Morgunblaðið - 05.07.1966, Qupperneq 28
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
iiangstærsta og
íjölbreyttasta
blað landsins
149. tbl. — Þriðjudagur 5. júlí 1966
Fulltrúarnir á fundi meinafræðingafélaganna. Talið frá vinstri: Prófessor Löfström frá Upp-
sölum, prófessor Teir frá Helsingfors, prófessor Ólafur Bjarnason, prófessor Siim frá Kaup-
mannahöfn, prófessor Hultquist frá Uppsölum og prófessor Myhre frá Osló.
(Ljósm.: Ingim. Magnússon).
Formenn meinafræði ngafélaga
á Norðurlöndum þinga í Reykjavík
Á LAUGARDAG og sunnudag
var haldinn hér í Reykjavík
fundur formanna meinafræð-
ingafélaga á Norðurlöndum, en
slíkir fundir eru haldnir árlega
til skiptis í löndunum. Var þetta
í fyrsta skipti, sem slíkur fund-
ur er haldinn hérlendis.
Fundinn sátu sex fulltrúar,
prófessor Löfström frá Uppsöl-
um, prófessor Teir frá Helsing-
fors, prófessor Ólafur Bjarnason
prófessor Siim frá Kaupmanna-
höfn, prófessor Hultquist frá
Uppsölum og prófessor Myhre
frá Osló.
Fundum formannanna lauk í
fyrrakvöld, en á þeim var m.a.
rætt um útgáfustarfsemi hinna
norrænu meinafræðingafélaga.
Félögin gefa út rit. er nefnist
Acta pathologica et microbiolog
ica Scandinavia. Þá var rætt um
undirbúning að allsherjarþingi
meina- og sýklafræðinga á Norð-
urlöndum, sem haldið verður í
Kaupmannahöfn næsta ár og
kennslutilhögun í þessum fræði-
greinum, bæði fyrir stúdenta og
lækna. Einnig var rætt um þátt-
töku landanna í alþjóðastarf-
semi þessara fræða.
Prófessor Ólafur Bjarnason sit
ur þennan fund sem formaður
Félags íslenzkra meinafræðinga
og sagði hann blaðinu í gær-
kvöldi, að samstarf við meina-
fræðinga á Norðurlöndum hefði
mikla þýðingu fyrir íslendinga,
ef verða mætti til að stuðla
að aukningu á rannsóknarstarf-
semi á sviði læknisfræði hér-
lendis. Ólafur taldi það vafa-
laust, að framtíðarþróun lækn-
isfræðinnar myndi að verulegu
leyti fara fram innan veggja
hinna ýmsu rannsóknarstofn-
anna, en hér á landi væri mikil
þörf á aukningu alls kyns laekn
isfræðilegrar rannsóknarstarf-
semi.
Síldveiðar stöðvaðar um
sinn við \'orður-More()
Þrær síldarverksmiðja þar yfiríullar
MJÖG góð síldveiði hefur
verið við Norður-Noreg að
undanförnu. Þann 30. júní
voru þrær síldarverksmiðj-
anna á þessu svæði fullar og
var þá gefin út tilkynning til
síldveiðimanna við N-Noreg
um að stöðva veiðarnar fyrst
um sinn, þar til verksmiðjurn
ar gætu aftur tekið á móti
sildinni.
Síldveiðar við Suður-Noreg
og við Hjaltland hafa einnig
gengið mjög vel, þó var afli
tregur síðustu viku júnímán-
aðar á því svæði, en í byrjun
júlí fór aftur að aflast vel og
eru veiðihorfur taldar góðar.
Alvarlegt umferS'
arslys «x AkureyrS
Akureyri, 4. júlí.
ALVARLEGT umferðarslys varð
hér í bæ um kl. 7 á laugardags-
kvöld. Tíu ára drengur hjólaði
eftir gangstíg, sem liggur út á
Þingvallastræti milli húsanna nr.
32 og 34.
