins sl. sunnudag seg- ir, að þessi reikningsaðferð sé röng og síðan segir blaðið: „En aðstöðugjöldin eru á engan hátt sambærileg við út svör, þau eru reiknuð út frá umsvifum fyrirtækja án til- lits til afkomu þeirra og fyr- irtækin láta þau fara beint út í verðlagið — viðskipta- vinirnir borga. Aðstöðugjöld- in eru hliðstæð söluskatti, fyrirtækin greiða þau gjöld ekki í raun og veru, heldur innheimta þau aðeins fyrir borgarsjóð. Ef reikna ætti að- stöðugjöldin með væri miklu rökréttara að bæta þeim við útsvarsupphæð þá, sem al- menningur greiðir“. Þessi ummæli kominúnista- blaðsins eru athyglisverð vegna þess, að þegar fjárhags- áætlun Reykjavíkur var af- greidd um síðastliðip áramót lögðu fulltrúar kommúnista í borgarstjórn tij að aðstöðu- gjöld yrðu hækkuð um 45 milljónir, í 175 milljónir úr 130 mjlljónum eins og gert var rað fyrir í fjárhagsáætl- uninni. Við aðra umræðu um fjár- hagsáætlun Reykjavíkurborg- ar hinn 6. janúar sl. flutti Guðmundur Vigfússon ræðu, sem birt var í Þjóðviljanum 8. janúar sL, en þar sagði þessi borgarfulltrúi komm- únista um aðstöðugjöldin: „Sjálfstæðisflokkurinn held ur enn gjaldskrá aðstöðu- VŒJ UTAN ÚR HEIMI Johnson og sjdnvarpið Johnson flytur sjónvarpsræð u úr nýja ræðustólnum. Ef Myndin prentast vel má greinilega sjá speglana, sem hann les ræðuna af. Sjónvarpstækni Joihnsons Bandaríkjaforseta hefur tek- ið miklum stakkaskiptum síðan hann tók fyrst við em- bætti. Landar hans hafa séð hann sem góðan þægilegan viðræðanda, séð hann halda formlegar ræður fyrir sam- einuðu þingi, sjónvarpað hef- ur verið blaðamannafundum beint frá Hvíta Húsinu og öðrum stöðum þar sem for- setinn hefur haldið fundi með fréttamönnum. Bandaríkjamenn hafa einn- ig séð hann gera tilraun til a ð nota augnlinsur í stað gleraugna, en þær gáfu hon- um svo óþægilegí og fjar- rænt augntillit að hann gafst upp og notar nú gleraugun sín aftur. Eftir að Johnson gekkst undir galluppskurð- inn, virðist hann grennri, al- varlegri og atorkusamari. Hann hefur lagt sig allan fram með að losa sig við hina svo nefndu „afa fram- komu“ þegar hann stendur fyrir framan sjónvarpstöku- vélarnar, þó að framkoma hans sé óbreytt í daglega líf- inu. Á þeim tíma sem tekið hefur að þróa sjónvarpsper- sónuleika forsetans bafa margar athyglisverðar til- raunir verið gerðar til þess að fullkomna tækniútbúnað- inn sem notaður er við sjón- varp frá Hvíta Húsinu og til að bæta tóninn í rödd forsetans. Undarlegasta tiltækið á þessu sviði var hátalarinn sem notaður var er hann skýrði frá styrjaldarskuld- bindingum Bandaríkjahers í Vietnam s.l. sumar. Sjónvarp- að var frá samkvæmissal Hvíta Húsins og var hátal- arinn, sem hékk upp yfir ræðustólnum, eins og heljar- mikill sólskermur í laginu. Minnti hann menn helzt á sólskermina sem tígrisdýra- veiðimenn á Viktoríu-tímabil inu notuðu til að skýla sér gegn sólinni í Indlandi. Fannst sumum að þessi út- búnaður í Hvíta Húsinu væri með viðeigandi heimsveldis- blæ yfir sér. Forsetinn hefur nú fengið mjög fullkominn ræðustól, sem sagt er að sé teiknaður af Marvin Watson, ednum af ráðgjöfum forsetans. Er stóll inn úr dökkum valhnetuvið og forsetainnsiglið framan á honum. Stólinn er hægt að taka í sundur á nokkrum stöðum, til þess að auðvelt sé að flytja hann um borð í „Air