Um leið og drengurinn kom út
á götuna ók fólksbíll niður eftir
Þingvallastræti. Drengurinn lenti
fyrir bílnum, kastaðist upp á
vélarhúsið og skall með höfuðið
á framrúðuna.
Er það til marks um hið mikla
höfuðhögg, sem drengurinn fékk,
að rúðan mölbrotnaði og karmur
inn dældaðist nokkuð.
Síldaraflinn norðanlands
og austan 123,641 tonn
Nálægt þriðjungi meira en á sama tíma
í fyrra - Barði NK aflahæstur með 2,545 t
Heildarsíldaraflinn norðan-
lands og austan nam á miðnætti
laugardags 123.641 tonni
(1.236.410 tunnum) og hafði
nær eingöngu farið i bræðslu. Á
sama tíma í fyrra var heildar-
aflinn 86.948 tonn. Þrir afla-
hæstu bátarnir eru Barði NK
með 2.545 tonn, Jón Kjartans-
son 2.511 tonn og Þórður Jónas-
son EA 2.414 tonn.
Tölur þessar eru sam-
kvæmt upplýsingum, sem Fiski-
félag íslands hefur fengið og hér
á eftir fer yfirlit þess um veið-
arnar s.l. viku:
Sláttur víðast hvar
Horfur um sprettu
að hefjast
misjafnar
SLÁTTUR er nú um það bil að
hefjast víðast hvar á landinu.
Yfirleitt hefur spretta verið
fremur sein, en rætzt hefur úr,
er á leið júnímánuð. Til þess að
fá fregnir af slætti og horfum í
þeim efnum hefur Mbl. átt sam-
band við nokkra fréttaritara sína
úti á landi.
í Kjós eru nokkrir bændur
byrjaðir að slá, að því, er Steini
Guðmundsson á Valdastöðum
tjáir blaðinu, og eru horfur á
sprettu góðar, en þó nokkuð ber
á skemmdum í túni.
í Miklaholtshreppi í Snæfells-
nesi eru að sögn Páls Pálssonar
á Borg nokkrir bændur byrjaðir
að slá, en þó í litlurn mæli. Hann
kvað grassprettu ákaflega mis-
jafna og sums staðar með versta
móti. í>ar sem raklönd eru kvað
2. deild
í KVÖLD fer fram leikur í 2.
deild á Melavellinum kl. 8.30.
Mætast þá Víkingar og Haukar.
hann nokkuð bera á kali.
Þórður Jónsson á Látrum í
Rauðasandshreppi í Barða-
strandarsýslu segir, að sláttur sé
hafinn á einstaka bæjum þar í
sveitum, og lítur heldur vel út
með grasvöxt. Landið þar vestra
er töluvert sendið og þurrlent,
en í vor var mikill -raki í jörðu,
auk þess sem mikið rigndi um
hvítasunnuna, svo að útlit um
grassprettu er gott. Kvað hann
slátt_ almennt hefjast um næstu
helgi. A sjösofandanum var
veður gott, þurrt og stillt, svo
að það spáir góðu um veður
fram til höfuðdags, en Þórður
kvað menn taka mikið mark á,
að ef gott veður væri á fyrst-
nefndum degi héldist það fram
til höfuðdags.. Hann kváð ferða-
mannastraum á Látrabjarg nú
vera að hefjast, enda ekki fyrr,
sem Þingmannaheiðin telst al-
mennilega opin.
í Miðfirði segir Benedikt Guð-
mundsson á Staðarbakka, að
sláttqr sé hafinn á nokkrum
bæjum, en ekki sé það almennt
þar um sveitir. Nokkrir bændur
hafi byrjað fyrir helgi og aðrir
séu um það bil að hefja slátt.
Tún eru sums staðar slæm og
sæmileg, þar sem ekki var beitt
í vor. Sprettu kvað hann sæmi-
lega eftir ástæðum, en þó bæri
sums staðar á kali í túnum. Nú
munu bændur nyrðra hefja rún-
ingu sauðfjár á næstunni, og
kvað Benedikt verða ódrjúgt með
slátt á meðan.
Björn Jónsson, Bæ, Höfða-
Framh. á bls. 2
Síldveiðiflotdnn hélt sig aðal-
lega 100 til 150 sjómílur ASA af
Dalatanga. >
Veiðiveður var ágætt flesta
dagana, en afli í lakara lagi.
Um síidarsöltun vikunnar
sem leið er ekki vitað með vissu
og er hún því ekki með í þessu
yfirliti. Annar afli sem barst á
land í vikunni nam 28.049 tonn-
um og fór allur í bræðslu.
í aflaskýrslu síðustu viku
vantaði 291 tonn sem fór í
bræðslu-á Seyðisfirði og 47 tonn
á Breiðdalsvík.
Heildarmagn komið á land á
miðnætti s.l. laugardag var
123.64í tonn og skiptist þannig:
Framhald á bls. 3
Drengurinn var þegar fluttur
í sjúkrahúsið hér, en síðar um
kvöldið var hann sendur með
flugvél ttt Reykjavíkur og lagður
inn í sjúkrahús þar.
— Sv. P.
2 daga verk-
fall mjólkur-
fræðinga
MJÓLKURFRÆÐINGAR hafa
boðað tveggja daga verkfall 12.
og 13. júli n.k. hjá Mjólkursam-
sölunni í Reykjavík og Mjólkur-
búi Flóamanna. Kjaradeila mjólk
urfræðinga er í höndum sátta-
semjara.
56 hákarlar og
83000 tunmir
síldar
Vopnafirði, 4. júlí.
HÁKARLAVEIÐI hefur verið
stunduð héðan af f jórum, stund-
um fimm útgerðum í vor. Alls
hafa veiðzt 56 hákarlar, svo til
allir fullorðnir. Áætlað verð
fyrir hvern hákarl er 10—12
þúsund krónur stykkið.
Verksmiðjan hefur tekið á
móti 83000 tunnum síldar. Sölt-
un er ekki hafin, en stöðvarnar
tilbúnar.
Saltskip er hér að losa í dag,
en tómtunnur eru að mestu
ókomnar enn. — Ragnar.
Samningar á Austurlandi
AÐFARANÓTT sunnudags tók-
ust kjarasamningar miili atvinnu
rekenda og fulltrúa 10 verka-
lýðsfélaga á Austurlandi um
kjarasamndnga, sem í öllum meg
inatriðum eru byggðir að samn-
ingum þeim er verkalýðsfélögin
á Norðurlandi gerðu fyrir
nokkru en aðalatriði þeirra er
3,5% grunnkaupshækkun. Sam-
þykki félagsfunda var áskilið og
verða þeir væntanlega haldnir
næstu daga. Eins og Mbl. skýrði
frá s.l. sunnudag voru nýir kjara
samningar gerðir á Norðfirði s.l.
laugardag. Ekki er blaðinu enn
kunnugt um efni þeirra en þar
mun vera um að ræða auk grunn
kaupshækkunar, aldurshækkanir
og taxtatilfærslur.
Skemmdarvorgar velta
bíl út af Þrengslavegi
UM eittleytið í fyrrinótt ók
maður suður á Þrengslavegi en
er hann átti skammt eftir að
vegamótunum í Svínahrauni
sprakk hjólbarði á bíl hans, sem
er af gerðinni NSU Prinz.
Þar sem maðurinn hafði ekki
varahjólbarða varð hann að
skidja bíl sinn eftir á vegarbrún-
inni.
í gærdag, er maðurinn ætlaði
að sækja bílinn, kom í ljós að
búið var að velta bílnum út
fyrir veginn og hafði hann far-
ið a.m.k. eina veltu.
Bíllinn er mjög mikið skemmd
ur og h&fur eigandinn orðið fyrir
tilfinnanlegu tjóni.
Það eru tilmæli rannsóknar-
lögreglunnar í Reykjavík, að veg
farendur eða aðrir, sem vita um
atburð þennan, gefi sig fram
hið fyrsta, svo unnt verði að
hafa upp á þeim, sem þarna svöd-
uðu skemmdarfýsn sinni.