Force One“ einhverja af Bo- eing 707 þotunum, sem for- setinn notar til ferðalaga sinna. Mjög nákvæmt hátal- arakerfi er innbyggt í ræðu- stólinn svo og tvær rafmagns knúðar spólur sem myndsegul bandi með ræðu forsetans er undið upp á áður en sjón- varpstakan hefst. Þegar svo sjónvarpsáhorfendur sjá for- setann á skerminum, virðist þeini sem hann horfi beint í augu þeirra. En um leið og Johnson talar les hann ræð- una af tveim gegnsæjum speglum, sem komið er fyrir vinstra og hægra megin við hann. Einu sinni urðu tækni- manninum, sem stjórn- aði tækjunum á eirahver mistök, sem ollu því að forsetinn las sömu setn- inguna tvisvar. Sagan skýrir ekki frá ördögum mannsins. Efst á ræðustólnum er kændega komið fyrir ljósa- perum. Styrkleiki þeirra er nákvæmlega útreiknaður til þess að hitinn frá þeim hafi ekki óþægileg áhrif á for- setann, blindi hann eða varpi á hann leiðinlegum skugg- um, þannig að hann komi sem bezt fyrir á skerminum. Þó að Watson fál míkið hrós hjá blaðamönnum fyrir þessa miklu hugvitssemi, gagnrýna þeir hann harðlega fyrir ýmislegt annað sem hann er sagður hafa komið til leiðar. Til dæmis er hann grunaður um að hafa skipu- lagt og séð um uppsetningu á hlustunarkerfi á símum hj* starfsfólki Hvíta Húss- ins, þannig að hægt sé að hafa eftirlit með við hverja þeir tala og hvenær. Sagt var Framhald á bls. 21 gjalda langt fyrir neðan lög- leg mörk á sama tíma og út- svarsstiginn verður greini- lega nýttur til bins ýtrasta. Þannig er enn sffeitzt við að vernda fra'gsmuni verzlunar- auðmagnsins og annarra at- vinnurekenda á kostnað al- mennra útsvarsgreiðenda... “ Þetta dæmi sýnir einkar glögglega • starfsaðferðir kommúnista. í janúarmánuði leggja þeir til hækkun að- stöðugjalda og segja að Sjálf- stæðisflokkurinn neiti því, „þar sem höfuðverkefni hans sé að standa á verði um hags- muni verzlunarauðvaldsins og atvinnurekenda almennt." í júlímánuði segja komm- únistar, að almenningur greiði aðstöðugjöldin, þar sem þeim hentar nú betur að láta líta svo út sem atvinnu- fyrirtækin innheimti aðstöðu- gjöldin aðeins af almenningi eins og söluskattinn, en greiði hann ekki sjálf. En samkv. röksemdum þeirra nú virðast þeir hafa lagt áherzlu á það um sl. áramót að auka útsvars byrði Reykvíkinga um 45 millj. Kommúnistar svífast þannig einskis í málflutningi sínum og skeyta engu því sem þeir sögðu í gær ef annað hentar þeim betur í dag. VERÐLÆKKUN Á LÝSI OG MJÖLL Itlarkaðsverð á lýsi og mjöli lækkar enn eins og skýrt var frá í Mbl. sl. sunnudag og er fyrirsjáanlegt að taprekst- ur verður hjá síldarverk- smiðjunum í sumar, ef selja verður síldarlýsið á núver- andi markaðsverði. Þessar fregnir undirstrika enn einu sinni þær miklu sveiflur, sem orðið geta í sjáv arútvegi okkar og að ógerlegt er að byggja lífsafkomu þjóð- arinnar á honum einum. Síldveiðarnar hafa gengið vel undanfarin ár og mark- aðsverð á síldarafurðum hef- ur verið hátt. En sú verð- lækkun, sem nú á sér stað mun óhjákvæmilega hafa veruleg áhrif á rekstraraf- komu síldarverksmiðjanna. Þeim hefur vegnað vel síð- ustu ár, en verðiækkunin nú sýnir nauðsyn þess að þeim sé gert kleift að safna nokkr- um sjóðum á góðum árum til þess að mæta erfiðleikum sem þeim, er nú steðja að.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.